Alvöru hippastelpa

hippa barbí goldieGoldie Hawn lá lengi undir grun og ámæli fyrir að vera gervi-hippi. Og einhverjir fussuðu mikið þegar að Hippa-Barbí í hennar ímynd var sett á markaðinn. Þeir sögðu að hún væri í mesta lagi sunnudagahippi eða þá bara sjónvarpshippi.  Nú staðfestir hinsvegar herra súr, Bill Hudson,  ex númer tvö,  að hún hafi hagað sér í einu og öllu eins og alvöru hippastelpa.

Hann nefnir hegðun hennar einhverjum nöfnum sem í dag kunna að hljóma neikvætt. En það má alveg færa rök fyrir því að öll jaðarmenningin sem kennd er við hippa á áttunda áratugnum, hafi einmitt einkennst af sjálfhverfu og kynlífssýki.

Goldie Hawn er annars flott leikkona og lék í einni af uppáhalds grínmyndunum mínum, Private Benjamin. Takk fyrir það Goldie.


mbl.is Kallar Hawn sjálfhverfa og kynlífssjúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já og einni reykti hún hass, þannig að hún er gegnheill hippi. EN: tjáði hún sig í ræðu eða riti um utanríkismál? Pönkaðist hún á Kissinger og Johnson og félögum?

Óðinn (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband