25.1.2011 | 19:19
Mikið klúður, mikið gaman
Stjórnlagaþingið, óskabarn þjóðarinnar datt á rassinn og nú standa allir úrtölumennirnir skellihlæjandi í kringum það og hæðast að hnokkanum. Þeir halda sig hafa ýmislegt um málið að segja og gallið sem drýpur úr dimmum munnum þeirra er súrt.
"Sko, við vorum aldrei fylgjandi þessu. Við vissum að þetta mundi ekki ganga. Þetta barn kemst aldrei sjálft á koppinn. Það eitt að fólk trúði því að það gæti gengið, sýnir hversu léleg þessi ríkisstjórn er. Loksins, loksins klúður sem ekki er hægt að efast um að sé klúður, já, mikið fjör og mikið gaman."´
Samt liggur ljóst fyrir að króinn mun rísa aftur á fætur. Sjálfstraustinu verður dálítið ábótavant til að byrja með, en svo kemur þetta, rétt eins og vant er með þá sem eru að taka fyrstu skrefin.
Við munum kjósa aftur til stjórnlagaþings eins og ekkert hafi í skorist og látum úrtöluliðið ekki hafa neitt um það að segja. Kjósum og kjósum aftur uns þetta tekst og krakkinn kemst á legg.
Íhaldið er skíthrætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 19:31 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Check this out
Efni
Tenglar
Gott að vita
- Origins Of Conflict In The Middle East: Afar góð grein um atriði sögunnar sem sjaldan er fjallað um
- HÆTTULEGAR HUGMYNDIR
- Knattleikur, helg Íþrótt? Frábær síða um uppruna "Knattsleiks eða Íshokkí"
- Rökvillur og samræðubrellur Greinargóð lýsing á helstu rökvillum og samræðubrellum
- Stjórnarskrá Íslands Stjórnarskrá
- Af hverju hata þeir okkur? Jihad í nútímasögu íslam og Mið-Austurlanda Magnús Þorkell Bernharðsson
- Fasistar og hálfvitar
ELDRI FÆRSLUR
- Ef til er Guð, hver skapaði þá Guð?
- Kom Kristur árið 1844?
- Email að handan
- Stighækkandi opinberun, tengslin milli manna og Guðs samkvæmt Bahai kenningum
- Matthías Jochumsson og hinn persneski Messías
- Gyðinglegur uppruni landvætta og skjaldarmerkis Íslendinga
- Orð sem vert er að kunna skil á
- Guð er Allah - Allah is God - God est Theos - Hvaða tungumál talar þú?
- Tahirih
- Kahlil Gibran og Bahai trúin
- http://
Myndbönd
Bloggvinir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Dagný
- Sigrún Jónsdóttir
- Anna Einarsdóttir
- Anna Gísladóttir
- Arnar Pálsson
- Arinbjörn Kúld
- Ketill Sigurjónsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Egill Bjarnason
- Baldur Kristjánsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Anna
- Gunnhildur Sigurjónsdóttir
- Guðmundur Ásgeirsson
- BookIceland
- brahim
- Charles Robert Onken
- Hannes
- Tryggvi Hjaltason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Dúa
- Drífa Kristjánsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Viðar Eggertsson
- Einar G. Harðarson
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Eskil
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Fjarki
- Árni Karl Ellertsson
- Púkinn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brattur
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Guðmundur Pálsson
- Graceperla
- Grétar Mar Jónsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Guðjón Ó.
- Guðmundur Júlíusson
- Gulli litli
- Gylfi Guðmundsson
- Halla Rut
- Hallmundur Kristinsson
- Haraldur Rafn Ingvason
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Aðalheiður Haraldsdóttir
- Ómar Bjarki Kristjánsson
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Sigga Hjólína
- Bókaútgáfan Hólar
- Hólmdís Hjartardóttir
- Höskuldur Búi Jónsson
- Hrafn Andrés Harðarson
- Óskar Steinn Gestsson
- Hugrún Jónsdóttir
- Óskar Arnórsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Svava frá Strandbergi
- Kári Gautason
- Jón Baldur Lorange
- Já Ísland
- Jakob S Jónsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jonni
- Jón
- Bergur Thorberg
- Kalikles
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Hjalti Tómasson
- kiza
- Sólveig Klara Káradóttir
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrafnhildur Þórarinsdóttir
- Kristberg Snjólfsson
- Kolbrún Hilmars
- Kristinn Theódórsson
- Heimir Eyvindarson
- OM
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- SeeingRed
- Lýður Pálsson
- Lýður Árnason
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Marinó G. Njálsson
- Marinó Már Marinósson
- Magnús Bergsson
- Mofi
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Nexa
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Aðalsteinn Baldursson
- Jón Svavarsson
- Páll Vilhjálmsson
- Sandra María Sigurðardóttir
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Heimir Tómasson
- Róbert Tómasson
- Sæmundur Bjarnason
- Fullt nafn
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sammý
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Ingólfsson
- Sigþrúður Pálsdóttir
- Sigurveig Eysteins
- Sigurður Jónsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- hilmar jónsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Þorsteinn Briem
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Grétar Eiríksson
- Sigurður Árnason
- Svala Jónsdóttir
- Svartagall
- Óskar Helgi Helgason
- TARA
- Þarfagreinir
- Þór Saari
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórdís Bachmann
- Þór Ludwig Stiefel TORA
- Sigurður Rósant
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Eiríkur Ingvar Ingvarsson
- Andrea
- Villi Asgeirsson
- Vilhjálmur Árnason
- Margrét Sigurðardóttir
- Zaraþústra
- Zedith
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Steinþór Ásgeirsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 786940
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já sammála því auðvitað verður að kjósa aftur, ekki nokkur spurning.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2011 kl. 19:51
Þú meinar að barnið datt aftur og braut sig enn eina ferðina, síðast fótbrotnaði það(eftir að Íslendingar kusu gegn þessu með heimasetu) og núna er það mjaðmabrotið
Ef það stendur verður það "fatlað" og 100% öryrki, ekki er það góð byrjun
Brynjar Þór Guðmundsson, 25.1.2011 kl. 20:09
Brynjar þór það verður kosið aftur í sumar og þá líka um auðlindinar.Góðir hlutir gerast hægt.
ELÍAS Rúnar (IP-tala skráð) 25.1.2011 kl. 20:38
Ef Samfylkingin er þjóðin þá er þetta vissulega óskabarn þjóðarinnar. En hvað eru þá þeir tveir þriðjuhluti kjósenda sem hafa talið sig til þjóðarinnar hingað til?
Þetta er óskabarn Samfylkingar, ekki þjóðarinnar!!
Gunnar Heiðarsson, 25.1.2011 kl. 20:41
Króinn kom undir í búsáhaldabyltingunni og er svona "lovechild" allra flokka Gunnar og þjóðarinnar. Krafan um bætta stjórnarhætti og stjórnlagaþing var almenn og vertu viss að Þegar að fram líða stundir munu allir flokkar vilja Lilju kveðið hafa.
Svanur Gísli Þorkelsson, 25.1.2011 kl. 20:56
Brynjar, fyrstu sporin eru ætíð þau erfiðustu. En spyrjum að leikslokum og þá verður ekki dæmt eftir því hversu oft króinn datt heldur hversu oft hann stóð upp aftur.
Svanur Gísli Þorkelsson, 25.1.2011 kl. 21:02
"Krafan um bætta stjórnarhætti og stjórnlagaþing var almenn"
Já og hvernig hefur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur brugðist við þessari kröfu. Pukrið og leynimakkið hefur náð nýjum hæðum. ráðið er í stöður eftir flokksskírteinum. og gengið þvert á vilja þjóðarinnar í stórum málum. Stjórnlagaþing er lýðskrumsbrella sem stjórnin ætlaði að nota til að breyta stjórnarskránni þannig að hægt væri að innlima Íslendinga í ESB gegn vilja meirihluta landsmanna.
Hreinn Sigurðsson, 25.1.2011 kl. 22:26
Fall er fararheill segir einhverstaðar. Það er hægt að tala sig bláan yfir klúðrinu kringum þetta en það breytir ekki þeirri staðreynd að lögin um stjórnlagaþing eru lög frá alþingi og ekki gott að sjá hvernig hægt er að hunsa þau.
Ég skal vera handviss um að raunverulega vill enginn flokkanna neitt stjórnlagaþing. Hvers vegna í ósköpunum ættu þeir að taka áhættu á að stjórnlagaþingið legði fram tillögur sem heftu ef til vill völd þeirra ?
Það var utanaðkomandi þrýstingur sem neyddi flokkana til að bregðast við kröfum um breytta stjórnarhætti og þeir, að hætti Rómarkeisara, hentu brauðmolum fyrir lýðinn til að róa fólk um sinn. Þeir hugsuðu bara ekki málið til enda, það óx þeim upp fyrir höfuð og því voru þeir tilneyddir til að halda því áfram. Því meiri vitleysan í kringum það og því veikara sem þeim tekst að gera það, því betra fyrir þá og þessvegna var ekki sú vinna sem þurft hefði að vinna, lögð í undirbúningin. Vandamálið var bara að allt of margir tóku þá alvarlega, eitthvað sem þeir reiknuðu síst með, það er að segja, þeir misreiknuðu óánægjuna sem var í þjóðfélaginu.
Þetta er nú mín kenning á þessu rugli og hana byggi ég á ýmsum þeim athöfnum og yfirlýsingum stjórnmálamanna kringum þetta stjórnlagaþing og ekki síður eftir að hafa fylgst með þessu góða fólki í vinnunni sinni undanfarin ár.
Auðvita hlýtur að þurfa kjósa aftur, annað væri brot á lögum og vonandi lesa menn nú vel fræðin sín áður en næst verður gengið til kosninga
Hjalti Tómasson, 25.1.2011 kl. 23:38
Hreinn.Ég get alveg fallist á að ríkisstjórn Jóhönnu hafi ekki tekst neitt betur upp en búast mátti við af harðsvíruðum pólitíkusum.
En þrátt fyrir samsæriskenningar þínar um tilgang stjórnlagaþings, báru menn þá frómu von í brjósti að það mætti verða til að gera hlutina betri og að þingið mundi rísa yfir flokkadrætti og pólitíska sundrungu í samráði sínu og gera tillögur sínar þar með marktækar. Ekkert hefur enn komið fram sem bendir til að sú von muni ekki rætast. (Samsæriskenningin þín passar samt illa við þá staðreynd að stjórnvöldum láðist að tryggja meirihlutafylgi stjórnlagaþingmanna við sjálfstæðisafsal)
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.1.2011 kl. 00:16
Hjalti. Það má vel vera að kenning þín sé rétt og að engin pólitíkus hafi í raun viljað stjórnlagaþingið og því sé þetta allt mikið sjónarspil og óvönduð vinnubrögð hafi verið viðhöfð viljandi.
Mér finnst meginmálið vera að búið er að binda þinghaldið í lög því ber að koma þinginu á laggirnar sem fyrst, á þann veg að öllu reglum sé fullnægt.
Það verður líka að hafa í huga að alþingi hefur rétt til að hafna öllum tillögum þingsins. Það er mikil pólitísk flétta að koma hlutunum þannig fyrir að fáir kjósi, fyrsta kosning verði bæmd ólögmæt og að tillögur þingsins þegar þær loks koma, verði takdar ónothæfar af alþingi.
En á þetta allt þarf samt að reyna.
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.1.2011 kl. 00:28
lítum bara jákvætt á þetta. Eftir næstu Alþingiskosningar munum við ekki þurfa að sjá vinstri flokk hérna næstu hundruð árin. Svipuð tilfinning og mannfólkið mun fá þegar endanleg lækning við krabbameini kemur
Sigurður (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 06:54
Það er ekki alveg rétt með að flokkarnir vilji ekki stjórnlagaþing, samfylkingin kemst ekki inn í ESB án þess
Það er að verða erfitt að finna löggjöf frá þessari ríkistjórn sem er ekki algjör óhæfa eða sett að sérhagsmunasemi. Jóhanna lögleiddi ekki hjónabandslöggjöfinni til þess að bæta stöðu samkynhneigðra og bæta mannréttindi þeirra heldur svo hún gæti gengið ío það heilaga, henni var skít sama um aðra af sama sauðahúsi. Eða lögin sem banna Íslendingum að smíða kerrur? Enda er einn þingmanna samfylkingarinnar eigandi fyrirtækis sem flytur inn kerrur
Ef það er ekki til að bæta eigin hagsmuni þá er það algjört klúður og ESB rugl. Hver man ekki eftir bláu höndinni, Svanur þú ert nógu gamall til að muna hvernig það kom til að Hallgrímur kom því fram og kallaði svo
Sigurður, það eru of margir sem eru til í að verja vinstriflokkana út í rauðan dauðann þar fyrir utan munu menn gleyma þessu rugli á aðeins hálfu ári. Annars væru vinstri flokkarnir ekki til samanborið við þeirra fyrrum reynslu
Brynjar Þór Guðmundsson, 26.1.2011 kl. 07:10
Sigurður; Við getum svo sem skammast hérna vinstri hægri og haldið að það skili okkur einhverju. Það gerir það ekki. Það sem gæti skilað okkur einhverju í tengslum við stjórnlagaþingið er að það verði haldið og það skili tillögum sem bæti stjórnsýsluna og komi á meira réttlæti í samfélaginu. Fólk er bara orðið svo hvekkt og kaldhæðið í sambandi við allt sem heitir stjórnmál að það er erfitt fyrir það að vera raunverulega jákvætt.
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.1.2011 kl. 08:01
Brynjar; Síðan hvenær hefur fólk ekki verið í pólitík nema til að skara eld að sinni eigin köku, hvort sem hún er elduð af blárri hendi eða undir rauðsól? -
Í stuttan tíma hélt maður að almenningur gæti notið góðs af hræðslu flokkanna um að þeim yrði öllum hafnað fyrir aðgerðarleysi sitt og aulahátt þegar þjóðfundir, stjórnlagaþing og persónukjör voru allt í einu orðið umfjöllunarefni alþingis. -
Nú er þessi umræða öll að fjara út eða leysast upp í skítalykt. Þess vegna er eina vonin um úrbætur, það sem eftir stendur af lögunum sem samin voru í þessu stundarbrjálæði þingsins, verði höfð í heiðri og a.m.k. stjórnalagaþingið haldið.
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.1.2011 kl. 08:09
Það eina sem ný stjórnarskrá gerir er að festa í sessi þann djúpstæða ágreining sem ríkir í landinu, þar fyrir utan eru allt of mörg Pandóru kistlar
í þessu rugli-það sem þú gerir öðrum verður þér gert. Seigi ég þetta um sjáfarútveginn. Rússar fegnu að reyna þetta 1918 og hvernig fór fyrir þeim? Það kostaði fleiri líf en báðar heimstyrjaldirnar saman lagt. En hvað um þjóðverja 1933, þeim fannst þetta Guðsgjöf þar til þeir fundu fyrir þessu á eigin skinni.
Og hver er það sem er að reyna að þvinga þessu upp á þjóðina, jú það eru Nasistar(jafnaðarmenn) http://www.britannica.com/EBchecked/topic/407190/Nazi-Party
Það hefur aldrei í sögu lýðveldisins verið jafn mikil sérhagsmunasemi og nú og spilling hefur aldrei verið jafn mikil síðan Danakonungi var "vísað á dyr" 1918
Brynjar Þór Guðmundsson, 26.1.2011 kl. 15:24
Brynjar minn kæri. Það er góð aðferð við að stúta hvað umræðu sem er að draga Nasista eða Hitler inn í hana. Þetta er svo algengt að Godwin nokkur hefur sett fram kenningu um athugasemdir á netinu og líkurnar á að Nasistar eða Hitler verði dreginn inn í umræðurnar, eftir því sem fjöldi þeirra verður meiri. þú hefur lagt þitt af mörkum til að sanna þessa kenningu.
Efnislega, ef við gerum tilraun til að rétta okkur af, er stjórnlagaþingi ætlað að koma með tillögur að nýrri stjórnarkrá. Ekkert er hægt að fullyrða á þessu stigi málsins hverjar þær tillögur verða, hvort þær verða samþykktar eða hvaða áhrif þær kunna að hafa yfirleitt.
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.1.2011 kl. 18:21
Ég vil benda hér á nokkrar ágætar tillögur um bætt lög fyrir stjórnlagaþing frá Jóhannesi Laxdal:
http://johanneslaxdal.blog.is/blog/johanneslaxdal/entry/1136914/#comments
Mér líst einkar vel á að þjóðin kjósi um stjórnarskrárbreytingarnar áður atvinnustjórnmálamennirnir ná að breyta þeim sér í hag. Stjórnlagaþing er þarft mál en það þarf að standa betur að því í næstu atrennu. Mun betur. Þá er ég ekki bara að tala um framkvæmdina heldur löggjöfina líka.
Pétur Harðarson, 26.1.2011 kl. 18:33
Látum okkur sjá
ég er að bera saman íslenskan verkamannaflokk saman við þýskan verkamannaflokk
ég er að bera saman íslenskan flokk fullan af fólki með mikilmennskubrjálæði saman við Þýskan flokk sem var fullur af fólki með mikilmennskubrjálaði
Ég er að bera saman Íslenskan jafnaðarflokkflokk sem hefur geðsjúkan einstakling í brúnni saman við Þýskan jafnaðarflokk sem hafði geðsjúkan einstakling við stýrið
Ég er að bera saman Íslenskan flokk sem legst hart fyrir því að taka fyrirtæki eignarnámi og þjóðnýta(sjáfarútveginn vegna óánægju með störf þeirra) við Þýskan flokk þjóðnýtti fyrirtæki(banka vegna óánægju með störf þeirra)
Ég er að bera saman vitfyrta Íslenska stjórn sem sækist í að Evrópa lendu undir einni stjórn saman við vitfyrta Þýska stjórn sem reyndi að koma Evrópu undir eina stjórn
Ég er að bera saman Íslenska stjórn sem fyrirlýtur rök sem ekki hentar stefnumálum þeirra saman við Þýskan flokk sem fyrirleit öll rög sem ekki hentuðu stefnumálum þeirra
Ég er að bera saman Íslenskan flokk sem finnst það í lagi að lög séu brotin ef þau þvælast fyrir saman við þýskan flokk sem braut allar reglur sem þvældust fyrir þeim og það endaði með ósköpum
Ég er að bera saman Þýskan flokk sem gerði ákveðin hóp manna að 2. stéttar fólki og gerði það sem þeir gátu til að gera útaf við þann hóp saman við Íslenskan flokk sem markvisst vinnur að því að gera ákveðinn hóp manna að 2. stétta fólki og vinnu leynt og ljóstað því að útríma ákveðnu fólki, veistu hverjir það eru?
Hvað er það sem hentar ekki með samanburð á þessum tveim flokkum? Fyrir utan að þetta eru systurflokkar, eru 99% á sama staðá hini pólitísku línu og hafa 99% sömu stefnu, bara mun á áherslum svo sem hver er óvinurinn?
Þegar ég les stefnumál Jóhönnu og nasistana hennar....úps samfylkingarinnar hennar þá dettur mér helst í hug "Mine Kamp". Sagan var rituð til þess að menn gætu lært af henni þar sem við(mennirnir) erum dæmdir til að endurtaka söguna. Kafbli nasistana er ekki sú sögustund sem ég vil endurtaka
Hlutir þurfa að vera gerðir af yfirvegun og eftir "bókinni",það eru endarlaust mörg dæmi til um það þegar lögum er ýtt til hliðar lýtt og gert var með stjórnlagakosningarnar. Það er full ástæða að hafa áhyggju af því að það sem menn eru að sækjast eftir með breytingar á stjórnaskránni verði meiri bölvunn en blessun eins og hjá Þýsku samfylkingunni 1933
Brynjar Þór Guðmundsson, 27.1.2011 kl. 00:08
Jæja Brynjar , þú lætur þér ekki segjast. En af því þú þekkir söguna svona vel, og hefur gert svona nákvæman samanburð á stefnu nasista og samfylkingarinnar og hefur lesið kverið hans Hitlers og skilið innihald þess, veistu að öfgafullt skrum á borð við það sem þú skrifar hér að ofan, er ekki líklegt til árangurs. Nema auðvitað að markmið þitt sé að sýna fáránleika slíks samanburðar. Þá hefur þér tekist frábærlega upp.
Svanur Gísli Þorkelsson, 27.1.2011 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.