15.5.2013 | 09:45
Ég á ekkert líf
B:Já þú meinar. ekki hægt að efna kosningaloforðin.
S: Jamm, Það eru víst engir peningar til, ekki til að borga niður skuldir landsmanna og ekkert svigrúm fyrir skattalækkanir.
B: Helvíti. ég hélt að við værum me etta.
S: Viltu sykur á pönnsuna.
S: Ha, já settu soldið mikið... Og þetta er allt þessari Katrínu að kenna.
S: Já Það var hún sem fékk okkur til að halda að eitthvað væri hægt að gera af því að hún sagði að það væri ekki hægt að gera neitt.
B: Svakalega er hún slæg þessi stelpa. Þetta Samfó pakk er svo undirförult.
S: Málið er að við erum fucked, hvað sem við gerum.
B: Hvað meinarru, erum við að fara að hætta essu.
S: Við getum auda myndað stjórn, en hvern á að setja í fjármálin. Það er pólitískt sjálfsmorð að koma nálægt þessu eins og þetta stendur.
B: Er það þess vegna að húðin á andlitinu á þér hefur versnað svona.
S: Stress mar, stress.
B: Við verðum audda að láta vita af þessu klúðri hjá Katrínu.
S: En er það ekki bara að lengja í hengingarólinni. Við getum ekki efnt kosningarloforðin. Þjóðin verður brjáluð ef við leggjum ekkert inn á hana fljótt eins ogég lofaði.
B: Þú veist að sumir kunningjar mínir eru þegar búnir að fá lánað út því sem ég lofaði Þeim.
S: Gátu þeir ekki beðið?
B: Heldurðu að hlutabréf í kauphöllinni hækki bara af sjálfu sér. Hvernig heldurðu að það sé hægt að græða á daginn og grilla á kvöldin án þess að taka lán?
S: Réttu mér mjólkina.
B: Og ég sem hélt að við værum going up up up.
S: Og það sem verra er að nú halda allir að ég sé svona vitlaus að hafa ekki séð þessa samfógildru fyrir.
B: Láttu ekki svona, Euró í kvöld og allt. Allir í góðu skapi. Við grillum bara og höfum það gott og hringjum svo í pappa á morgunn. Hann kann sko allskonar trick þegar kemur að því að höndla einhverjar bókhaldarakellingar.
S: Heyrðu, ég læt þá alla vita að þetta klúður sé Kötu að kenna og fólk getur tuggið á því yfir helgina. Svo sjáum við hvað þeir gömlu hafa að segja.
B: Ég á líf, ég á líf.........
Vandræðalegt fyrir Sigmund Davíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Merkilegt að heyra í "GRÁTKÓR" LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR. Ekki voru það Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sem klúðruðu síðasta kjörtímabili............
Jóhann Elíasson, 15.5.2013 kl. 11:00
Rétt Jóhann, Jó og Co réðu ekkert við uppsafnaðan skaða fyrri kjörtímabila sem svo sprakk í andlitið á okkur.Skamm skamm.
Og og.... kórar ná aldrei árangri nema að þeir æfi sig soldið.
Og og....landráð geta líka verið ágætisráð.
PS.
Við vinnum pottþétt í kvöld...Get a life, get a life...
Svanur Gísli Þorkelsson, 15.5.2013 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.