Á skítugum skónum

Það er að bera í bakkafullan lækinn að býsnast út af umsvifum Jóns Ásgeirs Jóhannssonar sem þegar er frægur er af allskonar endemum sem óþarft er að tíunda hér.  

Margir hafa beðið eftir því að eitthvað af aurunum sem Jóni tókst að bjarga undan, eftir hrunið og afskriftirnar allar voru að baki, kæmu í leitirnar.

Það hlýtur að vera kaldhæðni örlaganna að hann finnur þeim nú stað í félagi með þessu heiti, þ.e. Muddy Boots eða kannski er Jón bara að storka þeim. Jón er sem sagt aldeilis ekki af baki dottinn og ætlar nú að vaða aftur inn á gólfið hjá Bretum á skítugum skónum.


mbl.is Jón Ásgeir í hamborgarabransann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og kitlar gamla aðdáendur.

Samfó (IP-tala skráð) 14.1.2013 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband