Andófsmenn á netinu

Morgunblaðið kallar þá "tölvuþrjóta", aðrir nefna þá "hryðjuverkamenn" eða jafnvel "landráðamenn". Sjálft kallar þetta fólk sig "andófsmenn" og samtök sín "Operation payback". (Borgað til baka aðgerðin). Þau eiga að baki nokkrar harðar atlögur að þekktum alþjólegum fyrirtækjum, en beina spjótum sínum um þessar mundir að Visa og Paypal í aðgerð sem kallast Operation Avenge Assange. (Hefnum Assange aðgerðin)

Samtökin, ef samtök skal kalla, eru lauslega samsett af mörgum hópum net-andófsfólks sem gengur undir ýmsum nöfnum á netinu og undir samheitinu "Anonymous". (nafnleysingjar)

Hugsjónir þeirra eru m.a. að halda netinu algerlega frjálsu og upplýsingaflæðinu um það óheftu. Þeir berjast gegn hvers konar hindrunum og þvingunum sem stjórnvöld beita til að reyna að stjórna netumferð og upplýsingunum sem um það flæða.

Meðlimirnir sérhæfa sig í að hakka sig inn í tölvukerfi og gera það ónothæft um hríð. Enginn stenst þeim snúning og þeir geta athafnað sig eftir vild, að því er virðist. Fjöldi þeirra eykst dag frá degi og þúsundir hafa gengið til liðs við hina ýmsu nafnleysingja hópa á undaförnum dögum -

Þannig hefur mál Julian Assange þegar orðið til að efla baráttuna fyrir frjálsri og óheftri miðlun á netinu, til muna.


mbl.is Barist í Netheimum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Meðan ég man Svanur, þá var það ekki rétt hjá þér í færslu þinni um brunann í Ísrael, að þarna sem eldar brunnu, hafi áður verið land Palestínuaraba. Þarna var land Drúsa, og er enn. Þetta var bara frjáls og óheft miðlun á sannleika.

Frjáls og óheft miðlun á netinu er ekki frjáls og óháð, ef hún beinist aðeins að því að afhjúpa sora í bandarísku utanríkisþjónustunni.

Stöplarit í skoðanakönnunum um WikiLeaks sína annað fyrir utan stuðning ákveðins fólks á þessu fyrirbæri. Það sýnir hatur á BNA.

Ert þú Kanahatari, Svanur???

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.12.2010 kl. 23:55

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þar skjöplast þér illilega Vilhjálmur.

Þú ert bara sár af því að þú ert í tapliðinu :)

Landið sem brann í Ísrael var af stærstum hluta áður í eigu Palestínuaraba, ekki Drúsa. Þú verður endilega að segja fyrrum íbúum al-Araqip og  Ein Hod að þeir hafi verið Drúsar, ég er viss um að þeim þykja svona brandarar bara fyndnir :)

Svo þarftu líka að segja forsætisráðherranum í Ísrael að vera ekki svona mikill "kanahatari" af því að hann segir að Ísraelar hafi bara komið vel út úr þessu Wikileak dæmi því það staðfesti margt af því sem þeir hafi verið að halda fram o.s.f.r.

Svanur Gísli Þorkelsson, 10.12.2010 kl. 01:02

3 identicon

Þessi hópur er óskipulagðir einstaklingar, sem eru núna að framkvæma verknað sem hefur það að verkum að Assange mun verða settur í samhengi með glæpamönnum og hryðjuverkamönnum í huga almennings.  Bjarnargreiði.

Bara þetta eitt, ætti að vekja eftirtekt manna ... hverjir vilja að Assange sé skipaður í hóp með glæpamönnum? vinir hans?

Netið er fullt af mönnum sem hafa það að atvinnu, að veita rangar upplýsingar, fá fólk til verknaðar sem þessa ... og þeir eru á launum hjá ríkinu sjálfu.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 07:29

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ein Hod var arabískur smábær 480 manns um 1931 en hafði aldrei verið mikið stærri en 50-100 íbúar, en Ussafiya (Isfiya /Ir Karmel) var og er drúzískur bær og á það við um aðra bæi við og á Karmelfjalli. Reyndar bjuggu þar líka Egyptar var mér einu sinni sagt. En löngu áður hét bærinn svo Husifa, og fundust þar rústir samkunduhúss frá 5. öld með mósaíkgólfi sem á stendur: שלום על ישראל /Shalom al Isroel, og það er það sem þú greinilega vilt ekki, Svanur, frekar en arabarnir. Landið sem brann og skógarnir tilheyra Ísrael og Gyðingaþjóðinni og þú getur engu breytt þar um.

Afkomendur arabískra íbúa Ein Hod búa á Vesturbakkanum í bæ sem þeir kalla Ein Houd.

Maður skal ekki trúa því sem Netanyahu segir sem nýju neti. En hann átti vitaskuld við það sem kemur fram um óspektir nágrannanna. Það vissu allir, sem vilja vita það.

Ekkert stendur hins vegar í stolnum skjölum Assange og Hrafnssonar um Jonathan Pollard, en hann er njósnarinn sem hefur setið lengst allra í bandarísku fyrir njósnir, greinilega vegna þess að hann er gyðingur og nú ísraelskur þegn. Konur dæmdar til grýtingar í Íran sleppa fyrr úr fangelsisprísund en hann.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.12.2010 kl. 07:56

5 identicon

Einu sinni í fyrndinni, bjuggu forfeður mínir í Kína ... svona fyrir 6-8 þúsund árum er mér sagt.  Við komum ekki frá miðausturlöndum hér, því miður ... hvað svo sem "popular science" líður.  Forfeðurnir voru brúneygðir, hvort þeir voru skáeygðir líka veit ég ekki ... en síðan urðu fyrir okkur "mutation", sem gerði okkur bláegyða og ljóshærða.  Við fluttumst til, urðum að "sömum" og öðrum þjóðarhópum ...

Gefur þetta mér rétt til þess að sparka Kínverjum út úr Kína, og flytjast þangað sjálfur.

Ef maður gerir sér ekki grein fyrir því, hversu órétturinn hér er stór ... þá er maður hreinlega vangefinn.   Það sem einu sinni var í fyrndinni, gefur mér engan rétt til að framkvæma verknað á morgun ... frekar en það veitti þjóðverjum rétt að hefna sína á gyðingum.  Þið ásakið þjóðverja fyrir það sem þið gerið sjálfir ... og þar fyrir utan, þá eru "trúarbrögð" enginn sönnun þess að um rétta afkomendur sé að ræða.  Það er ekki nóg að segja "Eg er hindu trúar" og halda að maður verði Indverji fyrir vikið.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 08:33

6 Smámynd: Kommentarinn

Amen Bjarne. Sumir eru bara blindir.

Annars fínn pistill hjá Svani.. Og þó manni sé illa við utanríkisstefnu Kana og vill ekki að þeir komist upp með allskonar leyndarmál þá er maður ekkert Kanahatari. Mér er illa við innanríkisstefnu Kínverja en ég er ekkert Kínverjahatari. Kanar hafa greinilega margt að fela og því beinast spjótin dáldið meira að þeim í þessum uppljóstrunum.

Kommentarinn, 10.12.2010 kl. 10:58

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Vilhjálmur, Þú segir;

Afkomendur arabískra íbúa Ein Hod búa á Vesturbakkanum í bæ sem þeir kalla Ein Houd.

Það rétta er að afkomendur þeirra Palestínuaraba sem áður höfðu búið allt frá 12. öld í þorpinu sem nú er kallað Ein Hod, búa núna í þorpi sem þeir nefna eftir gamla þorpinu sínu; Ayn Hawd.

Þú talar um að trúa ekki því sem Forsætisráðherrann segir eins og nýju neti þegar þér er bent á hver opinber afstaða Ísraels er til Wikileaks lekanna. Maður skilur ekki hvers vegna þér, gömlum andófsmanni, er svona uppsigað við Assange að þú skulir eyða svona mikilli orku og tíma í að reyna niðurlægja hann á einhvern hátt á blogginu þínu.

Þú kvartar yfir því að bandarískir diplómatar skuli ekki skrifa um Jonathan Pollard og berð meðferð hans saman við mál Sakineh Mohammadi Ashtiani sem á að hengja á næstunni. - Ég segi nú eins og þú, þú skalt ekki trúa öllu sem þú heyrir um Íran "eins og nýju neti", því Það á ekki að láta Ashtiani lausa.

Svanur Gísli Þorkelsson, 10.12.2010 kl. 13:02

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já, það var ofgott til að trúa því.  Tími minn er alveg eins dýrmætur og Assanges, en ég nota hann ekki til að bera út þýfi og koma mér í vond mál í Svíþjóð. Ég lít öðrum augum á frelsi og mannréttindi og hann. Tel t.d. ástæðu til að slíta stjórnmálasambandi við Íran, frekar en BNA.

Annars tel ég að Jonathan Pollard hafi fengið bandarískan hengingardóm. Mál hans er BNA til háborinnar skammar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.12.2010 kl. 13:48

9 identicon

Ætli Villi viti hversu lost hann er í the twilight zone... nahh

doctore (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband