Kristnir eru fjölmennastir og herskáastir

Beðið fyrir stríðiHerskáustu þjóðir heimsins eru kristnar. Alla tíð frá því að þau trúarbrögð grundvölluðu sig sem megin átrúnaður rómverska ríkisins hafa áhangendur þeirra, í blóra við skýr skilaboð höfundar þeirra, stofnað til flestra og mannskæðustu styrjalda í sögu mankynsins. Flest þau stríð hafa ekki verið háð í nafni trúarinnar en engu að síður af áhangendum hennar. 

Í dag eru kristnu trúarbrögðin þau fjölmennustu í heiminum, ca, 2,1 milljarður og enn fara kristnar þjóðir, sem flestar ráða yfir  tæknivæðingu og ríkidæmi,  fremstar með ófriði í heiminum, einkum í vanþróuðum löndum og gjarnan gegn óvinum sem ekki hafa stuðning neins sérstaks þjóðlands.
Hér að neðan sést hvernig mannkynið skiptir sér á milli trúarbragða og lífskoðanahópa.

 
  1. Christianity: 2.1 billion
  2. Islam: 1.5 billion
  3. Secular/Nonreligious/Agnostic/Atheist: 1.1 billion
  4. Hinduism: 900 million
  5. Chinese traditional religion: 394 million
  6. Buddhism: 376 million
  7. primal-indigenous: 300 million
  8. African Traditional & Diasporic: 100 million
  9. Sikhism: 23 million
  10. Juche: 19 million
  11. Spiritism: 15 million
  12. Judaism: 14 million
  13. Baha'i: 7 million
  14. Jainism: 4.2 million
  15. Shinto: 4 million
  16. Cao Dai: 4 million
  17. Zoroastrianism: 2.6 million
  18. Tenrikyo: 2 million
  19. Neo-Paganism: 1 million
  20. Unitarian-Universalism: 800 thousand
  21. Rastafarianism: 600 thousand
  22. Scientology: 500 thousand

 Hér að neðan er listi yfir manskæðustu styrjaldirnar sem háðar hafa verið í heiminum.

 


mbl.is Um fjórðungur mannkyns múslímar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvar er Jón Valur núna ?

Finnur Bárðarson, 8.10.2009 kl. 19:15

2 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Það er kanski bara komin tími á múslimana.

Þeir eru ekki háttskrifaðir á listanum núna en alltaf eins og þá langi til að komast hærra eða hvað! :)

Eins og þeir hamast alls staðar í dag með eldfærin sín...

Jón Ásgeir Bjarnason, 8.10.2009 kl. 19:53

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Athyglisverðir listar.

Má ekki segja að mjög gróflega sé:

Rúmur þriðjungur manna kristinn.
Fjórðungur múslimar.
Afgangur ýmislegt annað.

Varðandi mannskæðar styrjaldir freistast maður síðan til að álíta heimsstyrjaldirnar tvær langalvarlegastar.

Sæmundur Bjarnason, 8.10.2009 kl. 19:55

4 Smámynd: Sigurður Rósant

En hvers vegna dettur þér fyrst í hug hverjir séu herskáastir, Svanur? Fjöldi látinna kann að vera meiri síðan kristni kom til áhrifa á samfélög, en mörg útrýmingarstríð voru háð áður fyrr og heilu ættflokkunum eða þjóðum nærri útrýmt. Brúðarbrennur og sýruskvettur sem tíðkast í löndum Hindúa og múslima eru enn lýti á þessum samfélögum. Sömuleiðis umskurðarvenjur múslima og Gyðinga.

Mér datt fyrst í hug hve erfitt það er í raun og veru að taka saman upplýsingar um trú manna. Þessar tölur segja ekki mikið um hvernig þetta fólk hugsar, lifir lífi sínu eða virkar á aðra í námunda við sig.

Frekar fáir múslimar hér á Vesturlöndum eru "strangtrúaðir" eða bókstafstrúarmenn (innan við 10%). Flestir þeirra eru "hófsamir" og iðka ekki reglulega bænahald (5 sinnum á dag) eða sækja föstudagsbæn í mosku.

En á listann vantar nokkur fjölmenn trúarbrögð:

Mormónar 12,2 milljónir

Vottar Jehóva 6,5 milljónir

Nýaldarsinna  5,0 milljónir

Svo læturðu þarna inn í listann hugmyndafræði stjórnvalda Norður-Kóreu Juche: 19 million og Neo Paganism sem tæplega er hægt að kalla trúarbrögð (frekar eins konar leikrænt andóf við siðvenjur trúarbragða.

Sigurður Rósant, 8.10.2009 kl. 21:40

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

  ... og hvaða fagnaðarerindi ertu að boða með þessu Svanur?

Jóhanna Magnúsdóttir, 8.10.2009 kl. 21:45

6 identicon

Múslímar  (þ.e.a.s.  Trú Friðarins)   hafa  framið  14191  banvænar  hryðjuverkaárás  frá  11.  sept.  2001  víðsvegar  um  heiminn.  Að  sögn  þeirra  sjálfra  vegna  boðskapar  og  hvatninga  úr Kóraninum  og  öðrum  íslömskum  ritum.

Mannfall  í  styrjöldum múslíma  gegn  hinum  s.l.  1400  ár  er  talið  280 milljónir  manns, mannfall  múslíma  sjálfra  gæti  verið  álíka  hátt.

Heimild:  http://www.thereligionofpeace.com

Múslímar  í  Danmörk  eru  5%  af íbúum,  en  hirða  40%  af  Almannabótaféinu  og  víða  fylla  þeir  um  60-70%  af  fangelsisrýminu.

FYRIR  MÁLSTAР ALLAH.   http://www.youtube.com/watch?v=1GeC3aR_OSE&feature=player_embedded

 

FRIÐUR.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 8.10.2009 kl. 22:01

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jæja, nú lendirðu í því, Svanur minn, að svara honum Skúla.

Það er mesta mildi, að ekki hafa allir haft yfir tæknibúnaði "kristinna þjóða" að búa gegnum söguna. Vitaskuld væri þá mannfallið miklu meira. Kínverjar voru raunar vel tæknivæddir með sitt púður snemma og ærinn herafla sem hægt var að tefla fram, og fáir komust með tærnar þar sem Mongólarnir voru með hælana í þessum málum á miðöldum.

Sumt í þessum tölum hjá þér virðist raunar ónákvæmt (afnvel stórlega ýkt dæmi, s.s. Afganistanstríðið 2001–2002), og þegar maður smellir á línurnar, kemur engin upplýsingasíða í ljós. Hverjar eru þær heimildir?

Jón Valur Jensson, 8.10.2009 kl. 23:08

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ekki skal ég draga úr ábyrgð kristinna manna á manndrápum í styrjöldum.

Sýnist þó í fljótu bragði að beitt sé einföldun með því að lita styrjaldirnar í einum lit. 

Japanir hófu í raun seinni heimsstyrjöldina 1937 með hernaði sínum á hendur Kínverjum og þar féllu tugir milljóna manna hjá þjóðum sem hvorug voru kristin. 

Norður-Kóreumenn réðust inn í Suður-Kóreu 1950 og þótt það væru kristnar þjóðir sem sendu her SÞ þar inn, er mikil einföldun að skrifa Kóreustyrjöldina á kristnar þjóðir. 

Lenin sagði að trúarbrögð væru ópíum fyrir fólkið og varla hægt að skrifa hernað Sovétríkjanna á trúarbrögð sem voru bæld niður þar í landi. 

Síðan vantar í upptalninguna þær tugir milljóna sem Stalín og Maó drápu án þess að kommúniskar aðgerðir þeirra í landbúnaðarmálum væru skilgreindar sem styrjaldir. 

Þar með erum við reyndar komin inn á svið stjórnmálastefna, sem líkja má við trúarbrögð þar sem tilgangurinn helgar meðalið. 

Ekki það, að kristnir menn megi ekki verða hugsi yfir því að það voru kristnar þjóðir sem stóðu fyrir einhverri tilgangslausustu og fráleitustu styrjöld allra tíma, Fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hermenn sungu jafnvel "Áfram kristmenn, krossmenn". 

Og voðaverkin sem hin kristna þjóð Þjóðverjar frömdu undir stjórn brjálæðings og stríðsglæpir á borð við árásina á Dresden verða ævinlega skömm fyrir kristna menn.  

Ómar Ragnarsson, 8.10.2009 kl. 23:26

9 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þakka þessar athugasemdir.

Vissulega má eitthvað gagnrýna þessar tölur en þær eru settar saman samkvæmt einhverjum stöðlum sem flestir greinilega sætta sig við enda fengnar af netalfræðibókinni  eins og flestir efalaust sjá.

Sigurður Rósant reit; "En hvers vegna dettur þér fyrst í hug hverjir séu herskáastir, Svanur?" -

Mér datt þetta nú ekki fyrst í hug en þegar ég fór að rýna í hugsanlegan tilgang með þessari frétt sem er svo sem ekki frétt þegar öllu er á botninn hvolft, þá datt mér helst í hug að verið væri að ala á Islam-fóbíu.

Jóhanna Magnúsdóttirspyr um fagnaðarerindið: Það er margþætt, en einn liðurinn er að slá á þá marg-tuggðu klisju að trúarbrögð séu helsta orsök styrjalda og í annan stað að þeir sem styrjaldir heygja á annað borð, séu mjög fjarri þankagangi kristinna manna. Hvorugt er rétt samkvæmt þessum tölum.

Jón Ásger; Þú kannt vel að hafa rétt fyrir þér :)

Skúli;"Afrek" múslíma á sviði hernaðarbrölts og mannvíga fölna við hliðina á því sem kristnir menn haf gert sig seka um í gegnum tíðina. Og þeir eru enn að. Hvernig almannbætur í Danmörku skiptast milli þegna ríkisins blandast inn í þessa umræðu er mér ekki ljóst, nema að hún sé eitthvað tengt þeim ástæðum sem kunna að liggja að baki þessarar "ekki fréttar" sem ég blogga við.

Þetta er rétt ályktað hjá þér Sæmundur.

Það er von að þú spyrjir Finnur :)

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.10.2009 kl. 23:29

10 Smámynd: Brattur

Enginn verður óbarinn biskup...

Brattur, 8.10.2009 kl. 23:37

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

"Múslímar  í  Danmörk  eru  5%  af íbúum,  en  hirða  40%  af  Almannabótaféinu  og  víða  fylla  þeir  um  60-70%  af  fangelsisrýminu."

Þess má geta, talandi um fangelsi - að á Íslandi eru konur um 5% af þeim sem eru í fangelsum og karlar um 95% þar af leiðandi.  Býst við að meiri hlutinn séu kristnir karlmenn en eflaust blandað.

Feminismi er málið karlar mínir!

Jóhanna Magnúsdóttir, 8.10.2009 kl. 23:47

12 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ég held að það sé rétt  Ómar, að þarna er málað í stórum dráttum en heildarlínurnar eru samt ljósar. Takk fyrir þetta.

Jón Valur; Kristnar þjóðir hafa aldrei búið til vopn sem ekki hefur verið beitt. Tæknilegir yfirburðir hafa gert þeim mögulegt að heygja árásarstríð þar sem mannfall í liði óvinaanna er hundraðfalt miðað við þeirra eigin mannfall. Persaflóa stríðið er besta dæmið um þetta og einnig "hið svokallaða "War on terror" sem enn stendur yfir. Enga miskunn eða hógværð að finna á þeim bæjum.

Brattur; Hver barði Karl?

Jóhanna; Go girl, go!

Svanur Gísli Þorkelsson, 9.10.2009 kl. 00:14

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er þetta ekki almenn lögmál, Svanur minn, að stríðsmenn notfæri sér jafnan tæknilega yfirburði sína?

Annars er atómsprengjan ekki það sama og vetnisssprengjan, og nifteindasprengjunni hefur aldrei verið beitt.

Hins vegar hafa einmitt kristnar þjóðir tekið upp ýmsar takmarkanir við beitingu vopna, t.d. með banni við sinnepsgasi, ýmsum öðrum eiturefnum og sýklahernaði. Þessu fara ekki allir eftir, t.d. ekki trúlausir sovét-herforingjar í Afganistan 1979–89 og ekki Saddam Hussein í hernaði gegn Kúrdum.

Jón Valur Jensson, 9.10.2009 kl. 00:40

14 Smámynd: Sigurður Rósant

Svanur - .......ekki frétt þegar öllu er á botninn hvolft, þá datt mér helst í hug að verið væri að ala á Islam-fóbíu.

Og ég sem hafði læknast fullkomlega af Islam-fóbíunni, mest þér og séra Baldri Kristjánssyni að þakka.

En ég held að þú hafir frekar espað upp Islam-fóbíuna hjá þeim sem enn eru veikir, með því að snúa fréttinni á þennan veg.

Sumir þeirra muslima sem ég hef kynnst hér í Danmörku síðustu 3 árin, vilja sínu fólki helst að lýðræði komist á í föðurlandi þeirra. Þeir sjá að hér er efnahagsástand gott og hægt að gleyma Islam og skrópa á föstudagsbæn. Æ fleiri múslimar þrá að afla sér menntunar, komast í vinnu og lifa Vestrænu lífi eins og við hin. Þeir verða ekki meira til ama en kaþólsku nunnurnar þegar fram líða stundir.

Sigurður Rósant, 9.10.2009 kl. 08:56

15 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

mér fannst a-asíuþjóðir fyrirferðamestar á topp 10 listans.

ekki það að ég taki upp hanskann fyrir ein trúarbrögð eða önnur. finnast þau öll meira og minna sama ruglið.

Brjánn Guðjónsson, 11.10.2009 kl. 16:20

16 Smámynd: Haukur Baukur

Reiði er afleidd tilfinning.  

Kannski býr eitthvað að baki þessi stríðsbrölti.....

Haukur Baukur, 13.10.2009 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband