Kunna ekki textana í brekkusöngnum

Árni JÁrni Johnsen og Róbert Marshall eru báðir söngelskir og ljóðadýrkendur. Þeir vita hvað klukkan slær þegar kemur að kunnáttu íslensks ungdóms hvað varðar ljóð og sönglög. 

Báðir  hafa t.d. stýrt fjöldasöng á fjölmennustu útihátíð landsins til margra ára, Þ.e. Þjóðhátíð í Eyjum. (Það var einmitt Róbert sem leysti Árna af í brekkusöngnum sumarið sem Árni sat inni.) 

Árni hefur verið þekktur fyrir að halda uppi mikilli stemmningu með því að syngja og leika gamla íslenska slagara.

E.tv. hefur Árna blöskrað síðustu árin hversu illa krakkarnir kunna textana við íslensku sönglögin í brekkusöngnum og vill bæta úr því með þessari þingsályktunartillögu.

 Þriðji þingmaðurinn sem stendur fyrir ályktuninni er Ólína Þorvarðardóttir, sjálfskipuð útvörður íslenskrar menningar á þingi og af landsbyggðinni í þokkabót eins og hin tvö.

Vonandi verður þetta samþykkt svo rútu og brekku söngur verði vinsæll að nýju meðal ungmenna. Fátt er eins vel til þess fallið að vekja og viðhalda heilbrigðri þjóðerniskennd.


mbl.is Auka skuli hlut ljóðakennslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Svanur, nú er mér skemmt.  Svo ég vísi nú líka til næstsíðasta bloggsins þíns, og leggi innihaldið saman við þetta síðasta er mér eiginlega spurn:  ætli það megi nokkuð kenna krökkunum þjóðsönginn;  Ó, guð vors lands... ?

Það er orðið vandlifað...

Kolbrún Hilmars, 7.10.2011 kl. 17:26

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Í skólaferðalögum nútímans.

Er oft þögn í rútunni.

Hver og einn með Ipodinn sinn. 

Sem Árni verður þá að banna fyrst.

Viggó Jörgensson, 7.10.2011 kl. 20:00

3 identicon

Af tvennu illu, er skárra að banna alla þættina.  Ef gengið er í það, að leifa að kenna ólík trúarbrögð í skólum, verður enn stærri klyf í samfélaginu en þegar er.   Ísland hefur í raun aldrei verið trúað, og þó svo að menn tali um Ásatrú í dag, þá er þessi trú ekkert í sambandi við þá trú sem áður.  Ásatrúarmenn nútímans, eru ofsamenn sem vilja halda uppi gömlum siðum ... og byggja þetta á þekkingarleysi og skylningsleysi.

Það sem Íslenzk stjórnvöld hefðu átt að gera, en geta því miður ekki.  Er að skylda alla þá sem vilja flytja Íslands ... að aðlaga sig Íslenskum kúltúr.  Þar með siðferði.  Að vera múslimi, eða gyðingur, eða búddah trúar á Íslandi er það sama og að stuðla að tvístríngu þjóðarinnar.    Það sama má segja um pólitík í raun, hún sundrar þjóðinni ... en þessi pólitík er samt ekki orðin svo rótgróin, að hún á sér frídaga eins og jól, og aðra þætti sem í dag kallast kúltúr.  Þó má búast við, að með tíð og tíma mun það gera það ...

Að byrja á því að leifa alla þessa þætti, er það sama og að byrja að skapa sundúngu samfélagsins.  Kristnir, í kristinn skóla ... gyðingar í gyðingaskóla ... og múslimar í múslimska skóla.  Þetta er þegar byrjað í Evrópu.  Og þó svo að slæða átti sér ástæðu á sínum tíma, er hún óraunsæ í nútíma samfélagi, en er orðin að kúltúr þess þjóðarbrots á sínar rætur að rekja þangað.

Blöndun samfélaga, þýðir sundrungu þess samfélags sem verður fyrir innflutningnum.   Síðan má deila um ágæti, eða slæma eiginleika þess.

En sannleikurinn er sá, að ef samfélagið ... eins og Ísland, gerir sér ekki grein fyrir afleiðingum þeim sem verða af ákvörðunum þeirra.  Þá er heldur ekki hægt að segja, að þeim sé vorkun þó illa fari heldur ... þeim dreymir alla um, að upplifa sömu ævintýri, glæpi, mismunun og ulúð sem býr í mörgum öðrum, meðal annars Evrópu og Bandaríkjunum.  Það er svo "leiðinlegt" að búa á einhverju skítaskeri, þar sem ekkert gerist og lesa allar sögurnar og sjá allar bíómyndirnar, sem sýna hversu spennandi veruleiki þessara erlendra skýablóma er ...

Og þegar maður sva talar um unglingana ... þá kemur maður að nýjum þætti, sundrungu almennings.  Tölvunetið.  Unga fólkið lifir í gervi heimi tölvunetsins.  Þeir tala við kunningja og vini, í gegnum tölvulínu og ímynda sér að hér sé um vini að ræða.  Sannleikurinn er sá, að það sem finnst hinum megin við tölvunetið, er ekki raunveruleikinn.  Heldur er spegilmynd okkar eigin huga, við upplifum og sjáum í gegnum netið, það sem við viljum sjá og upplifa.

Þetta er stórhættulegt ungu fólki ... sem einangrar sig með tölvuspilum sínum, og sér þetta sem hið raunverulega líf.  Það er varla vaxið úr grasi, áður en það er hægt að skilgreina þessa unglinga sem "psychopath", út frá þeirri óraunverulegu veröld sem það þroskaðist í.

Tölvunetið, er "spil" ... jafn raunverulegt, þegar um er að ræða vináttu og samband, eins og byssuleikur í gegnum netið, sem leifir þér að skjóta, deyja og lifa aftur inna nokkurra sekúndna, til að hefna þín á þeim sem batt enda á fyrri bíræfni þína í spilinu.  Eða upplifun draums um að vera álfur, draugur, vampýra eða annað því um líkt.

Nei, framtíðin er ekki björt fyrir unga fólkið ... og við hin, hefðum átt að hafa vit á því að sjá það fyrir.  En við elskum ekki börnin okkar, né fjöldskyldu okkar ... við elskum peninga.

Eninga, meninga ... ég vil meiri peninga.

Amen!

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 7.10.2011 kl. 20:34

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvort er alvarlegra; að halda lagi en kunna ekki textann eða kunna textann en halda ekki lagi og "syngja" samt og það opinberlega?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.10.2011 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband