Íslenska undirstéttin

Íslendingar virðast vera á góðri leið með að skapa varanlega undirstétt ákveðinna borgara í landinu. Það er ekki tilviljun að hvar sem maður kemur í fyrirtæki þar sem þrif eru fyrirferðamikill hluti af rekstri, eru það innflytjendur sem sinna þeim störfum. Að sinna láglaunastörfunum hvers konar er hlutskipti þeirra.

Til innflytjenda teljast einstaklingar sem eru fæddir erlendis og eiga báða foreldra af erlendum uppruna. Og á meðal þeirra er skólasókn miklu lægri en meðal annarra Íslendinga. Aðeins rétt um 50% þeirra sækir skóla eftir 18 ára aldur, miðað við 78% annarra landsbúa. Og ef miðað er við 16 ára aldur, er hlutfall  innflytjenda sem sækja skóla, líka talsvert undir meðaltali.

Flestir eru samála um að besta leiðin til að forðast félagslegt misrétti, myndun fátækrastétta og öll þau flóknu vandmál sem því fylgir,  er að tryggja jafna aðstöðu til mennta fyrir alla þjóðfélagsþegnana. Hér virðist pottur brotinn og grípa þarf til ráðstafanna strax áður en ástandið verður enn verra.

Þótt ætíð hafi verið talsvert bil milli fátækra og ríkra í landinu, hefur það bil, eftir að þjóðin komst á legg, ætíð verið temprað af möguleika allra landsmanna til að mennta sig og skapa með menntun sinni mannsæmandi  lífsviðurværi og lífsstíl fyrir sjálfa sig.

Að leyfa undirstéttum að festa sig í sessi á Íslandi væri mikill skaði fyrir þjóð sem grundvölluð var á stéttleysi og jöfnuði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ef við losnum við Samfylkinguna er möguleiki á því að líft verði á Íslandi.

Þeir innflytjendur sem á einn eða annan hátt ná ekki að mennta sig og komast því ekki í góðar stöður í þjóðfélaginu, hafa aldrei verið neinar skorður settar á Íslandi. Allir hafa haft sama möguleika til náms á Íslandi.

En þú vilt kannski að menn séu gerðir að forstjórum vegna þess að þeir eru Pólverjar, fari á þing vegna þess að þeir eru frá Palestínu og sjái um jafnréttismál vegna þess að þeir eru í Samfylkingunni? Það er álíka mikið rugl og ráða konu, og taka hana fram yfir karl, sem er betur menntaður með meiri reynslu fyrir þá stöðu sem er verið að veita.

Þeir sem enn vilja ólmir inn í ESB verða að vera því viðbúnir að stærsti hluti Íslendinga verður við það undirstétt. Pólverjar eru í ESB, og eru undirstétt á Íslandi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.11.2011 kl. 21:04

2 Smámynd: Ragnhildur Gunnarsdóttir

Skil ekki hvert Vilhjálmur er að fara. Alls ekki sammála að allir hafa jafnan rétt til náms þó svo að það sé kannski svoleiðis á pappírum þá er oft raunveruleikinn annar. Bara ef við skoðum börnin strax í leikskóla sjáum við hvað einstaklingarnir þurfa mismikið eins og t.d. í örvun á málþroska og ef við getum ekki stutt vel við börn af erlendum uppruna strax á fyrstu árunum þá eru þau ekki með nógu góðan grunn til að byggja allt sitt nám á og eiga því erfiðara með að læra og að lokum detta þau út úr skólakerfinu að því að við höfum brugðist þeim.

Síðan er peningahliðin og framhaldsnám allt annar kafli sem jafnar alls ekki rétt allra til náms. Ég hafði t.d. ekki efni á að mennta mig fyrr en ég var skilin og var einstæð móðir en þá gat ég fengið námslán þannig að ég gæti lifað á þeim. Gæti ekki verið meira sammála þér Svanur Gísli þessi mál þarf að laga.

Ragnhildur Gunnarsdóttir, 30.11.2011 kl. 21:22

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Faðir minn var innflytjandi, vart talandi á íslensku. Hann var ekki langskólagenginn, en kom sér vel fyrir í íslensku þjóðfélagi, vinnusamur og reglusamur. Börn hans menntuðust öll betur en hann, og ég er t.d. atvinnulaus doktor. Hann gat boðið mér meira fjárhagslegt öryggi en ég get börnum mínum. Menntun er ekki vottorð fyrir velsæld og lífsfyllingu, Ragnhildur Gunnarsdóttir.

Eigandi asísks veitingarstaðar vinnur baki brotnu eins og faðir menn gerði. Börn hans hafa alla möguleika eins og ég. Þau geta orðið atvinnulausir doktorar og allt annað, en möguleikarnir eru fyrir hendi. Það er ekki endilega óhamingja að detta út úr skólakerfinu og sumir eru kannski ekki til þess fallnir að ganga menntaveginn. Við getum ekki öll verið með háskólapróf upp á vasann þegar við við skráum okkur atvinnulaus hjá ESB.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.12.2011 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband