Hin frábæra Stella K. Víðisdóttir

Nei, það hvetur ekki til sjálfshjálpar að þiggja eitthvað í poka að borða fyrir sjálfan sig og börnin sín. Það er nefnilega ekkert atvinnuleysi og fólk getur fengið nóg að gera og þannig keypt sinn mat sjálft. Það eru þessi aumingjaelskendur sem kalla sig hjálparsamtök skemma allt og koma í veg fyrir að þetta pakk fái sér vinnu.

Að auki láta þau borgaryfirvöld líta illa út. Bara af því að borgaryfirvöld gera ekkert í þessum málum þýðir ekki að þau viti ekki um þurftalingana. Nei, ástæðan fyrir því að yfirvöld bregðast ekki við fátæktinni, er að þau vilja það ekki. Þannig er þetta í pottinn búið og það veit Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.


mbl.is Deila á matargjafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er algerlega ljóst að yfirvöld vilja hafa þetta svona, yfirvöld vilja að fátækir húki úti í kulda og trekk.
Annars væri löngu búið að gera eitthvað,.

DoctorE (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 07:42

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Ætla að umrædd Stella óskaði sér ekki að hún væri bara í orlofi núna

Frekar óheppileg ummæli - svo ekki sé meira sagt. 

Jóhanna Magnúsdóttir, 5.11.2010 kl. 08:14

3 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Alveg dæmalaust að láta svona út úr sér.

Þórhildur Daðadóttir, 5.11.2010 kl. 08:54

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Rán og gripdeildir eru alltafvænlegur kostur til sjálfshjálpar ef annað er ekki að hafa.  Stella hefur örugglega þann nýsköpunarkost í huga. 

Kannski við ættum að leysa hana frá störfum, svo hún geti sýnt okkur nokkur trix.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.11.2010 kl. 11:43

5 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mig" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

J.S. (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband