10 ára móðir

10 ára stúlka frá borginni Buebla í Mexíkó hefur eignaðist barn eftir 31 vikna meðgöngu.

10yearoldbornLjóst var að lífi litlu stúlkunnar var ógnað og því var drengbarnið tekið með keisaraskurði á kvennasjúkrahúsi í Buebla, tæpa 100 km. frá Mexíkóborg,

þar hefur stúlkan verið undir eftirliti frá því 20. október. -

Ófullburða barnið er í gjörgæslu eftir að hafa fengið snert af lungnabólgu en læknar segja að móðurinn hafi það á brjósti og það sé við góða heilsu að öðru leiti.

Yfirvöld rannsaka nú hvort stúlkunni hafi verið nauðgað en lög í Mexíkó banna fóstureyðingar nema hægt sé að sanna að þungunin sé af völdum nauðgunar.

Löglegur aldur til samræðis í Mexíkó er 12 ár en stúlkur sem fá fóstureyðingu standa andspænis sektum eða fangelsisdómi sannist ekki að um nauðgun hafi verið að ræða.

Hvað varðar barnungar mæður í Mexíkó er þetta ekki fyrsta tilfellið. Í ágúst mánuði 2010 eignaðist 11 ára stúlka sem aðeins er þekkt undir nafninu Amelía, barn sem kom undir þegar hún var aðeins 10 ára. Henni hafði verið nauðgað.

Sjá frétt hér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þú hefur varla lesið fréttina sem þú vísar í, því stúlkan eignaðist fjórbura!,... dreng og 3 stúlkur.

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.11.2011 kl. 00:35

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Gunnar;Það var myndin sem ég fékk af grínsíðunni. Nú er rétti linkurinn kominn :)

Svanur Gísli Þorkelsson, 12.11.2011 kl. 00:56

3 identicon

Drengbarn? Er ekki svona almennara að tala um sveinbarn?

Jóhann Kristjánson (IP-tala skráð) 12.11.2011 kl. 01:57

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Jú, sveinbarn er miklu almennara Jóhann. Drengbarn er frekar sjaldgæft.

Svanur Gísli Þorkelsson, 12.11.2011 kl. 02:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband