Hugmyndafræðilega gjaldþrota þjóðfundur

Setningarnar sem eiga að "skýra inntak grunngilda" þjóðfundarins, segja mikið um það hugmyndafræðilega gjaldþrot sem íslenska þjóðin virðist vera komin í.  Ef þessi lesning er þverskurður af afstöðu fólks til þeirra lífsgilda sem þjóðin á að lifa eftir og teljast eftirsóknaverð, er ljóst að engra breytinga, engra úrbóta er að vænta úr þeirri átt.

Þessi svokölluðu "grunngildi"  eru að megninu til  gamlar tuggur sem hinir ýmsu  stjórnmálaflokkar og framboð hafa gripið til á góðri stundu til að skreyta með stefnuskrár sínar fyrir kosningar sem þátttakendur þjóðfundarins hafa gert sér að góðu að jórtra á eina ferðina enn.  - 

Því miður, þessi tegund af "þjóðfundum" eru gagnslaus.


mbl.is Grunngildin skýrð á þjóðfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

átturu von á öðru?

Kristján Sigurður Kristjánsson, 6.11.2010 kl. 20:36

2 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

ég er nú bara svo innilega hjartanlega ósammála þér að það eru ekki til nógu sterk lýsingarorð í íslenskri tungu til að lýsa því. Þetta er alveg frábært.

Baldvin Björgvinsson, 6.11.2010 kl. 20:43

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Mér finnst flott hvað fundurinn leggur mikla áherslu á að verja auðlindirnar.

Það var ekki stofnað til þessa fundar til þess að leggja niður leiðirnar að markimiðum. Mér finnst að það hafi komið út úr þessum fundi það sem vænta mátti.

Vona bara að fólk vandi sig við að kjósa til stórnlagaþingsins og að þar verði frjó vinna sem miðar að því að koma upp vörnum gegn yfirgangi og afglöpum stjórnmálamanna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.11.2010 kl. 21:41

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Kristján; Ég er alltaf bjartsýnn til að byrja með.

Baldvin; Íslensk tunga er mergjað mál, en jafnvel hún dugði ekki til að hressa upp á steinrunnar klisjurnar sem frá þessum fundi bárust.

Jakobína; Þessar tilraunir með þjóðfundi boða ekki gott fyrir stjórnlagaþingið. Allt of mikið af flokkspólitísku þrasi og sérmerktum áherslum sem ég samt vona að smitist ekki inn í stjórnlagaþingið.

Svanur Gísli Þorkelsson, 6.11.2010 kl. 21:58

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

persónukjör... landið eitt kjördæmi og fleiri hef ég aldrei séð sem stefnumál hjá neinum flokki.

Sleggjan og Hvellurinn, 6.11.2010 kl. 22:01

6 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Stjórnarskrá fjallar að megni til um bönd á ríkisvaldi, finnið eitthvað um það?

Kristján Sigurður Kristjánsson, 6.11.2010 kl. 22:05

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hvar hefur þú alið manninn Þrumusleggjuhvellshamar?  Bæði samfylking og Vg tóku persónukjör upp á sína arma fyrir síðustu kosningar og reyndu meira aða segja að sjóða frumvarp um málið en klúðruðu því alveg. 

"Landið eitt kjördæmi" er gömul lumma og um miðjan mars 2010 var lagt fram stjórnarfrumvarp, með undirskrift 19 þingmanna, þess efnis að breyta ætti landinu í eitt kjördæmi. Flutningsmaður var Björgvin G. Sigurðsson

Svanur Gísli Þorkelsson, 6.11.2010 kl. 22:12

8 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Já.. og hvernig gekk að koma persónukjör í framkvæmnd???   NKL

Ef það á einhvertímann að ganga eftir þá verður það að fara í gegnum stjórnarskránna því  Alþingismennirnir eru ekki treystandi fyrri þessu.

Sleggjan og Hvellurinn, 6.11.2010 kl. 22:24

9 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Sæll Svanur

Get ekki verið meira ósammála.

Ég sat þennan Þóðfund og vissulega varmjög erfitt fyrir borðin (8 manna hópar) að taka saman í 20 orðum innihald 100 til 200 ábendinga.

Ég minni á að það á eftir að vinna úr öllum þeim ábendingum sem þessir 1000 fulltrúar þjóðarinnar komu með.

Það sem mér fannst merkilegast við að sitja þennan fund var hve margir voru með sömu ábendingarnar.

Það er alveg ljóst að þar eru ákveðin mál sem verður að betrumbæta.

Ég leifi mér að benda á pistil á blogginu mínu: Að afloknum Þjóðfundi.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 6.11.2010 kl. 22:28

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Saknaði sjálfbærs gagnsæis.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.11.2010 kl. 23:09

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Margt af þessu er á stefnuskrám og lofað í kosningum - en flokkarnir fylgja því ekki eftir, jafnvel þó þeir séu komnir í stjórn.

Þarna fæst staðfesting á því hvað þverskurður þjóðarinnar vill og flokkarnir sem hafa þetta að segja ættu því að hunskast til að fara eftir því og eigin markmiðum. 

Jóhanna Magnúsdóttir, 6.11.2010 kl. 23:21

12 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Síðastliðin 748 ár hefur ekki ein einasta hugmynd um mannréttindi atvinnuréttindi eða önnur réttindi fæðst í íslenskum heila orðið að lögum á Íslandi. Öllu slíku hefur verið þröngvað uppá íslendinga utanfrá með hótunum.

Hver á að hóta stjórnlagaþinginu?

Kristján Sigurður Kristjánsson, 6.11.2010 kl. 23:22

13 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Friðrik; Varðandi að margir hafi komið með sömu ábendingarnar finnst mér það ekki endilega bera vitni um samhug og samlyndi.

Mér finnst það líka "merkilegt" að allt þetta fólk á þjóðfundinum hafi verið að jarma sama stefið úr sápuóperu stjórnmálanna á Íslandi og að ekki hafi örlað á neinu skapandi eða frumlegu við öll 120 borðin.

Það getur vel verið að eitthvað leynist af viti í því sem eftir á að vinna úr, en ég geri mér ekki miklar vonir um það. - Kannski var þetta ein af þessum uppákomum sem sagt er um; "þú varst að vera þarna".

Ég las pistilinn þinn fyrr í kvöld og hann varð kveikjan að þessari færslu minni.

Svanur Gísli Þorkelsson, 6.11.2010 kl. 23:28

14 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Jóhanna. Þessir áherslupunktar eru innantómt gjamm í "þverskurð þjóðarinnar" því það dettur engum í hug að flokkarnir eða einhverjir aðrir hrindi þessu í framkvæmd. Staðfesting þessa er fylgi fólksins við stjórnmálaflokkanna í síðustu könnunum. Fólk hefur enn trú á þeirri vitleysu og getur ekki gert betur en að eta út úr lýðskrumurunum klisjurnar. - Að ætla sér með slíkt veganesti inn á stjórnlagaþing, lofar ekki góðu.

Svanur Gísli Þorkelsson, 6.11.2010 kl. 23:37

15 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Sæll Svanur

það fólk sem ég hitti á fundinum, það var allt búið að vinna sína heimavinnu. Ekkert af þessu fólk leit á þessa samkomu sem "þú varst að vera þarna" samkomu. Allir gerðu sér grein fyrir að það var hrein tilviljum að það var þarna en ekki einhver annar Íslendingur.

Vel má vera að þér finnist "þetta fólk á Þjófundinum hafi verið að jarma sama stefið úr sápuóperu stjórnmálanna á Íslandi og ekki hafi örlað á neinu skapandi eða frumlegu við öll 120 borðin" en þá vil ég benda þér á síðuna mína:

www.fridrik.info

Þær tillögur sem þar koma fram, þær lagði ég allar fram á þessum Þjóðfundi. Margt er hægt að segja um þessar tillögur en ég held að ekkert af þeim er hægt að flokka sem "stef úr sápuóperu stjórnmálanna á Íslandi". Þessar tilögur þóttu vissulega nýmæli en hljómuðu eigi að síður eins og fiðla sem fellur ljúfmannlega inn í þá stórhljómsveit sem ómaði á þessum Þjóðfundi.

Mitt mat er að vinna þessa Þjóðfundar eigi eftir að nýtast  væntanlegu Stjórnlagaþingi vel.

Síðasti Þjóðfundur um stjórnarskrána var haldinn 9. ágúst 1851.

"Danska stjórnin lagði þá fram frumvarp og ætluðu Danir að setja Íslendingum nýja stjórnskipun þar sem réttindi Íslendinga væru nær engin og lítið tillit tekið til óska þeirra. Þá lögðu hinir íslensku fulltrúar fram annað frumvarp að undirlagi Jóns Sigurðssonar. Konungsfulltrúanum líkaði ekki við frumvarp Jóns og ákvað hann að leysa fundinn upp í nafni konungs. Þegar fundinum var slitið mótmælti Jón Sigurðsson lögleysu fulltrúa Danakonungs en flestir fundarmenn risu úr sætum og mæltu flestir einum rómi „Vér mótmælum allir!“ og er það einn mikilvægasti atburður í baráttu Íslendinga fyrir sjálfstæði þjóðarinnar" (Wikipedia). 

Ég vænti þess ekki að þessi Þjóðfundur verði eins áhrifaríkur og sá síðasti en ég vænti þess að þessi þjóðfundur marki upphafið að nýrri stjórnarskrá, nýjum tímun og endurreisn þessa samfélags á nýjum og gömlum gildum.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 7.11.2010 kl. 00:00

16 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæll aftur Friðrik. Það sem þú og aðrir vonabíar fatta ekki er að þessi útfærsla á lýðræðinu, með flokkafyrirkomulaginu, stjórnarmyndun með minni og meirihluta, sem allar tillögur þínar byggja er svo úrelt að jafnvel þótt ásetningur á bak við margar tillögurnar séu góður, eru þær dæmdar til að mistakast.

Ég er viss um að þú ert ekki einu sinni meðvitaður um að eitthvað annað komi til greina, alla vega er merki um það hvergi að finna á þessari kosningasíðu þinni. -

 Grunngildin svo kölluðu, eins og tillögur þínar, miða við að engar breytingar verði á hugafari fólks eða viðhorfum þess til stjórnmála. - í því fellst vonleysi þeirra og hugmyndafræðilegt gjaldþrot fyrst og fremst.

Svanur Gísli Þorkelsson, 7.11.2010 kl. 00:19

17 identicon

Hrokagikkurin Friðrik er greinilega kominn í kosningabaráttu og tímabundið kominn í smjaðurgír.

Fundurinn var sulta með of mörgum bragðtegundum í sömu krukkunni.

Vandi okkar verður ekki leystur með yfirborðskenndum kresjum frá wannabe stjórnmálamönnum og besserwisserum eins og Friðrik Hansen.

Hér ríkir siðferðislegt stórvandamál og agaleysi í hugsun þjóðarinnar, það er okkar höfuðvandamá. YirborðskjaftæðiFriðriks hefur ekkert að segja fyrir þjóðina

Bestrewisser (IP-tala skráð) 7.11.2010 kl. 00:23

18 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Herrar mínir, ég tek mér hvíld frá frekari umræðum hér.

Takk annars fyrir áhugaverð skoðanaskipti hér fyrr í kvöld.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 7.11.2010 kl. 00:38

19 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Svanur - hvað vildir þú sjá - og hvaða fersku hugmyndir ert þú með um gildi o.s.frv.?

Jóhanna Magnúsdóttir, 7.11.2010 kl. 01:54

20 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Mér finnst nú svolítið merkilegt að eitt af grunngildunum af þjóðfundinum var JAFNRÉTTI samt lætur Friðrik Hansen eins og aðeins Herrar hafi verið að taka þátt í umræðum hér ..

Jóhanna Magnúsdóttir, 7.11.2010 kl. 02:11

21 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Jóhanna;

Ég tek það fyrst fram að ég geng enn um með sítt hár til að minna mig á ég er af hippakynslóðinni sem stóð fyrir eitthvað meira en egó og peninga. Þess vegna eru hugmyndir mínar ætíð sagðar of útópískar til að geta talist raunhæfar:) Hér kemur samt fátt eitt sem ég hef til málanna að leggja.

Grundvallarlega vill ég endurskilgreina "fulltrúalýðræðið" og eingöngu leyfa framboð einstaklinga til alþingis, aldrei flokka eða samtaka.

Stjórnskipanin á að sjálfsögðu að vera þrískipt.

Hvað hugmyndafræði "grunngilda" í stjórnarskrá snertir, gæti ég alveg sætt mig við ákvæði mannréttindasáttmála sameinuðu þjóðanna og mannréttindasáttmála Evrópu. Útfærsla þeirra og aðlögun á íslensku máli og umhverfi er ekki flókið mál.

Það sem er flókið er menntun þjóðarinnar um þýðingu gildanna og innræting komandi kynslóða til að viðhalda þeim. - Mikilægt er að kryfja til mergjar hvað þessi grunnhugtök þýða og hverjar birtingarmyndir þeirra ættu að vera í samfélaginu. -

Mikilvægt er að fólk hefji alla umfjöllun um auðlindaskiptingu, sjálfstæði og alþjóðasamstarf upp á svið meginreglna  réttlætis og jafnréttis (eiginlega óþekkt fyrirbæri í umræðu á Íslandi) og að í stað kappræða og þrefs verði stuðst við meginreglur samráðs þar sem málamiðlun eða pólitísk niðurstaða er ekki markmiðið, heldur það eitt að finna "sannleikann."

Svanur Gísli Þorkelsson, 7.11.2010 kl. 02:47

22 identicon

Tek undir með þér.´

Ég veit ekki alveg á hverju ég átti von. Ég átti þó alls ekki von á að sjá sömu niðurstöðu og þegar landsbankinn leitaði að grunngildum. Kemur ekki bara sama niðurstaða út úr þessari aðferð sama hver spurningin er?

Er svarið ekki: Heilindi, Heiðarleiki og Framsækni - eða einhver lítið breytt útgáfa.

Þessi framsetning á grunngildum getur ekki verið leiðsegjandi fyrir eitt eða neitt.

 Fínt að fá 1.000 manns í sama herbergi til að ræða þessi mál en þetta hefur enga þýðingu nema ef vera kynni að lýðurinn trúi á þetta og fá trú á restinni af veröldinni til skamms tíma í kjölfarið.

Árni (IP-tala skráð) 7.11.2010 kl. 02:58

23 identicon

Það sem kemur þarna fram finnst mér ákaflega gott og gilt.

Ég er hinsvegar alveg sammála því að mér finnst að það mætti ganga harðar fram í að uppræta flokkakerfið.

gummih (IP-tala skráð) 7.11.2010 kl. 08:41

24 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það hefur lengi verið ljóst að "ákveðinn hópur manna" hefur sýnt merki óróleika við tilteknar aðgerðir í átt til aukins lýðræðis og ónæðis í garð stjórnvalda.

Aðkoma Evu Joly í rannsóknarvinnu gekk afar nærri þessum hópi og sumir misstu stjórn á sér um stund eins og glöggt mátti sjá hér á blogginu. Þjóðfundurinn og stjórnlagaþing í kjölfarið er orðin staðreynd sem menn verða að láta yfir sig ganga þótt sárt sé.

Öllum sem mark er á takandi ber saman um að þjóðfundurinn hafi tekist með miklum ágætum. Ekki átti ég von á öðru.

Áfallahjálp stendur öllum til boða eins og við vitum. 

Árni Gunnarsson, 7.11.2010 kl. 22:57

25 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það er greinilega ekkert mark takandi á mér Árni. - En ef að til er einhver hópur sem er órólegur vegna aukins lýðræðis þarf hann ekkert að óttast ef fer sem horfir.

Svanur Gísli Þorkelsson, 7.11.2010 kl. 23:59

26 Smámynd: Helgi Már Bjarnason

Leiðari morgunblaðsins í dag var mjög góður um þennan "þjóðfund".   :)

kv, Helgi Már

Helgi Már Bjarnason, 8.11.2010 kl. 11:57

27 identicon

Þessi fundur er dæmigert runk.... rosa gaman fyrir þá sem eru að taka þátt en skiptir annars engu máli og hefur ekkert að segja fyrir þjóðina

Skellur (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband