Færsluflokkur: Menning og listir

Er meirihluti Íslendinga virkilega á móti að þessu fólki verði veitt landvistarleyfi?

al_waleedJárnsmiður fór út til að snæða á nærliggjandi veitingastað. Hann snéri aldrei til baka. Tveimur dögum seinna voru kennsl borin á lík hans í einu líkhúsa borgarinnar. Það bar merki um pyntingar.

Verslunareigandi giftur og fimm barna faðir var hrifin frá tveimur börnum sínum úr fjölskyldubílnum af vopnuðum mönnum. Hann var seinna skotinn til bana og líki hans hent á götuna.

Leigubílsstjóri sem beið áfyllingar á bíl sinn var numinn á brott af vopnuðum mönnum. Tveimur dögum seinna notuðu mannræningjarnir farsímann hans til að tilkynna fjölskyldu hans um að lík hans væri að finna á líkhúsinu.  Líkami hans bar merki pyntinga þ.á.m. djúp sár eftir vélbor.  

 Fjórir menn, þar á meðal, tveir al palestinian_refugees_iraqbræður voru handteknir af írösku öryggislögreglunni. Nokkru seinna komu þeir fram í sjónvarpi þar sem þeir játúðu að hafa staðið að sprengingum í Bagdad. Það kom í ljós að þeir höfðu verið pyntaðir í 27 daga, - barðir með vírum, gefið raflost og brenndir með sígarettum.

Þeir játuðu að hafa staðið að sex sprengjutilræðum, þar á meðal fimm sem aldrei höfðu átt sér stað.  

Fjölskyldur þessara manna dveljast m.a í Al-Waleed búðunum.

Góða greinargerð frá Amnesty International um ofsóknir á hendur Palestínumönnum í Írak er að finna hér.

 

 

Waleedcamp10


Nýlegt myndband frá AL-WALEED flóttamannbúðunum, aðstæður, andlit og raddir flóttafólksins

Hér er að finna nýlegt myndband frá AL-WALEED flóttamannabúðunum á landamærum Íraks og Sýrlands þar sem flóttafólk frá Palestínu hefst nú við. Íslendingar hafa einir þjóða ljáð máls á að veita fólkinu landvistarleyfi. AL-WALEED flóttamannabúðirnar

Lífið í Al-Waleed flóttamannabúðunum hjá verðandi Akurnesingum

070518-refugees-iraqMargt af flóttafólkinu reyndi að yfirgefa Írak til að flýja ofbeldið sem þar er orðið daglegt brauð. Miðstéttar Palestínumenn réðu ekki yfir vopnuðum herflokkum til að vernda sig og því hröktust þeir úr landi fljótlega eftir innrás Bandamanna í Írak. Þeir voru auðveld bráð fyrir mannræningja og fjárkúgara. Fjörutíu ára þriggja barna móðir móðir;  Tisar Abdel Fadi fór frá  Baghdad til Al-Tanf eftir að eiginmanni hennar var rænt af sjúkrahúsi. Hann var síðan pyntaður og myrtur.

Fyrir marga var flóttinn för úr öskunni í eldinn því við tóku Al-Waleeda búðirnar. Þær eru sérstakt bitbein hreppspólítíkur í hinu löglausa Anbar héraði. Allir sem eiga leið um héraðið verða að borga verndartolla eða láta eftir skerf af þeim gögnum sem þeir hafa undir höndum til Sheiksins sem svæðinu ræður. Þetta gerir starf hjálparstofnana nánast útilokað. Að auki bætast við afskipti banvænnar blöndu landamæravarða, staðarlögreglu og Íraska hersins. 

Allir eru sammála að langvarandi dvöl í þessum búðum er ómöguleg. Ískaldir vetur, brennheit sumur,eldhætta, snákar, sporðdrekar, vatnsleysi, skortur á sjúkraaðstöðu, er meðal þess sem gera það ómögulegt.

Í Al-Waleed eru plastklósett í hverju tjaldi. Jörðin er samt svo hörð að hún drekkur ekki einu sinni í sig vatnið sem hellt er á hana. Skólpið rennur því opið um búðirnar. Fyrir utan auðsæja smithættu er íbúarnir afar illa á sig komnir líkamlega. Sérstök þörf er á sálfræðiaðstoð fyrir konur búðanna sem sumar eru á barmi örvæntingar. Læknar sem heimsótt hafa búðirnar hafa allir orð á slæmri andlegu heilsu íbúanna sem er bein orsök af vonleysinu og úrræðaleysinu sem heltekið hefur þá alla.

Eina uppbyggilega starfsemi búðanna er skólakennsla barna.

Engi von virðist vera um að þessu  fólki verði hleypt inn í Sýrland. Sýrlendingar hýsa þegar á eigin kostnað meira en milljón flóttamanna. 

Íslendingar eru fyrstir þjóða til að ljá því máls að hjálpa þessu ákveðna fólki með því að veita því landvistarleyfi á Íslandi. Málið hefur verið gagnrýnt af þröngum hópi sem telur að íslendingar eigi að hjálpa betur að eigin fólki áður en við aðstoðum aðra. Í orðum þeirra liggur að þrátt fyrir að Íslendingar séu ein af auðugustu þjóðum veraldar, hafa þeir ekki efni á að veita fólki í öng hjálp. Hverjir eru þá aflögu færir má þá spyrja?

Þá hefur einnig heyrst sú skoðun að hjálp við þetta fólk mundi betur gagnast því á svæðinu sem auðvitað er fásinna þar sem svæðið er óbyggilegt.

Það er því ekki að furða að það læðist að manni sá grunur að þeir sem eru á móti því að taka á móti þessu flóttafólki, tali gegn komu þess til landsins af enn annarlegri ástæðum en heimóttaskap, fáfræði eða óbilgirni.

 


Saga úr stríðinu...af flóttakonu

 Þar til að stríðið barst til heimabæjar hennar, lifði Móna Ghunnam hamingjuríku lífi. Hún átti ástríkan eiginmann og fjögra ára dóttur. Í nágrenni við hana bjuggu foreldrar hennar og fjórir bræður.

Árið 2003 varð sprengjuflaug móður hennar og föður að bana. Hún grandaði líka bræðrum hennar fjórum og lítilli dóttur hennar. Sjálf lamaðist hún að hluta.

Eiginmaður hennar, lögreglumaður, reyndi að fá aðhlynningu handa henni á vestrænu sjúkrahúsi en gat sjálfur ekki sætt sig við bæklun hennar. Hann kastaði henni á götuna og flutti inn til nýrrar eiginkonu.

Móna sem hafði verið kennari var ein þeirra 750.000 Íraka sem lentu í hrakningum og enduðu á götum Amman borgar í Jórdaníu. Hún býr í eins herbergis kjallaraholu án hita, vatns eða salernis.

Flestar stundir grúfir hún sig upp að vegg í herberginu og grætur. Hún er ekki lengur, móðir, eiginkona, dóttir eða systur.

Mónu hefur verið boðið að setjast að í landinu sem grandaði fjölskyldu hennar en hún er hikandi.

"Ég trúi ekki lengur að ég verði nokkru sinni hamingjusöm aftur" segir hún."Skömmin er yfirþyrmandi, ég var skólakennari nú er ég betlari. Síðasta minningin af dóttur minni er að hún var að leika sér á meðan aðrir í fjölskyldunni stigu út veröndina til bæna þann 31 mars. 2003. "

"Passaðu að detta ekki" sagði hún og brosti við dóttur sinni um leið og hún snéri sér í átt til Mekka.  Það næsta sem hún vissi var hún stödd á sjúkrahúsi með þrjú sprengjubrot í höfðinu, heyrnarlaus á hægri eyra og lömuð vinstra megin líkamans.

Hún spurði eftir dóttur sinni og fjölskyldu en fékk engin svör. Eftir þrjár aðgerðir hélt hún heim. Eiginmaður hennar sagði henni að öll fjölskylda hennar væri látin. "Það var erfiðasti dagur lífs míns. Mér fannst eins og ekkert væri eftir" sagði Móna um þann dag.

Hann sagði að best væri að þau seldu hús sitt og flyttust frá þorpinu og settust að í Austurríki. Móna gaf eiginmanni sínum leyfi til sölunnar. Nokkru seinna sagðist hann ekki hafa neinn áhuga á að yfirgefa Írak og lýsti því yfir að hann vildi eignast aðra konu. "Hann fórnaði mér" sagði hún með tárin flóandi niður kinnarnar."Hann fékk húsið mitt og launin mín sem hann notaði til að kaupa nýjan bíl. En nú var ég þurfalingur, óvinnuhæf, byrði".

Móna gaf öll föt dóttur sinnar og leikföng. "Hárspennurnar, fyrsta afmæliskertið hennar, litina hennar, öll mjúku leikföngin sem sum hver hún hafði ekki einu inni leikið sér enn að".

"Ég pakkaði niður í ferðatösku og fór".

Móna dvaldi um hríð hjá aldraðri konu sem bjó í grenndinni, eða þar til maður hennar kom með prestinn til að skilja við hana. Hún tók hönd eiginmannsins og kyssi fingur hans og bað hann um að skilja ekki við sig. Hann kippti til sín hendinni og sagði að hún væri ekki lengur kona sín og hefði því ekki rétt til að kyssa hann framar.

Fjarlægir ættingjar hennar töldu sig ekki geta tekið á móti henni í því ástandi sem hún var´og það eina sem beið hennar var vergangur.

"Ég seldi það sem ég átti, jafnvel giftingarhring móður minnar og hélt af stað út í buskann."

"þegar ég kom til Jórdaníu dvaldist ég á gistihúsi þar til því var lokað. Nú bý ég í þessu herbergi og eigra þess á milli um göturnar hlægjandi. Ég veit ekki af hverju ég er hérna eða hvert ég er að fara".

 


Spámaðurinn sofandi


  Í dag eru til hundruð nýaldarlækna og bókstaflega þúsundir sjúklinga um allan heim sem nota lækningaaðferðir sem þróaðar voru af manni sem hafði enga læknisfræðimenntun og framkvæmdi árangursfyllsta starf sitt meðvitundarlaus. Þessi maður hét Edgar Cayce hinn sofandi spámaður Ameríku, einn af almerkilegustu sjáendum 20 aldarinnar.

Edgar Cayce var fæddur á bóndabæ nálægt Hopkinsville í Kentucky-fylki í Bandaríkjunum 18 mars 1877. Fyrstu teikn um skyggnigáfu hans komu snemma í ljós. 7 ára að aldri sagði hann foreldrum sínum af fundum sínum með látnum afa sínum. Og ýmislegt bendir til þess að hann hafi haft sýnir af engli. Cayce gekk ekki í skóla nema fram að áttunda bekk og 16 ára var hann farinn að vinna í bókabúð. Eins og margir ungir Ameríkanar lék hann hafnarbolta í frístundum. Eitt sinn við slíkan leik fékk hann mikið högg á bakið sem gerði hann órólfæran. Á meðan hann þjáðist í rúminu skipaði hann móður sinni skyndilega að útbúa og bera á eymslin frjókornaseiði sem hann tilgreindi, sem hún og gerði. Morguninn eftir reis Cayce á fætur og kenndi sér einskis meins. Hann mundi þó ekki eftir neinu af þessari reynslu sinni, sem seinna kom í ljós að átti eftir að verða einkennandi fyrir líf hans.

Árið 1898 þegar Edgar var 21 árs gerðist hann sölumaður fyrir bréfsefnisheildsala og með honum hafði vaknað áhugi á ljósmyndun, en jafnframt var hann á ystu nöf með að verða einn af fremstu læknamiðlum sem heimurinn hefur þekkt. Þá þróun má rekja til veikinda sem hann átti sjálfur við að stríða og honum flaug í hug að lækna mætti með aðstoð dávalds. Hann fór á fund eins slíks sem ekki tókst samt að lækna meinið. En í einum af dásvefninum, í djúpu dái, tók Cayce skyndilega að lýsa meðali sem lækna myndi mein hans. Læknislyfið hreyf og hann fór að velta því fyrir sér hvort hann gæti endurtekið leikinn og orðið öðrum til góðs.

Áður en leið á löngu varð honum mögulegt að losa sig við þjónustu dávaldsins því hann gat komist í dásvefn hjálparlaust og af eigin rammleik.
 

Lækningar Cayces eru allt of margar og vel sannaðar til að geta kallast umdeilanlegar í dag, en hann fékkst ekki við trúarlegar lækningar í þeim skilningi sem það orð er notað. Hann stundaði ekki handa-yfirlagningar eða tók fólk í meðferð. Hæfileikar hans fólust að miklu leiti í að sjúkdómsgreina, sem hann gat oft á tíðum gert án þess svo mikið sem berja sjúklinginn augum. Oft á tíðum stönguðust greiningar hans algjörlega á við hefðbundnar læknagreiningar. En aftur og aftur reyndist Cayce hafa rétt fyrir sér og læknarnir rangt. Meðhöndlunaraðferðir hans voru ýmiskonar, allt frá hefðbundnum laxerolíukúrum og smáskammta-læknisaðferðum, til frekar ótrúlegra læknisaðferða eins og inntöku á sængurmaurasafa.
 

En eitt höfðu aðferðirnar þó sameiginlegt, þær virkuðu. Þegar hann lést árið 1945 hafði hann meðhöndlað mörg þúsund sjúklinga með góðum árangri, sem oft hafði verið vísað til hans af þeim sem störfuðu í læknastétt. Skyggnin sem lá að baki lækningastarfsemi Cayces leiddi hann inn á undarlegar leiðir. Eitt sinn hafði hann t.d. upp á morðingja með hæfileikum sínum. Í því tilfelli féll á hann sjálfan grunur um að hafa framið morðið því einn af rannsóknarlögreglumönnunum sem málið rannsökuðu trúði ekki á skyggnigáfu og var þess fullviss að vitneskja Cayces gæti aðeins stafað af því að hann hefði sjálfur framið morðið.
 

Frá sjúkdómsgreiningum sínum fór Cayce að stunda lífgreiningu, það er, lagði mat á framtíð sjúklingana. Vegna þess að í vöku var Cayce ákaflega bókstafstrúaður kristinn maður olli það honum talsverðri truflun, þegar honum varð ljóst að í dái gat hann greint frá fyrri lífum einstaklinga og sett fram fyrnalanga sögu mannskynsins sem náði langt aftur til hins forna meginlands Atlantis.


Adhan, bænakall múslíma sem íslensk stjórnmálakona kallar "gól"

Adhan eða bænakall múslíma hefur verið í umræðunni upp á síðkastið. Bænakallið fer fram fimm sinnum á dag og er kallað af sérstökum bænakallara (Muezzin)  úr bænakallsturninum (minaret) sem jafnan er byggður utan á moskur (bænahús) múslíma. Það var Múhameð sem ákvað að nota skyldi mannsröddina til bænakvaðningar, frekar en klukkur eins og hinir kristnu gera og gerðu eða horn líkt og gyðingar gerðu. Sagt er að blökkumaður og fyrrum þræll Bilal ibn Ribahað nafni hafi verið fyrstur til að kalla til þessarar bæna. Bænakallið sjálft eru 7 eða átta setningar, eftir því hvort um er að ræða Shi´a eða Sunni moskur.

Bænakallið er tónun sem fylgir afar mótuðum reglum og setningafræði. Lengri og lengri þögn fylgir hverri setningu. Á helgidögum er algengt að tveir kalli út samtímis.

Bænakallið hljómar svona í lauslegri þýðingu.

Guð er mestur.

Ég ber þess vitni að enginn er drottin nema Guð.

Ég ber þess vitni að Múhameð er boðberi Guðs.

Hraðið ykkur til bæna.

Hraðið ykkur til velfarnaðar.

Hraðið ykkur til hins besta (þessari línu er bætt við hjá Shi´a múslímum)

Guð er mestur.

Það er enginn drottin nema Guð.

Það eru til leiðir til að egna fólk upp og misbjóða því á marga vegu.  Ein aðferðin er að smána trúarhefðir þess og kalla það sjálft uppnefnum.

Ég var afar hissa að sjá á bloggi þekkts forsprakka eins af stjórnmálaflokkum landsins kalla bænakall múslíma "gól" og "óhljóð" og taka undir með fólki sem nefnir bænakallið "hávaða" og múslíma sjálfa "hyski." - Þetta gerir viðkomandi á bloggsíðu sem er sífellt að bjóða fólki að ganga í flokkinn og hefur sérstakt innskráningarkerfi á síðunni til þess. - Fyrir utan að vera í stjórnmálum rekur þessi aðili víst einhverjar verslanir í landinu. Það er ekki hægt að skilja á viðmóti hans annað en hann sé að afþakka viðskipti við þetta "gólandi hyski." Hann þarf alla vega ekki að undra þótt múslímir landsins og jafnvel þeir sem láta sig mannréttindi almennt varða, beini viðskiptum sínum annað.


Atlantis

Hvernig varð goðsagan til.

Í kringum árið 590 fyrir Krist lauk gríski stjórnmálamaðurinn Solon við röð pólitískra og efnahagslegra umbóta í Aþenu. Til að gefa þeim tóm til að skjóta rótum fór hann í langferð til Egyptalands. Nákvæm lýsing á ferðalagi hans hefur því miður ekki varðveist en talið er að Solon hafi heimsótt stjórnarfarslega höfuðborg Egyptalands, Sais, sem stóð aðeins 16 km frá Naucratis einu Grísku hafnarborg landsins. Heimsókn Solons til Sais var söguleg. Hann hafði mikinn áhuga á liðnum tímum og gerði sér far um að ræða við fornfræðinga, skjalaverði og sagnfræðinga og ekki hvað síst, við presta gyðjunnar Neith.
Einn af þeim sagði honum einkennilega sögu af styrjöld sem geisað hafði í fornöld og af meginlandi sem sokkið hafði í sæ. Það lítur út fyrir að Solon hafi orðið djúpt snortinn af frásögninni sem honum var sögð til að sanna að sagnfræðileg gögn Egyptalands næðu lengra aftur en þau grísku.Ýmislegt bendir til þess að Solon hafi ritað hjá sér minnispunkta, ef til vill með það fyrir augum að setja saman skáldsögu um efnið þegar hann kæmi heim. Ef svo var tókst honum það ekki, en hann endursagði frásögnina góðum vini og ættingja, Dropidesi. Dropides sem var kominn fast að níræðu, sagði söguna barnabarni sínu Critiasi sem sagði hana sínu barnabarni Critiasi öðrum. Critias hinn yngri var náskyldur Platoni, manni sem lýst hefur verið sem mestum allra grískra heimspekinga. munnmæli þessi urðu heimildir Platons að frásögn sinni af Atlantis. Ef til vill hafa fylgt frásögn Critiasar minnisblöð Solons en þeirra er hvergi getið. Seinna ákvað Platon að deila þessum heimildum með heiminum og gerði það í tveimur ritverkum, Timaeus og Critias. Þó sagan væri brotakennd, varð hún grundvöllur að heilum iðnaði sem þrífst vel enn þann daginn í dag og er fyrsta og elsta heimild okkar um Atlantis.

Í Timaeusi eru frásagnarbrotin heillegri og hefjast á lýsingu hugmynda Egypta um endurtekningu hörmunga. Prestar gyðjunnar Neith skýrskota til grísku arfsagnarinnar um Phaethon sem eyddi öllu á jörðinni með eldi vegna þess að hann missti stjórn á vagni föður síns Heliosar. Þó að um táknræna lýsingu væri að ræða, fullyrti presturinn að hér væri raunsönn lýsingu á ferð um hvernig himinhnettirnir hefðu rekist saman á himninum og valdið mikilli eyðingu á jörðinni. Hann gefur einnig í skin að slíkir atburðir eigi sér stað með vissu millibili í alheimssögunni. Presturinn heldur síðan áfram að segja sögu forfeðra Salons Aþenubúanna, sem Egyftaland geymdi heimildir um allt að 9000 ár aftur í tíman. Á þeim tímum, sagði hann, var til í Atlantshafi, utan súlna Herkúlesar, eða Gíbraltar eins og þær eru kallaðar í dag, eyja nokkur stærri en Libya og Asía til samans. Yfir henni og fjölda smáeyja, ríkti voldugt herveldi hvers yfirráð teygði sig allt að ströndum norður Ítalíu. Herveldi þetta réðist inn í Egyptaland og Grikkland níuþúsund árum fyrir tíma Solons. Þegar styrjöldin braust út féll Egyptaland en borgríki Aþeninga héldu velli gegn ótrúlegum líkum og tókst að síðustu að snúa styrjöldinni sér í hag og frelsa nokkur af þeim ríkjum sem sigruð höfðu verið. Þetta voru erfiðir tímar fyrir Atlantis. Í kjölfar hernaðarósigrana gengu yfir heimaeyju þeirra svo öflugar jarðhræringar og flóð að allar herdeildir þeirra sukku í jörðu og sjálf eyjan Atlantis hvarf í djúp hafsins.
Samkvæmt frásögn Solons eins og hún er höfð eftir Platon gengu hörmungarnar yfir á einum degi og einni nóttu, og ollu því að Atlantshafið varð í langan tíma ósiglanlegt vegna misturs og leðju.

Í bókinni Critas útskýrir Plató arfsögnina um upphaf Atlantis og segir frá því hvernig guðirnir skiptu jörðinni í hluta til þess að skapa mannkynið. En lýsing hans á meginlandinu og íbúum þess líkist meira sagnfræði.
Hálfa leið eftir allri eyjaálfunni var frjósöm strandlengja. Nokkrum mílum í burtu í miðju eyjarinnar stóð lágt fjall, kannski ekki meira en hæð, en á henni byggðu eyjaskeggjar sína elstu borg. Borgin var umkringd þremur dýjum, sem arfsögnin sagði að guðinn Póseiton hafi grafið. Gnægð var af gróðri og dýralífi sem virðist hafa verið svipað og gengur og gerist í hitabeltinu.
Þar var unninn úr jörðu óþekktur málmur,oricalsinum, sem lýst er sem verðmætari en nokkuð nema gull. Borgin á hæðinni varð að höfuðborg landsins. Skurður var grafinn frá sjó að ysta díki og höfn í miðju landi búin til. Díkin sjálf voru brúuð á mörgum stöðum og margir minni skurðir grafnir milli þeirra og inn og útgönguleiðir varðaðar með turnum. Veggir voru reistir í kringum hvert díki. Ysti veggurinn var lagður kopar, miðveggurinn tini og innsti veggurinn oricalsinum. Í borginni mátti finna almenningsböð, jafnt sem einkaböð, gosbrunna og rennandi vatn, sem hitað var upp, og jafnvel reiðvelli. Úr grjótnámu ekki langt frá var höggvinn steinn svartur, rauður og hvítur sem notaður var í allar byggingar. Fyrir utan borgina fóru flutningar og áveita eftir þéttu neti skurða, sem voru svo stórir að Plató átti auðsjáanlega erfitt með að trúa að þeir hefðu verið gerðir af manna höndum.
Stjórnarfarslega var Atlantis samband 10 konungsdæma sem hvert um sig var sjálfstætt ríki en samt bundið saman með ákvæðum um að hvert þeirra skyldi útvega hermenn til að verja veldið í heild. Meirihluti atkvæða hinna tíu konunga var nauðsynlegur til þess að hægt væri að dæma Atlantisbúa til dauða.
Frásögn Platós kynnti undir ímyndunarafl bæði þeirra sem lásu og skrifuðu um hana. Nýleg áætlun gerir ráð fyrir að yfir 1000 bækur hafi nú verið gefnar út um Atlantis og er sú áætlun talin hógvær. Þessi ritverk má flokka í þrjá meginflokka. Þann sem leitast við að sanna að Atlantis hafi verið til, þann sem styður og lýsir lifnaðarháttum og menningu Atlantis og að síðustu þann sem afneitar því að Atlantis hafi verið til í raun og veru en leitar að öðrum sögulegum skýringum á arfsögninni.
Ein af þeim bókum sem fyllir fyrsta flokkinn og er ein af eldri útgefnu bókunum um efnið, er Atlantis, The Antediluvian World eftir Ignatius Donnelly. Donnelly sem gaf út bók sína árið 1882 var heillaður af líkum menningar- og tungumálaþáttum forn-Egypta og þeirra sem byggðu suður-Ameríku til forna. Hann benti á að báðar þjóðirnar hefðu byggt píramída, báðar smurðu lík sín og báðar réðu yfir háþróaðri stjarnfræði.
Arfsagnir beggja vegna Atlantshafsins geyma líkar frásagnir, jafnvel staðarnöfn eru lík. Til að skýra þessar sameiginlegu þætti gerði Donnelli ráð fyrir Atlantískri menningu sem breiddist samtímis út til austurs og vesturs þegar eyálfan sökk. Annan flokkinn fylla meðal annars rit Maddam Blavanský sem leit á sögu Atlantis sem hluta af 18 milljón ára sögu mannkynsins og rit Edgar Cayce hins fræga Ameríska sofandi spámanns, sem dró upp myndir af Atlantis sem í mörgum tilvikum líkjast stórbrotinni vísinda-skáldsögu. Cayce trúði því ásamt fjölda annarra dulrænna rithöfunda að í raun hefði Atlantis sokkið þrisvar og þeir atburðir sem Plató lýsir hefðu gerst þegar Atlantis sökk í þriðja og síðasta sinn. Í reynd hefðu þá síðustu leifar mikillar heimsálfu, sem náði frá Mexíkóflóa yfir í Miðjarðarhaf, verið að sökkva í sæ. Það eina sem eftir standi pp úr sé hluti Ameríku, Vestur-Indíum og Bahama-eyjar.Cayce kenndi að á Atlantis hefði þrifist hátæknivædd menning sem grundvallaði vísindi sín á kristöllum, vísindum sem nú eru týnd. Það eru greinilegar vísbendingar um það í ritum Cayces að síðustu hörmungarnar sem gengu yfir Atlantis hafi verið af mannavöldum og orsök mikils vopnabúnaðar sem nota átti til þess að frelsa kynþátt þræla undan tilbúninni og stökkbreyttri herraþjóð.
Þriðja flokkinn fylla bækur eins og bókin End of Atlantis eftir Prófessor Luce, sem bendir á að frásögn Platós af hinni týndu álfu eigi margt sameiginlegt með því sem við vitum um hábronsaldar menningu Aegeana. Siðmenning sú blómstraði löngu fyrr en Egypsku heimildirnar segja til um, en nútímafræðingar halda að ef til vill hafi Plató einfaldlega ruglast á eða ranglega þýtt níuþúsund ár fyrir níuhundruð. Ef svo er hafa hörmungarnar sem eyddu Atlantis átt sér stað í kringum 15oo fyrir Krist frekar en 9600 f.K. Svo einkennilega vill til að sé reiknað með tímasetningunni 15oo f.K. ber hana upp á þann tíma er ótrúlegar hamfarir sannanlega eyddu miklu heimsveldi, þ.e. Minoan-veldinu á eyjunni Krít. Hamförunum ollu mikið gos í eldfjalli á eynni Santorin 70 mílur norður af Krít. Þetta eldgos er talið hafa verið 5 sinnum öflugra en þegar eyjan Krakatoa sprakk í loft upp og sendi flóðöldur þvert yfir Kyrrahafið á síðustu öld. Öldur frá Santorin skullu án efa á Krít og ollu gereyðingu slíkri að hið gamla heimsveldi náði sér aldrei aftur á strik.

 


Af Hundtyrkjum og Módjökkum

Það er svo auðvelt að gerast sekur um fordóma án þess að vilja vera það. Sérstaklega þegar maður hefur takmarkaða reynslu af því að umgangast aðra kynþætti og fólk sem ekki er nákvæmlega eins og maður sjálfur.

Þegar ég var að alast upp kallaði fólk svört börn "svörtu kolamolana" með blíðuhreim eins og ekkert væri sjálfsagðara. Afi minn kallaði Tyrki alltaf HUNDTYRKIog var sjálfsagt alveg ókunnugt um að foringi sjóræningjanna frá Alsír sem komu til landsins 1627 og við kölluðum "Tyrki" var hollenskur. (JAN JANZOON)

Þegar ég var að alast upp litu allir gyðingar út eins og Fagin í ÓLiver Twist og kallinn í sjoppunni sem aldrei gaf neitt var kallaður Gyðingur. Maður gat verið "algjör Arabi" ef maður sveik einhvern, Arabar voru lúmskir kallar, alltaf með hnífinn á lofti tilbúnir til að stinga fólk í bakið.

Rússar voru illaþefjandi ruddar, Dani (bauna) talaði fólk um með óttablandinni lítilsvirðingu og svo voru menn fullir út um allan bæ eins Færeyingar á hvolfi.

Í Bandaríkjunum er fordómar svo landlægir að fólk virðist vera farið að sætta sig við það. Vona að sú staða komi aldrei upp á Íslandi. Þessi orð sem ég nefndi heyrast varla orðið. En Kanar eru snillingar í að finna ný uppnefni á fólk.  Þeir kölluðu Íslendinga Módjakka (Mojack- kemur af "more Jack") vegna betliáráttu íslenskra barna sem langaði í meira súkkulaði og tyggigúmmí. Þeir eiga uppnefni fyrir alla en flest þeirra eru bönnuð í sjónvarpi og dagblöðum landsins þrátt fyrir að málfrelsið sé þar eitt af undirstöðum samfélagsins.

Alhæfingar og palladómar eru mjög algeng árátta hjá íslendingum. Kannski af því að við sjálf erum tiltölulega einsleitur hópur. Þegar við þurfum nú að aðlaga okkur "öðruvísi"  fólki sem er að flytja inn í landið okkar, finnst sumum okkar að við þurfum engu að breyta þegar þörfin til að breyta er e.t.v. mest.

 


Verður blóðpollur frá Tíbet í sæti Íslands í öryggisráði SÞ?

Hvað er það sem gerir jafnvel stoltustu og einörðustu menn að örgustu heiglum og já-jarm-kindum þegar þeir komast í meirihluta og taka þátt í að mynda ríkisstjórn. Allt í einu heyra þeir ekki í fólkinu sem kaus þá og sjá ekki blikurnar í augum þjóðarsálarinnar.

Þótt 85% þjóðarinnar hafi á sínum tíma verið á móti stuðningi Íslands við innrásina í Írak, studdu þeir félagar Davíð og Halldór hana samt. Þá barði Samfylkingarfólk í hneisubumbur sínar. Þrátt fyrir að það stjórni nú  utanríkisráðuneytinu hreyfir það engum andmælum þótt ranglætið sem viðgengst í Tíbet blasi við þeim.  

Stjórnvöld ljá alls ekki máls á neinum mótmælum við yfirgangi Kína í Tíbet, af ótta við að missa stuðning þeirra við að fá sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Halldór og Davíð seldu sál landsins fyrir fáeina mánuði af dvöl USA hers á landinu. Nú ætla stjórnvöld að selja samvisku landsins fyrir væntanleg metorð hjá SÞ og er sama þótt þau séu ötuð blóði saklauss fólks í Tíbet.

Hvað ætli að stór hluti þjóðarinnar vilji að Íslenska ríkisstjórnin hóti að hætta við þátttöku á ÓL ef Kínverjar draga ekki hersveitir sínar tafarlaust til baka úr Tíbet?


Við hvetjum stjórnvöld í Íran...

Amnesty International og Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna krefjast þess að bahá’í föngum í Íran verði sleppt úr fangelsi

GENF, 30. janúar 2008 (BWNS) — Í kjölfar þess að Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur krafist þess að Íran sleppi úr haldi bahá’íum sem hafa verið settir í fanglesi hefur Amnesty International sent frá sér ákall um „tafarlausar aðgerðir“ vegna málsins. Fangarnir þrír, Haleh Rouhi Jahromi (mynd), Raha Sabet Sarvestani og Sasan Taqva, voru settir í fangelsi í borginni Shiraz þann 19. nóvember síðastliðinn og afplána nú fjögurra ára dóm eftir ákærur sem tengjast alfarið trú þeirra og starfi á vegum bahá’í trúarinnar. „Við hvetjum stjórnvöld [í Íran] til þess að sleppa öllum einstaklingum sem er haldið í fangelsi án þess að hafa fengið viðeigandi meðferð og sanngjörn réttarhöld, þar á meðal þremur ungum bahá’í kennurum sem eru í haldi í fangelsum á vegum ráðuneytis leyniþjónustunnar í Shiraz,“ sagði Sean McCormack, talsmaður Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna þann 23. janúar 2008. „Við biðjum ykkur að senda eins fljótt og frekast er kostur áskorun á persnesku, arabísku, ensku eða ykkar eigin tungumáli,“ segir í ákalli Amnesty International til umheimsins.

Jafnframt segir í ákallinu að Amnesty International muni líta á bahá’í fangana sem samviskufanga ef þeim er haldið í fangelsi vegna þess að þeir eru bahá’í trúar ... og krefjast þess að þeim verði sleppt ef þeir hafa ekki verið ákærðir fyrir augljóst glæpsamlegt athæfi og ekki fengið skjót og sanngjörn réttarhöld; einnig eru írönsk stjórnvöld hvött til að beita þá hvorki pyntingum né annarri illri meðferð. Frú Diane Ala’i, fulltrúi Alþjóðlega bahá’í samfélagins hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf [í Sviss], segir að bahá’í samfélagið hafi miklar áhyggjur af velferð bahá’í fanganna þriggja. „Við vonumst til að ákall Amnesty International um „tafarlausar aðgerðir“, sem er boðskapur frá mannréttindasamtökum um allan heim, og yfirlýsing Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna muni hjálpa þeim að losna úr þessari óréttlátu fangavist,“ segir frú Diane Ala’i enn fremur. Hún segir einnig að þetta sé sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að Sasan Taqva, einn af föngunum þremur, sé meiddur á fæti eftir umferðarslys sem hann varð fyrir áður en hann var settur í fangelsi og hann þurfi þess vegna að komast í læknismeðferð. Hún tekur einnig fram að bahá’íarnir þrír hafi tekið þátt í átaki til hjálpar utangarðsbörnum í heimaborg sinni, þar sem áhersla er lögð á þjálfun og kennslu í siðferði og dyggðum. Yfirlýsing Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna beinist einnig að „andláti við tortryggilegar aðstæður“ Ebrahim Lotfallahis, sem var íranskur háskólanemi af kúrdískum uppruna, sem ráðuneyti leyniþjónustunnar setti í fangelsi þann 6. janúar síðastliðinn. „Við krefjumst þess að yfirvöld í Íran láti fara fram ýtarlega rannsókn,“ segir Sean McCormack, talsmaður Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Hann lýsti ennig yfir miklum áhyggjum af áframhaldandi fangelsun fanganna þriggja, sem eru allir stúdentar í Amir Kabir Háskólanum. —

Þýtt og endursagt úr ensku af vefsíðu Bahá'í alþjóðafréttaþjónustunnar: BWNS — Bahá'í World News Service; vefslóð á upprunalega frétt, myndskreytta, í fullri lengd á ensku: http://news.bahai.org/story/599Ákall Amnesty International á ensku er hægt að nálgast á vefslóðinni: http://www.amnesty.org/en/report/info/MDE13/017/2008Yfirlýsingu Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna á ensku er að finna á vefslóðinni: http://www.state.gov/r/pa/prs/ps/2008/jan/99632.htm

Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva, all Bahais (a religious minority), have been detained by the Ministry of Intelligence in Shiraz since 19 November 2007. It is not clear why they are held. They may be prisoners of conscience, detained solely because of their religious beliefs, or their peaceful activities teaching underprivileged children.The three had previously helped to organize a programme teaching underprivileged children in the city of Shiraz, southern Iran. More than 50 people involved in the programme were arrested in May 2006, even though the authorities had granted permission for their activities.

Most of those arrested were Baha'is. Several Muslims and one Baha’i with learning difficulties were released the same day; 50 other Baha'is were released by the sixth day, but Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva were detained for about one month.In August 2007, the 53 Baha'is who had been held were tried by Branch 1 of the Revolutionary Court in Shiraz. They were charged with offences relating to state security. Fourteen who attended the court sessions were told orally of the verdict against the whole group. Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva were each sentenced to three years’ imprisonment for “organizing illegal groups” and to an additional one year’s imprisonment for “propaganda on behalf of groups that are opposed to the Islamic system”. The other 50 were sentenced to suspended prison sentences of four months for “participating in an illegal group” and a further eight months for “propaganda on behalf of groups that are opposed to the Islamic system”. All those involved have appealed against their convictions and sentences.

Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva remained free pending the outcome of their appeal.On 19 November 2007, Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva were told by telephone to go to the Office of the Ministry of Intelligence in Shiraz to retrieve items that had been confiscated from them when they were first arrested. When they did not return home, family members who had accompanied them were given conflicting information by intelligence officials. The officials tried to claim that the three had not entered the building, even though their relatives had seen them do so. Eventually, their relatives were informed that the three were still being held at the Office of the Ministry of Intelligence in Shiraz. Reports suggest that the three have been permitted limited visits from relatives.It is not clear whether they are serving the prison sentences imposed in August 2007. If they are serving these sentences, they should be held in prisons run by the Prison Service, as under Iranian law, the Ministry of Intelligence is only empowered to hold detainees for interrogation.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband