Skuldapakkið á ekkert gott skilið

Það er komið í ljós að Þessir skuldarar og óskilafólk sem Bjössi og Mundi lofuðu að redda eru ekkert annað en ósvífnir svindlarar. Í framhaldi af þessari opinberun, ber þeim að sjálfsögðu engin skylda til að efna kosningaloforðin við þetta undirmálsfólk. 

Fólk býr út um allan bæ í húsnæði sem búið er að selja ofan af því og það var sko ekki reiknað með svoleiðis svindli þegar að Mundi rýndi í tölurnar fyrir tveimur dögum og fékk mjög uppörvandi niðurstöður. Það verður ekkert af því að þetta fólk fáið peninga inn á bankareikninginn sinn frá Munda og co, eins og hann var búinn að lofa.

Það þýðir að eigendur peninganna sem Mundi ætlaði að nota til að greiða niður skuldir heimilanna, eru óhultir, enda varð Munda það ljóst að hann gat ekki snert þessa peninga eftir að Bjössi sagði honum að eigendurnir væru flestir íslenskir og margir þeirra flokksfélagar hans. 


mbl.is Borga ekkert og búa frítt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

merkilegir íslendingar.

bankarnir koma öllu hér í rúst, en stað þess að gera eitthvað í því eða kvarta.

er ráðist á nokkra aula útí bæ fyrir að hafa dirfst að lifa frítt í einhverju skítahúsnæði í nokkra mánuði.

djöfull leikur auðvaldið sér að ykkur.

alveg merkilegt.

halda öllum að rífast yfir skít og engu og svo ræna ykkur.

lofa ykkur hruni eftir nokkur ár og það verður JAFN mikið íslensku þjóðinni að kenna sem og bjarnabófagenginu sem stjórnar hér.

sveinn ólafsson (IP-tala skráð) 7.5.2013 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband