Ólafur Ragnar hægri - Þóra Arnórs. vinstri

Þóra Arnórsdóttir fréttamaður vill verða forseti. Einhverjir halda því fram að framboð hennar sé pólitískt mótframboð vinstrimanna í landinu, einkum í Samfó, sem ekki þola hvað Ólafur hefur verið mikill hægri maður upp á síðkastið. 

En það er jú staðreynd að Ólafur Ragnar hefur verið afar vinsæll meðal hægri manna, alveg frá því að hann hóf að hampa drengjunum þeirra  ákaft og hrósa fyrir útrásar-landvinninganna alla. -

Ef í ljós kemur að framboð Þóru er svar vinstri manna við manni hægri manna þ.e. Ólafi Ragnari, þá mun Þóra bera sigur úr bítum, hands down.

Hún er miklu yngri, miklu myndarlegri og miklu skemmtilegri en Ólafur Ragnar. Og það eru einmitt pólitísku áhersluatriðin sem þjóðina skipta mestu máli.

Eftir kosningar verður Ólafur frjáls til þess að sinna þessum öðrum aðkallandi verkefnum sem hann gerði svo mikið úr um áramótin þegar hann sagðist ekki ætla í framboð, áður en hægri menn plötuðu hann til að halda áfram og fengu hann til að halda að hann væri ómissandi.

Og ef hann verður leiður á fræðimennsku logninu, getur hann alltaf boðið sig fram til formanns í Sjálfstæðisflokknum, sem er og hefur verið í mikilli formannskrísu eftir að Geir Haarde hrökklaðist þar frá völdum. -


mbl.is Þóra ætlar í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það þarf mann með guðspekireynslu til að sveigja sig að þessari niðurstöðu. Ólafur hefur verið illa þokkaður af hægri mönnum frá fjölmiðlafrumvarpsmálinu fræga og raunar frá því hann var kosinn.  Hann fékk síðan uppreisn æru fyrir framgönguna í ICESAVE. Þú ert kannski búinn að gleyma því.

Það verður seint sagt um Samfylkinguna að hún standi undir nafni sem vinstriflokkur, því það er einmitt sá flokkur sem klappaði útrásinni hvað mest lof í lófa og varði útrásarkrimmana á hæl og hnakka. Sumir segja jafnvel að hún sé óskipt eign Bónusklíkunar.

Þóra er Samfylkingarmanneskja og er fyrrum formaður ungra Jafnaðarmanna og er jú framboð Samfylkingarinnar til kjösins. Það leynist engum. Hún á að sjá til þess að hér verði ekki frekari þjóðaratkvæði um þetta smámál sem innganga í ESB er. 

Að segja að Ólafur sé hægri maður, segir mér að þú sért algerlega út á túni í Íslenskum þjóðmálum. Ef það er hægrimennska að vinna sér það til frægðar að koma í veg fyrir að einkaskuldir útrásarinnar yrðði skuldfærð á almenning, þá held ég að þú þekkir ekki muninn á hægri og vinstri.

En þú trúir bara því sem þú vilt Svanur minn. Það hefur enginn getað haggað því hingað til hversu vitlaus sem trúin er annars.

Þú kýst Þóru og verði þér að góðu með það. Ég hefði heldur kosið forsetaefni sem ekki er í framboði af annarlegum hvötum og að unndirlagi stjórnmálahreyfingar. Hlutlausa manneskju með fullveldi og sjálfstæði að leiðarljósi myndi ég frekar kjósa mér.  Átæðan fyrir því að þú getur hvorki staðsett Ólaf til vinstri eða hægri á vitrænan hátt er einmitt sú staðreynd að hann hefur einmitt haft þessi grunnatriði að leiðarljósi sem eru hafin upp yfir hægri og vinstri og með því sýnt óvéfengjanlegt hlutleysi.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.4.2012 kl. 05:56

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk Jón Steinar, að líkingu væri mitt mál.

Hrólfur Þ Hraundal, 4.4.2012 kl. 07:24

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála Jóni Steinari hér

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.4.2012 kl. 07:36

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sko herr johny stone. Það er aldeilis. Þú ert ansi eldsnöggur að draga ályktanir af engum upplýsingum verð ég að segja og fullyrðir svo eins og maður sem er frelsaður. - Fyrir það fyrsta hef ég hvergi lýst yfir stuðningi við fréttakonuna. Í öðru lagi, er greinin eins og svo margar aðrar sem ég hef skrifað um pólitík, háð.

Húmorsleysi hrjáir þig illa fyrst þú náðir því ekki.

Þessi kona hefur lýst því yfir að hún hafi aldrei verið skráð í stjórnmálaflokk.

Það eru fá málefnin, ef nokkur, sem andstæðingar ESB, sjá sér tækifæri í að nýta sem rök fyrir sínum málstað. Að gera að því skóna að Þóra sé að sækjast eftir embættinu til að ESB málið sleppi við þjóðaratkvæði, er samsæriskenning sem mundi sóma sér vel í bók eftir Dan Brown. 

það eru bara gaddfreðnir steinrunnir stofuspekingar sem tala enn um Hægri -Vinstri í stjórnmálum, og meina það í fullri alvöru.

En þessi viðbrögð sanna vel að glósan hefur hitt í mark, og fyrir það þakka ég þér.

Svanur Gísli Þorkelsson, 4.4.2012 kl. 07:41

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sé að hægri tröllin styðja þig í þessu Jón Steinar.

Svanur Gísli Þorkelsson, 4.4.2012 kl. 07:43

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Aftur opinberar þú þig Svanur,  sem illa lesinn í þjóðmálaumræðunni.

"Þessi kona" hefur aldrei lýst því yfir að hún hafi aldrei verið skráð í stjórnmálaflokk.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.4.2012 kl. 08:45

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Já, Gunnar vel lesni, hún var í Röskvu og í Alþýðuflokknum þegar hún var tvítug. En upp frá því ekki viðriðin neinn flokk.

Svanur Gísli Þorkelsson, 4.4.2012 kl. 09:13

8 identicon

Ég myndi skilja við Þóru með det samme, ef ég væri gifur henni... Running for president is the first sign of mental collapse ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 10:28

9 identicon

Í fyrsta skipti á ævinni þá ætla ég að kjósa ÓRG

hef þó sennilega séð nafnið hans  jafn oft á kjörseðli og Svanur

þar sem við erum jafnaldrar

Grímur (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 16:29

10 Smámynd: K.H.S.

Svanur skaut hér vorboðann svöðusári.

K.H.S., 4.4.2012 kl. 17:11

11 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég mun kjósa Þóru

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 4.4.2012 kl. 23:45

12 identicon

"Hún var í Alþýðuflokknum þegar hún var tvítug."  Ja hérna.  Þegar ég var tvítugur var ég marxisti.  Fimm árum seinna kaus ég Sjálfstæðisflokkinn.  Síðan liðu önnur fimm ár og þá kaus ég Framsókn og einu sinni kaus ég VG og einnig Alþýðuflokkinn þegar hann var og hét.  Ég get rétt ímyndað mér hvernig bloggheimurinn myndi loga ef ég færi í framboð til forseta.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 5.4.2012 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband