Dr. Phill skýrir ástæðurnar fyrir tapi Íslendinga

DSC01431Dr. Phill sem staddur er í Frakklandi og fylgdist með leik Íslendinga og Frakka í sjónvarpinu þar, hringdi núna skömmu eftir að leiknum lauk og sagðist ætla að beita sér fyrir því að Bretar eignist alvöru handboltalið sem geti tekið þátt á næstu Ólympíuleikum sem verða haldnir í London 2012. Handbolti væri svo skemmtileg íþrótt þótt hann skildi ekkert í því hvers vegna völlurinn væri svona illa nýttur. Helmingur hans væri venjulega auður fyrir utan markmanninn í hverri sókn.

Hann sagðist senda Íslendingum hamingju óskir með silfurverðlaunin og um leið samúðarkveðjur vegna þess að þeir misstu af gullinu. Ástæðurnar fyrir tapinu sagði hann augljósar eftir að hafa kynnt sér málvöxtu; Af því bara


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góður

Sigrún Jónsdóttir, 24.8.2008 kl. 10:44

2 Smámynd: egvania

Það er þetta með af því bara þeir fengu silfrið og hvers vegna af því bara.

egvania, 24.8.2008 kl. 12:12

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott mynd af spekingum.

Ég tek undir rökstuðning þessa fróma manns.  Við töpuðum afþvíbara.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 13:44

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

......rökrétt niðurstaða...af því bara

Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 13:57

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

En ég .. .dr-bryll starfsbróðir Dr.phill ... segi að ástæða tapsins hafi verið vegna þess að Frakkanir voru einfaldlega betri.

Brynjar Jóhannsson, 24.8.2008 kl. 16:43

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Já Brynjar, mig grunar nefnilega að Phill eigi við það með orðinu bara.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 17:07

7 identicon

jebb! Dr. Phill er snillingur :)

kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 18:14

8 Smámynd: Halla Rut

Af því bara ....; skýrir svo margt og er lausn á svo mörgu.

Halla Rut , 24.8.2008 kl. 19:51

9 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég er sammála Höllu Rut, en einhvernveginn er ekkert vinsælt á mínum bæ ef ég nota þessi rök. 

Rúna Guðfinnsdóttir, 24.8.2008 kl. 22:15

10 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Takk fyrir athugasemdirnar öll. Ég kem þessu áleiðis til Doctorsins.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband