Pant vera aðal

j_gnarrUmræðan í aðal sandkassanum í Reykjavík er málefnaleg eins og venjulega. Jón Gnarr segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir hafi framið pólitísk skemmdarverk. Hanna Birna segir að það hafi verið Jón Gnarr sem framdi pólitískt skemmdarverk. Jón segir að Hanna Birna beiti hann ofbeldi. Hanna Birna segir ligga ligga lá og að hún sé fólkið í borginni og megi segja það sem hún vill.

Það næðir um Jón Gnarr þessa dagana, enda kallt á toppnum.  Allir eru vondir við hann og svo hrapaði fylgi Besta flokksins svo mikið í síðustu könnun að Jón hlýtur að gráta sig í svefn á kvöldin.  Getur það verið að fólk kunni ekki lengur að meta grínið? -

Allir grínistar eru viðkvæmir fyrir gagnrýni á þá sjálfa. En á meðan allir klappa, heyrist gagnrýnisbaulið ekki. Nú bregður svo við í uppistandinu hjá Jóni Gnarr og Besta flokknum heyrist lítið í klappliðinu. -

Þrátt fyrir þetta reynir Jón Gnarr áfram að vera fyndinn. Hann vill stela hugmyndinni um skessuhelli frá Keflavík og setja einn slíkan í húsdýragarðinn og láta feitan kött um að trekkja krakka og túrista að. - Annars veit maður aldrei með Jón. Kannski meinti hann þetta í alvörunni eins og með ísbjörnin.

 

 


mbl.is Pólitísk skemmdarverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband