Myndbandið sem kostaði níu manns lífið

Það verður eflaust erfitt að sannreyna þessa frétt af aftöku níu fyrrum meðlima Unhasu og  Wangjaesan Light Music Band sem áttu það allir sameiginlegt að hafa leikið með sömu hljómsveitinni sem Ri Sol Ju, eiginkona Kim Jong Un, einræðisherra í Norður Kóreu, söng eitt sinn með.

Ri varð á sínum tima einkum kunn fyrir nokkra slagara sem hún söng  með hljómsveitinni Unhasu  og urðu afar vinsælir í N-Kóreu,  er sögð hafa tekið þátt í einhverju ósiðlegu athæfi ásamt félögum sínum í hljómsveitinni. Til að koma í veg fyrir að það kæmist i hámæli er Kim Jong Un sagður hafa fyrirskipað aftöku níu tónlistarmanna, allt fyrrum samstarfsfólk Ri. Þeim fyrirmælum var framfylkt  þann 15 Ágúst s.l. í garði Kang Gon herskólans í útjaðri Pyongyang. 

Meðal hinna níu sem þar tíndu lífinu var að sögn  fyrrum ástmey og æskuvinkona Kims, söngkonan Hyon Song-wol.

Myndbandið sem var svo ósiðlegt að murka þurfti lífið úr níu manns með hríðskotabyssum, er hugsanlega þetta myndband. Stórhættulegt eins og allir geta séð. 

Myndbandið sem varð þess valdandi að þessir stórhættulegu músíkkantar í N-Kóreu misstu lífið, er hugsanlega myndbandið af þessum þremur kórísku stúlkum sem dansa stirðlega við fjörlega útgáfu af Aloha Oe. Ein þeirra er sögð vera Ri.

 

 

 

 


mbl.is Forsetafrúin sögð hafa „leikið sér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ekki er ótrúlegt að þetta hafi farið fyrir brjóstið á hinum unga Kim. Konunrnar taka bæði af sér hattana og fara út jökkunum, suss uss.

Annars er merkilegt að sjá hvernig dansdísunum tekst að komast nánast gegnum allan dansinn með krosslagða fætur.

Gunnar Heiðarsson, 22.9.2013 kl. 18:37

2 Smámynd: Jens Guð

  Það er erfitt að átta sig á fréttum frá N-Kóreu.  Þar á sér margt skrítið og furðulegt stað.  Einangrunin er svo mikil,  ritskoðun svo mikil,  innræting svo mikil að íbúarnir lifa í veröld sem þeir halda að sé allt öðru vísi en raunveruleikinn.

  Það er hægt að trúa öllu upp á stjórnvöld í NK.  Undarlegheitin og geggjunin er slík.  Þess vegna gleypir heimspressan gagnrýnislaust við upplognum fréttum af uppátækjunum í NK.  Dæmi um upplogna frétt var að íbúum NK hafi verið refsað fyrir að syrgja ekki nægilega dauða föður núverandi Kim-eitthvað forseta.  Seint og síðar meir kom í ljós að fréttin var upprunin í grín-miðli að hætti Baggalúts.

  Engu að síður kom fréttin ekki á óvart í samanburði við delluna í NKþ

  Ef fréttin um tónlistarfólkið sem fréttir herma að hafi verið tekið af lífi er rétt þá kemur það í ljós á næstunni.  Ef fréttin er röng hlýtur að koma nýtt myndband frá þessu fólki.  Ég óttast að fréttin sé ekki röng.

  Fyrir tveimur árum kynntist ég ungum Suður-Kóreskum hermanni.  Við vorum samtímis á hóteli í Noregi.  Spjölluðum mikið saman á hverjum degi.  Hann hafði verið við landamæravörslu í tvö ár eða eitthvað.  Varð vel til vina við NK dátana.  Meðal annars fóru þeir í sameiginlegt fjallaklifur.  Svo horfðu þeir saman á beina sjónvarpsútsendingu á fótboltakeppni á milli Suður- og Norður-Kóreu.  NK tapaði illilega.  Þá brá svo við að NK dátarnir brustu í grát.  Þeir grétu sárt og áttu erfitt með að trúa eigin augum.  Vinurinn reyndi að hughreysta þá með ábendingu um að þetta væri aðeins leikur.  Þá grétu NK dátarnir ennþá sárar.  Það var ofar þeirra skilningi að NK gæti tapað fótboltaleik. 

Jens Guð, 23.9.2013 kl. 01:12

3 identicon

Þetta virðast vera óljósar sögusagnir sem einso fleiri féttir rúlla milli fréttaveitna nokkrum sinnum í kringum hnöttinn og enda svo sem heilagur sannleikur

Trúðum við ekki líka fréttaflutningi af að efnavopn væru í Írak.

Grímur (IP-tala skráð) 23.9.2013 kl. 09:45

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Takk fyrir þetta Jen. Japanskar og Kínverskar fréttaveitur, sem ekki eru alltaf á sama borði, hafa flutt þessar frétt. Lokað hefur verið fyrir aðgang að myndböndum sveitanna í N-Kóreu. S-Kóreskir sérfræðingar í málefnum N-Kóreu telja að atburðurinn hafi átt sér stað en að ástæðurnar fyrir því muni vera aðrar en sagt er.

Sæll Grímur. Veit ekki með þig, en ég var sannfærður um að efnavopnaástæðan fyrir innrásinni í Írak væri átilla ;)

Svanur Gísli Þorkelsson, 23.9.2013 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband