Færsluflokkur: Dægurmál
27.12.2008 | 14:59
Af kjölturökkum og frönskum flóm
Eftir sólrík Jól suður í Cornwall þar sem rjómi með smjörkekkjum er snæddur á jólum, ásamt hnausþykkum og dísætum ávaxtajólakökum, er ég kominn aftur heim og rétt að huga aðeins að blogginu aftur.
Ég þakka öllum þeim sem sendu mér jólakveðjur og sendi þeim bestu hátíðarkveðjur til baka.
Ég skemmti mér vel yfir jóladagana við lestur bókar sem fjallar um uppruna hugtaka, flestra enskra, en sum hver þó þekkt annarsstaðar, jafnvel á Íslandi.
Ég fann í bókinni og staldraði við skemmtilega umfjöllun um kjölturakka. (á ensku lapdog) Oft er talað um einhvern sem dekrað er við sem sem kjölturakka og einnig um þá sem láta stjórnast af öðrum þ.e. eru algjörlega í vasa einhvers.
En eins og oft áður fylgdi böggull skammrifi og það var ekki tekið út þrautalaust að vera kjölturakki.
Á miðöldum voru flær og lýs algengar óværur, svo algengar að háir jafnt sem láir þurftu að sætta sig óþægindin sem óværunni fylgdi. Hefðarfrúr margar áttu þá "kjölturakka", þ.e. einhverja tegund af smáhundi sem þær létu liggja í kjöltu sinni og jafnvel á nöktum lærum sínum. Óværan, sem geðjaðist betur að blóði húsdýra en manna, hraðaði sér þá yfir í feld rakkans og seinna þegar hann var settur út, tók hann lýsnar og flærnar með sér.
Þá er getið um þann einkennilega sið heldri manna í Frakklandi á sautjándu öld að ganga með um hálsinn í örlitlu búri, fló sem hann hafði fengið hjá ástmey sinni eða heitmey. Ól viðkomandi óværuna á blóði sínu með því að þrýsta smágjörðu búrinu að brjósti sér svo flóin næði að sjúga hann og blandast þannig blóðhans blóði ástmögur sinnar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.12.2008 | 15:22
Ævintýrasápan Blákló
Einu sinni í landi þar sem sólin aldrei sest á sumrum og sést aldrei á vetrum, bjuggu kóngur og drottning í ríki sínu. Landið var samt fagurt og frítt og nefnt Bláland. Konungurinn sem nefndur var Víðir hafði í fyrstu þótt vitur og áræðinn stjórnandi. Hann sagðist setja frelsi þegna sinna í fyrirrúm og afnam þess vegna mörg þeirra laga sem ríkt höfðu í landinu fyrir hans daga. Varð hann af þessum ástæðum vinsæll nokkuð meðal alþýðunnar en þó meir meðal lénsherra hans sem notuðu rýmri löggjöf konungs hvað þeir gátu til að fylla fjárhirslur sínar af gulli.
Snemma á valdatíma sínum varð konungur samt fyrir því óláni að þiggja ráð af voldugum erlendum galdramanni sem sagðist geta kennt honum að búa til gull. Kvaðst galdramaðurinn vera fús til þess að skilja eftir lærling sinn hjá konungi, ef hann fengi í staðinn afnot af helli einum í suðurhluta landsins, þegar hann þyrfti á að halda. Konungur gekk að þessu en Þegar hann tók í hönd galdramannsins til að handsala samningnum, visnaði á honum hægri höndin og blánaði síðan upp. Bláminn gekk aldrei til baka og fékk konungur af því viðurnefnið Blákló og var aldrei kallaður annað eftir það .
Lærlingur galdramannsins tók sér bólfestu í höll konungs þar sem hann dandalaðist um á stuttum buxum og hló að öllu sem konungur sagði. Mærði hann konung á alla lund við hvert tækifæri og átti yfirleitt greiðan aðgang að eyra hans.
Í miðju ríkinu var tjörn ein full af gullfiskum. Þeir sem bjuggu löndin næst tjörninni höfðu um aldir haft rétt til að fanga fiskinn og selja til útlanda þar sem eftirspurnin var all-nokkur. Konungur hafði af þessu miklar tekjur þar sem skattur var greiddur af hverjum fiski sem veiddur var og seldur. Samkvæmt lögum landsins átti konungur þó tjörnina og allan fiskinn í henni.
Fljótlega eftir komuna til hallarinnar kom lærlingurinn að tali við konung og spurði hvort hann vildi ekki læra að búa til Gullkvörn. Konungi leist vel á það. Lærlingurinn benti honum þá á að hægt væri að koma því þannig fyrir með einni tilskipun að allir sem veiddu úr tjörninni góðu, gætu veðsett óveidda gullfiska og aukið þannig verðmæti þess sem í tjörninni synti og fengið borgað fyrir fiskinn löngu áður en hann væri veiddur. Það mundi stórauka skatttekjur strax og gera gullfiskatjörnina að einskonar gullkvörn þar sem engin gæti sagt fyrir hvað væri í raun óveitt úr henni. Konungi fannst þetta heillaráð og gaf út tilskipun tafarlaust þess efnis að nú væri heimilt fyrir veiðimenn og óðalsbændur að veðsetja allan óveiddan fisk. Í hvert sinn sem óveiddi aflinn var veðsettur í botn, lýsti konungur því yfir að meiri fiskur væri í tjörninni sem síðan var umsvifalaust veðsettur.
Í kjölfarið á þessu braski brast á mikil velsæld í landinu og eftir höfðinu dansa limirnir. Allir sem eitthvað áttu veðsettu eigur sínar og keyptu fyrir það aðrar eignir sem þeir síðan veðsettu aftur. Þeir lýstu því yfir að í fyrirtækjum og eignum væri mikil falin eign sem hægt var síðan að veðsetja. Hirslur konungs tútnuðu út af skattagulli sem hann vissi ekki einu sinni að væri til í landinu. Konungur var svo ánægður með ráð lærlingsins að hann gerði hann að skólastjóra í stærsta skóla landsins þar sem hann átti að kenna öllum að mala gull.
Drottning Bláklóar hét Remba og átti ættir sínar að rekja til óðalsbænda á landinu sem margir hverjir bjuggu við tjörnina góðu. Sumir þeirra höfðu því efnast vel á tilskipunum konungs. Sá hængur var á hjónabandi þeirra Rembu að hún hafði þá náttúru að skreppa saman og verða smávaxnari eftir því sem á sambúð þeirra leið. Konungur sem hafði verið stoltur af bústinni og rjóðri brúður sinni, þótti þetta skiljanlega nokkur hneisa, en bar samt skömm sína í hljóði. Voru samfarir þeirra hjóna, þrátt fyrir þetta, eftir föngum góðar. Saman eignuðust Blákló og Remba einn son sem þau nefndu Atgeir. Þegar fram liðu stundir og Atgeir kominn til manns bauðst konungur til að gefa Atgeiri eftir völd sín og konungsdæmi allt, um leið og hann fyndi sér heppilegt kvonfang.
Þannig hagaði til í höllu konungs að upp úr miðjum hallargarðinum reis turn mikill úr hvítu fílabeini. Turninn var afar hár og trónaði hátt yfir höllina og efst úr honum mátti sjá yfir megnið af lendum konungs. Konungur lét lærðustu menn ríkisins hafast við í turninum og á hverjum morgni fundaði hann með þeim og lét þá segja sér hvað þeir höfðu séð frá turninum daginn áður.
Dag einn bárust konungi þær fréttir úr nærliggjandi konungsdæmi að drottningin sem ríkti yfir því hefði eftir langa einveru, ákveðið að taka sér eiginmann. Kallaði konungur þá á son sinn Atgeir og sagði að ef honum tækist á ná ástum þessarar drottningar mundi hann þegar í stað gefa honum ríki sitt. Sjálfur mundi hann setjast að í fílbeinsturninum og gerast einn af ráðgjöfunum hans. Sagðist Blákló jafnframt ætla að skilja við Rembu drottningu sína, því hún væri hvort eð er orðin gagnslaus til alls vegna smæðar sinnar. Atgeir sem leist afar vel á þessa ráðagerð lét söðla hest sinn og hélt tafarlaust á fund drottningar til að biðja hennar. Segir ekki af ferðum hans fyrr en hann snéri aftur til ríkis föður síns nú í fríðu föruneyti tilvonandi drottningar sinnar. Með hinni nýju drottningu komu til hirðarinnar margir smásveinar og guttar sem ætlað var það hlutverk að hafa ofan af fyrir þeim hjónum með leikjum og skemmtan.
Nokkrum dögum síðar fór brúðkaup þerra fram með mikilli viðhöfn og gekk nú allt eftir sem Blákló hafði ráðgert. Hann lét Atgeiri eftir konungríkið, skildi við Rembu drottningu sem nú var orðin svo lítil að hún sást varla. Henni var vísað úr höllinni svo hún átti þann kost einan að fara á vergang. Sjálfur settist Blákló að í fílabeinsturninum og sá svo um að fátt gerðist í Blálandi án þess að hann kæmi þar ekki að með einhverjum hætti.
Í nokkur ár virtist allt leika í lyndi í konungsríki Atgeirs og drottningar hans. Viðskipti blómstruðu og þeir sem voru ríkir urðu ríkari. Lénsherrarnir og óðalsbændurnir sem léku nú lausum hala færðu sig smá saman upp á skaftið og tóku að láni allt sem hægt var að fá lánað af gulli í landinu gegn loforði um himinháa vexti. Þeim tókst jafnvel að fá almenning í nærliggjandi löndum til að lána sér gull á sömu forsendum. Upp í fílbeinsturninum fylgdist gamli kóngurinn Blákló með öllu og brosti í kampinn. Atgeir og drottningin hans böðuðu sig í velgengninni og lærlingurinn skrifaði lærðar greinar um gullgerðarlist í skólanum.
En þá gerðist sá leiðinda-atburður að skyndilega varð allsherjar þurrð á lánsfé. Fregnir bárust af því að einn af göldrum galdramannsins volduga sem gamli kóngurinn Blákló hafði á sínum tíma átt viðskipti við, hafði farið úrskeiðis með hræðilegum afleiðingum og að allt hagkerfi heimsins rambaði á heljarþröm af þeim sökum. Allir sem áttu gull inni hjá braskþegnum Blálands vildu fá það aftur refjalaust og einhverra hluta vegna var ekki til neitt gull í landinu. Illar tungur hermdu að því hefði verið komið fyrir í fjárhirslum fjarlægra landa af þeim lénsherrunum og óðalsbændunum sem viðskiptunum stjórnuðu. Þegar að Blákló varð ljóst hvernig komið var, hljóp hann út á svalirnar efst á turninum og hrópaði út yfir borg og bý; Blálendingar munu aldrei borga! Þegar að konungar nágrannaþjóðanna heyrðu af þessum orðum gamla kóngsins héldu þeir að hann væri orðinn ær og létu þeir greipar sópa um allar eignir Blálendinga hvar sem í þær náðist í sínum löndum.
Atgeir sem hafði látið sig dreyma um mikla upphefð meðal þjóðarinnar og jafnvel annarra þjóða, bað föður sinn Blákló að hafa samband hið snarasta við galdramanninn volduga og biðja hann ásjár. Galdramaðurinn sagðist ekki geta hjálpað og bað Blákló að skila því til Atgeirs að hann þyrfti ekki lengur á hellinum í suðurhluta Blálands að halda og hann hefði hvort eð er aldrei haft neina þörf fyrir hann.
Atgeir lét nú boð út ganga að hann mundi þiggja hjálp hvaðan sem hún kæmi en enginn varð til að svara bónum hans nema fáeinir fjarskyldir ættingjar sem enn áttu smávegis af gulli af því að þeir bjuggu einangraðir úti á smáeyju undan ströndum Blálands.
Þegar að alvara málsins varð lýðum ljós á Blálandi hóf hann að safnast saman í hallargarðinum til að mótmæla ástandinu. Sumir voru jafnvel svo djarfir að þeir heimtuðu að Blákló færi úr turninum því hann hefði átt að sjá þetta allt fyrir. Blákló lýsti því yfir á móti að hann hefði oft minnst á það við Atgeir son sinn að ýmiss teikn væru á lofti um að ástandið í landinu væri ótryggt.
Loks þegar fokið virtist í flest skjól fyrir Atgeiri og Blálendingum greip Atgeir til örþrifaráða. Hann bað Blákló að hafa samband við Þurs einn sem bjó í miklu bergi vestan við landið og sagt var að ekki vissi aura sinna tal. Það væri nú eitt til ráðs að biðja þursinn um lán til að greiða þeim konungum sem nú hreinlega hótuðu styrjöld ef landið borgaði ekki skuldir sínar.
Blákló fór tregur á fund þursins sem lét líklega og sagðist mundi gjarnan vilja hjálpa. Í staðinn fyrir aðstoðina vildi hann fá allan arð sem gullfiskatjörnin góða mundi gefa af sér næstu hundrað árin.
Blákló sagði það illa gerlegt þar sem þjóðin hefði það eitt að lifa af sem tjörnin gæfi af sér. "Ég skal líka lána ykkur fyrir því" sagði þursinn "og það vil ég fá borgað með arðinum að lindinni í þar næstu 100 ár." Þetta þóttu Blákló ofurkostir en þar sem hann var orðinn gamall og vissi að hann sjálfur mundi aldrei þurfa líða skort, samþykkti hann lántökuna.
Þegar hér er komið í sögu, gekk mikil hátíð í garð á Blálandi og líkt og siður er á þeirri árlegu hátíð tóku flestir sér orlof frá amstri öllu. Mótmælendurnir hurfu úr hallargarðinum, ráðgjafarnir lögðust undir sæng til að hugsa málið og Atgeir ásamt föður sínum og drottningu ákváðu að gefa út yfirlýsingu um að það ætti að reka nokkra af skósveinum drottningar vegna þess hve illa þeir stóðu sig í þrengingunum.
Framhald á næsta ári.
Köttur út í mýri
setti upp á sig stýri
úti er ævintýri.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.12.2008 | 13:55
Hvít Jól
Oft hafa verið gerðar kannanir á hvaða jólalag heimsbyggðinni hugnast best og oftar en ekki hefur lagið "White Christmas" (Hvít Jól) vermt efsta sætið. Það er því ekki að furða að höfundur þess Irving Berlin hafi verið upp með sér eftir að hafa lokið við samningu lagsins þar sem hann sat við sundlaugina í Arizona Biltmore Resort and Spa í Phoenix, Arizona árið 1940.
Sagan segir að daginn eftir hafi hann komið askvaðandi inn á skrifstofu sína mjög uppveðraður og hrópað á ritarann sinn; "Gríptu pennann þinn og taktu niður þetta lag. Ég hef lokið við að semja besta lag sem ég hef nokkru sinni samið - svei mér þá, ég hef samið besta lag sem nokkru sinni hefur verið samið".
Í fyrstu útgáfunni af texta lagsins gerði Berlin grín að gervijólatrjám og íburði Los Angeles búa við jólahaldið en breytti svo textanum síðar en hann hljómar svona:
I'm dreaming of a white Christmas
Just like the ones I used to know
Where the treetops glisten and children listen
To hear sleighbells in the snow
I'm dreaming of a white Christmas
With every Christmas card I write
May your days be merry and bright
And may all your Christmases be white
May your days be merry and bright
And may all your Christmases be white
"Hvít Jól" var fyrst sungið af Bing Crosby árið 1942 í söngva-kvikmyndinni "Hollyday Inn." Reyndar syngur hann dúett með leikkonunni Marjorie Reynolds en rödd Marjorie var skipt út fyrir rödd söngkonunnar Mörthu Mears.
Sú útgáfa sem vinsælust er af laginu í flutningi Bings er samt ekki úr kvikmyndinni eða sú sem hann tók upp árið 1942. Sú upptaka skemmdist af mikilli notkun og árið 1947 var Bing kvaddur Til Decca hljóðritunarinnar og látinn syngja lagið upp á nýtt með upphaflegu bakröddunum og sömu hljómsveit og áður þ.e. Trotter Orchestra and the Darby Singers.
Sjálfur var Crosby ekkert skerstaklega ánægður með útkomuna og fór háðslegum orðum um hana; "a jackdaw with a cleft palate could have sung it successfully."
Árið 1954 var lagið valið sem titillag kvikmyndarinnar "White Christmas" með Bing Crosby, Danny Kaye, Rosemary Clooney og Veru-Ellen. Þrátt fyrir að svipa mjög til fyrri myndarinnar "Holliday Inn" varð hún mun vinsælli og er í dag sýnd á flestum sjónvarpsstöðvum á Jólum.
Hljómplata Crosbys "White Christmas" er talin mest selda plata allra tíma en lagið hefur að auki verð gefið út á fjölda annarra hljómplata og gert skil af ókunnum fjölda listamanna.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.12.2008 | 13:19
Jólasaga fyrir unglinga
Það var fátt meira gaman þegar ég var ungur drengur en að halda jól með fjölskyldunni minni. Spenningurinn var stundum yfirþyrmandi. Jólafötin, jólaskórnir, jólamaturinn, jólatréð og bara allt var frábært. En svo gerðist það, ég er ekki alveg viss hvenær eða hvernig, en að jólin hættu að vera....ja, það sem þau höfðu verið. Ekkert virtist passa lengur, jólasálmarnir voru leiðinlegir, jólamessan óþolandi, Jólamaturinn svo "same old" og gjafirnar ekki nógu dýrar, allir eitthvað svo stressaðir og, og .....ég var orðin unglingur. Allt virtist vera miðað við yngstu krakkana (ég á 7 yngri systkini), ekkert fyrir unglinginn. Uhu.
Ég settist niður og reyndi að skrifa sögu fyrir unglinga. Hún var í þróun í nokkur ár og fékk sitt endanlega form einhvern tíman um 1990. Þegar ég las hana aftur um daginn þótti mér hún bera þess merki að vera samin á þremur áratugum. Hér er hún og hún heitir þrátt fyrir allt afar þjóðlegu nafni, eða;
Kerti og Spil
Það var aðfangadagur jóla. Húsið nötraði af urri frá ryksugu og hrærivéla-mótorum í bland við jólasálmana í útvarpinu. Þeir félagarnir Benni og Einsi sátu inni í herbergi Benna og hámuðu í sig Mackintosh og reyktu. Benni hafði stolið stórri dollu af þessu gómsæta gúmmulaði, frá mömmu sinni, fyrr um morguninn, úr skápnum í þvottahúsinu sem var úttroðinn af allskyns niðursuðudósum og sælgæti sem faðir hans hafði komið með heim úr síðustu siglingu. Samkvæmt mömmu Benna átti allt sem í skápnum var að borðast á jólunum. Alla vega var það viðkvæðið, þegar Benni bað um
eitthvað úr skápnum. Jæja jólin voru hvort eð er svo til komin, hugsaði Benni um leið og hann stakk dolluni inn á sig og laumaðist með hana inn í herbergið. Skömmu síðar birtist svo Einsi. Heima hjá honum var allt á öðrum endanum, og ástandið öllu verra en venjulega því allir gríslingarnir, bræður hans og systur voru inni og létu eins og sérþjálfaðir terroristar um alla íbúðina á meðan mamma hans reyndi án árangurs að hirða upp eftir þau draslið. Einsi var því dauðfeginn að komast yfir til Benna, sem átti sitt eigið herbergi þar sem þeir gátu reykt í friði og spjallað saman. Einsi og Benni voru vinir, og höfðu lagt lag sitt saman frá því að þeir mundu eftir sér. Fyrstu árin áttu þeir heima í sömu blokk, en svo fluttu foreldrar Benna í einbýlishús og nú þegar þeir voru komnir vel á fimmtánda ár duldist hvorugum hversu mikill munur var í raun og veru á högum þeirra, þó þeir mættu ekki hvor af öðrum sjá í öllum frístundum. Ef þeir hefðu verið að hittast núna í fyrsta sinn hefðu þeir áreiðanlega ekki orðið eins góðir vinir og raunin var á. Á meðan að foreldrar Einsa bjuggu enn við ómegð og fátækt í lítilli blokkaríbúð, höfðu foreldrar Benna efnast. Þau höfðu efni á því að senda einkason sinn í einkaskóla samtímis því að Einsi gekk í sinn hverfisskóla. Benni fékk úthlutað vasapeninga vikulega, Einsi átti aldrei aur. Samt var smekkur þeirra í klæðaburði og tónlist áþekkur, því báðir voru þeir eins pönkaðir og þeir þorðu að vera án þess að eiga það á hættu að gert væri að þeim gys. Þeir hlustuðu báðir aðeins á þungarokk og gáfu skít í allt sem hét hipphopp, house eða rapp. Reyndar var það stórfurðulegt, þegar tillit er tekið til þess hve ákaft þeir reyndu að árétta sjálfstæði sitt með klæðaburði sínum og töktum, hversu ákaflega líkir þeir voru öðrum unglingum á sama reki.
En þarna sátu þeir sem sagt, með gúlana fulla af gotti og reyktu úr Camel pakkanum hans Einars. Þrátt fyrir öll blankheitin, æxluðust mál einhvernvegin alltaf á þann veg að það var Einsi sem alltaf átti fyrir sígarettum. Báðir voru þeir orðnir of gamlir, eða of cool, til að sýna óþreyju eftir að jólahátíðin gengi í garð. Báðir búnir að tapa hinni barnslegu eftirvæntingu, sem bundin er við góðan mat , falleg ný föt,og
fjölmarga litskrúðuga pakka sem komið er fyrir undir upplýstu jólatré. "Veistu hvað þú færð frá þeim gömlu?" spurði Einsi um leið og hann lokaði Sippónum og reyndi um leið að gera hringi. "Blessaður, það verður eitthvað ferlega ömurlegt eins og venjulega. Einhver helvítis jogginggalli eða eitthvað álíka hálfvitalegt" svaraði Benni. "Ég þoli ekki mjúka pakka" sagði Einsi. "Á öllum jólum sem ég man, hef ég ekki fengið annað en ógeðslega mjúka pakka, nema þegar ég fékk smokka-pakkann frá þér í fyrra."
"Þeir hafa nú kannski orðið mjúkir á endanum" svaraði Benni og glotti. Einsi fattaði ekki brandarann strax, en svo fór hann allt í einu að hlægja, þessum einkennilega hlátri sem mútur á byrjunarstigi valda, hann hljómar eins og verið sé að starta Skóda í fimmtán stiga gaddi. Þeir héldu áfram að masa um ömurlegar jólagjafir sem þeir höfðu fengið í gegnum árin og gerðu að þeim óspart grín. Tíminn leið, Mackintosh dósin tæmdist og sígarettu reykurinn varð þéttari í herberginu. Klukkan var farin að ganga sex þegar allt í einu var bankað á herbergishurðina og hún síðan opnuð. Í gættinni birtist andlit móður Benna . "Benni minn, ætlarðu ekki að fara að klæða þig fyrir matinn? Þarf Einar ekki að fara að tygja
sig heim? Voðaleg reykingafýla er þetta. Opnið nú glugga strákar." Svo steig hún inn í herbergið og byrjaði að bjástra við að opna gluggann sjálf. Einsi greip leðurjakkann sinn og stóð á fætur. "Ég sé þig á morgun, hringdu í mig í kvöld og segðu mér hvað þú fékkst." Svo drap hann í sígarettunni, krumpaði tóman pakkann og henti honum í barmafullan öskubakkann. Aldrei þessu vant, fylgdi Benni vini sínum nú til dyra, og horfði um stund á eftir honum út í létta snjódrífuna. Helvíti, hugsaði hann með sér, ég gleymdi að kaupa handa honum jólagjöf, jæja ég geri það bara seinna. Aðfangadagskvöld gekk í garð á heimili Benna með kalkúnilm og grenilykt um allt húsið, jólamessu á sjónvarpsskerminum , uppljómaða stofu og veglega skreytt jólatré í henni miðri, sem samt varla sást í fyrir pakkahrúgu sem bókstaflega flaut út um allt stofugólfið. Þegar búið var að troða því næst ósnertum kalkúninum inn í ísskáp ásamt
megninu af fjölbreyttu beðlæti. og setja óhreina diska og föt í uppþvottavélina, réðust Benni og foreldrar hans á pakkahrúguna. Þau rifu upp pakkana einn af öðrum og stöfluðu innihaldi þeirra við hlið sér. Móðirin hafði orð á því að þau þyrftu að hraða sér, því von væri á foreldrum hennar í stutta heimsókn ásamt honum Þórði móðurbróður hennar, sem dúkkað hafði skyndilega upp á heimili gömlu hjónanna og gert sig líklegan til að dveljast hjá þeim um jólin. Benni hafði aldrei hitt þennan Þórð,
aðeins heyrt af honum einhverjar furðu sögur sagðar í hvíslingum. Benni velti því fyrir sér hversvegna fólk talaði alltaf í hvíslingum þegar það ræddi um fólk sem var veikt eða skrítið. "Hann er svo undarlegur í háttum hann Þórður" heyrði Benni móður sína eitt sinn hvísla," að ég held að engin kona hafi þýðst hann".
Benni var í óða önn að flytja góssið sem hann fékk í jólagjöf úr stofunni inn í herbergið sitt, þegar að dyrabjallan glumdi. Benni fór til dyra en varð svo að hörfa aftur inn í forstofuna því gangurinn fyllist af jólapökkum sem móðir hans og faðir hófu strax að ferja inn í stofuna. "Gleðileg jól öll," söng amma hans og svo tóku við faðmlög og varalitur á báðar kinnar. Aðeins Þórður stóð í fordyrinu, án þess að segja orð og beið eftir því að sér yrði boðið inn. Hann var teinréttur örugglega tveggja metra hár, með brúnan flókahatt á höfði og í síðum brúnum frakka. Benni kinkaði til hans kolli og forðaði sér svo aftur inn í stofuna. Hann beið eftir að masandi fólkið kæmi á eftir honum en það gerðist ekki í bráð. Aðeins Þórður birtist í stofudyrunum. Benni gaut til hans augunum og velti því fyrir sér hvort maðurinn væri vangefinn eða bara undarlegur. Þórður sem hvorki hafði farið úr frakkanum eða skónum né tekið af sér hattinn. Hann stóð bara og starði um stund á Benna. Benni tók eftir því hvernig snjórinn á skóm Þórðar bráðnaði og lak ofan í þykkt ullarteppið á stofunni. "Hann er stórskrýtinn hugsaði Benni. "Þú munt vera Benedikt" sagði Þórður allt í einu. Benni hrökk næstum því í kút. Rödd Þórðar var svo rám og djúp að hún minnti Benna helst á röddina í Axel Rose þegar hann spilaði plöturnar hans hægt aftur á bak í leit að földum skilaboðum. "Já ég er Benni" svaraði hann svo. " Ég heiti Þórður Sumarliðason og er bróðir hennar ömmu þinnar, komdu sæll Benedikt" rumdi í kallinum um leið og hann steig inn í stofuna í átt að Benna með útrétta hendi. Benni sem ætlaði að fara að heilsa Þórði þrátt fyrir að honum væri brugðið, kippti að sér hendinni ósjálfrátt þegar hann sá hendi Þórðar. Hún var náhvít og þakin einhverju ókennilegu hreistri. Þórður tók auðvitað eftir viðbrögðum Benna, því hann dró að sér höndina og settist um leið niður á stól við hlið hans tók niður hattinn og sagði. "Fyrirgefðu, ég gleymi alltaf þessu árans exemi, en það er víst ekki smitandi". Benni horfði forviða á Þórð, því undan hattinum kom í ljós þykkt grátt og sítt hár sem bundið var í tagl í hnakkanum. "Þetta er sannarlega furðulegur fýr" hugsaði Benni en þorði ekki að segja neitt. Ómurinn frá samræðum ömmu hans og afa við foreldra hans barst nú fram af ganginum og að herbergi Benna. Ömmunni var víst nóg boðið við að sjá kjaftfullan öskubakkann á borðinu í herbergi hans, því hún kom nú ásamt hinum býsnandi inn í stofuna. Um leið og hún birtist stóð Þórður á fætur og sagði með dunandi hárri röddu sem fékk alla til að þagna. " Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta kerti og spil. Sú var nú tíðin að það þóttu ágætar gjafir. Nú þykja ekkert gjafir nema þær séu tugþúsunda virði, gerðar úr plasti og hægt sé að stinga þeim í samband. Aldrei hafa jólin verið eins vel upplýst og á heimilunum nú til dags og samt hefur aldrei fyrr ríkt á þeim jafn mikið myrkur og nú."Þegar Þórður þagnaði, settist hann aftur niður og horfði spekingslega út í loftið. Eldra fólkið starði á hann agndofa eins og það væri að bíða eftir einhverju meiru, en ekkert kom. Benni heyrði svo afa sinn pískra eitthvað um að nú væri sér nóg boðið og ömmu sína þagga niður í honum og hefja síðan aftur taut sitt um óhollustu reykinga.
Benni ákvað að hringja í Einsa og brá sér í símann. Ásta elsta systir Einsa svaraði.
Halló.
Hæ Ásta, er Einsi heima spurði Benni.
Í símanum varð vandræðaleg þögn.
Þetta er Benni, má ég tala við Einsa ítrekaði Benni.
Heyrðu Benni, veistu ekki hvað kom fyrir, veistu ekki að Einar er á spítala? svaraði Ásta.
Á spítala, hváði Benni vantrúaður. Hvað er hann að gera á spítala?
Hann lenti undir bíl á leiðinni frá þér. Læknarnir segja að hann sé með brotinn hrygg, þeir segja að.....
Hvaða helvítis lygi er þetta í þér Ásta, leyfðu mér að tala við Einsa eða þú skalt hafa verra af, nördið þitt, hrópaði Benni í síman.
Ég er að segja þér alveg satt, heyrði hann Ástu segja sem var nú byrjuð að vola. Mamma og pappi eru bæði á sjúkrahúsinu og ég er ein hérna heima
með krakkana. Ég skal biðja mömmu um að hringja í þig þegar þau koma heim.
Bless.
Benni lagði tólið á og horfði stjarfur fram fyrir sig. Án þess að segja orðvið masandi fólkið í stofunni fór hann inn í herbergið sitt, rótaði í öskubakkanum þar til hann fann stóran stubb sem hann kveikti síðan í. Hann tók ekki eftir Þórði sem hafði staðið upp úr stól sínum og komið á eftir honum. Í annarri hendinni hélt Þórður á litlum pakka sem vafin var inn í brúnan umbúðapappír. Þennan pakka lagði Þórður á borðið í herbergi Benna og sagði svo um leið og hann fór út.
Handa þér drengur minn, handa þér.
Benni horfði orðlaus á eftir Þórði og brátt heyrði hann ömmu sína og Afakveðja. Brátt voru þau á braut og Þórður með þeim. Nokkrum mínútum síðar kom mamma hans inn til hans.
Þú varst ekki mikið að kveðja afa þinn og ömmu, eða þakka þeim fyrir allar gjafirnar, lét hún móðinn mása. Svo rak hún augun í pakkan á skrifborðinu og spurði.
Hvaða pakki er þetta, ekki kom Þórður með þetta?
Benni leit upp og svaraði: Mamma, Einsi lenti í bílslysi í kvöld þegar hann fór frá okkur. Hann liggur á sjúkrahúsi. Ásta sagði að hann væri með brotinn hrygg.
Hvað segirðu barn, með brotinn hrygg. Þetta er hræðilegt, að lenda í bílslysi á sjálfum jólunum. Það á ekki af þessari fjölskyldu að ganga,
eitt eftir annað, hvílíkt ólán.
Meira heyrði Benni ekki af því sem móðir hans sagði, því síminn hringdi og hann þaut upp til að svara honum. Í símanum var móðir Einsa sem með mæðulegri röddu staðfesti allt sem Ásta hafði sagt honum, og upplýsti jafnframt að Einsi væri á gjörgæslu og berðist nú fyrir lífi sínu. Að símtalinu loknu fór Benni aftur inn til sín og læsti að sér. Hann lét nýja geisladiskinn á geislaspilarann sinn og lagðist upp í rúmið sitt. Einhvern tímann seint um nóttina sofnaði hann loksins og svaf langt fram á jóladag. Þegar hann vaknaði aftur var gjöfin frá Þórði gamla það fyrsta sem hann rak augun í. Hann reis upp við dogg og teygði sig eftir pakkanum og reif hann upp. Í ljós kom hvítur kertisstúfur og gamall og lúinn
spilastokkur. Hann brosti með sjálfum sér að þessum einföldu munum, en mundi svo eftir Einsa og hentist á fætur og í símann. Það var móðir Einsa sem svaraði.
Nei, ekkert nýtt að frétta, nema að myndataka staðfesti að hann væri mænuskaddaður og að hann lægi enn á gjörgæslu.
Benni lagði á og fór inn í eldhús til að fá sér Chereeos. Foreldrar hans voru ekki heima, líklega farin til kirkju. Hann kveikti á sjónvarpinu, en slökkti fljótt á því aftur. Honum datt í hug að hringja í einhverja félaga sína en kom sér ekki til þess. Loks ákvað hann að reyna að taka til í herberginu sínu og
koma einhverju af nýja dótinu sem hann hafði fengið í jólagjöf, fyrir. En honum varð ekkert úr verki, svo hann settist niður á gólfið, reif upp spilastokkinn sem hann hafði fengið frá Þórði og ætlaði að fara leggja þennan eina kapal sem hann kunni. Um leið og hann náði spila-stokknum úr, kom í ljós samanbrotið bréf. Hann fletti bréfinu í sundur og las. Hann las bréfið þrisvar yfir áður en hann áttaði sig á innihaldi þess, þó það væri ritað með skýrri skrift. Þegar hann loks skildi bréfið, lá við að
hann færi að skellihlæja. Hvílíkt bull. Þessi Þórður var sko alveg snargeggjaður ef hann hélt að einhver tæki þessa vitleysu alvarlega. Samt greip hann bréfið aftur sem hann hafði krumpað saman í vantrú, og las það í fjórða sinn.
Kæri Benedikt.
Ég veit að þér þykir eflaust lítið til gjafar minnar koma í samanburði við allar hinar sem ég er vissum að þú færð. Samt er hún í höndum þess sem með hana kann að fara ómetanlega verðmæt. Bæði kertið og spilin eru æfa forn og þeim fylgir undra náttúra sem ég kann ekki að skýra. Ég get aðeins sagt
þér hvernig hún virkar. Náttúra kertisins er sú að hver sem horfir í loga þess, læknast af öllum sjúkleika hversu alvarlegur sem hann kann að vera. Spilin eru þess eðlis að ef þú leggur þau í hring fyrir einhvern, eða með einhvern í huga, segja þau nákvæmlega til um æfi þess hins sama. Þeir
annmarkar eru á ofureðli beggja að þau er aðeins hægt að nota einu sinni á hálfrar aldar fresti. Um þessar mundir eru rúmlega fimmtíu ár síðan gripirnir voru notaðir síðast. Þá sá ég fyrir í spilunum framtíð mína og hver átti að fá þessa gripi næst og hvenær.
Vertu sæll Benedikt.
Þórður Sumarliðason.
Þrátt fyrir hversu fáránlegt innihald bréfsins virtist Benna, fann hann hjá sér ómótstæðilega löngun til að sannreyna það. Ef til vill voru það kringumstæðurnar. Var það algjör tilviljun að hann fékk þessa gjöf
nákvæmlega þegar hann þurfti svo sannarlega á henni að halda, ef að allt reyndist rétt sem karlinn hafði skrifað. Úr huga hans hvarf aldrei hugsunin um að á sjúkrahúsi lá besti vinur hans fyrir dauðanum. Svo hafði Þórður verið svo dularfullur. Hvað um það hugsaði Benni, það var svo
sem nógu auðvelt að sannreyna spilin. Hann hugsaði málið augnablik, tók svo ákvörðun og lagði spilin í stóran hring á gólfið. Hann var varla búinn að sleppa síðasta spilinu, þegar sitthvað fór að gerast og svo hratt að hann varð að hafa sig allan við til að geta fylgst með. Á einhvern
undursamlegan hátt lyftust spilin frá gólfinu og í hverju spili sá Benni svipmynd úr lífi Einsa. Hann sá hvernig móðir Einsa rembdist við að koma honum í heiminn, hvernig hann skreið um skítugt eldhúsgólfið í blokkinni heima hjá sér, hvernig hann át sand úr sandkössum dagheimilisins, skítugur
og með hor í nefinu. Hann fylgdist með hvernig Einsi stækkaði og hvar hann hljóp um göturnar klæddur í föt af systkinum sínum, stundum jafnvel af Ástu, og loks sá hann sjálfan sig kynnast Einsa í barnaskóla. Benna varð allt í einu ljóst hversu mikið Einsi þurfti að hafa fyrir hlutum sem honum
sjálfum þóttu auðveldir. Hann sá að Einsi byrjaði snemma að stela peningum, hvar sem hann gat, til þess að endrum og eins þóttst geta splæst, og hvernig hann smá saman sætti sig við að hafa minna úr að moða en flestir kunningjar hans, að ekki sé minnst á Benna sjálfan. Að lokum sá hann Einsa
hlaupa út frá sér kvöldið áður, of seinan til að taka strætó, of blankan til að taka leigubíl, of stoltan til að biðja um að sér yrði ekið. Hann sá Einsa hverfa undir grænan upphækkaðan Cheroky jeppa og hvernig sippóinn hans þeyttist inn í húsgarð hinumegin við götuna og hverfa þar í skafl.
Síðasta spilið sýndi aðeins gráa móðu. Svo féllu spilin niður á gólfið í eina hrúgu.
Benni sat á gólfinu og nötraði allur af geðshræringu. Hann var lengi að jafna sig, en varð á sama tíma ljóst hvað hann varð að gera. Eftir nokkra stund klæddi hann sig í flýti, stakk kertinu í vasann á leðurjakkanum og hraðaði sér út. Það var jóladagur og enga strætisvagna að fá. Benni hljóp við fót og
stefndi í átt að Borgarsjúkrahúsinu. Móður og másandi hratt hann upp hurðinni á bráðamóttökunni. Bak við öryggisglerjað afgreiðsluborð sat sloppklædd kona sem mændi á hann ósamúðarfullum augum. Benni reyndi að útskýra í fljótheitum að hann þyrfti nauðsynlega að hitta vin sinn sem lægi
fyrir dauðanum á gjörgæsludeild og hann ætlaði að hjálpa honum. Afgreiðslukonan blikkaði bara augunum og hristi höfuðið. Nei, það kom ekki til greina að hún hleypti honum inn þangað sem Benni lá. Jafnvel foreldrar drengsins sagði hún höfðu aðeins fengið að líta til hans augnablik
í fylgd með lækni. Benna varð fljótt ljóst að þessari kjellu yrði ekki haggað. Hann var í þann mund að yfirgefa móttökuna, þegar að maður í hvítum slopp birtist fyrir innan afgreiðsluborðið og sagði eitthvað við afgreiðslukonuna sem Benni heyrði ekki vegna öryggisglersins. Eitthvað í
fari mannsins fannst honum samt kunnuglegt. Hann sá afgreiðslustúlkuna kinka kolli til mannsins, og kalla síðan til hans. "Heyrðu þarna drengur, læknirinn segir að það sé óhætt að þú komir inn fyrir
í nokkrar mínútur." Svo þrýsti hún á hnapp sem staðsettur var úr sjónmáli og dyrnar að bráðadeildinni opnuðust. Benni var ekki lengi að skjótast inn fyrir þar sem hann bjóst við að hitta lækninn. En hann var hvergi sjáanlegur. Benni hafði tekið eftir því á töflu í anddyrinu að gjörgæslan var á annarri
hæð sjúkrahússins. Í stað þess að bíða eftir lækninum ákvað hann að halda þangað á eigin spýtur. Hann fann fljótt stiga sem lá upp á aðra hæð og síðan dyr sem á stóð Gjörgæsla. Benni flengdi upp dyrunum og skaust inn á gjörgæsluganginn, beint í flasið á holdugri hjúkrunarkonu sem riðaði við
og hefði eflaust dottið á afturendann ef Benni hefði ekki náð að grípa hana. "Hvað ert þú að vilja hér ungi maður," spurði hjúkkan og togaði niður sloppinn sem eitthvað hafði aflagast við áreksturinn. Benna kom ekkert til hugar sem hljómað gæti sennilega í eyrum hjúkkunnar svo hann lét reyna á
hálfan sannleikann. Hann fálmaði eftir kertisstúfnum og sýndi hjúkkunni og sagði. " Það eru jól, og vinur minn liggur hér fyrir dauðanum. Hann lenti í bílslysi í gær og ég verð að fá að hitta hann. Ég ætla að kveikja á þessu kerti fyrir hann og..." Konan brosti nú við Benna og sagði svo góðlátlega. Jæja góði, fylgdu mér þá og ég skal sýna þér hvar hann liggur. Konan gekk rösklega inn ganginn og Benni á eftir. Innan nokkurra sekúndna stóð Benni við rúm vinar síns, þar sem hann lá með lokuð augun og andaði óreglulega. "Kveiktu þá á kertinu vinur" sagði hjúkkan, og svo skulum við bara koma. Ég skal svo líta eftir því. " En hann verður að sjá logann svaraði Benni svolítið annars hugar en áttaði sig svo og bætti við. "Ég á við að mér finnst eins og hann viti af mér hérna en geti bara ekki opnað augun hjálparlaust. Getur þú ekki fengið hann til að opna þau, þó ekki væri nema augnablik" Hjúkkan virtist klökkna
við viðkvæmi Benna, því nú teygði hún sig yfir Einar og opnaði augnalok hans með þumlunum. Samtímis kveikti Benni á kertinu. Kertisloginn flökti og Benni tók eftir því hvernig hann speglaðist dauflega í sjáöldrum Einsa. "Jæja, þá er þessu lokið" sagði hjúkkan og gerði sig líklega til að fara.
Hún lagði höndina á öxl Benna eins og til að stýra honum út. "Má ég ekki sitja stundarkorn hérna einsamall við hlið hans" Konan kinkaði kolli, og fór út. Benni settist niður á stól sem stól við
hliðina á rúminu og hugsaði með sér. Þannig var þetta þá, aðeins spilin virkuðu, kertið var greinilega gagnlaust. En svo tók hann eftir því að Einsi hreyfði fæturna. Benni stóð upp og
leit framan í vin sinn. Einsi opnaði augun, leit á Benna og sagði: "Hvar er ég". Það tók Benna aðeins nokkur augnablik að útskýra í stórum dráttum fyrir Einsa hvað hafði gerst, á meðan Einsi starði á hann gapandi. Þegar Benni þagnaði, leit Einsi í kring um sig og spurði. "Hvar eru fötin mín. " Svo
stökk hann á fætur og fór að leita að þeim. Auðvitað voru engin föt í herberginu, svo þeir ákváðu að fara fram á gang. Fyrir þeim vakti fyrst og fremst að komast út, án þess að þurfa að útskýra hvað gerst hafði. Það var alltof ótrúlegt hvort sem var, og læknarnir mundu örugglega vilja halda
Einsa á sjúkrahúsinu öll jólin, bara til að rannsaka hvað gæti hafa gerst. Einar var bara klæddur í þunnan slopp sem opin var að aftan. Þeir komust klakklaust út af gjörgæsludeildinni og voru í þann mund að leggja af stað niður stigann, þegar stór brúnn frakki kom svífandi niður stigaopið. Benni
leit upp fyrir sig og sá hvar maðurinn í hvíta sloppnum sem hann hafði séð niðri í móttökunni nokkru fyrr, stóð fyrir ofan þá og brosti. Svo snéri hann sér við og Benni sá í hendingu að hann var með sítt grátt hár, bundið í tagl í hnakkanum.
Einsi var ekki seinn að koma sér í frakkann á hlaupunum. Áður en varði voru þeir komnir niður á fyrstu hæð og þeir stefndu beint á dyr sem merktar voru Neyðarútgangur. Þeir spyrntu hurðinni upp og hlupu út í snjóinn sem þyrlaðist upp undan fótum þeirra. "Hvert erum við að fara, ég drepst úr kulda á löppunum ef ég fæ ekki skó" hrópaði Einsi móður af hlaupunum. " Eigum við ekki bara að koma heim til mín," hrópaði Benni á móti," við getum spilað póker ef þú nennir, ég fékk þessi fínu spil í jólagjöf".
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.12.2008 | 05:08
Hvernig Íslendingar refsa sjálfum sér eftir bankahrunið?

Sjálfur sagði Ísleifur að hann héldi að fólk væri orðið svo þreytt á jakkafataliðinu að það kæmi til sjóbaðanna til þess að geta umgengist hvert annað án þeirra. (Jakkafatanna)
Aðförum fólks við sjóböðin var svo lýst á eftirfararandi hátt; Þú kemur á baðfötunum einum á ísköldu dimmu kveldi, safnar hugrekki í nokkrar mínútur í grunnri heitri laug við bryggjuna, hleypur síðan um 100 metra að sjónum og stingur þér í hann öskrandi.
Fréttamaðurinn kom einnig við hjá Rauða kross Íslands þar sem viðmælandi hans segir honum að sú hugmynd að Ísland hafi talist fimmta auðugasta ríki veraldar sé nú brandari. 150 manns standi nú og bíði eftir að verða úthlutað brauði, kartöflum, smjöri og mjólk. Meðal þeirra séu einstæðar mæður sem nýlega hafa misst vinnuna og eftirlaunafólk sem missti allan sinn sparnað á einni nóttu við hrun bankanna.
"Ég get ekki ímyndað mér hvernig veturinn verður" er haft eftir 44 ára öryrkja hvers bætur hafa verið skornar niður við nögl. " Ég þekki fólk sem hafa fengið taugaáfall. Íslendingar eru mjög þreyttir á þessu ástandi."
Fréttamaðurinn lýsir einnig hvernig þrátt fyrir þetta, hafi gjörðir óhæfra stjórnenda og örfárra gráðugra bankastarfsmanna, ekki orðið til þess að æsa fólk til mikilla mótmæla eða borgaralegrar óhlýðni. 60% þjóðarinnar býr á Reykjavíkursvæðinu en aðeins 2% þeirra mæta á skipulögð mótmæli.
Hins vegar sjáist annarsstaðar hvernig sprungurnar í samfélaginu eru smá saman að gliðna undir rólegu yfirborðinu. Lögreglan sér merki um aukið heimilisofbeldi og ofbeldi tengdu aukinni áfengsneyslu. Kvennaathvarfið segist sjá verulega aukningu meðal þeirra kvenna sem sækjast eftir viðtölum og ráðgjöf að sögn Sigþrúðar Gunnarsdóttur. Hún setur það í beint samband við efnahagsástandið.
Af lýsingum fréttamannsins er svo að sjá að meiri hluti Íslendinga bregðist við þrengingunum með því að byrgja innra með sér reiði sína og vanþóknun.
Það hefur svo sem lengi loðað við okkur Íslendinga að bregðast þannig við persónulegu mótlæti, en um félagslegt óréttlæti, sem sannarlega er eins stærsta ástæða bankahrunsins, höfum við gjarnan getað tjáð okkur og oft knúið fram umbætur með beinskeyttum aðgerðum. Allt bendir því til að fjölmargir íslendingar í sínum innsta ranni líti ekki á ástandið sem afleiðingar félagslegs óréttlætis, heldur sem svo að það sé jafnvel sök þeirra sjálfra hversu illa er komið og bregðist því við í samræmi við það.
6.12.2008 | 01:07
Glöggt er gests augað, mótmæli án markmiðs?
Fyrir rúmri viku hlustaði ég á útvarpsþátt á BBC sem fjallaði um ástandið á Íslandi. Fréttamaður fór um götur Reykjavíkur með hljóðnemann og tók viðtöl þar sem fólk lýsti áhyggjum sínum og sumir hverjir reiði yfir gangi mála á landinu bláa.
Margir báru sig illa en fleiri virtust nálgast málin af miklu æðruleysi. Fréttamaðurinn mætti á mótmælafund í miðbænum og tók upp frekar lágvær mótmælahrópin. Það sem virtist koma honum mest á óvart var hversu friðsamlega öll mótmæli gengu fyrir sig, þrátt fyrir talsverðan fjölda mótmælenda og mjög sýnilega viðveru lögreglu sem yfirleitt virkar eins og bensín á eld á æsta mótmælendur. Engir brotnir eða útbrenndir búðargluggar eða áflog milli mótmælenda og löggæslunnar eins og títt er í borgum annarra Evrópulanda þegar íbúar þeirra taka sig til við að mótmæla einhverju, jafnvel þótt tilefnið sé miklu minna en Íslendingar hafa til þess um þessar mundir.
Honum var einnig tíðrætt um hversu pólitísk samtök landsins, verkalýðshreyfingar og neytendasamtök tæki lítinn sem engan sýnilegan þátt í mótmælunum. Stjórnmálamönnum væri nánast bönnuð formleg aðkoma að þeim og þau væru leidd af þjóðlagasöngvara. Hann sagði það vera einsdæmi að 7000 mótmælendur söfnuðust saman um hverja helgi sem hefðu það eitt sameiginlegt að vera óánægðir með gang mála í landinu. Hann sagðist sjá að svona mótmælafundir gætu þjónað þeim tilgangi að virka sem ventill fyrir uppsafnaða óánægju og reiði, en án skilgreinds markmiðs og ákveðinna krafa, þjónuðu mótmælin jafnvel betur en nokkru öðru, þörfum þeirra sem þeim er beint gegn.
Þótt ég sé stoltur að tilheyra þjóð sem seint verður espuð til ofbeldisverka og hefur að mestu lifað í friði í rúm 700 ár, sá ég samt hvað fréttamaðurinn breski var að fara.
Í ljósi síðustu kannanna sem sýna að VG eru með 32% fylgi virðist sem þorri íslendinga segi eitt en geri allt annað.
Segjum t.d. að krafan sem flestir mótmælendur eru sammála um sé; að ríkjandi stjórn eigi að fara frá. Ef svo er, hvers vegna mæta þá ekki þessar tugþúsundir sem núna styðja VG í mótmælin?
Ef að krafan er að koma seðlabankastjórnaum frá, (sem 90% þjóðarinnar vilja samkvæmt skoðanakönnunum) hvers vegna mæta þau ekki öll (þ.e. þau af 90% sem eiga heimangengt) í mótmælin?
Það mætti halda að allir séu ekki alveg þar sem þeir eru séðir þegar kemur að því að túlka skoðanir sínar og tilfinningar yfir í einhverskonar verk, jafnvel þótt þær séu ekki veigameiri en að mæta á mótmælafund.
Jafnvel þótt annað hvert blogg á blog.is og rúmlega það, sé gremjukast út í og úthrópun þeirra sem rústuðu fjárhag þjóðarinnar, fer fáum sögum af raunverlegum lausnum á vandamálunum. Og auðvitað er það ekki hlutverk fjölmiðlafólks að gera það heldur, enda skemmta valdhafar sér konunglega við á hverjum degi að snúa út úr fyrir því og tala niður til þess.
Ég hef grun um að þrátt fyrir óánægjufylgið við VG um þessar mundir sé engin raunveruleg samstaða um það með þjóðinni að VG sé til þess fallið að stýra henni í gegnum heimskreppuna sem núna vofir yfir og hefur alls ekki skollið á með fullum þunga enn. Spurningin er því sú, hverjir geta og vilja takast á við það vandaverk.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
4.12.2008 | 02:39
Fleira smálegt
"Það sem gerir þig ánægða(n), það er fjársjóður þinn. Þar sem fjársjóður þinn er þar er hjarta þitt. Þar sem hjarta þitt er þar er hamingja þín."
Heilagur Ágústínus (354-430)
"Þegar þú öðlast persónuleika, þarftu ekki á nektinni að halda".
Mae West, (1892-1980 Bandarísk leikkona)
Sveitin er staður sálarinnar, borgin er staður líkamans.
(Bahai ritningargrein)
Aleinn með sjálfum mér
Trén beygja sig til að gæla við mig
Skugginn faðmar hjarta mitt
Candy Polgar
Trúarbrögð mín eru einföld. Það er engin þörf á hofum, engin þörf fyrir flókna heimsspeki. Hugur okkar og hjarta er hofið; heimspekin er velvilji. Dalai Lama
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.12.2008 | 12:24
Porsche 550 Spyder og James Dean
Ásamt því að leika í frábærum kvikmyndum eins og Rebel Without a Cause, East of Eden og Giant stundaði James Dean kappakstur. Á meðan hann var að leika í Rebel Without a Cause eignaðist hann bifreið af gerðinni Porsche 550 Spyder.
Bifreiðin var ein af 90 slíkum sem framleiddar voru og var merkt tölunni 130. Bifreiðin var með tveimur hvítum röndum að aftan og var kölluð "litli bastarðurinn" ("Little Bastard") .
Sagan segir að viku fyrir slysið þar sem James Dean lést, hafi hann hitt hinn góðkunna breska leikara Alec Guinness. Alec hafði orð á því við James að sér þætti bíllinn "varasamur" og sagði síðan; "Ef þú ferð upp í þennan bíl finnst þú dauður innan viku". Þessi orð áttu eftir að rætast Því James Dean lést í hræðilegu bílsslysi þann 30. September 1955.
Hann var á leið á Porschinum sínum til að taka þátt í kappakstri ásamt viðgerðarmanni sínum Rolf Wutherich. Skömmu áður en slysið varð var hann stöðvaður af lögreglunni og sektaður fyrir að aka á 65 mílna hraða þar sem leifður hámarkshraði var 55 mílur.
Dean ók sem leið liggur eftir fylkisvegi 46 í Cholame í Kaliforníu. Á móti honum kom akandi á 1950 modeli af Ford Tudor, Donald Turnupseed nemi í skóla ekki langt frá. Donald ók yfir á akreinina sem Dean ók á þar sem vegurinn skiptist og lenti beint framan á Porschinum. Dean virðist hafa lifað af áreksturinn en lést á leiðinni í sjúkrabílnum sem flutti hann á sjúkrahúsið í Paso Robles.
Wutherich sem lifði af slysið sagði að síðustu orð Deans hafi verið "Þessi gaur hlýtur að stoppa,... Hann sér okkur."
Porschinn var í köku en lánleysi hans endaði ekki þarna. Þegar að brakið var dregið af slysstað og á verkstæði, féll vélin úr bílnum ofaná vélvirkja og mölbraut á honum báða fótleggina.
Vélin var nokkru síðar seld lækni sem setti hana í kappakstursbíl sem hann átti. Læknirinn dó skömmu seinna í slysi á kappakstursbraut þar sem hann keppti á bílnum með Porschvélinni. Í sama kappakstri lést annar ökuþór sem ók bifreið sem í hafði verið sett drifskaftið úr bíl James Dean.
Seinna þegar að Porsche James Dean var að lokum endurbyggður, brann verkstæðið þar sem endurbyggingin fór fram, til grunna.
Seinna þegar bílinn var á sýningu í Sacramento, féll hann af stokkunum sem honum hafði verið komið fyrir á og fyrir hinum varð unglingur sem mjaðmagrindarbrotnaði.
Nokkru seinna var bíllin til sýnis í Oregon. Honum var komið fyrir aftaná öðrum bíl sem flutti hann á sýningarstaðinn. Þá vildi ekki betur til en svo að hann rann ofan af flutningsbílnum og lenti inn í miðri verslun.
Að endingu datt bifreiðin í sundur í 11 hluta þar sem hún sat á stálbitum en hún var þá til sýnis í Los Angeles.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.12.2008 | 21:12
Skalli




19Borgarmenn Jeríkó sögðu við Elísa: "Borg þessi liggur að vísu vel, eins og þú sjálfur sérð, herra, en vatnið er vont, og landið veldur því, að konur fæða fyrir tímann."
20Hann sagði við þá: "Færið mér nýja skál og látið í hana salt." Þeir gjörðu svo. 21Og hann gekk út að uppsprettu vatnsins, kastaði saltinu í hana og mælti: "Svo segir Drottinn: Ég gjöri vatn þetta heilnæmt. Upp frá þessu skal það eigi valda dauða né ótímaburði." 22Þá varð vatnið heilnæmt samkvæmt orði Elísa, því er hann hafði talað, og er svo enn í dag.
23Þaðan hélt hann til Betel. Og er hann gekk upp veginn, gengu smásveinar út úr borginni, hæddu hann og kölluðu til hans: "Kom hingað, skalli! Kom hingað, skalli!" 24Sneri hann sér þá við, og er hann sá þá, formælti hann þeim í nafni Drottins. Þá komu tvær birnur út úr skóginum og rifu í sundur fjörutíu og tvo af drengjunum. 25Þaðan fór hann til Karmelfjalls og sneri þaðan aftur til Samaríu.
Þetta ætti að kenna fólki að vera ekki að abbast upp á sköllótta menn og uppnefna þá, sérstaklega ef þeir eru í náðinni hjá alvaldinu. Persónulega finnast mér viðbrögð spámannsins dálítið yfirdrifin. Sérstaklega í ljósi þess að honum var sjálfsagt í lófa lagt að fá hár sitt til að vaxa með því að nota sömu aðferð og hann notaði til að gera vatnsuppsprettuna heilnæma.
Einn af forfeðrum mínum, ef marka má móðurafa minn Gísla Guðmundsson sem missti hárið á tvítugsaldri og kenndi þar um ætterni sínu, var Grímur Kveldúlfsson landnámsmaður í Borgarfirði. Hann var sagður ljótur maður, dökkur á brún og brá, berserkur mikill en skáld gott. Hálfþrítugur að aldri var hann orðinn nauðasköllóttur og fékk því viðurnefni sitt Skallagrímur, en undir því nafni þekkjum við hann flest.
Íslendingum þótti greinilega lítið til hárleysis koma á söguöld, hvort sem um höfuð eða andlitshár var að ræða. Frægt er háðið sem Njál á Berþórshvoli og synir hans urðu að þola fyrir skeggleysi sitt og þeir uppnefndir taðskegglingar.
Austur Asíu þjóðir virðast hafa öðruvísi viðhorf til höfuðshárs en vesturlandabúar. Þar er afar algengt að raka allt hár af höfðinu. Mongólar til forna skildu eftir langa fléttu aftast á hnakkanum svo almættið gæti náð taki á einhverju til að kippa þeim inn í himnaríki þegar þeir dóu í miðjum bardaganum. Helgum mönnum og munkum þótti það sjálfsögð afneitun á hégóma þessa heims að raka höfuð sitt og það viðhorf barst meira að segja til hins kristna menningarheims og skýrir að nokkru afar sérkennilegan hárstíl munka í Evrópu á miðöldum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
28.11.2008 | 17:55
Hámark veisluhaldanna
Það þekkja það flestir að þurfa að fara í veislur sem þeir vildu frekar ekki hafa þurft að sækja. Það sem fer hér á eftir eru nokkrar útgáfur að sömu aðferðinni sem margir nota þegar þeim leiðist í veislum eða vilja lýsa vanþóknun sinni á öðrum gestum eða jafnvel gestgjafanum sjálfur. Það sem er svo merkilegt við þessa aðferð er að hún er nánast eins og sú leið sem notuð er oft til að sýna hversu mjög viðkomandi nýtur veisluhaldanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)