12.3.2008 | 15:37
Við hvetjum stjórnvöld í Íran...
GENF, 30. janúar 2008 (BWNS) Í kjölfar þess að Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur krafist þess að Íran sleppi úr haldi baháíum sem hafa verið settir í fanglesi hefur Amnesty International sent frá sér ákall um tafarlausar aðgerðir vegna málsins. Fangarnir þrír, Haleh Rouhi Jahromi (mynd), Raha Sabet Sarvestani og Sasan Taqva, voru settir í fangelsi í borginni Shiraz þann 19. nóvember síðastliðinn og afplána nú fjögurra ára dóm eftir ákærur sem tengjast alfarið trú þeirra og starfi á vegum baháí trúarinnar. Við hvetjum stjórnvöld [í Íran] til þess að sleppa öllum einstaklingum sem er haldið í fangelsi án þess að hafa fengið viðeigandi meðferð og sanngjörn réttarhöld, þar á meðal þremur ungum baháí kennurum sem eru í haldi í fangelsum á vegum ráðuneytis leyniþjónustunnar í Shiraz, sagði Sean McCormack, talsmaður Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna þann 23. janúar 2008. Við biðjum ykkur að senda eins fljótt og frekast er kostur áskorun á persnesku, arabísku, ensku eða ykkar eigin tungumáli, segir í ákalli Amnesty International til umheimsins.
Jafnframt segir í ákallinu að Amnesty International muni líta á baháí fangana sem samviskufanga ef þeim er haldið í fangelsi vegna þess að þeir eru baháí trúar ... og krefjast þess að þeim verði sleppt ef þeir hafa ekki verið ákærðir fyrir augljóst glæpsamlegt athæfi og ekki fengið skjót og sanngjörn réttarhöld; einnig eru írönsk stjórnvöld hvött til að beita þá hvorki pyntingum né annarri illri meðferð. Frú Diane Alai, fulltrúi Alþjóðlega baháí samfélagins hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf [í Sviss], segir að baháí samfélagið hafi miklar áhyggjur af velferð baháí fanganna þriggja. Við vonumst til að ákall Amnesty International um tafarlausar aðgerðir, sem er boðskapur frá mannréttindasamtökum um allan heim, og yfirlýsing Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna muni hjálpa þeim að losna úr þessari óréttlátu fangavist, segir frú Diane Alai enn fremur. Hún segir einnig að þetta sé sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að Sasan Taqva, einn af föngunum þremur, sé meiddur á fæti eftir umferðarslys sem hann varð fyrir áður en hann var settur í fangelsi og hann þurfi þess vegna að komast í læknismeðferð. Hún tekur einnig fram að baháíarnir þrír hafi tekið þátt í átaki til hjálpar utangarðsbörnum í heimaborg sinni, þar sem áhersla er lögð á þjálfun og kennslu í siðferði og dyggðum. Yfirlýsing Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna beinist einnig að andláti við tortryggilegar aðstæður Ebrahim Lotfallahis, sem var íranskur háskólanemi af kúrdískum uppruna, sem ráðuneyti leyniþjónustunnar setti í fangelsi þann 6. janúar síðastliðinn. Við krefjumst þess að yfirvöld í Íran láti fara fram ýtarlega rannsókn, segir Sean McCormack, talsmaður Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Hann lýsti ennig yfir miklum áhyggjum af áframhaldandi fangelsun fanganna þriggja, sem eru allir stúdentar í Amir Kabir Háskólanum.
Þýtt og endursagt úr ensku af vefsíðu Bahá'í alþjóðafréttaþjónustunnar: BWNS Bahá'í World News Service; vefslóð á upprunalega frétt, myndskreytta, í fullri lengd á ensku: http://news.bahai.org/story/599Ákall Amnesty International á ensku er hægt að nálgast á vefslóðinni: http://www.amnesty.org/en/report/info/MDE13/017/2008Yfirlýsingu Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna á ensku er að finna á vefslóðinni: http://www.state.gov/r/pa/prs/ps/2008/jan/99632.htm
Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva, all Bahais (a religious minority), have been detained by the Ministry of Intelligence in Shiraz since 19 November 2007. It is not clear why they are held. They may be prisoners of conscience, detained solely because of their religious beliefs, or their peaceful activities teaching underprivileged children.The three had previously helped to organize a programme teaching underprivileged children in the city of Shiraz, southern Iran. More than 50 people involved in the programme were arrested in May 2006, even though the authorities had granted permission for their activities.
Most of those arrested were Baha'is. Several Muslims and one Bahai with learning difficulties were released the same day; 50 other Baha'is were released by the sixth day, but Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva were detained for about one month.In August 2007, the 53 Baha'is who had been held were tried by Branch 1 of the Revolutionary Court in Shiraz. They were charged with offences relating to state security. Fourteen who attended the court sessions were told orally of the verdict against the whole group. Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva were each sentenced to three years imprisonment for organizing illegal groups and to an additional one years imprisonment for propaganda on behalf of groups that are opposed to the Islamic system. The other 50 were sentenced to suspended prison sentences of four months for participating in an illegal group and a further eight months for propaganda on behalf of groups that are opposed to the Islamic system. All those involved have appealed against their convictions and sentences.
Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva remained free pending the outcome of their appeal.On 19 November 2007, Haleh Rouhi Jahromi, Raha Sabet Sarvestani and Sasan Taqva were told by telephone to go to the Office of the Ministry of Intelligence in Shiraz to retrieve items that had been confiscated from them when they were first arrested. When they did not return home, family members who had accompanied them were given conflicting information by intelligence officials. The officials tried to claim that the three had not entered the building, even though their relatives had seen them do so. Eventually, their relatives were informed that the three were still being held at the Office of the Ministry of Intelligence in Shiraz. Reports suggest that the three have been permitted limited visits from relatives.It is not clear whether they are serving the prison sentences imposed in August 2007. If they are serving these sentences, they should be held in prisons run by the Prison Service, as under Iranian law, the Ministry of Intelligence is only empowered to hold detainees for interrogation.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Lífstíll, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.