Þegar Zinedine Zidane skallaði Marco Materazzi

ZidaneEftirminnilegasta atvikið úr heimsmeistarakeppninni í Knattspyrnu er í margra hugum þegar Zinedine Zidane skallaði Marco Materazzi í úrslitaleik HM 2006.

Því hefur aldrei verið uppljóstað hvað Marco sagði nákvæmlega við Zinedine þótt mikið væri um málið fjallað.

Marco hefur látið hafa eftirfarandi eftir sér um atvikið.

“Þetta var sú tegund móðgana sem þú heyrir oft og virðast renna úr jörðinni"

“Ég kallaði Zidane ekki hryðjuverkamann og nefndi alls ekki móðir hans"

“Zidane leit á mig með miklu yfirlæti...og það er satt að ég skaut á hann til baka með móðgun"

“Ég er ófróður, ég veit ekki einu sinni hvað íslamskur hryðjuverkamaður er, eini hryðjuverkamaðurinn sem ég þekki er hún (bendir á 10 mánaða gamla dóttur sína)

"Móðir Zidane bar ekki á góma; mæður eru mér heilagar",

“Ég togað í peisu hans í nokkrar sekúndur."

“Hann snéri sér að mér með fyrirlitningu og renndi augunum upp og niður með miklu yfirlæti".

“Hann sagði; ef þig langar í peisuna getur þú fengið hana seinna."

“Það er satt að ég skaut til baka með móðgun."

BBC Radio Five Live fékk varalesarann Jessicu Rees til að lesa af vörum Marcos.

Hún túlkaði móðgunarorðin á þessa lund; "Þú ert sonur hryðjuverkahóru"

Tíuféttir BBC fengu einnig sérfræðing til að lesa af vörum Materazzi. Hann sagði að fyrstu orð Materazzi hafi verið "Nei" og síðan "slappaðu af".  

Síðan ásakar hann Zidane um að vera "lygari" og segir síðan  "ég vona að fjölskylda  þín fái slæman dauðdaga". Þess ber að geta að móðir Zidane hafði þennan sama dag verið flutt mjög veik á sjúkrahús. Þessu fylgdi Marco eftir með "Go fuck yourself."

Mikið var spáð og spekúlerað í fjölmiðlum hvað hefði farið þeim köppum á milli áður en Zidane skallar Materazzi. Fjölmargar tilgátur voru settar fram, m.a. þessi.

Eftir að  Materazzi togaði í peisu Zidane býðst Zidane háðslega til að gefa honum peisuna sem minjagrip eftir leikinn.  Ítalinn svarar að Zidane sé best að geyma hana handa systur sinni sem væri hryðjuverkahóra.

Sumir segja að fyrr í leiknum hafi Materazzi snúið upp á geirvörtur Zidane þegar hann hélt honum aftan frá. Ef það er satt fá móðgunarorðin um systur Zidane mun klúrari merkingu.


mbl.is Vissu ekki allir að Zidane væri geðbilaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Rivaldo greip um andlit sér til þess að fá andstæðinginn útaf þegar hann fékk boltann í lærið.. óborganlegt ! 

Óskar Þorkelsson, 10.6.2010 kl. 18:05

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það var skondið atvik Óskar, standandi upp við hornstöngina með línuvörðinn beint fyrir aftan sig, ótrúlegur leikari Rivaldo....

Svanur Gísli Þorkelsson, 10.6.2010 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband