Færsluflokkur: Dægurmál
19.7.2008 | 18:51
Krissy Wood - Smá eftirmáli við skúbbið
Í gær brá ég mér af bæ og heimsótti hjón sem ég þekki lítillega og búa í nærliggjandi smábæ. (Bradford on Avon) Þar voru samankomnir á heimili hjónanna nokkrir af vinum þeirra sem ég hafði aldrei hitt áður.
Þegar líða tók á kvöldið kom að tali við við maður sem kynnti sig sem Tom. Kvaðst Tom þessi hafa starfað mikið með þekktum hljómsveitum hér í Bretlandi, aðallega sem sviðsmaður og m.a. tekið þátt í að setja saman hið fræga svið sem Pink Floyd notaði í hljómleikaferð sinni The Wall. Mér varð á að minnast á að ég hefði hitt fyrir tilviljun Ronnie Wood á dögunum og við það viðraðist Tom allur upp og sagðist hafa þekkt vel fyrri konu Ronnies, Kryssy Wood sem lést 2005 langt um aldur fram. Hann lét gamminn geysa langt fram eftir kvöldi og hafði frá mörgu að segja.
Þegar hann loks kvaddi og fór, kom húsfreyjan til mín og sagðist hafa heyrt ávæning af samræðum okkar. Hún sagði jafnframt að Tom þessi hefði verið grunaður um að vera sá sem "skaffaði" Krissy Wood valíum töflurnar sem drógu hana til dauða eftir að hún hafði tekið þær inn í ómældu magni. - Þetta varð til þess að ég fór að leita mér frekari upplýsinga um Krissy og það sem ég komst að er svo furðulegt og lærdómsríkt að ég má til með að deila því með ykkur.
Fyrirsætan Krissy Wood var heimsfræg hljómsveitafylgja (groupía) og eiginkona Ronnie Wood gítarleikara Rolling Stone, dó í skugga fremur villtrar fortíðar sinnar. Hún er ekki eina konan sem skilin hefur verið eftir drukknandi í kjölfari hljómsveitarinnar.
Krissy byrjaði á toppnum; hún sagðist hafa tapað meydóminum á sófa mömmu sinnar í Ealing með Eric Clapton. Þá hét hún Krissy Findley og kom úr strangtrúaðri Rómversk-kaþólskri fjölskyldu, gekk í skóla sem heitir Gregg Grammar og þótti gaman að dansa og hlusta á hljómsveitir.

Munmælasagan segir að hún hafi verið ábyrg fyrir því að Ronnie fór að spila með Stones. Kvöld eitt kom hún heim úr klúbbi í London með Keith Richard í eftirdragi. Hún kynnti hann fyrir Ronnie og þeir byrjuðu að semja saman. 1974 fóru Stones í hljómleikaferð og þá tóku þeir Ronnie með sér.
Ári 1975 var Krissy ákærð í Kingston Crown Court fyrir að neyta kókaíns. Eftir það hélt hún með George Harrison til villu hans í Portúgal.
Ronnie virtist afar ánægður með það, sem ekki ber að undrast, því hann var á leiðinni til Barbados eyja með konu Harrisons, fyrirsætunni Patti Boyd. (Hún skildi seinna við Harrison og giftist Clapton.) Krissy og Harrison urðu elskendur og þegar þau komu til baka frá Portúgal tóku þau á móti mökum sínum á heimili Harrisons í Friar Park í Oxfordskýri.
Hvernig þeim fundi reiddi af fer ekki sögum af hér, en fljótlega eftir þann fund hélt Krissy til Los Angeles og hóf þar samband við John Lennon, sem þá var giftur Yoko Ono. Það var Krissy sem var með Lennon þegar að plötuframleiðandi einn miðaði á hann byssu sinni. Lennon kastaði sér yfir Krissy til að vernda hana. Hvorugt meiddist. Í annað skipti voru þau bæði borin út úr partýi hjá Díönu Ross eftir að ólyfjan hafði verið blandað í drykki þeirra.
Daginn fyrir andlát sitt hringdi hún í vin sinn og sagði að allt væri í lagi en 24 tímum seinna lá hún andvana á sófa hans. 150 manns sóttu útför hennar sem gerð var frá Mortlake Crematorium og Ronnie, sem var viðstaddur með Jo, var sagður yfirbugaður af sorg.
Saga Krissy eftir að hún skildi við Ronnie er dæmigerð fyrir örlög margra grúpía sjötta áratugarins. Jo Jo Laine sem missti meydóminn með Jimi Hendrix og átti elskhuga á borð við Rod Stewart og Jim Morrison, giftist síðan Denny Laine, gítarleikara the Moody Blues og síðan Wings, varð alkóhóli og heróíni að bráð. Hún var loks lokuð inni á þunglyndislyfjum eftir að hún komst að því að Denny hafði sofið hjá bestu vinkonu hennar. Þá mætti nefna Marianne Faithfull, Marsha Hunt, Mandy Smith, Anitu Pallenberg sem dæmi um konur sem steinarnir frægu rúlluðu yfir og skildu eftir misjafnlega á sig komnar um aldur og ævi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
17.7.2008 | 00:12
Himneskur stórfiskaleikur
Fólk þrætir oft um það hver trúin sé rétt og hver trúarbrögðin frá Guði komin og hver ekki. Mörgum finnst fáránlegt að ætla að einn Guð geti staðið á bak við "svona hrikalega ólíkan boðskap".
En er það virkilega svo? Er boðskapurinn svona mismunandi?
Eftir því sem ég kynnist hinum mismundi trúarbrögðum heimsins betur, því betur er ég sannfærðari er ég um að uppruni þeirra er einn. Merki um það eru alsstaðar. Tökum eitt lítið dæmi frá þremur mismunandi og fjarlægum menningarsvæðum heimsins. Hér sjáum við þrjár myndir.
Ein er frá Mið- Ameríku og sínir hvernig helsti Guð fornþjóða álfunnar Quetzalcoatl tekur á sig mynd stórfisks til að ná til manna. Sagan er um 3000 ára gömul.
Önnur myndin er Indlandi og sýnir Guði Vishnu taka á sig birtingarmynd stórfisks til að ná til mannkynsins. Sagan er um 5000 ára gömul.
Þriðja myndin er af predikanatóli úr kristinni kirkju frá 11. öld og sýnir hvernig Jónas er gleyptur af stórfisknum. Í kristni er sú saga sett í samband við dvöl Krists í helju og upprisu hans til að bjarga mannkyninu. Sagan er ca. 3500 ára gömul.
Gefðu manni fisk að borða og þú hefur mett hann í einn dag. Kenndu manni að veiða fisk og þú hefur mett hann allt lífið., sagði LaoTse eða Laozi eins og það er núna skrifað.
Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér frekar hvernig mannfiskurinn birtist aftur og aftur í nánast öllum trúarbrögðum heimsins og hvaða merkingu hann hefur, bendi ég á þessa síðu; Amphipious Gods
16.7.2008 | 11:16
"I have been a bad boy"
Í gær hitti ég heimsfrægan hljóðfæraleikara og átti við hann orðastað. Hann heitir Ronnie Wood og spilar á gítar með félögum sínum í sveitinni Rolling Stones. Þannig var mál með vexti að ég tefli skák einu sinni í viku á einu á kaffihúsinu hér í Bath.
Sá sem ég tefli við var eitt sinn "suð-vesturlands" meistari hér í Englandi. En það segir í sjálfu sér ekkert um styrkleika hans því Englendingar hafa aldrei haft orð á sér fyrir að vera snjallir skákmenn frekar enn að þeir geti spilað handbolta. Eiginlega eru þeir ekki góðir í íþróttum nema þeim sem þeir hafa fundið upp sjálfir, eins og fótbolta, Krikket og Rugby:
Við næsta borð á kaffihúsinu sátu tveir menn að spjalla. Ég kannaðist við annan þeirra, írskan skartgripasala sem stundar þetta kaffihús mikið. Hinn var lítill og pervisinn eldri maður með svart litað hár sem var klippt eins og Rod Stewart hafði það í gamla daga. Hann var klæddur eins og unglingur, í þröngar svartar gallabuxur, í eldrauðum bol, svörtum jakka og í rauðum strigaskóm. Fötin vor greinilega ný. Andlitið var rúnum rist og leðurbrúnt og minnti mig á andlit gamalla indíána frá norður Ameríku.
Ég vissi að ég átti að þekkja þennan mann en ég kom honum ekki strax fyrir mig. Þegar hann stóð upp og skrapp á salernið, notaði ég tækifærið til að spyrja skartgripasalan hver hann væri. Jú, þetta er Ronnie Wood sagði hann.
Hér hafa blöðin verið uppfull af fréttum um að Ronnie væri týndur og hefði stungið af eftir að myndir náðust af honum í félagi við unga stúlku.
Þar sem félagi minn var ókominn færði ég mig yfir á borðið hjá Íranum og þegar Ronnie kom til baka tókum við að spjalla.
Hann sagðist vera nýkominn frá Írlandi, hefði flogið til Bristol þá fyrr um morguninn. Hann sagðist eiga litla íbúð í grenndinni og hann væri á leiðinni þangað.
Hann spurði mig hvort ég væri Hollenskur. - Nei Íslenskur.
Vá, svalt (Cool) svo hló hann eins og hann væri fyrsti maðurinn sem hafði sagt þennan brandara.
Hvað ertu að gera hér, spurði hann. Búa til tónlistarvideo, svaraði ég. Hefurðu búið til video fyrir einhverja fræga? - Já Frans Ferdinand, svaraði ég.
Hefurðu komið til Íslands spurði ég.- Já það held ég, flott land.
Þekkirðu einhvern á Íslandi.
Já, ég hef hitt Björk.
Hvað varstu að gera á Írlandi?
Hann brosti. "Ég er búinn að vera slæmur strákur".
Fyrir framan hann á borðinu hafði hann raðað smámunum upp úr vösum sínum. Ipot, sími, tóbaksumslag, pappírshylki. Hann byrjaði að vefja sér sígarettu, þrælvanur greinilega.
Viltu reykja, spurði hann.
Nei, takk ég er nýhættur. Annars reykti ég bara vindla. -
Þú getur alveg fengið vindil sagði hann. Nei takk.
Ég virti hann fyrir mér. Undarlegt hvernig frægt fólk sem maður er margbúinn að sjá á myndum og í sjónvarpi, virkar þar miklu stærra en það er í raunveruleikanum. Írinn var að tala í síma á meðan ég spjallaði við Ronnie.
Síminn á borðinu hringdi. Rionnie leit á númerið og ákvað að svara. Þetta var einhver nákominn að spyrja hvort allt væri í lagi með hann og hvar hann væri.
Nú birtist skákfélagi minn svo ég stóð upp. Ronnie stóð upp líka, setti dóttið sitt í jakkavasana, tók í höndin á Íranum og mér og skundaði á braut.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
15.7.2008 | 23:22
Mahatma
Ef þú hefur höndlað sannleikann verður að miðla honum af ást, annars verður bæði boðskapnum og þér sem flytur hann hafnað. Mahatma Gandhi |
Ástin er sterkasta aflið í heiminum og um leið það auðmjúkasta. Mahatma Gandhi |
Sigur sem fæst með ofbeldi er ósigur vegna þess að hann er ekki varanlegur. Mahatma Gandhi |
Allt sem þú gerir er ómerkilegt, en það er afar mikilvægt að þú gerir það. Mahatma Gandhi |
Hinir veiku geta ekki fyrirgefið. Fyrirgefning er eiginleiki hinna sterku. Mahatma Gandhi |
Það þarf að taka langan tíma til að mynda með sér fullvissu og þegar hún er mynduð verður að verja hana gegn ofureflinu. Mahatma Gandhi |
Það er ekki viturlegt að vera viss um visku sína. Það er gott að minnast þess að hinir sterkustu geta veikst og hinir vitrustu haft rangt fyrir sér. Mahatma Gandhi |
Miðaðu ætíð að því að hafa fullt samræmi á milli hugsanna, orða og gjörða þinna. leitastu við að hreinsa hugsannir þínar og allt mun ganga að óskum. Mahatma Gandhi |
Svo fremi sem þú færð innri hjálp og værð frá hlutnum, skaltu halda honum. Mahatma Gandhi |
Frelsi er ekki þess virði að hafa nema það feli í sér frelsi til að gera mistök. Mahatma Gandhi |
Dauðasyndirnar sjö eru; ríkidæmi án vinnu, vellíðan án samvisku, þekking án manngilda, viðskipti án siðgæðis, vísindi á mennski, tilbeiðsla án fórna og stjórnmál án grundvallarreglna. Mahatma Gandhi |
Líf mitt er órofa heild, og allar mínar eigindir blandast hver annarri; og þær eiga allar uppsprettu sína í óseðjandi ást til mankynsins. Mahatma Gandhi |
Lífið hefur upp á miklu meira að bjóða en bara að draga úr hraða þess. Mahatma Gandhi |
Þeir geta ekki tekið í burtu virðingu okkar ef við sýnum þeim hana ekki. Mahatma Gandhi |
Þeir sem vita hvernig á að hugsa þurfa enga kennara. Mahatma Gandhi |
Sannleikurinn skaðar aldrei réttlátan málstað. Mahatma Gandhi |
Fórn sem veldur þeim sem færir hana sorg er engin fórn. Sönn fórn léttir hugann og færir friðartilfinningu og gleði. Buddha forðaðist allar nautnir í lífinu vegna þess að þær voru honum sársaukafullar. Mahatma Gandhi |
Réttlæti mun veitast þeim sem eiga það skilið vegna styrks þeirra. Mahatma Gandhi |
Ég nam fyrstu grundvallarreglur ofbeldisleysis í hjónabandi mínu. Mahatma Gandhi |
Ég býð þér frið. Ég býð þér ást. Ég býð þér vináttu. Ég sé fegurð þína. Ég heyri bónir þínar. Ég finn það sem þú finnur. Viska mín flæðir frá efstu uppsprettu. Ég helsa þeirri uppsprettu í þér. Látum oss vinna saman í einingu og ást. Mahatma Gandhi |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
15.7.2008 | 09:56
Hversu skarpskyggn ertu?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
12.7.2008 | 22:18
Fíla blogg
Ef þið hafið áhuga á að sjá eitthvað virkilega ótrúlegt þá ættuð þið að líta á þetta myndband frá Thailandi. Listafíll
Fílar hafa í mörg ár heillað mig og eru án efa mín uppáhalds dýr. Þeir eru líffræðilega afar flóknar verur og sumt í hegðun þeirra hefur aldrei verið að fullu skýrt. Tennur þeirra eru svo verðmætar eins og kunnugt er, að þeir eru í útrýmingarhættu. Þeir eru eina dýrið sem ég veit um sem heilt þjóðland hefur verið nefnd eftir. (Fílabeinsströndin) Þeir hafa verið notaðir sem stríðsvélar og þungavinnuvélar og voru Indverjum og öðrum Asíuþjóðum þarfari þjónn en hesturinn var þeim nokkru sinni.
Ég fann á blog.is blogg frá bloggvinkonu minni henni Steinunni Helgu Sigurðardóttur sem fílaunnendur gefðu gaman af að líta á, þ.e.a.s. þeir sem ekki hafa þegar gert það.
Svo fann ég eftirfarandi fróðleik á vefnum;
Þrátt fyrir ákveðin líkamleg einkenni eru fílar hvorki náskyldir flóðhestum né nashyrningum. Þvert á móti er skyldleika að leita á allt öðrum stöðum í dýraríkinu.
Fílar nútímans lifa einir eftir af fjölda skyldra tegunda sem voru útbreiddar í stórum heimshlutum. Auk afrísku og indversku fílanna eru nú aðeins eftir tveir hópar tegunda þessara dýra. Annars vegar eru sækýrnar, sem skiptast í fjórar tegundir, sem allar hafast við í hitabeltinu í karabíska hafinu og við strendur Afríku og Ástralíu. Sækýr geta orðið allt að tvö tonn. Rétt eins og fílarnir eru sækýrnar hægfara jurtaætur. Skyldleikann má m.a. sjá á afar sérstæðri tannskipan. Karldýr sumra tegunda hafa t.d. stuttar skögultennur, samsvarandi skögultönnum fíla.
Það má sem sagt á sinn hátt skynja skyldleikann milli fíla og sækúa. Hitt kemur meira á óvart að bjóða skuli afrískum kletta- og trjágreifingjum á þetta ættarmót. En aftur er það sérstæð tannskipan sem afhjúpar skyldleikann. Framtennurnar hafa þróast í stuttar skögultennur sem að vísu standa ekki út úr munninum. Jaxlarnir eru stórir og flatir. Ættartengslin hafa líka á síðustu árum verið staðfest með greiningu á erfðaefni, bæði í frumukjörnum og orkukornum. Þær rannsóknir sýna sameiginlega forfeður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.7.2008 | 01:09
Ólafsvíkur-Kalli og ástin
Fyrir margt löngu dvaldist ég í nokkra mánuði á Neskaupstað. Ég fékk vinnu í SÚN og var svo "heppinn" að fá pláss í aðgerðar-genginu eins og það var kallað. Aðgerðar-gengið var saman sett (fyrir utan mig) af almestu harðjöxlum sem ég hef nokkru sinni fyrir hitt á ævinni. Þeir gátu staðið við og slægt fisk í 12-16 tíma hvern dag og aðeins nærst þann tíma á svörtu kaffi og matarkexi sem þeir skelltu í sig í reykpásunum.
Ég var á hrakólum með húsnæði og einn úr gengnu bauð mér að leigja með sér herbergi ekki langt frá skemmunum þar sem gert var að. Ég þáði það og þannig atvikaðist að ég gerðist herbergisfélagi Karls Guðmundssonar eða Ólfasvíkur-Kalla eins og hann var oft kallaður. Karl var án efa einn þekktasti slarkari sem Ísland hefur af sér alið og um svaðilfarir hans er að nokkru fjallað í bók Jónasar Árnasonar um Kristófer kadet í hernum "Syndin er lævís og lipur".
Nú vildi þannig til að ég hafði lesið bókina en samt kom ég Karli ekki fyrir mig til að byrja með og þekkti ekki manninn sem hafði blásið lífið í hálfdrukknaða völsku-rottu eftir að hafa bjargað henni úr ísilagðri höfninni í Helsingi í Finnlandi eða bjargað lífi arabísks auðkýfings og þegið að launum fulla höll af Gini. Okkur kom ágætlega saman mér og Kalla, ekki hvað síst eftir að hann frétti að að faðir minn væri líka Ólsari. Karl sem var að rembast við að vera edrú þótt hann væri afar illa haldinn af langvarandi Alkóhólisma, sá um matargerðina. en ég um þvotta og þrif. Hann eldaði slatta af sveskjugraut og plokkfiski sem síðan var haft í alla mata á meðan entist. Þegar þraut, eldaði Kalli nýjan skammt. Þetta gekk í nær þrjá mánuði, allt haustið 1971 og fram á aðventuna.
Um miðjan Desember kom ónefnd fleyta úr siglingu frá Bretlandi hlaðin varningi. Brátt flaut allt í víni og bjór og aðgerðargengið leystist upp. Kalli sem hafði þá verið þurr í fjóra mánuði kolféll og varð fljótt svo veikur að hann gat ekki staðið í fæturna. Hann lagðist því í fleti sitt og drakk þar. Ég hjálpaði honum af og til á salernið og bar honum mat en þess á milli var hann oftast í einskonar deleríum móki. Við hliðina á rúmi hans var kassi af Vodka sem hratt gekk á. Stundum um nætur vaknað Karl upp og vildi þá ræða trúmál og heimsspeki. Hann var ágætlega lesinn en hafði komið sér upp heimatilbúnum frösum um öll mál sem hann mælti fram og þá voru málin afgreidd að hann hálfu.
Eina nóttina lá ég í rúmi mínu og las. Allt í einu reis Karl upp við dogg og sagði fyrirvaralaust og ákveðið;" Ástin er skítalykt". Ég var aðeins sautján ára og ekki í stöðu til að andmæla þessari speki mikið. "heldurðu það" svaraði ég en hugsaði jafnframt með mér að líklega hefði Kalli farið illa út úr samskiptum sínum við konur um ævina. "Nei ég veit það," hélt Kalli áfram. "Það er ekki fyrr en þú þolir skítalyktina af konu að þú getur sagt að þú elskir hana." bætti hann svo við og teygði sig eftir flösku, tók af henni gúlsopa, lagðist svo niður aftur og var brátt farinn að hrjóta. Hann skildi mig eftir með þessa lífsspeki sem hefur verið að pirra mig síðan.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
11.7.2008 | 00:32
Trúir þú á drauga - Frægasta Draugaljósmyndin
Þetta er án efa þekktasta draugamynd í heimi. Myndin er tekin árið 1919 en var ekki birt opinberlega fyrr en árið 1975. Myndin var tekin af Sir. Victor Goddard foringja í breska flughernum. Ljósmyndin er af flugsveit Sir Goddards sem þjónað hafði um borð í HMS DAEDALUS í fyrri heimsstyrjöldinni. Á myndinni birtist auka andlit að hálfu hulið en samt afar greinilegt. Á bak við flugmanninn sem er fjórði frá vinstri í efstu röð er að sjá andlit manns sem ekki átti að vera á myndinni. Það er sagt vera af manni sem hét Freddy Jackson, flugvirkja sem dáið hafði tveimur dögum áður en ljósmyndin var tekin, þegar að flugvélarhreyfill skall í höfuð hans. Útför Freddy var gerð sama dag og myndin var tekin. Allir meðlimir sveitarinnar sem fengu myndina eða sáu hana staðfestu að þetta væri andlit andlit Freddys.
Dægurmál | Breytt 12.7.2008 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
7.7.2008 | 19:28
Hvernig á að búa til gott te
- Fyllið ketilinn af köldu fersku vatni.
- Hitið ílátið og látið tepokann í bollann eða tekönnuna.
- Látið vatnið sjóða og hellið því síðan í bollann eða tekönnuna og hrærið í.
- Bíðið í 2-3 mínútur og allt upp í sex mínútur ef tekannan er stór. Þessi bið er mikilvægasti þáttur tegerðar. Teið er ekki tilbúið þótt bæði litur og kaffín hafi borist út í vatnið nánast strax. Sjálft bragð tesins tekur lengstan tíma að berast út í vatnið. Nauðsynlegt er að halda teinu heitu þann tíma sem beðið er eftir bragðinu.
- Hellið teinu í bolla (ef tekanna er notuð)
- Næst er sett sætuefni (sykur, hunang) í teið ef þú notar það á annað borð og hrært í. Ef þú notar mjólk er henni bætt í síðast og aftur hrært í.
Ef þú ert ekki sammála þessu þá getur þú spreytt þig á tegerðarprófinu hér.
6.7.2008 | 16:15
Demi-guðir á Íslandi fyrir 38 árum. Varst þú þar?
1970 þegar hippamenningin stóð sem hæst hér á Íslandi, komu demi-guðirnir í Led Zeppelin til landsins og léku fyrir 2.5% af þjóðinni, (meðal hans undirritaðan) sem var ekki minna en 5000 manns í Laugardagshöll. Ferðin til Íslands hafði varanleg áhrif á sveitina því á meðan dvöl hennar stóð á landinu samdi Robert Plant textan við eitt þeirra frægasta lag Immigrant song.
Úr Söngleiknum "ÉG elska alla"
Robert sagði í viðtali um tilurð textans; We went to Iceland, and it made you think of Vikings and big ships... and John Bonham's stomach... and bang, there it was - Immigrant Song!
Textinn fjallar að sjálfsögðu um Ísland og Leif Eiríksson og var frumflutt á tónleikum Í Bath á Englandi, aðeins sex dögum eftir tónleikana á Íslandi. Lagið kom út á plötu þeirra Led Zeppilin III og var yfirleitt opnunarlag þeirra á tónleikum eftir það. Hér kemur þessi frægi texti sem sýruhausarnir brutu svo mikið heilann yfir "hvað þýddi í raun og veru".
Ah, ah,
We come from the land of the ice and snow,
from the midnight sun where the hot springs blow.
The hammer of the gods
Will drive our ships to new lands,
To fight the horde, singing and crying:
Valhalla, I am coming!
On we sweep with threshing oar,
Our only goal will be the western shore.
Ah, ah,
We come from the land of the ice and snow,
from the midnight sun where the hot springs blow.
How soft your fields so green,
Can whisper tales of gore,
Of how we calmed the tides of war.
We are your overlords.
On we sweep with threshing oar,
Our only goal will be the western shore.
So now youd better stop and rebuild all your ruins,
For peace and trust can win the day
Despite of all your losing.
Hér er sjónvarpsfréttin af komu þeirra til landsins og viðtal við Robert Plant.
Dægurmál | Breytt 7.7.2008 kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)