Pólitíkusinn Ólafur Ragnar sýnir klærnar

Ólafur Ragnar gerir að ekki endasleppt og innkoma hans í þennan forsetakosningaslag hlýtur að vera einsdæmi í sögu íslenskra forsetakosninga. Hanskarnir eru strax komnir af og Ólafur kemur grenjandi til leiks og heggur í átt til allra pólitískra óvina sinna, fyrrum félaga sinna úr stjórnmálunum.  

Þarna er gamli góði rammpólitíski Ólinn kominn aftur og sýnir klærnar.  Ólinn sem kann að spila á strengi sundurlyndis og ósættis pólitískra andstæðinga sinna og láta sjálfan sig líta út fyrir að vera saklaust fórnarlamb. -

Það er fyrirsjáanlegt að þessi kosningabarátta verður rammpólitísk.  En það sem verra er,  að með því að fara þessa leið hefur Ólafi tekist að gera embættið sjálft rammpólitískt og þar með svipt það öllu sem gerði það að þeim friðarstóli sem það átti að vera samkvæmt stjórnarskrá.

Ólafur nýtir sér óhikað óánægju og upplausnarástandið sem ríkir í þjóðfélaginu og gerir að því skóna að hann einn hafi það sem þarf til að standa vörð um lýðræðið og sjálft sjálfstæði þjóðarinnar. Ólafur hljómar þannig í ískyggilega eins og lýðskrumarar og mannkynslausnarar gerðu í Evrópu um miðbik síðustu aldrar.


mbl.is Segir Jóhönnu í herferð gegn sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Ólafur ætlar sér að reka forsetaembættið sem stjórnmálaflokk.

Nokkuð sem þjóðin þarf síst á að halda né hugnast.

hilmar jónsson, 13.5.2012 kl. 13:13

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já já. þarna kom nú ,,sameiningartáknið" fram.

Maður spekúlerar samt í hvort þetta hafi ekki verið of mikið í lagt svona sem fyrsta útspil. það var barasta hent bombum hægri vinstri og allt völlurinn var rjúkandi rúst eftir viðtalið. það var RUV og það var Jóhanna og það var EU og ég veit ekki hvað og hvað - Jú, og flestir fjölmiðlar undir skildist manni.

Maður spyr sig hvort þetta hafi ekki verið soldið yfirdrifið. Eða vill fólk almennt hérna á landinu þetta? þ.e.a.s. þessa taktík í öllum málum, líka varðandi forsetaembættið. Maður spyr sig.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.5.2012 kl. 14:10

3 identicon

Líklega er ÓRG búinn að átta sig á að leikurinn er tapaður. Eftir performansinn hjá sme í morgun, þá er ljóst að á eftir það getur hann ekki verið sameiningartákn, það er af og frá. Hann er búinn að kalla stóran hluta þjóðarinnar beinlínis óvini sína. Það er því ljóst, að ef svo ólíklega færi að hann næði enn og aftur kjöri, yrði honum eftirleikurinn fráleitt auðveldur.  

Tortóli (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 15:08

4 identicon

Sæll Svanur Gísli æfinlega; og aðrir gestir, þínir !

Tortóli; góður !

Síðan hvenær; hafa Íslendingar þurft á einhverju ''sameiningar'´tákni, að halda ?

Aldrei nokkurn tímann; hafa landsmenn sýnt samstöðu, um mikilvæga hluti - og fara tæpast, að taka upp á því, úr þessu. Enda; samansafn upprunnið, úr ýmsum Asískum og Evrópskum ættbálkum, hvort eð er, Tortóli minn.

Hins vegar; er SJÁLFSAGÐUR HLUTUR, að Ó. R. Grímsson, veiti þeim landsmönnum forystu, sem merja vilja niður - og murka; hið ógeðfellda alþingi, sem hefir allt, frá endurreisn þess, vera einka klúbbur sérgæðinga og sérhagsmuna, Helvízkt !

Með kveðjum góðum; úr gjólunni í Árnesþingi, öngvu; að síður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 16:01

5 identicon

Svanur. Er það rammpólitískt að leifa þjóðinni að kjósa um mjög umdeild mál sem misvitrir og/eða spiltir stjórnmálamenn reyna að troða upp á þjóðina.

Benni (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 16:18

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það þarf ekki endilega að vera rammpólitíkst Benni. Forsetinn hefur rétt til að skjóta umdeildum málum til þjóðarinar og sá réttur er sjálfsagður og óþarfi að líta á það sem einhvern hetjuskap að gera það. Ólafi er þakkað fyrir að skjóta Icesave til þjóðarinnar og það var ágætt. Hitt er annað mál að því máli er hvergi lokið og er núna fyrir dómstólum. - Það er hiunsvegar óeðlilegt að draga allkonar pólitískar flokkslínur í forsetaframboðið eins og ÓRG gerði í dag. Eða er það svo að fólk getur ekki einu sini ímyndað sér ópólitískan forseta, sem skjóti umdeildum málum fyrir þjóðina eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir?

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 16:27

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Óskar Helgi. Það ríkti sátt bæði um forseta sem persónu og um embættið sjálft í tíð Kristjáns og Vigdísar. - Þess vegana er afar óheppilegt að forseti skuli koma úr röðum póltíkusa því hann getur ekki annað en dregið með sér alla þá ósiði og lágkúru sem slíkir menn iðka inn í embættið.- Það hefur svo sannarlega sannanst á ÓRG í dag.

Forseti á að standa í stríði við Alþingi eða aðra, jafnvel þótt hann skjóti umdeildum málum til þjóðarinnar. Ólafur hefur ekkert verið að kvarta undan því að vera ofsóttur fram að þessu. Nú þegar hann sér að hann er í þann mund að tapa, geysist hann fram og heggur frá sér í allar áttir svo ekki stendur steinn yfir steini. - Það er pólitísk lágkúra.

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 16:37

8 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Forseti á EKKI að standa í stríði......átti vitanlega að standa þarna :=)

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 16:38

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Stundum verður forseti að standa í stríði, til að verja rétt lýðsins. Lýðsins sem vinnur hörðum höndum og borgar skatt til embættis-stjórnarinnar í stjórnarráðinu seðlabankastýrða.

Við getum ekki horft fram hjá staðreyndum, ef við viljum að mögulegt sé að taka mark á okkar málflutningi.

Þetta er í raun ein hringavitleysa heims-auðkýfinganna siðblindu.

En enginn þorir að segja það svona hreint og beint. Fjölmiðlar ríkja eru gerðir út af þöggunar-pólitískum öflum heimsmafíunnar.

Til "hamingju" Íslands-RÚV, að vera komnir í djúpt sokknu heimsspillinguna siðblindu og helsjúku.

M.kb.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.5.2012 kl. 17:28

10 identicon

Gleymir þú ekki Svanur

Valdi  forsetans varðandi  stjórnarmyndun

er það ekki rammpólitískt?

Ef maður vill fiðrarstól á Bessastaði þá kýs maður Ástþór.

Grímur (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 17:54

11 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Svanur Gísli !

Rétt; sem skylt, að minna þig á, að Vigdís Finnbogadóttir SVEIK landsmenn í griðum; Veturinn 1992 - 1993, þá hún hunzaði óskir þorra fólks, um þjóðar atkvæðagreiðslu, um EES gjörningana. Hver; var ópólitískur, þá ?

Skoða þu ögn betur; framvindu mála, áður en þú ákveður fyrirfram, hver tapi kosningunum 30. Júní næst komandi Svanur minn, áður en lengra er haldið, fornvinur góður.

Tek undir; með hinni mætu Önnu Sigríði, í mörgu því, sem frá henni kemur - sem oftar, reyndar.

Ekki síðri kveðjur; hinum fyrri, gott fólk /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 18:00

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hlutverk við stjórnarmyndun er auðvitað ekkert pólitískt. Bara formið.

þetta með Vigdísi Forseta og EES þvargið á sínum tíma - að þá reyndar var hún alveg með´etta. Hennar orð eldast vel og mættu gjarnan sumir lesa þau vandlega og íhuga í nkkra daga:

"Frá stofnun lýðveldis á Íslandi hefur embætti forseta Íslands verið í mótun. Þar hefur jafnt og þétt styrkzt sá meginþáttur embættisins að vera óháð og hafið yfir flokkapólitík og flokkadrætti, en um leið samnefnari fyrir íslenzka þjóðmenningu, mennta- og menningarstefnu Íslendinga, tákn sameiningar en ekki sundrungar. Glöggt vitni um það eðli embættisins er, að enginn forseti hefur gripið fram fyrir hendur á lýðræðislega kjörnu Alþingi, sem tekið hefur sínar ákvarðanir með lögmætum hætti."

Nú, hitt er annað, að ef þjóðin hérna vill hafa pólitískan forseta og jafnvel einráðan forseta eða einvald sem kallast - þá auðvitað andskotast menn til að samþykkja það á þar til gerðan lýðræðislegan hátt! Ekkert flóknara en það. Menn hafa nú bara haft einhver 70 ár til þess. það hafa þeir hinir sömu innbyggjar eigi gert. Meðan svo er - þá er allt tal um politískan forseta og einvald hérna barasta útí himinbláinn og flík er bara alveg útí móa.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.5.2012 kl. 18:11

13 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Grímur, einhverveginn komust forverarnir, Kristján og Vigdís hjá því að feykja upp pólitísku molldviðri þrátt fyrir að verða gefa heimildir til stjórnarmyndunar. - Þú getur, ef þú villt gert allt pólitískt, eða bara haldið þig við hefðirnar.

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 18:25

14 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Burt séð frá því hvaða skoðanir fólk hefur á ÓRG, þá er alveg ljóst að Samfó er í herferð gegn honum þar sem hann vísaði arfavitlausum Icesave samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Samfó er nefnilega alveg meinilla við lýðræði,sama í hvaða mynd það birtist.

Guðmundur Pétursson, 13.5.2012 kl. 19:39

15 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Guðmundur, OK samfó er á móti ÓRG en XD fylkir sér um hann. Hvað getur það orðið pólitískara?

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 20:07

16 identicon

Ómar. Hvernig á forsetinn að verða einvaldur? Bentu mér á eitthvert ákvæði í stjórnarskránni sem veitir honum þá heimild. Er það einveldi forseta að geta vísað máli til þjóðarinnar? Málið er, að hann er líklega hugrakkasti forseti sem Ísland hefur átt. Segðu mér svo. Hvað höfum við að gera með forseta sem sameiningartákn? Er Íslenski fáninn Ekki fínn sem slíkur? Hann er allavega ódýrari.

Benni (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 20:36

17 identicon

Svanur. Þetta ekki flokksbundið, nema af hálfu samfylkingar, enda ætlar að koma okkur í ESB, hvað sem raular og tautar.

Benni (IP-tala skráð) 13.5.2012 kl. 20:43

18 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Benni, hvar hefur þú séð að hægt sé að ganga í ESB án þess að um það verði kosið fyrst í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 20:51

19 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Og hvað segir Þóra Arnórs um málið?

Alþingi samþykkti árið 2009 að Ísland skyldi sækja um inngöngu í Evrópusambandið. Í þingsályktuninni kemur skýrt fram að væntanlegur aðildarsamningur skuli fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Viðræður hafa staðið yfir síðustu ár og ef samningar nást og nefndin kemur heim með aðildarsamning, þá afgreiðir Alþingi hann fyrst frá sér og leggur hann síðan í þjóðaratkvæði. 

Forsetinn hefur því engin áhrif á þá framvindu og á ekki að skipta sér af henni. Það sem ég hef sagt er að ef svo ólíklega skyldi vilja til að einhverjum dytti í alvörunni í hug að reyna að fara framhjá því að þjóðin eigi lokaorðið í algerlega hreinni og beinni atkvæðagreiðslu (þ.e. bara já eða nei), þá væri það dæmi um neyðartilvik þar sem forsetinn grípur inn í. Þannig að ég get fullyrt að það verður þjóðaratkvæðagreiðsla um mögulega inngöngu Íslands í ESB.

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 21:25

20 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Benni, fólk er að tala þannig eins og það sé eftirsóknarvert að fó pólitískan forseta með mikil pólitísk völd og hann geti verið að vasast í öllum málum. Sem sagt að hann ráði sem mestu. Fólk er að tala þannig.

það sem eg bendi á, heilt yfir og almennt séð, er að fólk er ekkert búið að hugsa þetta til botns eða til enda. að er hvergi það fyrirkomulag að einhver gæi útí bæ geti hrært í öllum samþykktum lýðræðislega kjörins þings - gjörsamlega án ábyrgðar.

Annaðhvort er hefðbundið þingræði eins og td. á N-Löndum eða forseti með völd - sem styðst við þingið í viðkomandi tilfellum. (Í stuttu máli). Íslenska leiðin er algjörlega ótæk.

Hitt er annað, að ef fólk hérna vill fá að kjósa um öll mál í þjóðaratkvæði eða geta krafist þess - nú þá andskotast hið sama fólk til að samþykkja það á þar til gerðan lýðræðislegan hátt! það hefur bara haft 70 ár til þess. Aðeins. Nei nei. Á eim tíma hefur það kosið Sjalla til valda hérna slag í slag, trekk í trekk! Flokk sem algjörlega er á móti slíku!

Ef fólk vill þjóðaratkvæði þá er einfaldasta mál í heimi að setja reglur um að visst hlutfall geti krafist þjóðaratkvæðis. það er gjörsamlega tilgangslaust að vera að blanda einhverjum forseta útí bæ í það.

Fólk er ekki mara útí móa með þetta - það er útí Hádegismáa!

Hinsvegar er það mitt mat að það sé skaðlegt landinu að fara að setja öll mál í þjóðaratkvæði. Skaðlegt landinu og þ.a.l. þjóðinni. Eg vara við því. Eigi veldur sá er varar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.5.2012 kl. 21:26

21 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Já, já, hún getur fullyrt að það verði þjóðaratkvæðagreiðsla. En sá skrípaleikur er aðeins ráðgefandi fyrir hið spillta alþingi sem hikar ekki við að gera það sem þeim sýnist, þrátt fyrir að liggi fyrir í skoðanakönnunum að 80-90% sé á móti hinu og þessu, þá skiptir það engvu máli fyrir þetta pakk. Svo ég noti orð Óskars Helga, hið ógeðfellda alþingi, sem hefir allt, frá endurreisn þess, vera einka klúbbur sérgæðinga og sérhagsmuna, Helvízkt !

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 13.5.2012 kl. 21:50

22 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þessi "ráðgefandi " mantra er orðin nokkuð þreytt. Vitanlega mun Alþingi og forseti lúta úrslitum Þjóðaratkvæðagreiðslu. - Annað hefur aldrei komið til greina. -

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.5.2012 kl. 22:01

23 identicon

Svanur. Þú kemur akkúrat að kjarna málsins. Ég vil hafa Ólaf til staðar ef þetta "neyðartilvik" kemur upp. Og þá síst samfylkingar og evrópusinnan, Þóru. Og Ómar. Svo ég spyrji aftur. Hvernig á forsetinn að ráða öllu? Ég veit ekki um neinn sem vill að það eigi að hafa þjóðarathvæði um öll mál. Ég er sammála Sigurði. Mér finnst skjóta skökku við, miðað við álit þitt á alþingi, að þú sért andsnúinn málskotsréttinum.

Benni (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband