Andvarp yfir frumvarpi

frumvarpÞótt að það sé broslegt að sjá þingmenn Framsóknarflokksins heykja sér yfir því eins og hanar á haug, að þeir skyldu verða fyrstir til að setja fram  þinglagafrumvarp  um stjórnlagaþing, hugmynd sem er í þessu sambandi (önnur frumvörp með sama heiti hafa tvisvar verið flutt áður) skilgetið afkvæmi búsáhaldabyltingarinnar, verður að viðurkenna að frumvarpið er skref í rétta átt.

Eftir að hafa lesið frumvarpið og fundið í því lítið til foráttu, nema e.t.v. að of skammur tími er fyrir stjórnlagaþingið (sex mánuðir) að vinna þetta mikilvæga mál að fullu, þá er ég bjartsýnn um, að verði það samþykkt, sé hægt að haka við alla vega eina kröfu þjóðarinnar sem ný ríkisstjórn hefur orðið við.

Til stjórnlagaþings á, samkvæmt frumvarpinu, að kjósa í beinni og óflokkspólitískum kosningum. Það væri mikil gæfa fyrir landið ef sá háttur yrði tekinn upp við allar kosningar og að í nýrri stjórnaskrá yrði ekki gert ráð fyrir framboðum flokka og þau bönnuð.

Þetta mundi leysa mörg vandmál þjóðarinnar á einu bretti. Komið væri í veg fyrir að fámennar valdaklíkur geti yfirtekið stjórn landsins í krafti stjórnmálflokka eins og raunin hefur verið nánast frá upphafi lýðveldisins,

þetta mundi útrýma svokölluðum meiri og minnihluta stjórnarháttum þar sem hluti þingheims (minnihluti) er útilokaður frá virkri þátttöku í stjórnarstarfinu, 

Ísland fyrir allaog slíkt fyrirkomulag mundi að lokum tryggja að þeir sem á annað borð yrðu kosnir til alþingis, gætu kosið samkvæmt samvisku sinni, eins og reyndar gert er ráð fyrir í ríkjandi stjórnarskrá, þótt það ákvæði sé að engu haft í krafti núríkjandi flokkavalds.

Ef að stjórnlagþingið ákveður að banna flokkspólitísk framboð, munu stjórnmálaflokkarnir verða að áhugaklúbbum um stjórnmál sem geta sent frá sér tillögur til  þingsins alls til að fjalla um þær eða að þeir munu leysast upp.

Þá yrði Þingið  með tímanum að alvöru samráðsstofnun jafnframt því að vera löggjafarvald, þar sem hugmyndir yrðu ræddar óeigingjarnt á grundvelli manngilda og hagnýti, frekar en pólitískra hagsmuna og flokkadrátta.

Nýtt  frumvarp forsætisráðherra um persónukjör sem rætt er nú í öllum þingflokkum gengur allt of skammt og er á engan hátt í samræmi við kröfurnar um útilokun flokkræðisins. Það er aðeins til þess fallið að slá ryki í augu fólks.


Trilljón álfar út úr hól

trilljón álfarHvað er trilljón há tala? Hvernig lítur trilljón af einhverju út, t.d. af álfum út úr hól? ( Sjá mynd)

Íslendingar hafa löngum getað státað sig af því að hér á landi skuli hlutfall þeirra sem geta lesið og skrifað verið með því alhæsta sem gerist í heiminum. En það er eitt að geta kveðið að og dregið til stafs og annað að henda reiður á tölum, sérstaklega nú í seinni tíð þegar að flestar tölur tengdar fréttum, virðast óskiljanlega háar.

Hagfræðingar og stjórnmálamenn leika sér að því að tala í milljónum, milljörðum, biljónum og jafnvel trilljónum eins og að þær tölur eigi að hafa einhverja þýðingu fyrir meðaljóninn og/eða skírskotun til hans reynsluheims. Svo er ekki í flestum tilfellum. 

Til að auka enn á ruglinginn er ekki notast við sömu orð um sömu tölur beggja megin Atlantsála því að í Bandaríkjunum er milljarður t.d. nefndur billjón.

Milljón (skammstafað sem mljó) er tölunafnorð sem er heiti yfir stóra tölu sem má einnig tákna sem 1.000.000, sem 106, eða sem þúsund þúsund.

Milljarður (skammstafað sem mlja) er heiti yfir stóra tölu sem má einnig tákna sem 1.000.000.000, sem 109, eða sem þúsund milljónir.

Í bandarískri ensku er milljarður oftast nefndur billion, sem er einn þúsundasti af billjón.

 Billjón er heiti yfir stóra tölu, milljón milljónir, sem má einnig tákna sem 1.000.000.000.000, sem 1012, eða sem þúsund milljarðar.

Í bandarískri ensku þýðir billion milljarður, sem er einn þúsundasti út billjón.

Billjarður er heiti yfir stóra tölu sem má einnig tákna sem 1.000.000.000.000.000, sem 1015, eða sem þúsund billjónir.

Trilljón er heiti yfir stóra tölu sem má einnig tákna sem 1.000.000.000.000.000.000, sem 1018, eða sem þúsund billjarðar.


Að hýða norn

Nornin hýddÞað má vel vera að nornarhýðingin sem Eva Hauks og félagar stóðu fyrir hafi vakið fólk til umhugsunar um að þegar allt kemur til alls, elski fólk vöndinn á Íslandi sem og annarsstaðar. Þótt mótmælin hafi verið sögð til að vekja athygli á launung ákvæða í samningi Íslands við erlenda peningasjóði, beina þau einnig athyglinni að því að alþýða fólks sem heldur sig frýja og frjálsa þegna, er enn í þrælsfjötrum.

Rússneska orðið fyrir vinnu er rabota og er dregið af orðinu rab sem merkir þræll. Þar í landi þróuðu stjórnvöld á tímabili, í krafti flokksræðis, skrumskældustu mynd lýðræðis sem um getur.  

Æðsti draumur neysluþjóðfélagsins er í raun, fyrir hvern og einn, að geta lifað eins og þrælsherra þar sem róbótar (vélmenni) vinna alla vinnu svo það sjálft geti verið frjálst.  

Samt hefur sagan sýnt að fólk er jafnframt hrætt við að lifa frjálst og utan verndar og umsjár einhvers sem er voldugri en það sjálft.

Það sem í dag er kallað nútíma vestrænt "lýðræði" er aðeins þunnt gervi gamla lénsherraskipulagsins þar sem pólitískir flokkar fara með völdin í stað óðalsbænda og lénsherra. Alþýðan er jafn bundin í þrælsklafa þeirra og þess stjórnfarslega skipulags sem þeir viðhalda og þrælar "fortíðarinnar" voru eigendum sínum.

Það er ástæðan fyrir því að allar hugmyndir um beint lýðræði, þar sem kosið yrði til löggjafarþings án flokksframboðs eru ætíð slegnar umræðulaust út af borðinu. Jafnvel þótt íslenska stjórnarskráin geri ráð fyrir því að þingheimur kjósi eftir samvisku sinni, er búið að bjaga kerfið á þann hátt að þingmönnum er haldið eins og þrælum undir aga flokkanna. Allir tilburðir til að sýna sjálfstæði eru túlkaðir sem óhlýðni eða jafnvel svik við flokkinn og foringja hans.RomanActor

"Það aumasta sem til er, er að þurfa reiða sig á vilja annarra" sagði sýrlenski þrællinn Publilíus sem á sínum tíma skemmti forn-Rómverjum með trúðsleikjum og skopi. Mér sýnast orð hans enn í fullu gildi og nornarhýðingin á Lækjartorgi túlkaði þau ágætlega. 


"Ekki koma inn í áruna mína"

RagnheiðurÞað vakti verðskuldaða athygli á dögunum þegar að  Ragnheiður Ólafsdóttir  vara-þingkona sté í pontu á Alþingi og skammaði samkunduna fyrir að eyða of miklum tíma í bull og kjaftæði.

Í viðtali sem ég sá við hana, kom í ljós að hún segist sjá árur, einskonar útgeislun frá fólki sem myndar allt að sex metra víðan hjúp yfir og í kring um viðkomandi. Það sem meira var, er að Ragnheiður segist geta lesið út úr þessum geislum, lunderni og skap árueigandans og af öllum þingmönnum hafi Forsætisráðsfrúin Jóhanna Sigurðardóttir, fögrustu áruna.

johanna1Orð Ragnheiðar um stærð árunnar, minntu mig á atvik sem átti sér stað fyrir nokkrum árum þegar ég kynntist lítillega manni sem var haldin geðhvarfasýki á háu stigi. Viðkvæði hans var ætíð þegar þú nálgaðist hann; "Ekki koma inn í áruna mína".

Þeir sem dregið hafa árutilvist í efa benda einmitt á að hún geti verið afleiðing brenglaðrar heilastarfsemi.

Nú er það nokkuð víst að fólk hefur sammælst um að sumir hafi meiri og betri "útgeislun" en aðrir en þá er ekki endilega verið að meina það sem kallað er ára. Góð útgeislun er í þessu sambandi sett í samhengi við "góða viðveru" viðkomandi og/eða bjarta og hrífandi persónutöfra sem virðast jafnvel skila sér á ljósmyndum.Ára

Ára er samkvæmt almennri skilgreiningu notað yfir paranormal fyrirbæri sem reyndar er vel þekkt úr trúarbrögðunum. Geislabaugar og skínandi ásjónur eru einmitt sögð eitt af einkennum helgra persóna og sögur af slíku að finna viðast hvar á jarðarkringlunni.

Frægur er misskilningurinn eða misþýðingin á hebreska orðin "karnu panav" קרנו פניו sem notuð eru til að lýsa skínandi ásjónu Móse í GT og þýðir "lýsandi ásjóna". Í miðaldar þýðingum Biblíunnar er orðið þýtt "cornuta" sem þýðir "hyrndur" og það varð til þess að t.d. Michelangelo sýnir Moses með horn í stað geislandi ásjónu.

Hyrndur Moses 1

Þegar að nýaldar fræðin flóðu yfir heimsbyggðina upp úr 1970 varð árusýn og árutúlkun afar vinsæl tómstundaiðja og jafnvel atvinnugrein, enda margir sem töldu sig geta séð ljósagang í kringum fólk. Oft var í því sambandi vísað til svokallaðrar Kirlian ljósmyndatækni sem sögð var sanna að árur væru raunverulegar. 

Semyon Davidovich Kirlian  var rússneskur vísindamaður sem tókst árið 1939 að taka myndir (samt án myndavélar) af örfínni útgeislun frá lífrænum hlutum eins og laufblöðum, með aðstoð hátíðni hraðals.  Þegar að Kirlian lét þau orð falla að þessi útgeislun væri sambærileg við áru manna urðu niðurstöður hans fljótlega afar umdeildar meðal raunvísinda-manna sem á annað borð gerðu sér far um að fjalla um þær.kirlianleaf

Þeir sem fjallað hafa um áruna (og þeir eru ófáir) skipta henni oft í mismunandi tegundir. Talað er um ljósvaka áru (etheric), megin áru og andlega áru. Hver litur í árunni er sagður hafa sína heilsufræðilega merkingu og jafnframt gefa til kynna andlegt ástand viðkomandi. Áran er ekki raunverulegt ljós heldur skynhrif sem augað getur framkallað umfram venjulega sjón.

Árufræðin hafa í dag blandast ýmsum öðrum gervivísindum og paranormal fyrirbrigðum eins og orkustöðvafræðum, nálarstungum, kristalfræðum og heilunarkenningum.

Allar tilraunir til að sanna árusýnir undir vísindalegum aðstæðum, hafa hingað til ekki þótt sannfærandi.


Skautar, skíðasleðar og paradís

Þegar nýbyggingar fóru að rísa ört í Keflavík upp úr 1960 varð bærinn frægur fyrir alla drullupollana sem mynduðust við jarðrask og framkvæmdir í bænum. Þegar ég var átta ára, árið 1962, gekk í garð kaldasti vetur sem ég hef upplifað og allir pollar í bænum botnfrusu og héldust frosnir í margar vikur. Þetta var veturinn sem ég fór í fyrsta sinn á skauta.

natoTil að byrja með stalst ég á skauta eldri systur minnar, en sá fljótlega að það mundi ekki ganga til lengdar, hún alveg brjáluð yfir því að ég "skældi" skautana og svo voru þeir líka hvítir.

Eftir talvert þref í mömmu, fékk ég loks svarta skauta, (notaða að sjálfsögðu) og þá hófust æfingarnar fyrir alvöru. Upp úr flestum stærri pollunum stóðu steinsnibbur sem gerðu alvöru skautamennsku á þeim erfiða.

Þá var líklega ekki byrjað að úða vatni á fótboltavöllinn eins og gert var í seinni tíð svo ekki var annað til ráða enn að paufast upp "í heiði";  fram hjá vatnstönkunum báðum sem stóðu fyrir ofan bæinn, framhjá brennustæðunum okkar þar sem við hlóðum veglega kesti fyrir hvert á gamlárskvöld og áfram í vesturátt alla leið upp að "Vötnum." Það sem við kölluðum "Vötn" voru reyndar tvær litlar tjarnir skammt ofan við Keflavíkurkaupstað og var önnur þeirra, sú stærri,  innan flugvallargirðingarinnar og því á yfirráðasvæði Kanans.

Í daglegu tali var greint á milli tjarnanna og  þá talað um Litlu og Stóru Vötn. Rétt nafn þessara tjarna ku vera Róselsvötn og eru þau kennd við sel sem í fyrndinni stóð þarna í grenndinni.

Það var auðvitað mest spennandi að skauta á "Stóru Vötnum", því þá var maður líka að brjóta lögin með því að fara inn fyrir girðinguna. Á góðum degi eftir skóla var saman komin þarna tjörnunum þorri krakka bæjarins á skautum og skíðasleðum. (Þotur þekktust ekki) Sumir áttu hvorugt en drösluðu upp eftir með sér pappakössum sem þeir rifu niður í ræmur og skelltu undir magann um leið og þeir skutluðu sér á svellið eftir langt tilhlaup.


Skíðasleðarnir virkuðu illa í mjúkum snjó, en á svelli eða hjarni voru þeir frábærir. Það var líka kostur við þá að það mátti setja á þá yngri bróður eða systur, (sem maður var oftast neyddur til að hafa með) og koma þeim fyrir í sætinu framan á sleðanum. 

SkíðasleðiSkíðasleðar voru afar vinsælir þennan vetur, sérstaklega í skrúðgarðinum í Keflavík, sem var einn af fáum stöðum þar sem brekku var að finna í kaupstaðnum.  Skíðasleðana mátti líka tengja saman í lestar þegar brunað var niður á móti, en þá þurfti oft lítið út af bera til að allir lentu ekki í "klessu" eins og það var kallað.

Upp úr "Stóru Vötnum" stóðu tveir nokkuð stórir steinar. Þeir sem voru komnir upp á lag með að standa almennilega á skautunum, spreyttu sig á því að stökkva yfir steinanna einn af öðrum, en bilið á milli þeirra var of langt til að það væri hægt að stökkva yfir þá báða. Þrátt fyrir að það væri augljóst, gerðu margir tilraunir til þess, þar á meðal ég. 

Á svelliÉg uppskar aðeins auman skrokk, marða fótleggi og tvö göt á hausinn. Í seina skiptið fékk ég gat á hnakkann sem blæddi talsvert úr, án þess að ég yrði þess var. Því varð móðir mín þegar heim var komið löngu seinna, að þýða lambhúshettuna varlega af hausnum á mér með volgu vatni.

Eins og fyrr segir, þurfti að skríða undir flugvallargirðinguna til að komast upp að Stóru Vötnum. Þegar þangað var komið var aðeins stuttur spölur til paradísar fyrir gutta eins og mig og félaga mína. Paradís þessi var samsett úr gömlum aflóga herflugvélum og í daglegu tali nefnt "flugvélahaugarnir."

FlugvélahaugarStundum enduðu skautaferðirnar á því að það var laumast yfir á hauganna og gramsað þar í "kanaflugvéladóti" fram í myrkur. Af og til óku fram hjá flugvélunum gráir pallbílar með gulum sírennuljósum sem voru okkur algjör nýlunda. Þá var nauðsynlegt fyrir þann sem settur hafði verið "á vaktina" að gefa merki svo allir gætu falið sig á meðan bílinn ók framhjá, (líklega á leið til Rockville.)


Gotham

Gothham hæðÍ Suður-Nottingham-skýri á mið Englandi er að finna lítið þorp. Í því eru fimm krár, ein kjötbúð, ein sjoppa sem verslar með sígarettur og dagblöð, fisk og flögu búð, kirkja, bókasafn og nokkur íbúðarhús.

Hvaða samband gæti verið á milli þessa hversdagslega og að mestu ókunna þorps og einnar skuggalegustu stórborgar sem mannshugurinn hefur skapað? Svarið felst í nafninu; GOTHAM.

Fyrirmynd Gotham-borgar, þar sem geðveiku illmennin; Gátumeistarinn, Jókerinn og Mörgæsamanni etja kappi við Leðurblökumanninn, var upprunalega New York. 

gotham-city-dark-knightBill Finger höfundur og skapari Batman hasarhetjunnar vildi ekki nota eiginlegt nafn neinar borgar og hugleiddi um sinn að kalla borgina annað hvort Civic City,  Capital City eða Coast City. Þegar hann rakst á auglýsingu í símskrá New York borgar frá skartgripasala sem kallaði verslun sína 'Gotham Jewelers' ákvað hann að Gotham skyldi verða heiti borgarinnar. Það nafn rímar ágætlega við uppruna þeirra sem grundvölluðu borgina, en það voru samkvæmt sögunni, Norðmenn.

Nafn skargripasalans á versluninni er fengin úr Salmangundi papers (útg. 1807), bók eftir bandaríska sagnfræðinginn; Irving Washington.  Washington var vel fróður um sögu Bretlands og kallar  Manhattan oft "hina fornu borg Gotham” eða “hina undur-elskandi borg, Gotham."

En hvað var það sem fékk Washington til að nefna New York þessu nafni. Þrátt fyrir að Gotham á Englandi sé ekki stórt þorp, er það samt þekkt af endemum í sögu landsins. Þorpið er nefnilega sagt heimkynni kjána eða jafnvel brjálæðinga eins og sagðir eru búa í Gotham-borg. 

GaukshreiðriðSögur af íbúunum sem raka mánann, velta ostum á undan sér og fara á sjó í tréskálum, hafa loðað við þorpið frá því snemma á þrettándu öld. Það er haft fyrir satt að Jón konungur af Englandi, sá sami og Hrói nokkur Höttur eldaði grátt silfur við, eigi þátt í  því að íbúar Gotham hafa um aldir verið taldir tunglsjúkir kjánar.

Árið 1540 var gefin út bæklingur sem seldur var af farandsölum vítt og breytt um England og kallaður var á frummálinu 'The Merry Tales of the Mad Men of Gotham'.

Í ritinu var að finna smásögur og skrýtlur af íbúum Gotham sem minna okkur Íslendinga hvað helst á heimskupör Bakkabræðra. 

Í einni þeirra; "Sagan af góða húsbóndanum" segir frá manni sem vildi hlífa hesti sínum við byrðunum með því að sitja sjálfur hestinn og hafa kornsekkinn á eigin herðum.

Önnur segir frá "Gaukshreiðrinu í Gotham". Í henni ákváðu þorpsbúar að byggja vegg utan um tré sem gaukur hafði gert sér hreiður í með það fyrir augum að halda gauknum í þorpinu. Þegar að gaukurinn flaug af hreiðrinu, beint upp í loftið og slapp þar með, skömmuðu þorpsbúar hvern annan fyrir að hafa ekki hlaðið garðinn nægilega háan.

Sagan af "Drekkingu álsins" segir frá því þegar íbúarnir gerðu sitt besta til að drekkja ál í lækjarsprænu, vegna þess að þeir voru sannfærðir um að állinn væri að éta fyrir þeim allan fiskinn.

Til auka á háðið var seinna farið að kalla mannfólkið í Gotham "vitra" fólkið frekar en "galna" fólkið eða eins og segir í vísunni, hér í lauslegri þýðingu;

Þrír vitrir menn frá Gotham,

fóru á sjó í skál,

ef skálin hefði verið sterkari,

væri saga þeirra lengri og merkari.

Jón KonungurFrægasta af öllum sögum um íbúa Gotham er sagan af því hvernig þeir fengu á sig orð fyrir að vera heimskir og komum við þar að hlut Jóns Konungs, hálfbróður Ríkharðs Ljónshjarta. 

Jón reið keikur um héruð með riddurum sínum og fór sínu fram hvar hann vildi. Hver sú leið sem hann valdi varð um leið og hann hafði farið hana alfaraleið og þjóðvegur.

Þegar hann tók stefnuna á Gotham sáu þorpsbúar í hendi sér að þeim yrði gert skylt að halda við slóðanum sem kóngur reið og gera hann að þjóðvegi. Það vildu þeir ekki, enda bæði dýrt og mannfrekt. 

Þeir tóku því til ráðs að þykjast allir tunglsúkir  (geðveikir) og kepptust við að  mála græn epli rauð og ausa vatni í botnlausa tunnu, þegar að framverðir konungs riðu inn í  þorpið.

Á tólftu öld var trú manna að slík sýki væri smitandi og þess vegna ákvað konungur þegar hann heyrði af háttarlagi þorpsbúa að halda í aðra átt og að lokum var þjóðvegurinn lagður í löngum sveig í kringum þorpið.


Líf án lima

nick_vujicic_babyHann heitir Nick Vujicic og var fæddur í Melbourne í  Ástralíu 1982. Hann er fót og handleggjalaus og þjáist af svo kölluðum Tetra-amelia sjúkdómi.

Líf hans hefur verið ein þrautaganga. til að byrja með fékk ekki að ganga í venjulega skóla þar sem lögin í Ástralíu gera ráð fyrir að þú sért ófatlaður, jafnvel þótt þú hafir óskerta vitsmuni.

Þessum lögum var svo breytt og Nick fékk að ganga í skóla þar sem hann lærði að skrifa með því að nota tvær tær á litlum fæti sem grær út úr vinstri hlið líkama hans. Hann lærði einnig að nota tölvu sem hann stórnar með hæl og tám.

Hann þurfti að þola einelti í skóla og varð af því mjög þunglyndur og um átta ára aldurinn byrjaði hann að íhuga sjálfsvíg.

Fjölskylda Nick er mjög kristin og Nick bað Guð heitt og innilega að láta sér vaxa limi. Þegar það gerðist ekki varð hinum ljóst að honum var ætlað annað hlutskipti.

NIckÞegar hann varð sautján ára byrjaði hann að halda smá ræður í bænahópnum sem hann stundaði og brátt barst hróður hans sem ræðumanns og predikara víðar. Í dag stjórnar hann sjálfstyrkingarnámskeiðum og flytur fyrirlestra víða um heim.

Hann stofnaði samtök sem heita Líf án lima sem hefur að markmiði að veita limalausu fólki innblástur og uppörvun.

En sjón er sögu ríkari.

Á netinu er að finna nokkur myndskeið með Nick og þar á meðal þetta sem ég mæli með að fólk horfi á enda tekur það ekki nema eina og hálfa mínútu.

Þá sýnir myndbandið hér að neðan, hvernig Nick ber sig að við að hjálpa sér sjálfur.

 


Kynlíf í kreppu

RómantíkÁ Valentínusardeginum 14. febrúar , þar sem á annað borð er haldið upp á hann, býðst tækifæri til að yfirlýsa í orði og á borði, ást sína og girnd.

Spurningin er hvort eitthvað dragi úr rómantíkinni á krepputímum eins og nú ríkja víðast hvar eða hvort, þvert á móti, kreppan verði til þess að elskendur flýi frekar stressið og áhyggjurnar í faðm hvors annars. 

Prófessor Helen Fisher, frá Rutgers Hásóla, er þeirrar skoðunar að stressið í tengslum við peningaáhyggjur og atvinnuleysi örvi framleiðslu dópamíns í heilanum, en dópamín er einmitt mikilvægt efni þegar kemur að rómantík og ástleitni.

Hún bendir á að í Nóvember síðast liðnum þegar að heimskreppan skall á hafi samkvæmt breskum könnunum, kynlíf verið vinsælasta afþreyingin og stefnumóta vefsíður hafi sýnt allt að 20% aukningu á notkun síðanna.

Þessu mótmælir kynfræðingurinn Denise Knowles, sem fullyrðir að "á efnahagslegum óvissutímum verði fólk mun örvæntingarfyllra - fólk sé á  höttunum eftir nýju starfi eða leggi mun harðar að sér í vinnunni til að koma á móts við atvinnuleysi maka síns. Í lok dags eru bæði líklegri til að huga minna að kynlífi en ella. Aukin kvíði og verri sjálfsmynd eyðileggur ánægjuna af kynlífinu."

Valetínusardagurinn

215px-St_ValentineÍ kaþólskum sið er fjöldi dýrlinga sem nefndir eru Valentínus. Tveggja er minnst þann 14. febrúar.

Annar var biskup frá borginni Terni, og eitt af táknum hans er kráka, sem vísaði fylgjendum hans til þess reits sem hann vildi láta grafa sig í eftir að hann hafði verið afhöfðaður í Róm árið 270.

Hinn var prestur eða læknir sem ákallaður var gegn flogaveiki, vegna þess að hann læknaði ungling sem þjáðist af slíkum köstum, en leið sjálfur píslarvættisdauða árið 269 þá Kládíus keisari var við völd í Róm.

Tákn hans eru sverð vegna þess að hann var deyddur og  sól, vegna þess að sagt er að hann hafi gefið blindri stúlku sýn og sú stúlka hafi verið dóttir fangavarðarins sem gætti hans þá hann beið dauða síns í varðhaldi.

FebruataHvorugur þessara dýrlinga er ábyrgur á neinn hátt fyrir tilhugalífsþönkum og rómantík þeirri sem nú fylgir Valentínusardeginum.

Verið getur að hér sé um að ræða arf frá heiðinni rómanskri vetrar-hátíð sem fram fór um miðjan febrúar og kölluð var Lúberkalía.

Hún var haldin til heiðurs gyðjunni Febrúötu Júnó. Meðan að á henni stóð drógu piltar úr skjóðu nöfn ógiftra stúlkna.

Sagt var einnig að fuglar veldu sér maka á þessum degi. Þá var unglingspiltum seinna gefin miði með nafni stúlkna sem þeim var ætlað að gera hosur sínar grænar fyrir og skildu kallast þeirra Valentínur.

Sankti Francis de Sales reyndi að árangurslaust að bæta þennan sið með því að leggja til að á miðana yrði sett nafn dýrlinga sem drengirnir skildi síðan tigna í stað stúlkna.


"Góð hugmynd að eignast barn" segir 13 ára faðir

13 ára faðirÞegar börn eignast börn, er mál málanna hér í Bretlandi í dag. Alfie Patten er þrettán ára og kærastan hans, Chantelle Steadman er fimmtán ára. Í síðustu viku urðu þau foreldrar. Litla stúlkan þeirra heitir  Maisie Roxanne.

Alfie sem ekki hefur hugmynd um hvað bleyjur kosta en álítur að þær hljóti að vera dýrar, sagði blaðamönnum að honum hefðu fundist það "góð hugmynd að eignast barn."

"Ég var ekkert að pæla í því hvort við hefðum efni á því.

 Ég fæ ekki einu sinni vasapeninga.

Pabbi gefur mér stunum 10 pund. Þegar að mamma frétti af þessu hélt ég að það yrðu vandræði.

Við vildum eiga barnið en höfðum áhyggjur af því hvernig  fólk mundi bregðast við." 

Alfie er ekki hár í loftinu eða 1.25 m. Hann Svaf hjá og barnaði  Chantelle þegar hann var enn aðeins tólf ára.

Kristnir hópar sem leggjast gegn fóstureyðingu hafa borið lof á hugrekki barnanna við að ákveða að eignast barnið.

Mál Alfie og Chantelle hafa enn á aftur vakið athygli á þeirri staðreynd að foreldrar á táningsaldri eru miklu fleiri í Bretalandi heldur en öðrum vestrænum löndum.

 

Fréttin í SUN


Stjáni Blái

MarhnúturAð liggja á maganum á endanum á stóru-bryggju við að húkka smáufsa og beita fyrir kola sem stundum var svo bara marhnútur, var iðja sem mér og félögum mínum leiddist ekki, jafnvel þótt það færi stundum miklu meiri tími í að greiða út girninu og festa við það sökkur og öngla en í veiðiskapinn sjálfan. Helvítis Marhnúturinn var viðsjárverður og erfitt að losa hann af önglinum án þess að stinga sig og ef það gerðist var eina ráðiðað pissa á lúkuna á sér, eftir að maður hafði skyrpt upp í Marhnútinn og hent honum út í aftur.

Sjávarseltan í bland við hráolíu og tjöru, er svo samofin  minningunum um hampkaðla og grænar glernetakúlur, að þegar ég sé slíka hluti á söfnum í dag, finn ég jafnframt lyktina af gömlu Keflavík.   Að alast upp við sjávarsíðuna í  bæ sem hefur sitt viðurværi að mestu af sjónum, var hlutskipti mitt líkt og þúsunda íslenskra drengja og stúlkna á sjöunda áratugnum.  Eins og hafragrauturinn sem ég gleypti í mig á morgnanna rann greitt niðrí magann á mér áður en hlaupið var af stað, runnu sögurnar af sægörpum og fræknum sjómönnum inn í hausinn á mér. Í Keflavík  reis hæst yfir alla þá kappa með ægishjálm, Stjáni Blái og þeir voru ófáir strákarnir sem héldu því ótrauðir fram að þeir væru náskyldir honum. Stjáni Blái hét réttu nafni Kristján Sveinsson og var ættaður úr Keflavík en sótti mest sjóinn frá Vogum á Vatnsleysuströnd og úr Höfnum.

Úr KeflavíkurhöfnÞrátt fyrir að Stjáni Blái væri talin vera fremsta hetja hafsins stóð mér alltaf ógn af honum og kom þar Þrennt til. Það þótti tilhlýðilegt af stæltum sjómönnum sem vildu gantast við börn að gefa þeim selbita. Ég eins og aðrir var oft að hnoðast um borð í bátum öllum þar til óþurftar og fékk því oft að kenna á þessu græskulausa en oft ansi sársaukafulla gríni sjómannanna. Einhvern veginn setti ég  selbitana í samband við Stjána Bláa. Annað var að ef maður reyndi að slást við þessa kalla tóku þeir á manni tak sem kallað er steinbítstak. Þetta tak setti ég einnig í samband við Stjána.  Hið þriðja var að þegar ég heyrði fyrst ljóð Arnars Arnarssonar um Stjána Bláa, þótti mér skelfilegast þegar hann "strengir klóna". Þessi skelfilegi kraftur sem bjó í höndum og fingrum Stjána Bláa, var svo yfirþyrmandi að hann varð að einkennilegri blöndu af hetju og ótukt í huga mínum.  - Þegar svo að einhver skaut því að mér að líklega væri hinn frægi Stapadraugur, sjálfur Stjáni Blái afturgenginn, þótti mér það afar sennilegt. Ekkert gat verið eins hræðilegt og sjórekinn Stjáni Blái í aftursætinu á bílnum þínum í niðamyrkri þar sem hann strekkti klóna og undirbýr að gefa þér snarpann selbita eða taka þig aftanfrá blýföstu steinsbítstaki.

Þegar ég rakst á fyrir skömmu á vef Bókasafns Reykjanesbæjar, frásagnarbút af Stjána Bláa, sem ég hafði ekki lesið áður, sá ég að margt af því sem ég hafði einhvern veginn fengið á tilfinninguna um Stjána Bláa sem drengur, var í raun sannleikanum samkvæmt;

Kæmist Stjáni í krappan dans,
kostir birtust fullhugans,
betri þóttu handtök hans
heldur en nokkurs annars manns.

Mælti Örn Arnarson skáld í kvæði sínu um Stjána bláa.

Hann var frekar hár maður, grannur. Föt hans voru þröng og nærskorin, úr bláu vinnufataefni, en alltaf hrein og vel bætt.

Kirkjuvogskirkja HafnirÞegar maríumessur voru eða stórrumbudagar kom Stjáni oft að Kotvogi. Hann var dulur og fár við fullorðna en með afbrigðum orðheppinn maður. Hann hafði gaman af krökkum og byrjaði venjulega með því að gefa þeim selbita; hann sagðist gera það til þess að vita hvort heilsan væri góð hjá þeim og áður en varði var hann búinn að hleypa galsa í hópinn með sinni rólegu glettni. Ef strákar voru orðnir svo stálpaðir að þeir voru farnir að róa, gekk Stjáni oft að þeim, tók í handlegg þeirra með þumalfingri og vísifingri og kleip þá, svo að hann virtist ætla að læsa hold frá beini og þeir hljóðuðu. Þá mælti Stjáni: "Ég hélt að þú værir svo stæltur af árinni, lagsi, að puttarnir á mér hrykkju af vöðvunum á þér en það er spauglaust með meyjarholdin."


Öðru máli var að gegna, ef Stjáni var með víni. Þá talaði hann lítt við ungu kynslóðina, en sneri þá máli sínu aðallega að þeim karlmönnum sem voru gustmiklir og harðskeyttir og var þá ekki að sökum að spyrja. En þá var líka eins og sjómaðurinn kæmi upp í honum. Tök hans voru bæði frumleg og fantaleg, stundum líkust því sem hann væri að eiga við óþekka fiska við borðstokkinn. Steinbítstak var konunglegt að hans dómi.
Og Stjáni var tvennt í senn, hann var handfljótur, handviss og handsterkur. Var það hvort tveggja í senn grátt gaman og þó hálf broslegt að sjá aðfarir hans.

Dag einn, er frátök voru, kom Stjáni niður að Kotvogi, var það um nónbilið. Þann sama dag hafði einhver raki borizt suður í byggðina frá Keflavík og voru sumir sjómenn hreifir. Stjáni fór upp á baðstofuloft, dvaldi þar stutta stund hjá fólkinu, ósköp rólegur og gekk síðan niður og út. þegar Stjáni kom út á hlað voru þar nokkrir sjómenn fyrir, þar á meðal einn norðan úr Fljótum, stór maður og myndarlegur. Einhver lyfting mun hafa verið komin í hann því að hann fór óðara að særa Stjána og valdi honum ýmsan skáskeyting.


Stjáni sneri sér þá að honum og áður en auga yrði á fest hafði hann rennt vinstra þumalfingri inn um hægra munnvik mannsins, utan við tanngarðinn og gripið á móti með fingrunum aftan við kjálkabarðið, snúið manninn niður og ætlaði nú að ganga svo frá honum að hann yrði rólegur fyrst um sinn. Gengu þá sjómenn á milli og báðu Fljótamanninum griða; var það seinsótt, en tókst þó. Gárungarnir sögðu að sjómaðurinn hefði ekki samkjaftað til hægra munnviksins eftir þetta.

Þetta samspil Stjána og sjómannsins flaug um alla sveitina og því var það síðar á þessari vertíð að eftirfarandi atvik kom fyrir er nokkrum sjómönnum lenti saman á landlegudegi. Einn þeirra var hávaðamaður við vín og órór og vildi nú stæla meistarann og nota sama tak. En nú var það bara ekki höndin á Stjána sem var með í leiknum og því fór sem fór; maðurinn fór með þumalfingurinn inn á milli jaxlanna en mótstöðumaður hans lagði ómjúkt að og sleppti ekki takinu og kvaldi manninn bæði mikið og lengi svo að hann varð strax að fara til læknis eftir viðureignina. En eins og vandfarið var í föt Stjána, hvað allt tusk snerti, eins var það vonlítið að ætla sér að jafnast á við snilld hans og skilning á sjómennsku.

Svo bar til að liðið var það á vertíð að sílfiskur var farinn að ganga og menn byrjaðir með net. Allir formenn áttu þá net sín suður á Kalmanstjarnarvík, en þegar fiskigangan var sem mest og hrotan stóð sem hæst tók frá í tvo daga og allir sem til þekkja vita hve stórfiskur þolir illa að liggja í netjum án þess að skemmast.


ofeigurÁ þriðja degi var áttleysa, sjór nokkuð lagztur en þó rismikill og útsynntur og þannig að á hann mátti engin breyting koma nema til batnaðar. Allir formenn ýttu úr vör um morguninn og vitjuðu um netin. En þegar hallaði að hádegi tók sjór að aukast og hann jós í sig briminu sem kallað er. Allir formenn komu líka von bráðar og tóku sundið meðan það var sæmilegt, nema einn; hann kom ekki að sundinu fyrr en allir aðrir formenn voru lentir og höfðu sett skip sín. Kirkjuvogssund er gott sund og verður ekki hættulegt, fyrr en sjór er orðinn hroðalegur. Þegar þetta síðasta skip kom að sundinu, mátti heita, að komið væri stórveltubrim og sundið ófært, nema ef lög komu.


Formaðurinn, Magnús að nafni var góður stjórnandi, skapmikill og einbeittur. Skip hans var áttæringur, fremur lítið skip, en sjóskip ágætt; skipshöfnin var ellefu eða þrettán menn. Þegar hér var komið sögu, var allt fólkið, bæði ungt og gamalt úr þorpinu, komið niður í naustin. Á tímum neyðarinnar verður fólk í litlu sjávarþorpi að einni fjölskyldu. Allir eru sem ein hönd til hjálpar, allir þrá það sama. Og enginn, sem ekki hefir heyrt það og séð með eigin augum, getur skilið, hvílík angist og hryggð getur gripið heilt byggðarlag, þegar svona stendur á. Eins var það nú í Kirkjuvogsvörinni; grátstafir og þungur ekki heyrðist en karlmenn þeir sem stóðu uppi á Kotbogsbakkanum sáu að skipið hélt sig nokkuð utan við sundið. Var þá sjór orðinn svo mikill að skipið hvarf alveg og að því er manni fannst drukklanga stund í öldudalina, en snilldarlega var það þá varið fyrir kvikum og áföllum.


Sjómenn2Þá sáu menn líka að til formannsins var kominn Stjáni en hann reri hjá honum þessa vertíð. Og menn vissu hvílíkur snillingur hann var og hversu hann gat hafið sig yfir allan fjölda manna á svona augnablikum. Og það skal ekki orðlengt frekara að nokkuð löngu seinna kom lag á sundi sem þeir tóku og heppnaðist vel enda lögðu þarna tveir snillingar saman ráð sín. Stjáni og formaðurinn. En þegar skipið stóð á þurru, þá mælti Magnús formaður og var þá reiður til þess að bæla niðri í sér klökkvann:
"Hana, piltar, þakkið þið nú honum Kristjáni fyrir lífgjöfina í dag."

Magnús vissi hvað hann sagði. Menn sem voru með Stjána þennan dag á sjó sögðust aldrei hafa þekkt hann alúðlegri né skemmtilegri en þennan dag. Það var eins og hann yxi upp úr sjálfum sér, þegar hann horfðist í augu við háskann. Hann hefir verið einn af þeim mörgu, sem ekki lifa í sterku tjóðurbandi við þetta líf, og því ávallt búinn til að fara, en hann þurfti ekki fyrir það að verða sá listamaður, sem hann varð, á mælikvarða sjómennskunnar. Það hefir honum verið meðfætt.


Stjáni Blái eftir Erling JónssonStjáni var eins og hvert annað kuldastrá í landi, en í ríki sjómennskunnar var hann fæddur konungur, í ríkinu sem leggur svo mikið til í kjarnann í þjóðlífi okkar Íslendinga.

Erlingur Jónsson, gamli handavinnukennarinn minn gerði fagurt listaverk til minningar um Stjána Bláa og það stendur nú í Reykjanesbæ og er myndin hér til hliðar af því.

Þá að lokum læt ég hér ljóð Arnars Fylgja.

Stjáni Blái

Stjáni blái bjóst til ferðar.
Bundin skeið í lending flaut.
Sjómenn spáðu öllu illu.
Yzt á Valhúsgrunni braut.
Kólgubólginn klakabakki
kryppu upp við hafsbrún skaut.

Stjáni setti stút að vörum,
stundi létt og grönum brá,
stakk í vasann, strauk úr skeggi,
steig á skip og ýtti frá,
hjaraði stýri, strengdi klóna,
stefndi undir Skagatá.

Æsivindur lotulangur
löðri siglum hærra blés.
Söng í reipum. Sauð á keipum. Alda
Sá í grænan vegg til hlés.
Stjáni blái strengdi klóna,
stýrði fyrir Keilisnes.

Sáu þeir á Suðurnesjum
segli búinn, lítinn knörr
yfir bratta bylgjuhryggi
bruna hratt, sem flygi ör
– siglt var hratt, og siglt var mikinn –
sögðust kenna Stjána för.

Vindur hækkar. Hrönnin stækkar.
Hrímgrátt særok felur grund.
Brotsjór rís til beggja handa.
Brimi lokast vík og sund.
Stjáni blái strengdi klóna,
stýrði beint á drottins fund.

Drottinn sjálfur stóð á ströndu:
Stillist vindur! Lækki sær!
Hátt er siglt og stöðugt stjórnað.
Stýra kannt þú sonur kær.
Hörð er lundin, hraust er mundin,
hjartað gott, sem undir slær.

Heill til stranda, Stjáni blái,
stíg í land og kom til mín.
Hér er nóg að stríða og starfa.
Stundaðu sjó og drekktu vín,
kjós þér leiði, vel þér veiði.
Valin skeiðin bíður þín.

Horfi ég út á himinlána.
Hugur eygir glæsimynd:
Mér er sem ég sjái Stjána
sigla hvassan beitivind
austur af sól og suður af mána,
sýður á keipum himinlind.


(Örn Arnarson)


Dagur Rauðu handarinnar

2008_redhand_dayDagur Rauðu handarinnar er 12. febrúar er alþjóðlegur minningardagur sem settur var til að minnast og draga athygli að örlögum barna sem neydd eru til að taka þátt í hernaði sem hermenn í stríðum og vopnuðum átökum. Tilgangur dagsins er líka að kalla á aðgerðir á móti þessu athæfi og sýna stuðning við börn sem verða fyrir þessari grófu misnotkun.  

Sameinuðu þjóðirnar áætla að rúmlega 200.000 börn undir fimmtán ára að aldri séu undir vopnum í heiminum í dag. Flest þeirra tilheyra uppreisnarhópum og vígasveitum líkum þeim sem finna má í Eþíópíu, Afganistan og Burma. Meðal þeirra landa sem alræmd eru fyrir slíka misnotkun barna eru Alþýðulýðveldið Kongó, Rúanda, Úganda, Súdan, Fílbeinsströndin, Mjanmar, Filippseyjar, Kólumbía og Palestína. 

Abe_Lincoln_youngDagur Rauðu handarinnar var stofnsettur árið 2002 þegar að viðbót við mannréttindasáttmála sameinuðu þjóðanna tók gildi þann 12. febrúar það ár en hann hafði verið samþykktur af allsherjarþingi SÞ í maí árið 2000. Sem stendur hafa 92 ríki undirritað sáttmálann. Mörg alþjóasamtök beita sér fyrir afnámi barnahermennsku og þar á meðal eru UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna)  Amnesty International,  Terre des Hommes  og Alþjóðlegi Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn. 

Enska orðið yfir fótgönguliða "Infantry" er dregið af franska orðinu yfir barn. Tengining varð til vegna þess að yfirmenn vildu að fótgönguliðar þeirra væru undirgefnir og hlýddu boðum yfirmanna líkt og börn.  Börn eru vissulega óvanari sjálfstæði og því tilleiðanlegri en fullorðið fólk.

 

1840_DarwinRichmond12. febrúar er einnig afmælisdagur tveggja merkra manna sem fæddir eru sama ár, 1809 og því eru rétt 200 ár liðin frá fæðingu þeirra. Báðir höfðu mikil varanleg áhrif á hugmyndir mannkyns og endurmótuðu viðhorf þess um hvað það er að vera mennskur. Segja má að hugmyndir þeirra hafi báðir haft með frelsi okkar sem manneskja að gera, þótt þeir hafi nálgast viðfangsefni sín á gjörólíka vegu. Annar þeirra var fæddur í Englandi og hét Charles Darwin en hinn var fæddur í Bandaríkjunum og hét Abraham Lincoln.


Af tilraunum til fjallaflutninga og fleira

Ávextir 1Mörg orðatiltæki sem við notum í daglegu tali eiga rætur sínar að rekja til trúarbragðanna. Sum hafa kaupmenn og þjónustufyrirtæki tekið upp á sína arma og gert að slagorðum sínum í auglýsingum. 

Þá eru frægar skírskotanirnar fyirtækja til trúarstefja eins og t.d. naglagerðin sem birti mynd af Kristi á krossinum og undir henni stóð; "Þeir halda naglarnir frá Vírneti." Þeir halda

 "Af ávöxtunum þekkirðu þá" auglýstu nýlenduvöruverslunin Silli og Valdi lengi vel og vitnuðu þar til Biblíuversins úr Mattheusarguðspjalli. (Skemmtilegt og gildishlaðið orð; NÝLENDUVÖURUVERSLUN)

Fyrri hluti tilvitnunarinnar gæti samt vel átt við ákveðna tegund kaupahéðna sem margir hafa kvartað yfir á síðasta misseri.

15 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar. 16 Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? 17 Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu, en slæmt tré vonda. 18 Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu. 19 Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað. 20 Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá.

FjallafluttningurSendibílastöðin sem auglýsti hér áður fyrr; Trúin flytur fjöl, við flytum allt annað, og vitnaði í annað Mattheusarvers;

14 Þegar þeir komu til fólksins, gekk til hans maður, féll á kné fyrir honum 15 og sagði: "Herra, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann á eld og oft í vatn. 16 Ég fór með hann til lærisveina þinna, en þeir gátu ekki læknað hann."

17 Jesús svaraði: "Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann hingað til mín." 18 Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninn varð heill frá þeirri stundu.

19 Þá komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann einslega: "Hvers vegna gátum vér ekki rekið hann út?"

20 Hann svaraði þeim: "Vegna þess að yður skortir trú. Sannlega segi ég yður: Ef þér hafið trú eins og mustarðskorn, getið þér sagt við fjall þetta: Flyt þig héðan og þangað, og það mun flytja sig. Ekkert verður yður um megn. [21 En þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn og föstu.]"

Þessi saga er um margt merkileg og það væri gaman að fara einhvern tímann í góðu tómi yfir allt það sem hún segir frá og gefur til kynna. Mustarðskornið er einkar áhugaverð líking enda notað aftur í afar svipaðu dæmi þegar Kristur segir “Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: ‘Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum,’ og það mundi hlýða yður." Þetta minnir dálítið á íslensku öfugmælavísurnar en það er víst önnur saga. 

Svo skemmtilega vill að annar Guðsmaður, ákvað tæpum 600 árum seinna að láta reyna á þau orð Krists að trú geti fengi fjöll til að færast úr stað og frá þeirri tilraun er komið annað orðatiltæki sem fólk á Íslandi notar nokkuð mikið í seinni tíð.

Sagan og orðatiltækið sem henni tengist, berst trúlega til Íslands frá Englandi þar sem það kemur fyrst fyrir í ritgerð eftir Francis Bacon; "Of boldness", árið 1625.  Bacon  notar reyndar útgáfu sem alþekkt var um sama leiti sem máltæki á Spáni og hljómar svona; "Ef hæðin vill ekki koma til Múhameðs mun Múhameð fara til hæðarinnar."  Enska orðið "hill"  breyttist einhvern tíman í "mount" og þar með varð hæðin/hóllinn að fjalli.

SofaOrðatiltækið á upphaflega rætur sínar að rekja til íslamískrar arfsagnar þar sem sagt er frá því þegar að Múhameð er beðinn að gera eitthvert kraftaverk sem ótvírætt mundi sanna guðdómleika kenninga hans. Hann bað Guð um að flytja til sín hæð nokkra sem heitir SOFA og rís skammt frá Mekka.

Þegar að hæðin haggaðist ekki sagði Múhameð það ótvírætt bera miskunn Guðs vitni því ef hún hefði tekist á loft og flogið til þeirra, mundu allir hafa grafist undir henni. Múhameð gekk því til hæðarinnar til að flytja þar Guði lofgjörð fyrir náð hans og miskunn.


Framboð og fyrirspurn til þín

Ný andlitÓðum tínist til mannafli í flokksframboðin. Hér gilda allt önnur lögmál en í venjulegum mannlegum samskiptum. Það virðist ekkert samhengi milli framboðs og eftirspurnar.

Það úir og grúir af "nýju" fólki með "nýjar" samviskur (oftast samt með gamalkunn andlit), sem sækist eftir að fá að taka virkan þátt í að byggja upp "nýja" Ísland. Í  baklöndunum góðu er þokunni óðum að létta og allir segjast glaðbeittir hafa kannað þau, hugrakkir og fífldjarfir eins og fyrstu pólfararnir forðum. 

Fólk er óðum að koma sér fyrir í gamalkunnum og vel skipulögðum skotgröfum þar sem því líður vel meðal já-vina sinna í flokknum. Klisjurnar fljúga manna á millum og allt er aftur eins og það var.  Ég dáist að hugrekki þessa  fólks sem þorir raunverulega að mæta sjálfu sér í  speglinum þegar það velur lit á bindi eða blússu sem hæfir dagverkinu, eftir allt sem á hefur gengið. Það þarf alvöru hugrekki til þess.

Nú morar allt í tilkynningum frá þessu fólki í fjölmiðlum og á blogginu. Framboðspistlarnir þar sem allir lofa ábúðarfullir að lofa engu sem þeir ætla ekki að efna og lofa því engu, eru þegar orðnir daglegt brauð, enda ekki ráð nema í tíma sé tekið, flokksþingin öll á næsta leiti og nýta þarf Gróu gömlu frá sama bæ til hins ýtrasta.

PólitíkinBrátt verður bloggið sprengfullt af mosagrænum og digrum en samt fúnum framboðsgreinum, flúruðum pólitísku hjali og skreyttum gljáandi vel lýstum myndum af framboðsfólkinu sem hrópa á þig; "horfðu á varir mínar".

Um leið heyrast einstaka stunur frá gömlum hrelldum sálum sem eru að draga sig í hlé, sármóðgaðar yfir öllum þessum hávaða frá fólki sem leyfir þeim ekki að verða sjálfdauðar í embættisstólunum. En þær vissu jú að póli-tíkin er ekki sú trygglyndasta í hverfinu.

Og fólk er sem sagt farið að kannast við sig í Kjósinni.

En hvað varð um þær fjölmörgu háværu raddir sem hrópuðu hátt og kröfðust þess að flokksræðið yrði lagt af með öllu? Hvar eiga þær heima á þessu "nýja" flotta flokkspólitíska Íslandi sem búsáhaldabyltingin virðist vera smátt og smátt að samþykkja eftir að "réttu" flokkarnir komust að í ríkisstjórn? 

Kannski finna þær heimili sitt á auðu seðlunum sem skilað verður í komandi kosningum. Og kannski finna þær aftur tóninn þegar í ljós kemur að ekkert hefur í rauninni breyst og að flokksræðið blívur...nú sem fyrr.

Ef að kosið verður til stjórnlagaþings á þann hátt sem nú liggur fyrir, hversvegna er ekki hægt að breyta stjórnarskrá svo það verði kosið til alþingis með sama hætti og svo kallaðir meiri og minnihlutar á alþingi verði lagðir niður áamt öllu flokkakerfinu?


Golliwogg og tvískynungur BBC

GollyMyndin er af þeirri tegund brúðu sem kölluð er Golliwogg. (Seinna Golliwog) Brúðan er eftirmynd af sögupersónu í barnabókum eftir Florence Kate Upton sem gefnar voru út seint á 19. öld og nutu þá mikilla vinsælda í Betlandi, Bandríkjunum, Evrópu og Ástralíu.  Sumar heimagerðar Golliwogg dúkkur voru kvenkyns en yfirleitt voru þær alltaf karlkyns eins og upprunalega sögupersónan.

Fljótlega var byrjað að nota orðin Golliwog og "wog" sem uppnefni á þeldökku fólki og sem slíkt breiddist notkun þess orðs víða út.

Fyrir nokkru notaði Carol Thatcher, ein af stjórnendum BBC sjónavarpsþáttarins One show, þetta orð um tennisspilarann Jo Wilfried Tsonga. Carol sem er dóttir fyrrverandi forsætisráðsfrúar Bretlands Margrétar Thatcher, lét orð sín falla  í starfsmanna-aðstöðu sjónvarpsins (Green Room) eftir að útsendingu var lokið. Fyrir þetta hefur henni verið vikið úr starfi. Jo-Wilfried-Tsonga

Mikil umræða hefur spunnist út af uppsögn hennar og m.a. bent á að BBC sé með á sínum snærum hálaunaða starfsmenn sem hafa það fyrir atvinnu að ganga fram af fólki með blótsyrðum og hneykslanlegum uppátækjum.

Eru í því sambandi nefndur sem dæmi Jonathan Ross sem nýlega var settur í tímabundið bann á BBC fyrir að hafa tekið þátt í klúrum hrekk ásamt grínaranum Russel Brand sem sagði upp stöðu sinni hjá fjölmiðlarisanum í kjölfarið.

Þessi tvískynungur BBC er orðin að pólitísku bitbeini því hægri sinnaður stjórnmálamaður eins og borgarstjóri Lundúna Boris Johnson sagði þessar refsiaðgerðir gegn Carol of grófar en Hazel Blears samskiptaráðsstýra í ríkisstjórn Browns hefur svarað með því að lýsa stuðningi við ákvörðun BBC.

Þá er þess skemmst að minnast að bæði Charles tilvonandi konungur Bretlands og sonur hans Andrew, notðu báðir hliðstæð uppnefni, "Sooti" (Sóti) og "Paki" um menn sem þeir umgengust. Engar kröfur hafa heyrst um að þeir eigi að segja af sér sínum störfum.


"Fall lítillar kjánaþjóðar"

egill_helgasonMikið er enn fjallað um Ísland á síðum dagblaðanna í Bretlandi. Í dag birtir The Daily Telegraph hálf-síðu grein þar sem m.a. er vitnað í Egil Helgason, Össur Skarphéðinsson og ónafngreindan leigubílstjóra úr Reykjanesbæ.

Fyrirsögn greinarinnar er "Fall lítillar kjánaþjóðar"(Downfall of a foolish little nation) og er hún einskonar upprifjun á því hvernig Ísland varð á örfáum árum að ramm-kapítalískri og nýfrjálshyggju verstöð í norðri og hvernig sú stefna kollsteypti á nokkrum árum íslensku efnahagslífi.

Greinin segir að allt hafi verið gert til að niðurstöður efnahagsyfirlita banka og peningastofnanna yrðu sem hagkvæmastar og sem dæmi er tekið að  kílóið af þorski sem hægt var að kaupa út í búð fyrir 1200 krónur var reiknað á kr. 4000 og þá átti meira að segja eftir að veiða fiskinn.

Í loki greinarinnar er klykkt út með að vitna í orð Egils; "Á endanum vorum við lítil kjánaleg þjóð sem hélt að hún hefði fundið nýja leið til að afla peninga. En svo var ekki."


Ólíkt hafast þjóðirnar að

Ég er eflaust að bera í bakkafullan lækinn með að skrifa eitthvað um veðurfarið hér í Bretlandi um þessar mundir. Sjaldan eða aldrei kemur betur í ljós munurinn á samfélaginu heima og hér en þegar borin eru saman viðbrögð fólks við snjókomu. Mestur snjór á suðvestur og suður Englandi í 12 ár segja fjölmiðlar. (Á íslandi mundi þetta vera kölluð föl.)

Snjór í BathHér í Bath eru tveir þrír sentímetrar af jafnföllnum snjó og þess vegna hefur skólum verið lokað, bílar sitja fastir, fólk kemst ekki til vinnu, og allt mannlíf gengur úr skorðum.

Fjölmiðlar keppast um að segja fólki að halda sig heima við og ef það hugsi sér til hreyfings að láta vita um ferðir sínar, taka með sér skjólfatnað og heita drykki á brúsum. Hitastigið er í kringum tvö stig!

Bæjar og borgaryfirvöld hafa keppst við að bera á götur og vegi salt og sand og nú er svo komið að allar byrgðir af þeirri ágátu blöndu eru uppurnar.

Stjórnmálamenn kvarta yfir að veðrið komi til með að kosta þjóðarbúið miljarði og aðrir benda á að það sé bara gott að bankamennirnir komist ekki til vinnu til að eyða meira af þeim aurum sem stjórnvöld hafa ausið í bankanna upp á síðkastið. Enn aðrir benda á að fólk eigi bara að slappa af og njóta veðursins og hins sjaldséða snjós.


Tæknlilegar lausnir á andlegum vandamálum

Sumir trúa því að tæknin og vísindin get leyst flest ef ekki öll vandamál mannkynsins, svo fremi sem þeim sé bara rétt beitt. Þessi trúa er jafnan byggð á þeirri staðreynd að mörg af þeim meinum sem fylgt hafa mannkyninu í gegn um tíðina hafa verið farsællega leyst með tilkomu vísindalegar þekkingar og beitingu hennar gegn vandamálinu. Sú staðreynd sýnir sig e.t.v. best í læknisfræðinni þar sem fjöldi sjúkdóma sem áður voru jafnvel banvænir, eru nú meðhöndlanlegir.

Hannað barnSiðferðilegum spurningum um hvað sé tilhlýðilegt og hvað ekki, þegar kemur að því að bjarga mannslífum, auka líkurnar á langlífi og velsæld og koma til móts við misjafnar og persónulegar kröfur fólks, fækkar stöðugt eða er slegið á frest að svara þangað til þær verða einhvern veginn óþarfar.

Engin spyr lengur hvort það sé siðferðilega rétt að koma í veg fyrir arfgenga sjúkdóma með því að breyta genauppbyggingu einstaklinga. Það gerist einnig æ líklegra, að fólk geti haft áhrif á útlit og atgervi barna sinna með því að breyta genauppbyggingu þeirra.

seal-robotÞá eru í dag framleiddir róbottar sem hafa þann tilgang einan að vera félagar fólks sem þarfnast félagsskapar en fær hann ekki í nægjanlegum mæli frá samferðafólki sínu. Þessir róbottar sýna viðbrögð við strokum, bregðast við augnaráði og gefa frá sér hljóð eftir því hvernig þeir eru snertir.  Allar siðferðislegar spurningar um hvort slíkt sé í lagi eða ekki eru löngu hættar að heyrast. Hver er munurinn á Róbott og hundi ef að hvorutveggja kemur á móts við þarfir einstaklingsins?

Æðstu siðferðilegu rökin við öllum nýungum eru; að ef þau skaða engan, eru þau í lagi og hver og einn verður að meta hvað er skaðlegt fyrir hann sjálfan.

 En er þetta rétt? Er ekki hægt að ganga fram af siðferðiskennd fólks svo fremi sem þessi rök halda?

Tökum sem dæmi Þetta;

child_robotÍ dag geta petafílar keypt sér litlar dúkkur við sitt hæfi sem kynlífsleikföng. Þá er unnið að því að þróa róbott sem sýnir þau viðbrögð sem petafílar sækjast eftir í fórnarlömbum sínum.

Tæknilega er verið að koma á móts við ákveðið vandamál sem mikill fjöldi karlmanna á við að stríða.

Með hvaða rökum er hægt að mótmæla þessu, svo fremi sem þeir gera sér "vélmennisbarn" að góðu? Og hvar á að stöðva þróun vélmenna í þessu tilliti. Má t.d. blanda saman lífrænum vefjum við vélina til að gera hana líkari mennsku barni? -

Hverjar eru ykkar skoðanir á þessu ?


Ég og ófullnægði homminn

Í raun þekkti ég Martin ákaflega lítið. Ég hafði hitt hann nokkrum sinnum á þessu kaffihúsi og telft við hann skák.  Nú sátum við þarna, búnir að tefla nægju okkar í bili. Hann gaut á mig stórum grásprengdum augunum yfir brúnina á bollanum um leið og hann dreypti á kaffinu. Umræðuefnið fram að þessu hafði verið vandræðalegt, um eitthvað sem hvorugur okkar hafði áhuga á að halda gangandi.

Hann dæsti, setti fæturna upp á einn stólinn sem stóð við borðið og hóf að tala eins og hann væri að hugsa upphátt.

Skák"Jamm, það er svo skrýtið. Maður þarf víst að vera svo pólitískt rétthugsandi að maður þorir varla að orða svona pælingar. Ég meina, þú veist að ég er hommi, er það ekki? Ekki eins og það leyni sér eitthvað, við höfum jú oft séð hvorn annan áður. En að maður geti talað um hugsanir sínar, opinskátt. Maður heyrir bara; God, þetta er þitt mál og hvað, er kynhneigð ekki bara einkamál hvers og eins, og  allt í einu er maður komin út í eitthvað sem ekki er pólitískt rétt. Kynlífsbyltingin er búin, allt orðið gott og ekkert meira um það að segja. Allt er svo sjálfsagt og eðlilegt, sem svo þarf ekkert að vera svo sjálfsagt, alla vega ekki fyrir mig."

"Ok ég er hommi og ég veit ekki betur en að ég hafi alltaf verið hommi, öll fjörutíu árin eða þannig. Fæddur svona. Úbs, er maður nokkuð að tala af sér. Lít ég ekki út fyrir að vera soldið yngri? -  En öll þessi umræða samt, hvað er eðlilegt og hvað ekki, á bak við mann þegar maður er ekki á staðnum. En ég spyr; hvernig getur eitthvað ekki verið sjálfsagt eða verið óeðlilegt ef það er hluti af mannlegum kenndum, hluti af náttúrunni og allt það. - Svo var ég að lesa grein fyrir stuttu sem fjallaði um hvernig við sem lifum í dag erum sönnun þess að gen forfeðra okkar voru þau sterkustu sem völ var á og að í okkur birtist það besta sem þessi gen hafa getað búið til fram að þessu. Og að öll genin í gegn um tíðina hafi haft það eitt að markmiði að skapa hæfari einstaklinga sem verða stöðugt hæfari til að lifa. En svo þegar kemur að mér og þá, hm,  þá fremja þau erfðafræðilegt sjálfsmorð. Ef ég fylgi mínum eðlilegu hvötum, einsog ég hef gert fram að þessu, munu gen mín enda með mér, ekki satt. Sjálfsmorð, ekkert annað. Og hvað þýðir það? Að ég sé í raun líffræðilega úrkynjaður í fyllstu merkingu þess ljóta orðs? Með mér er allt í einu öllu lífslögmálinu kippt úr sambandi. Vegna þess að ég get ekki, ef ég er eðlilegum tilfinningum mínum trúr,  getið af mér afkvæmi nema með einhverjum tæknibrellum. Ég get ekki skilað genunum áfram, ég er, moi, will be no more.  Rétt eins og óbyrja eða ófrjór maður. En hjá þeim ráða auðvitað einhverjir náttúrulegir gallar, eða sjúkdómar. Hjá mér, ekkert, ekkert óeðlilegt. Ég er eðlilegur að öllu leiti og... ég er hommi. Samt eru gen mín  dæmd til að ljúka milljóna ára þróun sinni með mér."

Sund1"Og svo er það annað. Auðvitað veltir maður fyrir sér hlutunum á marga vegu. Hvað er ást og til hvers er ástin? Mig langar að finna einhvern til að elska, einhvern, fallegan og góðan mann sem sem er ímynd karlmennskunnar líka. Alveg eins og þú vilt vera með konu sem er ímynd alls þess sem er kvennlegt. Og þarna lendi ég líka í hvað sem þú vilt kalla það, sjálfskoðunarlegri eða heimspekilegri sjálfsheldu. Sannur karlmaður er auðvitað gagnkynhneigður og vill vera með konu en ekki öðrum karlmanni. Í því felst karlmennska hans í kynferðislegu tilliti ekki satt? Ég verð því að gera mér að góðu að finna einhvern annan homma sem einnig er staddur á sama stað og ég. Manni sem finnst hann vera eitthvað annað en sannur karlmaður í þessari merkingu. Sérðu ekki að þetta virkar ekki fræðilega. Ég er karlmaður sem finnst ég vera kona og ég vil ekki vera með öðrum manni sem finnst hann líka vera kona. Auðvitað gerir maður málmiðlun, en af hverju þarf ég að gera málamiðlun en þú ekki? Af hverju get ég ekki verið fullnægður með það sem til boða stendur?"

"Þetta verður öllu flóknara að sjálfsögðu þegar við ætluðum að flokka homma og lesbíur á sömu forsendum og við flokkum gagnkynhneigða karla og konur. Til dæmis þegar ég fer í sund, fer ég auðvitað í klefa með körlum eins og lesbíurnar fara með konunum. En hvers vegna? Hver er munurinn á mér og konu, ég meina með tilliti til minnar kynhneigðar? Ætti ég ekki að fá sér klefa? Það mundi ekki einu sinni duga, ég meina þá á sömu forsendum og körlum og konum er skipt niður í klefa, að vera með öðrum hommum í klefa."

Martin þagnaði allt í einu og byrjaði að flauta eitthvað lag sem ég kannaðist ekki við og horfði á mig af og til eins og hann byggist við einhverjum andsvörum. Ég reyndi að hvað ég gat að finna einhverja veika hlekki í rökleiðingum hans, en kom ekki í augnablikinu auga á neina þótt ég vissi að þeir hlytu að vera þarna.  


Bretar ætla að bursta Júróvisjon keppnina!

Webber og JadeEins og fram hefur komið í fréttum, stefna Bretar á það að vinna Júróvisjón keppnina í ár og til þess að svo megi verða fengu þeir sitt þekktasta tónskáld til að semja lagið, útsetja það og velja flytjandann. 

Bretar hafa aldrei kostað meiru til en nú og fengu sjálfan Andrew Lloyd Webber til að semja lagið. Hann valdi til að flytja það, eftir hrikalega hallærislega og óspennandi útsláttarkeppni sem tók mörg laugardagskvöld, Jade nokkra Ewen.

Hún mun syngja lag Webbers "It's My Time" sem þið getið heyrt og séð hér. 

Breskir gagnrýnendur segja að lagið sé vel til þess fallið að hefja upp standardinn á Júróvisjón keppninni sem reyndar er ekki sagður hár hér í Bretlandi.

En í mínum eyrum hljómar þessi ballaða eins og enn einn söngleikjasmellurinn sem Webber er svo frægur fyrir að fjöldaframleiða.

Jade hefur ágætis rödd en hún er ekki lagviss eins og heyrðist vel síðasta laugardagskvöld þegar hún var tilkynnt sem sigurvegari og flutti aftur lagið sem hún hafði flutt áður um kvöldið.


Jesrúsalem Post segir að íslenska forsetafrúin sé álitin af Íslendingum hluti af samsæri gyðinga

DorritJersúsalem Post birtir í dag á netsíðu sinni  grein  þar sem því er haldið fram að gyðingahatur fari vaxandi á Íslandi. Þá er sagt að gyðingahatur eigi sögulegar rætur á landinu og að það kunni að færast í vöxt í kjölfar kreppunnar og viðtöku vinstristjórnar. Vitnað er til ummæla Vilhjálms Vilhjálmssonar þar að lútandi og þá er einnig minnst á fréttina um reiðhjólasalann sem auglýsti að gyðingar væru ekki velkomnir í verslun sína.

Það sem ég hef ekki heyrt minnst á fyrr, en kemur fram í fréttinni,  er að það hafi verið opinberlega fullyrt að forsetafrúin, Dorrit Mussaieff,  sé talin af Íslendingum  hluti af samsæri Gyðinga þrátt fyrir að vera eina Þjóðhöfðingjafrúin í heiminum sem er gyðingur, fyrir utan Ísrael. Orðrétt segir í greininni þar sem vitnað er í Vilhjálm.

"When the bankruptcy came, you could see people expressing a new view [about Mussaieff]," said Vilhjálmsson. "Even though she was very good for Iceland, people said that 'an Icelandic person should never have married a Jewish woman. She is part of a Jewish conspiracy.'"


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband