Ákveða að deita...

Nýjustu fréttir herma að Sigmundur Davíð og Bjarni Ben hafi ákveðið að byrja saman, alla vega að deita. Nú er að sjá hvort þeim tekst að fara alla leið og á endanum upp í hjónasæng. Eins og  hjá öðru nútímafólki kann það að taka nokkurn tíma fyrri þá að ganga úr skugga um að þeir séu réttir fyrir hvern annan. - Þeir þurfa að máta sig , eins og kallað er.

En það boðar aldrei gott þegar nákomnir eru mikið á móti sambandinu. Þegar hafa nokkrir af andlegum skyldmennum Bjarna lýst yfir efasemdum um ráðahaginn tilvonandi. Einkum setja þeir það fyrir sig að Sigmundur sé ekki nægilega þroskaður fyrir Bjarna. Að heyra á endemi!!!

Það er gömul saga og glæný í svona samböndum að oft er það annar aðilinn sem er hrifnari en hinn, elskar meira. Það á berlega við í þessu tilfelli og kristallast í þeirri yfirlýsingu Sigmundar að þessar þreifingar verði á hans forsendum, enda mikill prinsipp maður. Hann sýnir þó Bjarna talverða umhyggju því hann segist ætla að taka tillit til hans eftir föngum. Það var samt ekki tillitsamt af Sigmundi, svona í upphafi tilhugalífsins með Bjarna að segjast alveg eins hafa áhuga á þríkanti.

 


mbl.is Byggja viðræður á stefnu Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband