Færsluflokkur: Dægurmál

Lífshættulegar aðstæður palestínskra flóttamanna í Írak -

Lífshættulegar aðstæður palestínskra flóttamanna í Írak 22.05.2008
Palenstínskar flóttakonur strandaðar í Al Waleed flóttamannabúðunum. Heilsuástand í búðunum er áhættusamt, næsti spítali er í nokkurra klukkutíma fjarlægð í Írak og leiðin þangað er hættuleg. © UNHCR/M.Alfaro

Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna hefur lýst áhyggjum yfir aðstæðum hjá hundruðum Palestínumanna sem hafast við í Al Waleed flóttamannabúðunum nálægt landamærum Íraks og Sýrlands.

„Við erum sérstaklega áhyggjufull varðandi skort á heilsugæslu – margir af þeim 942 flóttamönnum sem búa í flóttamannabúðunum þurfa nauðsynlega á læknishjálp að halda, þar á meðal sjö barna móðir sem þjáist af hvítblæði og unglingspiltur með sykursýki,”  sagði Jennifer Pagonis, talsmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna, blaðamönnum í Genf á þriðjudag.

Teymi frá Flóttamannastofnun heimsótti Al Waleed fyrir viku til að meta aðstæður og þarfir palestínska fólksins í búðunum, sem eru um þrjá kílómetra frá landamærum Íraks og Sýrlands. Þessi hópur staðfesti að palestínsku flóttamennirnir, sem eru fórnarlömb ofsókna í Baghdad, búi við vafasamar aðstæður.

Flóttamannabúðirnar eru ofsetnar og margt fólk þjáist af öndunar- og öðrum kvillum og þarfnast almennilegrar læknishjálpar. Næsta heilsugæslustöð í Írak er í fjögurra klukkutíma fjarlægð, og vegurinn liggur um hættulegar slóðir. Að minnsta kosti þrír, þar á meðal ungabarn hafa látist af völdum sjúkdóma sem auðvelt hefði verið að lækna á þeim tveimur árum sem búðirnar hafa verið opnar.
 
„Það er engin afsökun fyrir þjáningum Palestínumanna sem hafast við í búðunum í Al Waleed. Þeir flúðu vegna morða á ættingjum og morðhótana og horfast nú í augu við dauðann í Al Waleed,” sagði Michelle Alfaro starfsmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna í Damaskus sem heimsótti búðirnar á sunnudag. Hún varaði við því að fleira fólk myndi deyja ef það fengi ekki læknisaðstoð.

Teymið frá Flóttamannastofnun gat einungis veitt nokkrum barnshafandi konum fyrstu hjálp og veitt öðrum sálrænan stuðning.

Aðstæður í Al Waleed versna mjög mikið nú á sumarmánuðum. Hitinn í þessum mánuði hefur nú þegar mælst yfir 50 gráður á selsíus og hætta er á sandbyljum.

Alþjóðleg hjálparsamtök, þar á meðal Flóttamannastofnun, mega ekki vera lengi í búðunum af öryggisástæðum. Teymið frá Flóttamannastofnun sem heimsótti Al Waleed í síðustu viku komst að búðunum í gegnum Sýrland.

Vatn er flutt í búðirnar daglega, en það er takmarkað við minna en einn lítra á mann (samkvæmt alþjóðlegum stöðlum þarf hver maður 20 lítra á dag) vegna þess hve palestínskum flóttamönnum sem koma til Al Waleed fjölgar. Búast má við að fleiri bætist í hópinn. Alþjóða Rauði krossinn flytur reglulega vatn til Al Waleed, auk þess að útvega tjöld, sjá um sorphirðu og dreifa hreinlætisvörum.
 
Talið er að 1.400 Palestínumenn búi við vonlausar aðstæður í flóttamannabúðum meðfram landamærum Íraks og Sýrlands. Þeir komast hvergi þar sem hundruð þúsunda íraskra og palestínskra flóttamanna eru fyrir.

Palestínumenn sem flýja árásir í Írak geta nú hvergi farið nema til Al Waleed þar sem  engin aðstaða er til að taka við fleira fólki. Flóttamannastofnun hefur hvað eftir annað beðið um alþjóðlegan stuðning til handa flóttamannanna en með takmörkuðum árangri.

 


Ofsóknir halda áfram í Íran

Stuttu á eftir íslömsku byltinguna í Íran árið 1979 voru 9 meðlimir Andlegs þjóðarráðs bahá'ía handteknir og teknir af lífi.

Þessar ungu konur voru hengdar í Shiraz, Íran18. Júní 1983 fyrir það eitt að kenna börnum að lesa og fyrir að tilheyra trú sem múslímar viðurkenna ekki, Bahai trú. Hér má finna myndband sem gert var um stúlkuna sem fyrst er á myndunum Móna:

 bahai_martyrs_iran

Nú hafa stjórnvöld handtekið þetta fólk (sjá mynd) sem starfaði sem óformlegur hópur sem sá um málefni stærsta minnihluta trúar-hóps í Íran; meðlimi Bahai trúarinnar. Ekkert hefur spurst frá þeim síðan fólkið var handtekið 15. maí. Frá upphafi hafa yfir 20.000 manns verið tekið af lífi og fjöldi pyntaður fyrir það eitt að tilheyra þessu trúfélagi. 

632_01_IMG_9367

Á myndinni má sjá þá handteknu: Sitjandi frá vinstri, Behrouz Tavakkoli og Saeid Rezaie. Standandi, Fariba Kamalabadi, Vahid Tizfahm, Jamaloddin Khanjani, Afif Naeimi og Mahvash Sabet.

Frá því íslamska lýðveldið Íran var stofnað hafa mörg hundruð bahá'íar verið líflátnir, fangelsaðir eða pyndaðir í því skyni að fá þá til að ganga af trúnni og játast íslam. Tugir þúsunda hafa misst atvinnu eða neyðst til að flýja heimalandið. Ungum bahá'íum hefur verið neitað um inngöngu í háskóla og framhaldsskóla og fólk sem komið var á eftirlaunaaldur hefur verið svipt eftirlaunum og ellilífeyri. Í skjali írönsku stjórnarinnar sem Mannréttindanefnd SÞ hefur birt er að finna áætlun um upprætingu bahá'í samfélagsins í Íran með langtímaaðgerðum sem miða að gera aðstæður þeirra og lífskjör óbærilegar.

 


Erum við menn eða maurar?

 icarus                                                                           Ég hef verið velta fyrir mér undanfarna daga, sjálfsagt af því að ég hef verið að horfa á sjónvarp og lesa fréttir á netinu meira en áður, hvernig öll umfjöllun, nánast sama um hvað hún fjallar, er gjörsamlega  eimuð af öllum sjónarmiðum sem ekki taka fyrst og fremst tillit til efnahagslegra atriða.  Auðhyggjan er orðin svo allsráðandi að enginn umræða getur talist marktæk, hvað þá áhugaverð, allavega ekki fyrir fjölmiðla,  sem endurspegla sjálfsagt viðhorf þjóðarinnar,  ef hún beinist ekki eingöngu að afmörkuðum þáttum efnishyggjunnar. 

Hvort sem fjallað er um byggðamál, menntamál, náttúruvernd,  heilsu og heilbrigðismál, menningu eða listir, eru sjónarmiðin og rökin fyrir því hvort eitthvað sé gott og viðeigandi, eða slæmt og óásættanlegt, ávallt fyrst og fremst efnahagsleg.  Jafnvel hin svo kallaða manngildisstefna, sem sumum pólitíkusum þótti um tíma vænlegt að hampa með von um atkvæði þeirra sem undir hafa orðið í gæðakapphlaupinu, og sem fela átti í sér að tillit væri tekið til andlegra þátta eins og réttlætis og samúðar við stjórn mannlegra málefna, hefur dagað uppi sem óljós og óframkvæmanleg hugmyndafræði í hinu skæra ljósi materialismans. 

Hið mannlega samfélag tekur á sig æ sterkari mynd maurabús, þar sem hlutverk hvers maurs er eingöngu að færa efnislega björg í bú.  Maurabúin eru vissulega vel skipulögð, því þar fara allir eftir settum reglum sem njörvuð eru í genamengi tegundarinnar.  Hegðunarmynstur mannsins  ræðst af þeirri hugmyndafræði sem fólk aðhyllist og hún er á okkar tímum sú að efnið sé upphaf og endir alls.  Það er því  skiljanlega mikið kappsmál  efnishyggjuprelátanna að kenna og stuðla að hugmyndafræði sem virkar  sem líkast genamengi maursins.

Til að styrkja þá heimssýn leggja efnishyggjupredikararnir sig eftir því að reyna að sanna að maðurinn sé í raun einnig erfðafræðilega stór maur, þar sem gena-uppbygging ráði hæfni hvers einstaklings til að  komast af í þessu samfélagi.  Þeir sem trúa þessu gera sér vonir um að með tíð og tíma verði hægt að koma í veg fyrir það sem þeir kalla “andfélagslega” hegðun með því að krukka svolítið í genin.  Andfélagsleg hegðun er svo samkvæmt kenningunni allt sem ekki er þjóðhagslega hagkvæmt.

Fs-DeathKerfisbundin útrýming sjúkra á fósturstigi, útrýming dýrategunda, hömlulaus ágangur á náttúruauðlindir, tilkoma uppeldisstofnana og skóla þar sem gildi efnishyggjunnar eru vægðarlaust innprentuð og þeir sem ekki ná að tileinka sér þau eru lagðir í einelti, eru  aðeins fyrstu skrefin í þessa átt.  Auðhyggjan sem ráðamenn og hugmyndasmiðir þeirra hafa klætt í fróman hjúp frjálshyggjunnar sem þeir boða sem órjúfanlegt lögmál, þar sem allir hlutir verða að metast og mælast eftir, er því í tilgangi sínum sama lögmálið og maurarnir lúta.  Á þeirra máli heitir það að ná fram sem mestum efnahagslegum ávinningi og bestu framleiðni.  Hið svo kallaða “lögmál markaðarins” er ekkert annað en samheiti fyrir gildismat og viðhorf þeirra sem markaðinn stunda. 

 Blygðunarlaust afneita efnishyggjumennirnir því að hugtök eins og réttlæti, miskunnsemi, og samhygð eigi þangað nokkuð erindi.  Í þeirra augum  er það réttlátt að sá sem mest má sín hafi ætíð betur, miskunnsemi er veikleiki og/eða heimska, og samhygð í andstöðu við eðlilega samkeppni þar sem allir hafa annað hvort stöðu vinar eða óvinar, eftir því hvort þú átt í fyrirtækinu eða ekki. 

Neikvæðar afleiðingar alls þessa er öllum augljósar og taldar svo sjálfsagðar að ráð er fyrir þeim gert og reynt  að gera þær sem efnahagslega “jákvæðastar”.  Þegar að andi mannsins gerir uppreisn og kallar á lausn frá þessu efnislega oki sem hann er undir með því að kalla fram streitu og líkamlega vanlíðan,  gefst öllum kostur á að deyfa sig um stundarsakir með einhverjum vímugjafa.  Hann er vitaskuld seldur af ríkinu.  Þeir sem ekki þola þetta viðvarandi ástand eru kallaðir sjúklingar, (alkohólistar eða fýklar) og búið er að finna genið sem ræður þessum sjúkleika og því stendur þetta ástand víst til bóta.  Þegar að mannsandinn reynir að vekja athygli á þrúgun sinni, (viðkomandi verður þunglyndur) er honum boðið upp á Prósak eða önnur skyld lyf.  Sjálfsmorð af völdum þunglyndis og óhamingju eru ásættanleg áhætta sem enginn skilur neitt í hvort sem er.  Það þóttu einhvern tíma góð vísindi að byrja á því að spyrja spurninga eins og; hvers vegna, og til hvers. Þegar að svona er spurt um tilgang þessarar tilveru verður fátt um svör hjá efnishyggjuráðsmönnunum. Helst er á þeim að skilja að hver og einn finni sér tilgang sjálfur og þeim sem ekki tekst það geti allt eins lifað hamingjusömu lífi án hans. Tilgangsleysi má alltaf fylla með iðjusemi maurseðlisins og afþreyingu dofans.

 Þegar að sál mannsins reynir að tjá sig í formi listar, verður úr afskræmi sem reynir að sætta sjónarmið kaupandans sem er að leita að afþreyingu eða deyfingu, og veraldlegra þarfa farvegarins, þ.e listamannsins.  Innblásturinn sjálfur lendir ofan garðs og neðan  s.b. innantómar og siðlausar leiksýningar og kvikmyndir sem nóg framboð er af.

Þegar að innra inntak kærleika er haft að vettugi á þeim vettvangi þar sem  hann er hvað nauðsynlegastur, þ.e. í hjónabandinu, er best að skilja.  Enn betra er, að ekki komi til hjónabands.  Það stuðlar að efnahagslegum vexti að sem flest einkaheimili séu rekin í landinu.  Hægt er að stuðla að þessu með því að gera ungu fólki  sem efnahagslega örðugast að vera gift, saman ber fyrirkomulag niðurgreiðslna sveitarfélaga til þeirra sem ekki eiga sér húsnæði og þurfa að leigja.  Svona mætti lengi telja.

Sú spurning sem við verðum á endanum að svara er hvort við erum menn eða maurar. Ef við erum eitthvað fremri maurum verðum við að sanna það með framferði okkar. Ef við erum það ekki er ekki annað að gera en að sætta sig við ástandið þar sem það er skilvirk afleiðing okkar sanna eðlis.

 


Ættjarðarást og/eða þjóðernishyggja

blindfaithFlestir mundu vera á því að ættjarðarást sé eðlileg. Hins vegar stendur mörgum stuggur af orðinu þjóðernissinni. Men hafa á því illan bifur eftir að það var "hertekið" af pólitískum öfgaflokkum á fyrrihluta síðustu aldar. 

En orðin eru afar ólík hvort eð er og hafa mjög ólíka merkingu þrátt fyrir að vera stundum notuð jöfnum höndum.

Ættjarðarást felur í sér aðdáun á landi og menningu þess, umhyggju fyrir íbúum þess og vilja til að sjá hag þeirra sem mestan. Og það er hægt að finna til ættjarðarástar án þess að á bak við þær tilfinningar liggi nokkrar pólitískar meiningar.

Þjóðernishyggja felur hins vegar í sér að upphefja þjóð og land upp yfir aðra, fylgja ákveðinni einangrunarstefnu hvað íbúa varðar og gefa til kynna menningarlega yfirburði þjóðarinnar í stað þess að líta á sig sem framlag til fjölbreytileika. Slík stefna hefur nánast ætíð pólitískar meiningar sem sagan sýnir að hafa ætíð endað með skelfingu. 

Þjóðernishyggju-sinnum er líka tamt að villa á sér heimildir og segja málsbúnað sinn og framsetningu sprottna af ættjarðarást, þegar um þjóðernishyggju er að ræða.

 


Hvað er rasismi og hvernig má uppræta hann

nullRasismi eða kynþáttahatur er viðvarandi vandamál í heiminum vegna þess að það hefur tekið sér bólfestu í hugum og meðvitund einstaklinga.

Kynþáttahatur er lærð hegðun eða atferli og tjáning þess er sprottin bæði úr hjarta og huga.

Þar af leiðandi þurfa allar aðgerðir sem miða að því að uppræta kynþáttahatur að stuðla að  sinnaskiptum fólks og breytingu á viðmóti þess. Pólitískar aðgerðir nægja ekki.  Ef að viðmót fólks breytist ekki og sú grundvallar lífsskoðun fólks að allir menn séu jafn réttháir, nær ekki fótfestu meðal almennings og stjórnmálamanna, geta risið upp til áhrifa menn og konur sem láta kynþáttahatur stýra ákvörðunum sínum.

Hvernig má uppræta kynþáttahatur. Margvísleg pressa nútíma samfélags kyndir undir kynþáttahatri.  Kynþáttahatur er fyrst og fremst ávöxtur; vanþekkingar, klisjukennds misskilnings, þeirrar áráttu mannsins að hefja stöðugt einn hóp yfir annan og skorts á andlegum gildum.   

Hinum augljóslega fölsku staðhæfingum sem kynþáttahatur byggir á verður að andmæla með sannleikanum. Hann er að allir menn tilheyra söAfríski vandinnmu fjölskyldu manna, fjölskyldu sem er sameinuð líffræðilega, samfélagslega og andlega. Samtímis auðgar hún jörðina með fjölbreytileika útlits síns.  

Ef að hver og einn er samþykkur þessum sannleika og er tilbúinn að bjóða velkominn inn í sína nánustu fjölskyldu einstakling með annan hörundslit, mun kynþáttahatur hvergi finna sér heimili framar og hverfa að sjálfu sér.

Það er nauðsynlegt að fræða okkur öll, en ekki hvað síst börnin okkar, um einingu mankynsins, sannleika sem allar greinar vísinda staðfesta.  


Hversu almenn er kynþátta-andúð á Íslandi?

landvættasupa Fyrir rúmlega 15 árum kom til landsins þekktur bandaríkur rithöfundur sem fjallað hefur mikið um fordóma og kynþáttahatur í bókum sínum. Hann hélt því fram að Ísland væri í faldi fordómaskeflu sem mundi steypa sér innan fárra ára. Ég man að mér fannst þessi ágæti maður gera helst til mikið úr hlutunum.

Eftir að hafa fylgst náið með umræðunni um útlendinga (Pólverja aðallega) á Íslandi og nú síðast umfjölluninni um flóttakonurnar frá Írak, verð ég að viðurkenna að rithöfundurinn kann að hafa haft rétt fyrir sér.

Sé bloggheimur þverskurður af Íslenskri alþýðu, er ekki annað að sjá en að kynþáttaandúð sé almenn og rótföst á Íslandi. Íslendingar hafa lengst af getað frýjað sig öllum ákúrum í þá átt að þeir séu þjóðernissinnar og kynþáttahatarar í skjóli þess að fáir aðrir en hvítir kristnir menn hafa byggt landið eða fengið hér inni. Þessi staðreynd villti um fyrir mér þegar ég stóð á því fastari fótunum að á Íslandi væri kynþáttaandúð lítil og risti grunnt þar sem hún fyndist. - Ég var líka viss um að Íslendingar mundu njóta fjarlægðarinnar frá meginlandinu á þann hátt að þeir mundu  læra af mistökum annarra þjóða og getað þannig brugðist rétt við þegar hið óhjákvæmilega gerðist, að Ísland tæki sinn verðuga sess meðal þjóða sem ættu fjölmenningarlegt samfélag. En því miður, svo virðist ekki vera.

Þótt ég sé enn viss um að meiri hluti Íslendinga sé gott og grandvart fólk hefur vofa kynþáttaandúðar náð að glepja nógu marga til þess að rödd hennar heyrist nú oftar og hærra svo jafnvel íslenskar stjórnmálahreyfingar með kosna þingmenn í sínum röðum taka undir þessa rödd.

Ég held að það sé tími til kominn fyrir alla þá sem telja að kynþáttaandúð og fordómar séu ekki eitt af því sem við viljum að börn okkar þurfi að alast upp við að skora á yfirvöld að beita sér fyrir því að alvöru jafnréttisfræðsla fari fram í skólum landsins, þar sem eining mannkynsins er áréttuð og almenn mannréttindi allra manna verði innrætt börnunum.


Er meirihluti Íslendinga virkilega á móti að þessu fólki verði veitt landvistarleyfi?

al_waleedJárnsmiður fór út til að snæða á nærliggjandi veitingastað. Hann snéri aldrei til baka. Tveimur dögum seinna voru kennsl borin á lík hans í einu líkhúsa borgarinnar. Það bar merki um pyntingar.

Verslunareigandi giftur og fimm barna faðir var hrifin frá tveimur börnum sínum úr fjölskyldubílnum af vopnuðum mönnum. Hann var seinna skotinn til bana og líki hans hent á götuna.

Leigubílsstjóri sem beið áfyllingar á bíl sinn var numinn á brott af vopnuðum mönnum. Tveimur dögum seinna notuðu mannræningjarnir farsímann hans til að tilkynna fjölskyldu hans um að lík hans væri að finna á líkhúsinu.  Líkami hans bar merki pyntinga þ.á.m. djúp sár eftir vélbor.  

 Fjórir menn, þar á meðal, tveir al palestinian_refugees_iraqbræður voru handteknir af írösku öryggislögreglunni. Nokkru seinna komu þeir fram í sjónvarpi þar sem þeir játúðu að hafa staðið að sprengingum í Bagdad. Það kom í ljós að þeir höfðu verið pyntaðir í 27 daga, - barðir með vírum, gefið raflost og brenndir með sígarettum.

Þeir játuðu að hafa staðið að sex sprengjutilræðum, þar á meðal fimm sem aldrei höfðu átt sér stað.  

Fjölskyldur þessara manna dveljast m.a í Al-Waleed búðunum.

Góða greinargerð frá Amnesty International um ofsóknir á hendur Palestínumönnum í Írak er að finna hér.

 

 

Waleedcamp10


Nýlegt myndband frá AL-WALEED flóttamannbúðunum, aðstæður, andlit og raddir flóttafólksins

Hér er að finna nýlegt myndband frá AL-WALEED flóttamannabúðunum á landamærum Íraks og Sýrlands þar sem flóttafólk frá Palestínu hefst nú við. Íslendingar hafa einir þjóða ljáð máls á að veita fólkinu landvistarleyfi. AL-WALEED flóttamannabúðirnar

Lífið í Al-Waleed flóttamannabúðunum hjá verðandi Akurnesingum

070518-refugees-iraqMargt af flóttafólkinu reyndi að yfirgefa Írak til að flýja ofbeldið sem þar er orðið daglegt brauð. Miðstéttar Palestínumenn réðu ekki yfir vopnuðum herflokkum til að vernda sig og því hröktust þeir úr landi fljótlega eftir innrás Bandamanna í Írak. Þeir voru auðveld bráð fyrir mannræningja og fjárkúgara. Fjörutíu ára þriggja barna móðir móðir;  Tisar Abdel Fadi fór frá  Baghdad til Al-Tanf eftir að eiginmanni hennar var rænt af sjúkrahúsi. Hann var síðan pyntaður og myrtur.

Fyrir marga var flóttinn för úr öskunni í eldinn því við tóku Al-Waleeda búðirnar. Þær eru sérstakt bitbein hreppspólítíkur í hinu löglausa Anbar héraði. Allir sem eiga leið um héraðið verða að borga verndartolla eða láta eftir skerf af þeim gögnum sem þeir hafa undir höndum til Sheiksins sem svæðinu ræður. Þetta gerir starf hjálparstofnana nánast útilokað. Að auki bætast við afskipti banvænnar blöndu landamæravarða, staðarlögreglu og Íraska hersins. 

Allir eru sammála að langvarandi dvöl í þessum búðum er ómöguleg. Ískaldir vetur, brennheit sumur,eldhætta, snákar, sporðdrekar, vatnsleysi, skortur á sjúkraaðstöðu, er meðal þess sem gera það ómögulegt.

Í Al-Waleed eru plastklósett í hverju tjaldi. Jörðin er samt svo hörð að hún drekkur ekki einu sinni í sig vatnið sem hellt er á hana. Skólpið rennur því opið um búðirnar. Fyrir utan auðsæja smithættu er íbúarnir afar illa á sig komnir líkamlega. Sérstök þörf er á sálfræðiaðstoð fyrir konur búðanna sem sumar eru á barmi örvæntingar. Læknar sem heimsótt hafa búðirnar hafa allir orð á slæmri andlegu heilsu íbúanna sem er bein orsök af vonleysinu og úrræðaleysinu sem heltekið hefur þá alla.

Eina uppbyggilega starfsemi búðanna er skólakennsla barna.

Engi von virðist vera um að þessu  fólki verði hleypt inn í Sýrland. Sýrlendingar hýsa þegar á eigin kostnað meira en milljón flóttamanna. 

Íslendingar eru fyrstir þjóða til að ljá því máls að hjálpa þessu ákveðna fólki með því að veita því landvistarleyfi á Íslandi. Málið hefur verið gagnrýnt af þröngum hópi sem telur að íslendingar eigi að hjálpa betur að eigin fólki áður en við aðstoðum aðra. Í orðum þeirra liggur að þrátt fyrir að Íslendingar séu ein af auðugustu þjóðum veraldar, hafa þeir ekki efni á að veita fólki í öng hjálp. Hverjir eru þá aflögu færir má þá spyrja?

Þá hefur einnig heyrst sú skoðun að hjálp við þetta fólk mundi betur gagnast því á svæðinu sem auðvitað er fásinna þar sem svæðið er óbyggilegt.

Það er því ekki að furða að það læðist að manni sá grunur að þeir sem eru á móti því að taka á móti þessu flóttafólki, tali gegn komu þess til landsins af enn annarlegri ástæðum en heimóttaskap, fáfræði eða óbilgirni.

 


Saga úr stríðinu...af flóttakonu

 Þar til að stríðið barst til heimabæjar hennar, lifði Móna Ghunnam hamingjuríku lífi. Hún átti ástríkan eiginmann og fjögra ára dóttur. Í nágrenni við hana bjuggu foreldrar hennar og fjórir bræður.

Árið 2003 varð sprengjuflaug móður hennar og föður að bana. Hún grandaði líka bræðrum hennar fjórum og lítilli dóttur hennar. Sjálf lamaðist hún að hluta.

Eiginmaður hennar, lögreglumaður, reyndi að fá aðhlynningu handa henni á vestrænu sjúkrahúsi en gat sjálfur ekki sætt sig við bæklun hennar. Hann kastaði henni á götuna og flutti inn til nýrrar eiginkonu.

Móna sem hafði verið kennari var ein þeirra 750.000 Íraka sem lentu í hrakningum og enduðu á götum Amman borgar í Jórdaníu. Hún býr í eins herbergis kjallaraholu án hita, vatns eða salernis.

Flestar stundir grúfir hún sig upp að vegg í herberginu og grætur. Hún er ekki lengur, móðir, eiginkona, dóttir eða systur.

Mónu hefur verið boðið að setjast að í landinu sem grandaði fjölskyldu hennar en hún er hikandi.

"Ég trúi ekki lengur að ég verði nokkru sinni hamingjusöm aftur" segir hún."Skömmin er yfirþyrmandi, ég var skólakennari nú er ég betlari. Síðasta minningin af dóttur minni er að hún var að leika sér á meðan aðrir í fjölskyldunni stigu út veröndina til bæna þann 31 mars. 2003. "

"Passaðu að detta ekki" sagði hún og brosti við dóttur sinni um leið og hún snéri sér í átt til Mekka.  Það næsta sem hún vissi var hún stödd á sjúkrahúsi með þrjú sprengjubrot í höfðinu, heyrnarlaus á hægri eyra og lömuð vinstra megin líkamans.

Hún spurði eftir dóttur sinni og fjölskyldu en fékk engin svör. Eftir þrjár aðgerðir hélt hún heim. Eiginmaður hennar sagði henni að öll fjölskylda hennar væri látin. "Það var erfiðasti dagur lífs míns. Mér fannst eins og ekkert væri eftir" sagði Móna um þann dag.

Hann sagði að best væri að þau seldu hús sitt og flyttust frá þorpinu og settust að í Austurríki. Móna gaf eiginmanni sínum leyfi til sölunnar. Nokkru seinna sagðist hann ekki hafa neinn áhuga á að yfirgefa Írak og lýsti því yfir að hann vildi eignast aðra konu. "Hann fórnaði mér" sagði hún með tárin flóandi niður kinnarnar."Hann fékk húsið mitt og launin mín sem hann notaði til að kaupa nýjan bíl. En nú var ég þurfalingur, óvinnuhæf, byrði".

Móna gaf öll föt dóttur sinnar og leikföng. "Hárspennurnar, fyrsta afmæliskertið hennar, litina hennar, öll mjúku leikföngin sem sum hver hún hafði ekki einu inni leikið sér enn að".

"Ég pakkaði niður í ferðatösku og fór".

Móna dvaldi um hríð hjá aldraðri konu sem bjó í grenndinni, eða þar til maður hennar kom með prestinn til að skilja við hana. Hún tók hönd eiginmannsins og kyssi fingur hans og bað hann um að skilja ekki við sig. Hann kippti til sín hendinni og sagði að hún væri ekki lengur kona sín og hefði því ekki rétt til að kyssa hann framar.

Fjarlægir ættingjar hennar töldu sig ekki geta tekið á móti henni í því ástandi sem hún var´og það eina sem beið hennar var vergangur.

"Ég seldi það sem ég átti, jafnvel giftingarhring móður minnar og hélt af stað út í buskann."

"þegar ég kom til Jórdaníu dvaldist ég á gistihúsi þar til því var lokað. Nú bý ég í þessu herbergi og eigra þess á milli um göturnar hlægjandi. Ég veit ekki af hverju ég er hérna eða hvert ég er að fara".

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband