Jenis af Rana og siðgæðið

Jenis av Rana hefur tekist að hreyfa við einhverju í þjóðarsál Íslendinga sem legið hefur í dvala í nokkra hríð.  

Þegar að ég bloggaði á sínum tíma um að Jóhanna Sig. væri  (svo vitað sé) fyrsti samkynhneigði forsætisráðherrann í heiminum, sögðu margir í athugasemdum að kynhneigð hennar skipti akkúrat engu máli.

Samt þótti heimspressunni það eitt merkilegt við kjör Jóhönnu að hún væri samkynhneigð.

Þegar að bandaríska tímaritið TIME valdi áhrifamestu konur heims setti það Jóhönnu meðal hinna fremstu, einkum vegna kynhneigðar hennar.

Þá var fussað og sveiað á Íslandi.

Margir Íslendingar vilja ekki þurfa að horfast í augu við kynhneigð Jóhönnu.

Þeir segjast ekki vilja skipta sér af því sem gerist í svefnherbergi fólks. Það er gott að vera ekki nefið ofan í hvers manns koppi. Eru Íslendingar virkilega orðnir svona siðferðilega sótthreinsaðir. 

Einkennilegt hvað mörgum örðum en okkur finnst kynhneigð Jóhönnu merkileg.

Margir sjá kjör hennar sem forsætisráðherra sem skref fram á við í réttindabaráttu samkynhneigðra. -

Margir sjá líka kjör Jóhönnu, eins og Janis, sem ögrun við kristið siðferði. Þeir taka ofan fyrir Jenis fyrir að vilja ekki sitja til borðs með konum sem eru giftar hvor annarri.

Og svo eru þeir sem segja að kynhneigð hennar, opinberar heimsóknir með konu sinni, skipti engu máli, svo fremi sem hún vinni starf sitt af kostgæfni. Og hverjir eru sammála um að svo sé raunin í dag?

 


mbl.is Jenis ætti að skammast sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jóhanna er afburðarlélegur stjórnmálamaður... hreinlega rústaði ferli sínum með því að koma fram sem Jesúína í framboði fyrir Samfylkingu... Hún var sá stjórnmálamaður sem fólk taldi hreina og beina... en málið er að Jóhanna gerði aldrei neitt, eða lítið sem ekkert; Hún bara sagðist ætla að redda öreygum.. en gerði það aldrei; það er svo létt að tala

Kynhneigð hennar skiptir engu... ekki þín heldur Svanur; En áttaðu þig á því að þegar þú ert að verja trúarbrögð, þá ert þú að gera árás á sjálfan þig...

The end

doctore (IP-tala skráð) 7.9.2010 kl. 11:43

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Yfirsést þér ekki Svanur að kynhneigð Jóhönnu er ekki bara ögrun við "kristið siðferði", eins og þú kallar það, heldur líka við siðferði allra helstu trúarbragða mannskyns, og að þeim slepptum, við mannsandann yfirleitt. Þessi sérstaka ást á samkynhneigð í okkar samtíð á sér enga hliðstæðu í sögunni, nema í lokuðum hópum öfugugganna, sem alltaf hafa verið til. Á því mun væntanlega engin breyting verða.

Gústaf Níelsson, 8.9.2010 kl. 00:56

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæll Gústaf.

Mér yfirsést ekkert í sambandi við kynhneigð Jóhönnu. Ég veit full-vel að gjörðir hennar kunna að vera í blóra við kenningar trúarbragðanna. Mér er hins vegar spurn, hver er syndlaus. Hver vogar sér að setja sig á það háan hest gagnvart systur sinni eða bróður, að hann þoli ekki að snæða máltíð með þeim? Kristur var einmitt sakaður um að vera trúnni ótrúr fyrir að snæða með "syndugum".

Fyrstu átrúendur í þeirri trú er ég fylgi voru dæmdir sakamenn, morðingjar og ódæðismenn. Þeirra syndir og þeirra verknaðir voru, þegar allt kemur til alls, þeirra einna að svara fyrir. Jóhanna mun svara fyrir sitt líf eins og við öll. Hvað er áunnið með að fordæma hana á þann hátt sem hér um ræðir?

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.9.2010 kl. 01:12

4 Smámynd: Egill Óskarsson

Mikill er máttur Gústafs Níelssonar, að geta uppljóstrað við okkur sauðsvartan almúgann að samkynhneigð stríði hvorki meira né minna gegn mannsandanum yfirleitt.

Egill Óskarsson, 8.9.2010 kl. 10:06

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég tek undir orð þín Svanur en við erum allt of miklir navístar í þessum málum eins og öðrum. Fólk allmennt á sitt einkalíf og ég lít á hjónalíf sem einkalíf þótt ég tel samkynhneigð röng en það er þeirra mál. Opinberið aðilar eiga alls ekki að storka öðrum þjóðfélögum og Jóhanna hefir gert sig að atlægi útávið og kannski er það illgirni en hún ætti að segja af sér út af villuhneigð sinni.

Valdimar Samúelsson, 8.9.2010 kl. 10:58

6 identicon

Ég hef talsvert spurt bókstafstrúaða(öfgatrúaða) hvað þeim finnist óeðlilegt við til dæmis homma og samband þeirra og nærri allir segja: Það sem þeir gera í svefnherberginu samræmist ekki biblíunni.

Nú vil ég benda á að það er talsverður fjöldi giftra hjóna(af gagnstæðu kyni) sem elska að stunda samskonar kynlíf og hommar stunda(ég þekki nú bara persónulega nokkur og þau skammast sín ekkert fyrir það). Þá er mín spurning: Er trúuðum ekki í nöp við það líka?? Ef svo er þá hvernig eigum við að vita hvaða hjón stunda hefðbundið kynlíf samþykkt af "biblíunni" og hvaða hjón stunda óhefðbundið "ósamþykkt" kynlíf???

Erum við ekki í vanda hér gott fólk??????

Ég bara spyr!!!!!!

Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 22:19

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sodomy er bönnuð í Biblíu, Þorvaldur og viðurlögin dálítið skelfileg. Það er engin vandi tæknilega að framfylgja þeim lögum ef Færeyingar hefðu áhuga.

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.9.2010 kl. 23:18

8 identicon

Ég veit að það er bannað samkvæmt biblíunni en það er einnig marg annað bannað samkvæmt biblíunni sem fólk stundar.

Vandamálið er að hvernig í ósköpunum ætlar þú(eða færeyingar)  að fylgjast með því hvað fólk gerir bakvið luktar dyr svefnherbergisins???

Erum við þá ekki komin út á frekar hálan ís í persónufrelsi???

Engin vandi tæknilega segir þú: ætlar þú að koma fyrir cameru í öll svefnherbergi í landinu og láta fylgjast með hvað fólk gerir???

Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband