Grefill fær lánaða bloggsíðu á blog.is

Áfram heldur bloggsápan um þá Kristinn Th. og Grefil. Margir munu telja þessa uppákomu storm í vatnsglasi en fyrir þeim Kristni og Grefli er þetta mikið alvörumál. Nokkrir bloggarar, þar á meðal ég, hafa fjallað um málið og hafa þeir félagar verið duglegir við að hnýta í hvern annan í löngum athugasemdahölum.

Um hríð virtist sem sættir væru að nást, en þær fóru út um þúfur. Nú hefst væntanlega nýr kafli því það nýjasta í söguþræðinum sem hófst með illa skipulögðum og enn ver útfærðum kappræðum á síðu Kristins, er að Grefill hefur fengið að láni vefsíðu og kennitölu félaga síns Kristjáns Sigurjónssonar og bloggar nú þar undir heitinu Grefillinn sjálfur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Ég tel þetta nú ekki nokkurt alvörumál nema að því leytinu til að svakalegar yfirlýsingar Guðbergs um mig eru einfaldlega ólíðandi, og hann endurtekur þær í sífellu og birtir á fésbókinni að auki. Þetta er náttúrulega ekkert venjulegt einelti hjá karlinum.

Skondið líka að menn séu að taka passífa afstöðu til málsins þegar ljóst má vera að næsta fáir myndu sætta sig við útreið af þessu tagi á svo víðlesnum miðli.

Mannorðsmorðingi, siðleysingi, ofbeldismaður, lygari og falsari - ásamt fullu nafni endurbirt þangað til yfir líður. Algjörlega óásættanleg hegðun.

Ég er annars að velta þessum farsa fyrir mér sjálfur í löngu máli hér: Ólgusjór

Kristinn Theódórsson, 2.8.2010 kl. 23:06

2 Smámynd: Grefillinn Sjálfur

Kristinn:

Um leið og þú sveikst samkomulag okkar varðandi rökræðuna, þröngvaðir mér út úr henni með aðstoð félaga þinna, falsaðir hana síðan aftur í tímann til að láta líta svo út fyrir að ég hefði bara hætt upp á eigin spýtur, fórst svo að bjóða mönnum að skoða "bara sjálfir" að enginn hafði þröngvað mér út úr umræðunni og lokaðir síðan á mig til að þagga niður í mér ...

ÞÁ breyttist málið í "óásættanlega hegðun".

Grefillinn Sjálfur, 2.8.2010 kl. 23:46

3 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Rétta og sanna lýsingu á þessu ferli er að finna í lok greinar minnar hér; Ólgusjór

Kristinn Theódórsson, 2.8.2010 kl. 23:51

4 Smámynd: Grefillinn Sjálfur

"Greining Brynjólfs" er lygi og skrumskæling frá upphafi til enda. Ég mun reka allt sem hann segir þarna beinustu leið aftur ofan í saurpokann hans.

Grefillinn Sjálfur, 2.8.2010 kl. 23:56

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Klón eru ekki vel liðin hjá Mbl. hvað þá ef um er að ræða klónuð tröll.  Það breytir engu.  Mér finnst grefillinn löngu kominn út fyrir allt velsæmi í orðbragði og brígslum ef það er rétt, sem hér er haft eftir honum.

Tilgangur trölla er að egna til ófriðar og uppnáms á bloggum m.a. til að eyðileggja þau.  Ekki bara blogg Kristins helur snertir það trúverðugleika og vinsældir Blog.is beint.  

Kannski er hann bara svona Davíðshatari, sem sér þarna lag til að skaða blog.is. Ég er allavega farinn að hallast að þeirri tröllastrategíu.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.8.2010 kl. 00:38

6 Smámynd: Grefillinn Sjálfur

Ég er ekki að gera neitt annað en að verja mig Jón Steinar fyrir stanslausum árásum Kristins og félaga. Allt þetta tal ykkar um tröll er mér óviðkomandi og algjörlega út í hött að mínu mati.

Grefillinn Sjálfur, 3.8.2010 kl. 00:43

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sá vægir sem vitið hefur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2010 kl. 00:44

8 Smámynd: Dingli

Fylgdist lengi vel með þessu, en nenni því ekki lengur. Nær strax og umræðan hófst á bloggi Hrannars, fannst mér grefill verða ómálefnalegur sakandi þá sem ekki aðhylltust trúarbrögðum um að vera siðlausa og vísa til illvirkja.

Margar góðar og málefnalegar ath. voru gerðar, en grefill og Hrannar reyndar líka, voru alltaf við sama heygarðshornið.  Þegar Grefill svo sakaði alla um að vera ómálefnalega og með skítkast fór hann fram á að hann og Kristinn ræddu málið einir sem Kristinn samþykki, þó mér fannst með hálfum hug. Fljótlega varð þessi einka-rökræða að tómu rugli þar sem Grefill ansaði ekki rökum, en fór þess í stað að skammast yfir því hvernig Kristinn stjórnaði eigin blogg-síðu.

Þegar Kristinn nennti svo ekki þessari þvælu lengur virðist mér Grefill hafa gjörsamlega hrokkið upp af standinum, sem hann var svo sem kominn langt uppeftir áður.

Finnst ekki gott að taka afstöðu í þessum leiðindum, þar sem mér hefur fundist Grefillinn vera skemmtilegur og skynsamur bloggari, en um leið og trúmála umræðan hófst, var sem skrattinn hefði hlaupið í hann og sitji þar sem fastast.

Að lokum vil ég skora á Grefill að hætta nú vitleysunni og skemma ekki fyrir sér yndislegt sumar með því að velta sér upp úr froðu sem engu máli skiptir í lífinu.

Dingli, 3.8.2010 kl. 06:56

9 Smámynd: Grefillinn Sjálfur

Dingli, ég veit ekki í hvaða heimi þú varst þegar þú fylgdist með þessu en eitthvað hefur sjónarhorn þitt verið undarlegt.

Þeir sem vilja skoða málið eins og það gerðist:

1. Hér er aðdragandinn að því að við Kristinn fórum í umræðuna.

2. Hér er umræðan sjálf.

Skoðið þetta sjálf í stað þess að taka mark á orðum einhvers eins og Dinglis. Þarna sést nákvæmlega hvað gerðist í raun og veru, orðrétt frá a til ö.

Grefillinn Sjálfur, 3.8.2010 kl. 07:11

10 identicon

Ég get ekki annað en hlegið að þessu öllu saman... sérstaklega í ljósi þess að ég sagði þetta enda svona :)

Enjoy your day

doctore (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 09:17

11 Smámynd: Dingli

gerfill, þetta er alveg makalaust!

Skoða það sjálf, að strax í þriðja innleggi ertu farin úr boðaðri umræðu út í illdeilur um keisarans skegg.

Mun af forvitni sennilega kíkja á framhald þessa, en ætla ekki að sóa tíma mínum meir við að skipta mér að.

Hafðu það bara sem best.

Dingli, 3.8.2010 kl. 13:56

12 Smámynd: Grefillinn Sjálfur

Sömuleiðis.

Grefillinn Sjálfur, 3.8.2010 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband