Færsluflokkur: Heimspeki

Blóðhefnd

Dead_child_by_TrixisFréttir af dauðsföllum og líkamsmeiðingum frá Írak og Afganistan eru jafn áhrifaríkar og regnið sem fellur í hafið.

Þjáningar fólks í þessum löndum eru hættar að snerta við vestrænum hjartastrengjum enda grimmd ofbeldisverkanna svo yfirþyrmandi og tilgangsleysið svo auðsætt.

Í báðum þessum löndum eru háð stríð sem herforingjarnir segja sjálfir að ekki sé hægt að vinna. 

Samt þráast allir við.

Hermennirnir skjóta og sprengja og spyrja spurninga eftir á. Nú, voru þetta óbreyttir borgarar, hvá þeir.

Þeir hugsa; betra að þau falli en við. Og hver er eiginlega munurinn á löggildum skotmörkum og þeim sem ekki má drepa?

Þeirra aðgerðir ganga út á að búa til eins margar ekkjur og munaðarleysingja og hægt er.

Ekkjunum er boðin leið út úr sorg og örbyrgð með því að stökkva á bál hatursins og aka bifreið fullfermdri af sprengiefni inn á einhvern markaðinn.

Hjörtu barnanna herðast við að sjá foreldra sína og ættingja falla og þau heita í huganum hefndum. Áður en varir er einhver búin að girða þau beltum og lofa þeim sætum endurfundum við ástvini sína í Paradís.

Allar aðgerðir kalla á viðbrögð, hefndarviðbrögð, blóðhefnd..

Bíddu, hver var aftur réttlætingin á styrjöldunum?


mbl.is Tvö börn myrt í sjálfsmorðsprengjuárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illgjarn hrekkjalómur eða græskulaus prakkari

assholesHvenær verða hrekkjóttir að hrekkjusvínum og hvenær fá hrekklausir ofsóknarbrjálæði? Það er vandlifað í henni veröld og meðalvegurinn vinsæli vandfundinn. Mikill munur er samt á græskulausum grikkum og ósvífnum og oft skaðlegum hrekkjum þar sem blekkingum er beitt til að valda öðrum skaða. 

Fyrir stjórnmálamönnum eru þess mörk hvað óskýrust. Þeir meta allt á þann veg að það sem er andstæðingnum til minnkunar, er það þeim sjálfum til framdráttar. Nýlegt dæmi um þetta er meðhöndlun Þingsins á Icesave málinu og yfirlýsingar flokksforingjanna eftir afgreiðslu málsins. Þeir töldu fráleitt á meðan verið var að fjalla um málið að það gæti fellt stjórnina. En eftir að hafa knúið fram einhverjar málmyndabreytingar, halda þeir því fram að ef ekki verði fallist á breytingarnar, sé eðlilegt að stjórnin fari frá.

abstract_artÉg velti líka fyrir mér hversu langt er hægt að ganga í stríðni og hrekkjum án þess að særa fólk eða meiða. Sem dæmi, væri viðeigandi að gefa þetta rándýra abstrakt málverk, þeldökkum vini mínum.

Ófáir telja sér það til tekna að vera dálítið hrekkjóttir og sjaldan heyrir maður fólk sperra eyrun jafn mikið og þegar góð hrekkjasaga er sögð af hróðugum prakkara. - Vel skipulögð prakkarastrik eru meðal vinsælasta myndefnisins á youtube og sjónvarpsþættirnir "Falin myndavél" eru auðvitað ekkert annað en hrekkjaveisla.

Sumir frægir leikarar eru frægir hrekkjalómar. Þeir hafa unun af því að koma fram í viðtalsþáttum og segja frá hrekkjunum og hlægja dátt með þáttastjórnandanum að öllu saman.

 George Clooney er orðlagður hrekkjalómur og hefur oft reynt að segja frá hrekkjum sínum í sjónvarpinu. Ég hef tekið eftir því að grikkurinn virðist ekki vera eins hlægilegur fyrir áhorfendur, oftast aðeins fáeinir sem reka upp hlátursrokur, leikaranum og þáttastórandanum til samlætis. "You had to be there"!.

Woman_riding_turtle_at_Mon_ReposÍ bók sinni The Compleat Practical Joker eftir H.Allen Smith segir hann frá mörgum kunnum prökkurum. Einn þeirra var málarinn Valdo Peirs sem bjó í París í byrjun tuttugustu aldar. Dag einn gaf hann nágrannakonu sinni litla skjaldböku að gjöf. Konan dekraði við skjaldbökuna og þótti mjög vænt um hana.  Nokkrum dögum seinna sætti Valdi færis og skipti á litlu skjaldbökunni fyrir aðra nokkru stærri. Þetta gerði hann nokkrum sinnum uns konan var komin með allstóra skjaldböku í hús sitt sem hún sýndi nágrönnum sínum afar stolt. Þá snéri Valdo ferlinum við þannig að skjaldbaka konunnar fór stöðugt minnkandi. Þetta olli nágrannakonunni skiljalega miklum áhyggjum og hugarangri en Valdo skemmti sér við að segja frá angist hennar.

Kanntu góða hrekkjasögu?


Hið kristna siðferði og tvískinnungurinn í sambandi við samkynhneigð

 Og leggist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja þeir báðir viðurstyggð. Þeir skulu líflátnir verða, blóðsök hvílir á þeim. Þriðja Mósebók 20.13. 

Eigi skalt þú leggjast með karlmanni sem kona væri. Það er viðurstyggð. Þriðja Mósebók 18.22.

coloroseÞetta er vitaskuld tilvitnanir sem teknar eru úr Biblíunni, nánar tiltekið gamla testamentinu, sem er trúarbók Gyðinga og einnig kristinna manna.

Því hefur stundum verið haldið fram að siðferði Íslendinga sé "kristið", þ.e. mótað af kristnum gildum.

Hvað samkynhneigð varðar, verður vart séð að svo sé. Nýja testamentið bergmálar Gamla testamentið í þessu eins og svo mörgu öðru þótt ekki sé gerð þar bein krafa um að samkynhneigðir verði líflátnir.


Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né kynvillingar, 10 þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa. FYRRA  BRÉF  PÁLS  TIL  KORINTUMANNA 6.9-11


 Þess vegna hefur Guð ofurselt þá fýsnum hjartna þeirra til saurlifnaðar, til þess að þeir svívirtu líkami sína hver með öðrum. 25 Þeir hafa skipt á sannleika Guðs og lyginni og göfgað og dýrkað hið skapaða í stað skaparans, hans sem er blessaður að eilífu. Amen.

26 Þess vegna hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg, 27 og eins hafa líka karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn frömdu skömm með karlmönnum og tóku út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar.Rómverjabréfið 1.24-28.

Ég hef stundum undrað mig á því hvernig prestar og kennimenn kirkjunnar geta hugsað sér að veita samkynhneigðum blessun sína sérstaklega þegar höfð eru í huga þessi eindregna fordæming trúarritanna á slíkum lifnaðarháttum. Allt sem Kristur hefur að segja um miskunnsemi og fordómaleysi, rýrir ekki gildi eða dregur úr alverleika þessara skýlausu ummæla sem ég vitna í bæði út Gamla og Nýja testamentinu. -

En ég spyr mig ekki síður að því hversvegna samkynhneigðir sækjast eftir blessun fulltrúa trúarbragða sem ótvírætt fordæmir þessa tegund lífernis.


Réttlæti

branding-icelandÍslendingum hefur oft verið núið því um nasir, bæði af (dálítið öfundsjúkum) útlendingum og í heilbrigðri sjálfsgagnrýni að þeir séu montnir. Það verður ekki af okkur skafið að á tímabili vildum við vera; (frekar en að við værum það í raun og veru) fegurst, gáfuðust, frægust, sterkust og ríkust allra í heiminum. 

Vitaskuld skömmuðust við okkur fyrir þetta innst inni, rétt eins og fyrir blautan draum, en samt var eins og við tryðum að með smá heppni gæti hann a.m.k. að hluta, vel orðið að veruleika og við mundum fyrr eða seinna vinna eitt af stórmótunum í handboltanum, eða jafnvel lent í fyrsta sæti í Júróvisjón.

En ef einhver var raunverulega farinn að trúa því að þessi fámenna þjóð sem fyrir einni og hálfri öld var sögð fátækasta þjóð Evrópu, væri svona frábær, þá féll það sjálfsálit aldeilis með íslensku krónunni á síðustu mánuðum 2008 og útmánuðum þessa árs. Landafundir í fornöld, ótaldar fegurðardrottningar, Magnús Ver og Jón Páll, skákmeistarar, bridge spilarar, Eiður Smári, Björk eða landar á Forbes listanum, gerðu ekkert til að draga úr því falli.

1396368Sú sjálfsskoðun sem þjóðin lagðist ósjálfrátt í eftir hrunið og sem tæpast er lokið enn, finnst mér strax hafa leitt í ljós að þjóðin býr að a.m.k. tveimur heilladrjúgum þjóðareinkennum. Hið fyrra er að  getan til að endur-uppgötva sjálfa sig og endurskilgreina markmið sín sem þjóð. (Stundum kallað Ragnar Reykháss heilkennið)Hafi markmiðið verið "heimsyfirráð eða dauði" erum við fullkomlega sátt við það í dag að ráða yfir lífi og limum okkar eigin persónu og láta það nægja.

Hitt einkennið er svo sterkt í okkur að við getum ekki orðið sátt og hamingjusöm sem einstaklingar eða þjóð án þess að gangast við því og framfylgja því.

það þjóðareinkenni er; afar sterk réttlætiskennd.

Það sem þjóðinni svíður mest er að geta ekki náð fram réttlæti gagnvart þeim sem settu þjóðina á hausinn og að hún verði að sætta sig við að þrjótarnir sleppi án verðskuldaðrar hegningar því að þeim hefur tekist að koma sjálfum sér og fénu sem þeir stálu undan.  Þeir sitja enn í fínu húsunum sínum á Englandi (eða í kringum stjórnarborð þarlendra fyrirtækja),  enn með gullið í munnvikunum og ulla á alla hina sem liggja eftir í naglasúpunni sem þeir löguðu handa þjóð sinni.

fathers%20of%20icelandEf að stjórnvöld hefðu einbeitt sér að því strax að safna gögnum um þá sem ollu hruninu og gefa ekki þjófunum tækifæri til að fela slóðana, mundi vera mun auðveldara nú fyrir Evu Joly og nýju saksóknarana að hafa hendur í hári þeirra, (núna þegar loks er búið að láta hana og hennar starfsfólk hafa almennilega skrifstofu og síma). Því var ekki að fagna og flokkforingjarnir gengu á sínum tíma hver fram fyrir annan til að lýsa því yfir að fólk ætti að fara varlega í að benda fingri á einn eða annan, sjálfsagt vitandi að fingurinn mundi þá um síðir beinast að þeim sjálfum.

Þannig hefðu vammlaus stjórnvöld getað sameinað þjóðina að baki sér, a.m.k. í því máli, sem ekki er lítils virði þegar ljóst er að Grettistakinu sem hrunið skapaði, verður ekki haggað nema með sameinuðu átaki.

Sumir verða eflaust til að benda á að ekki séu enn öll kurl til grafar komin og það er rétt. En það veður að segjast eins og er að frammistaða stjórnvalda, bæði núverandi og þeirra sem réðu framan af vetri, til að tryggja að réttlætið nái fram að ganga, hefur ekki verið mjög sannfærandi fram að þessu. 


Heppni og óheppni Íslendinga

farmer-1Gömul saga úr Buddatrú segir frá bónda sem átti hest sem hljóp í burtu. Allir nágrannarnir komu til að votta honum samúð sína, segjandi; "mikil óheppni."

"Kannski" svaraði bóndinn.

Daginn eftir snéri hesturinn til baka og honum fylgdu margir villtir hestar. "Mikil heppni" sögðu nágrannarnir.

"Kannski" svaraði bóndinn

Nokkrum dögum seinna reyndi sonur bóndans að temja einn villihestanna. Hesturinn kastaði honum af baki þannig að hann fótbrotnaði. "þvílík óheppni" sögðu nágrannarnir.

"Kannski" svaraði bóndinn.

Viku síðar áttu hermenn leið um þorpið í leit að ungum mönnum til að þjóna í hernum. Þeir tóku alla sem þeir fundu nema fótbrotna bóndasoninn. "Þvílík heppni" kvað við í nágrönnunum.

Og þannig heldur sagan áfram.

Dag einn fengu íslenskir bankar ekki lengur fyrirgreiðslu annarra banka. Óheppni?

SheepÍ ljós kom að nokkrir íslenskir kaupsýslumenn höfðu farið með fjármuni þjóðarinnar og annarra sem eigin og tapað þeim. Nú komst loks upp um þá og sukkið stöðvaðist. Heppni?

Kannski sögðu margir.

Vegna þess að þeir höfðu platað peninga út úr almenningi í öðrum löndum urðu Íslendingar að borga fyrir þá skuldirnar og taka til þess lán. Óheppni.

Kannski sögðu margir.

Til að borga lánin verða Íslendingar að draga úr þenslunni í samfélaginu og reiða sig á það sem þeir raunverulega geta framleitt í staðinn fyrir blöðruviðskipti í útlöndum. Heppni.

Kannski sögðu margir.

Vegna þess að þetta hafði gerst á vaktinni hjá miklum frjálshyggjumönnum í pólitík, var efnt til mótmæla og þeir loks hraktir úr stjórn. Í staðinn komst til valda félagshyggjufólk sem beið það erfiða hlutverk að stýra landinu í gegnum erfiðleikanna. Óheppni fyrir þá.

Kannski sögðu margir.

En vegna þess að félagshyggjufólkinu stýrir kona sem mikill meiri hluti þjóðarinnar ber mikið traust til eru langflestir í landinu ánægðir. Heppni.

Kannski sögðu margir.

Svo kom að því að konan og hennar fólk gerði samninga um að borga það sem um var samið. Margir töldu að samningarnir væru slæmir, illa tímasettir, vextirnir of háir eða fara hefði átt með málið fyrir alþjóðlega dómstóla. Vegna þess var konan sem flestir treystu svo mikið, kölluð landráðamanneskja og svikari. Óheppni!

Kannski sögðu margir.

Og svona heldur sagan áfram.


Sterkar konur skilja eftir stóra sogbletti.

Þessi setning er höfð eftir Madonnu.

Hér á eftir fara nokkur fleyg ummæli sem frægt fólk hefur haft um ástina og kynlífið og samskipti kynjanna. 

sharon-stone-1Konur geta gert sér upp fullnægingu en karlmenn geta gert sér upp heilu samböndin. Sharon Stone

Ég vildi að ég fengi jafn mikla athygli í rúminu og ég fæ í blöðunum. Linda Ronstadt.

Kærastan mín hlær alltaf þegar við elskumst, alveg sama hvað hún er að lesa. Steve Jobs.

Einmitt, orðið skilnaður kemur úr Latínu og merkir þar að slíta af manni kynfærin í gegnum seðlaveskið. Robin Williams

Ég hef enn ekki heyrt karlmann kvarta yfir að þurfa að sameina starfsferil og hjónaband. Gloria Steinem

ericclapton_579_18564667_0_0_7001932_300Ég veit að það hljómar einkennilega komandi úr mínum munni, en ég er orðin þeirrar skoðunar að kynlíf sé aðeins til þess að fjölga mannkyninu. Eric Clapton

Það er tími til að vinna og tími til að njóta ásta. Til annars er engin tími. Coco Chanel

Allt sem er á annað borð þess virði að gera það, á að gera hægt. Mae West

Ást er ómótstæðileg þrá eftir að vera ómótstæðilega þráður. Mark Twain

Konur þurfa ástæðu til að hafa kynmök, karlmenn þurfa stað. Billy Crystal

gw_rod%20stewart%20tribute%20bandÍ stað þess að gifta mig aftur ætla ég að finna konu sem mér líkar ekki við og kaupa handa henni hús. Rod Stuart

Ég er svona góður elskhugi af því að ég æfi mig mikið einn. Woody Allen

Að vera sexý er 50% það sem þú hefur og 50% það sem fólk heldur að þú hafir. Sophia Loren

Kannski að þetta marki tímamót á starfsferli mínum. Paris Hilton á hinu fræga sex videoi sínu.

Er þetta byssa sem þú ert með í vasanum eða ertu bara svona glaður að sjá mig? Mae West


Mjög hættuleg hugmynd

Að geta ráðið því hvaða kyn barn þitt hefur. Að láta tölvur um að taka allar mikilvægar ákvarðanir fyrir mannkynið. Að það sé orðið of seint að gera eitthvað í loftslagsbreytingarmálum jarðarinnar og það þjóni hvort eð er ekki hagsmunum mannkynsins til lengri tíma að reyna það.

Spurningin er þessi; er til nokkur hugmynd sem talist getur hættuleg? Til er netsíða þar sem fólki er boðið að setja fram "hættulegar hugmyndir" og margir af fremstu hugsuðum heimsins hafa lagt þar orð í belg. Margt af því sem þar er reifað væri án vafa hættulegt ef því væri hrint í framkvæmt en að hugmynd ein og sér, eða að ræða hana, geti verið hættulegt, finnst mér vafasamur boðskapur. Síðan heitir The world Question center

Hvernig stendur annars á því að DIhinar svo kölluðu hættulegu hugmyndir fortíðarinnar eru í dag helstu viðmið okkar um það sem þykir réttlátt, satt og rétt.  Að allir menn séu fæddir jafnir, jafnrétti eigi að ríkja milli kynja, þjóðir eigi að stjórna sér sjálfar og þegnarnir að taka þátt í ákvörðunum þeirra, að skoðana og málfrelsi eigi að ríkja, eru allt dæmi um slíkar hættulegar en  góðar hugmyndir.

Og enn tíðkast það að hugmyndir séu taldar hættulegar á Íslandi.  

Ein er hugmyndin um að athuga með inngöngu landsins í EB, sem í mörg ár var talin svo hættuleg  að hún fékkst ekki rædd af stjórnvöldum. En nú þegar búið er að vinda að nokkru niður af þjóðarrembingnum sem heltók þjóðina á fyrstu árum hinnar nýju aldar, er hugmyndin ekki hættulegri en svo að nú ætla stjórnvöld að sækja um inngöngu án þess að gefa fólki kost á um að kjósa hvort það kæri sig yfirleitt um það.

Önnur er hugmyndin um að þjóðin sjálf fái að kjósa sér stjórnlagaþing til að endursemja stjórnarskrána. Hún er af mörgum talinn stór-hættuleg. Enda var hún blásin snyrtilega út af borðum ríkistjórnarinnar eftir að hún mætti málsþófi á alþingi, þrátt fyrir að báðir núverandi stjórnarflokkar hafi lofað því fyrir kosningar að beita sér fyrir slíku þingi. Kannski þegar að þessi stjórn er búin að fullvissa sig um að sama niðurstaða fæst alltaf ef þú gerir alltaf það sama og pottaáslátturinn fer að berast aftur frá Austurvelli, mun hugmyndin hætta að vera hættuleg.

Þriðja hættulega hugmyndin er um alvöru persónukjör til Alþingis þar sem frambjóðendur standa ekki á listum heldur bjóða sig fram sem einstaklingar, sem að sjálfsögðu mundi útrýma flokkapólitík með öllu. Afar hættuleg hugmynd ekki satt?  Hún er svo hættuleg að hún fæst ekki rædd af neinum stjórnmálamanni og fáum leikmönnum vegna þess að þeir vita sem er að stjórnmálaflokkarnir eru helsta uppspretta óeiningar og sundrungar í samfélaginu og á henni þrífst hið ofur vinsæla en vanþróaða "með og á móti" stjórnskipulag sem í raun er fjandsamlegt sönnu lýðræði þar sem hver og einn á ætíð að geta kosið samkvæmt sinni sannfæringu.

Þessi dæmi sýna í raun að það er aðeins til ein hættuleg hugmynd. Hún er sú að hugmynd geti verið hættuleg.


Hvað á að gera við bólgið sjálf?

117073917_51375f15be"Það sem við óttumst mest er ekki að við séum ófullkomin. Það sem við óttumst mest er að við séum óendanlega voldug. Það er ljósið í okkur, ekki myrkrið, sem við hræðumst mest. Við spyrjum sjálf okkur að því;"hvers vegna ætti ég að vera snjöll, fögur, hæfileikarík og fræg?" Spurningin ætti frekar að vera, "hvers vegna ekki ég." Þú ert barn Guðs. Að látast vera lítilfjörlegur þjónar ekki  heiminum. Það er ekkert göfugt við að skreppa saman svo fólk finni ekki fyrir óöryggi í nálægð þinni. Við vorum fædd til að opinbera dýrð Guðs sem er innra með okkur. Hún býr ekki aðeins í sumum okkar, heldur öllum. Þegar þú lætur eigið ljós skína gefur þú ómeðvitað öðru fólki leyfi til að gera slíkt hið sama. Þegar við losnum við eigin ótta, frelsar nærvera okkar sjálfkrafa aðra."

Monarch_butterfly_7Ég rakst á þessa tilvitnun á fésbókarsíðu frænku minnar, reyndar á ensku, en ákvað að snara henni og birta hana hér á blogginu til gamans og fróðleiks. Tilvitnun kemur frá Marianne Williamson sem er bandarískur rithöfundur og predikari í svo kallaðri Einingarkirkju sem var stofnuð í Bandaríkjunum á síðari hluta 19. aldar. Meira um hana að finna hér fyrir áhugasama.

Það sem vakti áhuga minn við efni þessarar tilvitnunar er að hún fjallar um sjálfsmynd okkar. Flestum þykir mont og sjálfhælni leiðinlegir persónueiginleikar en samt finnum við öll fyrir kenndum sem hæglega geta orðið að grobbi og monti sé þeim ekki rétt stýrt. Marianne bendir þarna á frábæra leið til að horfa á okkur sjálf í þessu tilliti. Sjálfupphafningartilfinningin er tempruð með þeim tilgangi að vera öðrum hvatnig.


Wabi-sabi

370525901_e003441123Wabi-sabi er Japanskt hugtak og tjáir tærustu fagurfræðilegu skynjun Japana. Hugtakið á rætur sínar að rekja til Búddískra kenninga um þrjú einkenni lífsins; forgengileika, ófullnægju og sjálfsleysi.

Það er notað um  allar tegundir myndlistar, nytjalist, arkitektúr og landslagshönnun. Wabi-sabi er fegurð hins ófullkomna og forgengilega, þess gallaða og ókláraða. Það er fegurð hins auðmjúka og auvirðilega og um leið hins óhefðbundna og einfalda. 

wabisabi_bathroom_alEf þú spyrð Japani hvað Wabi-Sabi sé, verður þeim oft fátt um svör. Allir Japanir vita hvað það er, en finna ekki orðin til að lýsa því. Orðin tvö hafa mismunandi merkingu þegar þau eru notuð í sitt hvoru lagi.

Sumir vesturlandabúar hafa sett wabi-sabi á bekk með hinni kunnu kínversku Feng shui speki, en þótt hugtökin skarist að nokkru þar sem bæði hafa víðtæka skírskotanir, er hugmyndafræðin að baki þeim ólík.

Orðin wabi og sabi eru bæði notuð sér í daglegu tali. Þau eru aðeins notuð saman þegar fagurfræði ber á góma. Sabi er oftar notað um efnislega listræna hluti, ekki um hugmyndir eða ritverk.

 

Black_Raku_Tea_BowlWabi tjáir fullkomna fegurð sem hefur rétta tegund ágalla, rétt eins eðlilegt munstrið sem sjá má á handgerðri leirskál en ekki í verksmiðju framleiddri skál með fullkomlega skínandi sléttri áferð og er sálarlaus framleiðsla vélar. Gott dæmi um það sem kallað er wabískur hlutur eru stífpóleraðir svartir herklossar sem á hefur fallið ryk þegar þeir voru notaðir við skrúðgöngu. Margir japanskir dýrir vasar eru gljáandi og kolsvartir með grárri rykslikju. 

Sabi er sú tegund fegurðar sem aldurinn ber með sér, eins og patína á gamalli bronsstyttu. Sabishii er í daglegu tali notað yfir eitthvað sorglegt, eins og t.d. sorglegan endi í kvikmyndum. En orðið yfir ryð er líka borið fram sabi.


Kristnir "Talibanar" til Genfar

johncalvinJean Cauvin (betur þekktur sem Jóhann Kalvin) var aðeins átta ára þegar Martin Lúther negldi hið fræga skjal sitt á kirkjuhurðina í Wittenberg árið 1517 og hóf þannig baráttu sína sem kennd er við siðbót innan kristinnar trúar.  

Kalvin átti þá heima í fæðingarbæ sínum Noyon í Frakklandi og hafi verið alinn upp við kaþólska trú af löglærðum föður sínunm.  Hann gerðist mótmælandi ungur að árum og til að forðast ofsóknirnar sem þá voru tíðar á hendur mótmælendum,  flúði hann Frakkland til Basel í Svisslandi. Þar nam hann guðfræði og skrifaði sitt frægasta rit, "Stofnanir kristnu trúarbragðanna" sem kom út þegar hann var aðeins 27 ára gamall.

Hann heimsótti borgina Genf 1536 þar sem mótmælendur voru fjölmennir og tók þar upp kennimannsstöðu. Hann lenti fljótlega í útistöðum við borgarbúa vegna púritanískra skoðana sinna og var eiginlega rekinn frá borginni 1538. Hann gerðist þá klerkur í Strassburg og stundaði þar einnig skriftir. Honum var samt boðið að snúa aftur til Genfar árið 1541 og varð eftir það óumdeildur leiðtogi borgarbúa allt til dauðadags árið 1564.

calvin_libertines2-300x239Í Genf hrinti Jóhann Kalvin í framkvæmd kenningum sínum um hvernig kristið samfélag ætti að starfa, þótt að nafninu til væri borginni stjórnað af 25 manna borgarráði sem Jóhann átti ekki sæti á. Undir hans stjórn varð Genfar að miðstöð mótmælenda í Evrópu og stundum nefnd "Róm mótmælenda."

Í Genf Kalvins var framhjáhald og allt lauslæti gert að alvarlegum glæp. Fjárhættuspil, víndrykkja, dans og dægurlaga söngur var algjörlega foboðið athæfi að viðlagðri harðri refsingu. Öllum var gert skylt að mæta til guðþjónustu í kirkjum borgarinnar á vissum tímum þar sem predikanir klerkanna voru yfirleitt afar langar. Þá var allur skrautklæðnaður bannaður og ekkert mátti taka sér fyrir hendur á hvíldardeginum.

112Kalvin var mjög óumburðalyndur og  fljótur til að fordæma þá sem ekki fóru eftir túlkunum hans. Einn af frægari andstæðingum hans var Mikael Servetus, spánskur læknir og guðfræðingur sem ekki hugnaðist kenningarnar um þrí-einan guð. Þegar Servetus heimsótti borgina lét Jóhannes handtaka hann og dæma fyrir villutrú. Servetus var síðan brenndur á báli árið 1553. Talverður fjöldi manna og kvenna hlaut sömu örlög undir stjórn Jóhanns í gegnum tíðina, flestir fyrir galdra og villutrú. (Myndin sýnir tvo Dóminik-munka sem brenndir voru í Genf árið 1549)

Ýmsir trúarhópar spruttu upp sem studdust við kenningar Kalvins og má þar á meðal nefna Presbyterian-kirkjuna í Skotlandi, Hugenotta í Frakklandi og Púrítananna í Englandi. Kalvinísk mótmælendatrú varð ofaná í Sviss og Holllandi og einnig er stóra Kalviníska söfnuði að finna í Póllandi, Ungverjalandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.

Uppi hafa verið kenningar um að afstaða Kalvins til vinnu-siðferðis og sú staðreynd að hann lagðist ekki gegn því að vextir væru teknir af fé, hafi átt stórann þátt í uppgangi kapitalismans  (Auðhyggju) í Bandaríkjunum og Evrópu. Einnig að ástæðan fyrir því að nútíma lýðræði þróaðist fyrr í löndum þar sem Kalvinistar voru jafnan í minnihluta, hafi verið vegna þrýstings þeirra um virka þátttöku í málefnum samfélagsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband