Ekki hægri sinnaður karl

Þóra Arnórsdóttir býður af sér góðan þokka og yrði eflaust hin frambærilegasti kandídat í forsetaembættið ef hún gefur kost á sér.

Andstæðingar hennar (já, þeir eru strax skriðnir undan steinunum og eru auðvitað sömu forpokuðu íhaldsskúrkarnir úr öllum flokkum sem styðja Ólaf í embættið og Davíð til vara) sjá þó einn stóran ljóð á Þóru.  

Hann er að hún er ekki hægri sinnaður karlmaður.

Þeir segja hana vinstri sinnaða og að auki konu, og þar með eigi hún enga möguleika til að gegna forsetaembættinu. -

Nú er ég ekki að lýsa yfir stuðningi við Þóru, en það er ekki hægt annað að hafa samúð með aðila sem á svona glataða andstæðinga.


mbl.is Kurteisi að íhuga framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Björn Bjarnason segir Þóru "ekki lengur hæfa sem óvilhallur þáttastjórnandi hjá RUV eftir að hafa gefið ádrátt um framboð fyrir vinstrimenn".

Það þarf örugglega mikla einsýni og sterka að sjá þá uppástungu að Þóra bjóði sig fram, sem eitthvert ákall frá vinstri. En sé svo,  hver er glæpurinn?

Ætli hún væri þá hæfari, að mati Bjössa, sem þáttarstjórnandi væri hún að gefa ádrátt um framboð eftir ákall frá hægri?

Björn á við ákveðið vandamál að stríða, sem er að hann telur enga hæfa til að starfa við fjölmiðla, sé ekki á þeim veruleg hægri slagsíða.

Ég er Svanur, ekki heldur að lýsa yfir stuðningi við Þóru. En ég styð lýðræðislegan rétt hennar til að íhuga framboð og fara í framboð, hafi hún vilja til þess. Það þarf ekki, svo undarlega sem það kann að hljóma í eyrum einhverja, að fara í Valhöll og sækja um leyfi til framboðs.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.3.2012 kl. 23:53

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki hægri sinnaður karl, rétt athugað Svanur, en hún er vinstri sinnuð kona, sem ætti að hringja öllum viðvörunnarbjöllum að fenginni reynslu. Við höfum eina sem fjármálaráðherra. Svo má nefna í framhjáhlaupi eðalkvendi á borð við Álfheiði Ingadóttur, Ólínu Þorvarðar..and the list goes on and on.

Nei takk segi ég.

Starfið á að vera ópólitískt og það hefur vinstri sinnaði karlmaðurinn Ólafur Ragnar sýnt að hann er fær um. Hann verður ekki sakaður um hlutrægni gagnvart skoðanabræðrum sínum eða hvað?

Þóra er aftur á móti hápólitískur útsendari Samfylkingarinnar geri ég ráð fyrir. Hún á væntanlega að tryggja að ekki verði fleiri þjóðaratkvæði um umdeild málefni eins og t.d. fullveldi landsins og svoleiðis smotterí.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2012 kl. 01:11

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eina sem forsætisráðherra meinti ég að segja en auðvitað líka fjármálaráðherra sem er uppeldisfræðingur að mig minnir. Þ.e. leikskólakennari.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2012 kl. 01:13

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hlutverk forseta er fyrst og fremst að standa vörð um sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar.  Ég er til í einhvern sem gerir það af hugsjón. Sama af hvoru kyni það er. Ólafur stendur ágætlega á þeim prinsippum, svo líklega vel ég að gera mér hann að góðu.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2012 kl. 01:16

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er annars könnunin sem þú hlakkar svo yfir:

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2012 kl. 04:10

6 Smámynd: K.H.S.

Þóra er samfóa sem kemur ágætlega út í imbakassanum.
Atkvæðasmalinn Logadóttir af sömi sortinni og rekur ættir til 365 miðla núna.
Fjölmiðlafólksuppskrift. Þóra alveg óþekkt stærð að öðru leiti, en gott deig að hnoða eitthvað úr.
Pottþétt uppskrift ? Ekki núna.
Verður til þess að Sjálfstæðisfólk merkir flest við Ólaf
og Elín hættir að líkinduml við, sem tryggir það.
Annars ruglar það alla spámennsku að klína þessu ólöglega
og hlægilega stjórnlagaþingsráðsurningaati utan í forsetakjörið. þeir sem ætluðu að hunsa það alltsaman eru neyddir til að mæta ætli þeir sömu að taka þátt í forsetakjörinu. Nýgrænu allaballarnir og allaballarnir í Samfó hafa mikla þörf fyrir að refsa 'Olafi og helst þjóðinni fyrir Icesave og því verður að fynna eitthvað, bara eitthvað framboð sem gengur í liðið.

K.H.S., 26.3.2012 kl. 10:46

7 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Fróðlegt væri fyrir blaðamenn að rifja upp hvernig hægri menn töluðu um framboð Ólafs Ragnars áður en hann var kosinn fyrst.

Þorsteinn Sverrisson, 26.3.2012 kl. 12:20

8 identicon

Ekki hef ég hugmynd um stjórnmálaskoðanir Þóru. Aldrei hef é tekið eftir einhverri pólitískri slagsíðu hjá henni í sjónvarpinu.

Þið sem sem hafið verið að ýja að vintrimennsku hennar, nefnið einhver dæmi.

Ekki gleyðið þið bara bulliið í Birni Bjarna?  

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.3.2012 kl. 17:10

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svavar. Minni þitt nær ekki langt, eða kannski áttu ekki sjónvarp, en ég get látið þig vita að ég er skarpminnugur á alla sem sýna slagsíðu í viðtölum, sem m.a. felst í því að sleppa ríkistjórnarliðinu í gegn með kurteysishjali, viðtal eftir viðtal. Þóra er áberandi ákafur esb áróðursmaður.  Þú verður bara að einhenda þér í myndbandasafn sjónvarpsins til að sannfærast býst ég við.

Það er bæði komið fullgott af kverúlöntum fjölmiðlanna í stjórnmálum. Það virðist öruggasta leiðin til metorða þar að hafa lesið fréttir. Teldu nú upp að gamni í huganum hvað það eru margar og afar misjafnar persónur. 

Fólk sem starfar í fjölmiðlum er þar vegna athyglissýki sinnar m.a. og til að þjóna eigin hégóma. Svoleiðis fólk er komin full reynsla á.

Þóra er þarna með hulin markmið og sennilega hættulegasti kandídatinn af öllum fyrir framtíð þjóðarinnar.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2012 kl. 17:46

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nefnum nokkra:

Davíð Oddson, Eiður Guðnason, Ögmundur Jónasson, Sigmundur Ernir, Robert Marshall, (Ómar Ragnarsson má hafa með) Þið getið bætt við listann eftir minni. 

Jón Steinar Ragnarsson, 26.3.2012 kl. 17:51

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Mikið er það einkennilegt, en gleðilegt frá mínum gónhól séð, að allir fjölmiðlamenn landsins skuli vera kratar!

Það er líka sérkennilegt að flestallir andstæðingar ESB, sem bera fyrir sig lýðræðisást, á tyllidögum og jafnvel oftar, skuli gersamlega ætla af hjörunum ef  umfjöllun fjölmiðla um ESB er ekki alfarið á neikvæðu nótunum og gegn aðild. Hlutlaus umfjöllun er að þeirra mati argasti áróður og án vafa kostaður af ESB.

Hálf kjánalegur málflutningur verð ég að segja.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.3.2012 kl. 18:05

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já. Rétt ábending hjá Axel. þetta er afar sérstakt og kæfandi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.3.2012 kl. 18:34

13 identicon

Ég er engu nær  eftir þessa útskýringu og upptalningu Jóns Steinars.

Ég horfi á flest fréttaviðtöl Þóru en hef ekki orðið var við þetta sem hann ýjar að.

En ég vildi gjarna vita hvaða gleraugu hann notar, þegar hann horfir á sjónvarp.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.3.2012 kl. 19:48

14 identicon

Jón Steinar, hver heldur þú að sé með mestu athyglissýkina af öllum Íslendingum (og þó víðar væri leitað).

Svar : Ólafur Ragnar Grímsson

Hvernig í ósköpunum stendur á því að þú segir að Þóra sé ákafur esb áróðursmaður og hápólitískur útsendari Samfylkingarinnar ?
Það er álíka gáfulegt og ég kallaði þig búrtík Ólafs Ragnars.

Svo segir þú að Ólafur Ragnar sé ekki pólitískur forseti !!!

Láki (IP-tala skráð) 26.3.2012 kl. 20:03

15 identicon

Er ekki best að kjóst Ástþór.. og flýja svo land; Þjoðin getur svo dansað trúðadans í kringum yfirapasauðinn þegar hann segir þeim hversu frábærir aparsauðir íslendar séu.. ha..

DoctorE (IP-tala skráð) 27.3.2012 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband