Verða átökin um Icesave "Falklandseyjastríðið" hans Gordon Brown.

SNN1512TOON-682_616421aAllir sem þekkja forsögu málsins vita að Ögmundur Jónasson sagði sannleikann hvað varðaði að Bretar og Hollendingar notuðu öll tiltæk pólitísk vopn til að fá íslenska ríkið til að endurgreiða Icesave innlánin. - En hvað væri betra fyrir Gordon Brown annað en að Íslendingar greiddu möglunarlaust. Er mögulegt að það væri hugsanlega betra fyrir Gordon Brown pólitískt séð, að þeir greiddu ekki.

Þeir sem þekkja til pólitíkurinnar á Bretlandi, vita að Gordon Brown hefur staðið höllum fæti, bæði innan flokks síns og hvað snertir almenningsálitið.

Margir trúa því að hann geti ekki unnið kosningarnar sem framundan eru á vordögum á næsta ári. Það sem Brown heldur á lofti umfram annað, er að engin geti sigrast á kreppunni annar en hann. Við hvert tækifæri sem hann fær slær hann því um sig að hann einn hafi brugðist við, hann einn viti hvað sé í gangi, hann einn viti hvernig á að leiða þjóðina aftur á braut hagvaxtar o.s.f.r. -

Fram að þessu hefur flest það sem hann hefur gert ekki orðið honum að afgerandi vopni. - En á meðan hann getur haldið áfram að þylja þessa frasa sína, eygir hann von. - Það sem Brown sárlega vantar er auðsætt dæmi um að hann sé sannur foringi sem tekur af skarið og sem lætur engan ógna hagsmunum Bretlands.

margaretÍ ræðu sinni á nýafstöðnu flokksþingi minntist hann á Icesave og hverning hann hefði bjargað fjölda breskra þegna frá beinu fjárhagslegu tjóni með að greiða innlánurum strax það sem þeir áttu inni hjá sjóðnum.

En það sem Brown vantar umfram allt er afgerandi dæmi,  annað Falklandseyjastríð, líkt og bjargaði frú Thatcher fyrir horn á sínum tíma,  en að þessu sinni þarf það að vera "efnahagslegt".

Allar yfirlýsingar Íslendinga um að þeir ætli hugsanlega ekki að borga þessa milljarða sem breska ríkið greiddi á sínum tíma til innlánara Icesave og að þeir ætli ekki að standa við gerða samninga, er vatn á millu Gordons Browns.

Líklegt er að deilan muni harðna og þeir fyrirvarar sem íslenska þingið setti á samningana verði áfram hafnað af Bretum. Það hentar Brown ágætlega. Ekki mun hjálpa að skipta um stjórn á Íslandi. Hann mun benda á að ekkert sé að marka íslensku ríkisstjórnina, hvernig sem hún er skipuð. Óeining stjórnmálaaflanna á Íslandi hjálpa til að réttlæta orð hans.

Allir sem komið hafa nálægt þessum samningi hafa lofað að borga en svo gerir það enginn þegar á hólminn er komið. Við hvern á nú að semja?

Og á réttum tíma mun Brown fá það sem hann þarfnast mest, áhættulítið efnahagsstríð við smáþjóð sem hann getur auðveldlega unnið og mun styrkja ímynd hans sem hins sterka leiðtoga. Slík átökmundu sameina þjóðina að baki honum og  skjóta flokknum hans aftur upp fyrir Íhaldsflokkinn. Fyrir það mun Ísland blæða því það þýðir hertari efnahagsþvinganir uns þjóðin verður knésett. 


mbl.is Segir Breta og Hollendinga fjárkúga Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: A.L.F

jahh kannski, ég hallast að því að brown lifi ekki fram að kosningum.

A.L.F, 3.10.2009 kl. 01:27

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Falklandseyjastríðið snérist um átján rollur og áttatíu íbúa á útnára við Suðurskaut.   Bæði Bretar og Argentínar gerðu sig að fíflum -en kostuðu þó til þúsundum mannslífa.

Og það er alveg rétt að Margaret Thatcher vann hérumbil tapaðar kosningar á þessu stríði.  Hins vegar var svo Suður- Amerísk herforingjastjórn í kreppu.  Báðir aðilar þurftu að dreifa athyglinni fra vandræðum heima.

Carrington lávarður var látinn segja af sér sem utanríkisráðherra til málamynda, fyrir að hafa ekki séð yfirtöku Argentínumanna á eyjunum fyrir.  Fékk svo formennsku NATO í sárabætur.

Maldivas/Falklandseyjastríðið var líka athyglisvert fyrir þær sakir að þarna var í fyrsta skipti í áratugi, viðhaft fréttabann meðan á því stóð.   Enda nokkuð auðvelt miðað við aðstæður.   Gerðist síðan næst í Flóabardaga fyrri.  Tókst ekki í seinni.

Það var ekki fyrr en eftir að öllu var lokið, að í ljós kom að báðir aðilar höfðu framið skelfilega stríðsglæpi; myrt fanga að óþörfu osfrv.

Að ekki sé talað um þegar verið var að sökkva gríðarstórum herskipum á báða bóga með mönnum og músum.  "GOTCHA" eins og Sun orðaði það.

Þegar fram líða stundir er líklegt að Falklandseyjastríðið þyki eitt það fáránlegasta sem háð hefur verið.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 3.10.2009 kl. 01:30

3 identicon

Já....þetta er ein sýn á málið, vissulega inni í myndinni en mér þykir hún samt satt að segja dálítið langsótt. Held það kæmi honum verr að við bærum hönd fyrir höfuð okkar og segðum stopp, hingað og ekki lengra. Það er tími til kominn að hætta þessu bulli, þó fyrr hefði verið. Segjum bless við Gordon, ESB og AGS og byrjum að takast sjálf á við vandann. Við eigum að berjast, en ekki að taka við vandarhöggum sem kúguð þjóð, þegjandi og hljóðalaust.

assa (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 02:26

4 Smámynd: Sveinn Þór Hrafnsson

Sorry krakkar

En Gordon Brown er bara henda riki í augu almennngs. Tony Blair stendur sem fyrsti forseti Evrópu sambandsins þegar Lissabon sáttmálinn er komin í höfn. Og það gæti ské á morgun..

Sveinn Þór Hrafnsson, 3.10.2009 kl. 02:29

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

En hvað segiru Svanur ! Ertu virkilega að reyna að segja okku að það sé ekki  möguleiki að útskýra fyrir bretum hvernig tilurð Icesavedeilurnar varð með góðu og benda þeim kurteislega á að t.d hin siðlausu Hryðjuverkalög eru einhver svívirðilegasta valdbeiting sem hefur átt sér stað í nútímasögunni sem olli t.d því að Kaupþing fór á hliðina og að ísland lenti í gríðarlegum vandræðum vegna þeirra. Er ekki hægt að benda þeim t.d á að íslendingar séu alveg viljugir til að borga upp skuldir fjármálaóreiðumanna með því t.d ð afhenda þeim eignir í bretlandi en málið snúist ekki um það.. heldur þessa vexti sem við þurfum að borga af lánum sem þýðir væntanlega að við verðum seint og illa búin að ná okkur úr kreppunni og vegna ævintýraviðskipta 30 manna sem telst seint vera hnotskurn af íslensku þjóðinni. Í raun snýst deilan ekki um neitt annað en að fáum sanngjarna meðferð af hálfu þeirra yfirvalda og að réttu aðilarnir sitji í súbunni sem eru og verða útrásarvíkinarnir.


Mér finnst þetta furðulegast að við getum ekki útskýrt þetta sjónamið fyrir umheiminum en þess í stað neiðumst við til að borga þessar skuldir því að alþjóðasamfélagið er búið að þvinga okkur til þess. 

Brynjar Jóhannsson, 3.10.2009 kl. 02:53

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæl assa. Það sem stjórnvöld á Íslandi hafa aldrei fengist til að gera er að gefa þjóðinni nákvæmt yfirlit yfir hvað mundi gerast ef við "segjum bless" við ESB og AGS, Brown og Hollendinga. Af hverju skyldi það vera? Ég held að þeir viti það og af því stafar ótti ríkisstjórnarinnar að allt fari í vaskinn með samninganna. - Hvað mun atvinnulífið á Íslandi þola mikla einangrun og fyrirgreiðsluleysi. -

Nú hefur Icesave orðið að pólitísku bitbeini hér heima sem allir hafa reynt að nota sér til framdráttar eða til að koma höggi á andstæðingana. - Hvers vegna ætti það ekki að vera notað í pólitískum tilgangi af Bretum, af Gordon Brown? Mér finnst það ekki of langsótt.

Svanur Gísli Þorkelsson, 3.10.2009 kl. 02:56

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Brynjar; Ég get bara bent þér á að saga Breta gagnvart þjóðum, litlum sem stórum, er saga pólitískrar misbeitingar heima fyrir. Í löndunum sjálfum hafa þeir mergsogið þjóðirnar og aldrei litið til baka.

Hvers vegna ætti Gordon ekki að nota sér þessa átillu til að takast á við Ísland ef hann heldur að Bretar mundu kjósa hann út á það? - Brown hefur engan áhuga á réttlæti eða réttsýni, hann hefur áhuga á að vera áfram við völd Í Bretlandi. -

Hryðjuverkalögin voru beint svar til Davíðs Oddsonar sem sagði að Íslendingar ætluðu ekki að borga. Um leið og Geir sagðist mundu Borga, var lögunum aflétt en engin raunveruleg fyrirgreiðsla fékkst.

Svona hefur þetta verið frá upphafi. Bretar hafa öll tögl og haldir í málinu og ráða því hvernig umheimurinn sér það. Jafnvel Norðurlanda-þjóðirnar, frændur vorir , þora ekki að láta í sér heyra.

Svanur Gísli Þorkelsson, 3.10.2009 kl. 03:10

8 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sveinn; Eins og Hildur skrifar snérist Falklandseyjastríðið gagnvart umheiminum um átján rollur og áttatíu íbúa. Raunverulega snérist það um pólitíska framtíð Thatchers. Icesave getur hæglega orðið að milliríkjadeilu sem endar með pólitískum GRAND STANDING á báða bóga.

Svanur Gísli Þorkelsson, 3.10.2009 kl. 03:16

9 identicon

Við gætum kanski fengið Cleese til þess að flyja Bretland og leggja peningana sína í Íslenskan banka.

http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/10/03/cleese_verdur_ad_vinna/?ref=fpverold

Ingó (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 08:58

10 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Aðferðafræði Svans virðist mér vera lymskuleg. Ég get ekki betur séð en hann sé fylgjandi greiðslu Icesave-reikninganna, en hafi ekki hugrekki til að segja það berum orðum. Hann sækir rök sín til Bretskra stjórnmála og býr til hugsanlega en ólíklega atburðarás. Lokaorð Svans eru:

 

Og á réttum tíma mun Brown fá það sem hann þarfnast mest, áhættulítið efnahagsstríð við smáþjóð sem hann getur auðveldlega unnið og mun styrkja ímynd hans sem hins sterka leiðtoga. Slík átök mundu sameina þjóðina að baki honum og  skjóta flokknum hans aftur upp fyrir Íhaldsflokkinn. Fyrir það mun Ísland blæða því það þýðir hertari efnahagsþvinganir uns þjóðin verður knésett.

 Lesendum er ætlað að komast að þeirri niðurstöðu, að okkar bezti kostur sé að samþykkja Icesave-kröfurnar umyrðalaust, svo að þjóðin verði ekki knésett með hertari efnahagsþingunum. Ég man ekki eftir að hafa séð ESB-sinna halda svona lymskulega á málum. Í minni sveit, væri þetta nefnt óheiðarleiki.

Loftur Altice Þorsteinsson, 3.10.2009 kl. 11:48

11 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Loftur Altice.  Hér eru aðeins reifur þekkt afstaða og kunnar skoðanir stjórnmálamanna, breskra sem íslenskra og möguleg framvinda mála út frá þeim. Hún skoðar málin út frá sjónarmiðum breskrar pólitíkur, en ekki aðeins út frá þeirri íslensku eins og algengast er í umræðunni.  

En ég sé að þú lítur á þig sem rétttrúnaðarlöggu sem mátt ekki einu sinni heyra á annað minnst en sama staglið og þú ert sjálfur orðinn kunnur af. Og viðbrögð þín eru líka þekkt,  þegar þér þrýtur rök og þekkingu í umræðunni, þ.e.  nákvæmlega þau sem þú grípur strax til hér, sem er að brigsla þeim sem þú ert ekki sammála um óheiðarleika og lymsku.

Svanur Gísli Þorkelsson, 3.10.2009 kl. 12:32

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Í samb. við Falklandseyjarstríðið, þá er umhugsunarvert að á þeim tíma voru efnahagsvandamál í landinu og almennur órói gegn hernaðarelítunni og framferði þeirra, mannréttinfabrotum o.þ.h.   Þarna fundu þeir leið til að þjappa þjóðinni saman og stuttu fyrir átökin urðu umskipti á toppi argentískra stjórnvalda og til valda komust menn sem að höfðu löngum lýst yfir að Argentína ætti að taka eyjarnar - og UK mundi aldrei bregðast við.

Eg man líka eftir umræðu á sínum tíma að agentínumenn töldu að USA myndi styðja þá allavega óbeint - en það reyndist misskilningur. 

Nu, miðað við þetta og ef yfirfært yrði hingað - þá gæti nálgast þá stund hér að þeir sem vilja lengst ganga og hafna algjörlega alþjóðlegum skuldindingum Íslands o.s.frv. - þeir gætu vel komist til valda hér bráðlega.  

Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.10.2009 kl. 14:12

13 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps. þ.e. að í umræðunni var að ef USA myndi styðja UK gegn Argentínsku stjórninni - þá myndi það veikja USA gegn eilífri baráttu þeirra gegn Kommúnisma í S-Ameríku (sem mjög var í umræðu á þeim árum.  Nokkurskonar Alkaída nútímans)

Þessvegna reyndi USA stjórn í fyrstu að halda hlutleysi útávið og Reagan sagði ma. eins og frægt varð að hann skyldi ekki hvers vegna þjóðirnar væru að deila um: "that little ice-cold bunch of land down there".

En allt er þetta mál náttúrulega flókið.  Margar hliðar ef djúpt er kafað.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.10.2009 kl. 14:24

14 Smámynd: Oddur Ólafsson

BB, Simmi og Ömmi eru allir að hjálpa Gordon Brown.

Oddur Ólafsson, 3.10.2009 kl. 15:05

15 Smámynd: Finnur Bárðarson

Áhugaverður pistill. Annars leiðast mér frekar þessir yfirkennarastælar Lofts.

Finnur Bárðarson, 3.10.2009 kl. 16:25

16 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þegar Simmi, Baddi og Ömmi hafa tekið hérna við stjónartaumum þá verður Loftur gerður að Yfirhershöfðingja. 

Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.10.2009 kl. 17:53

17 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Nú verð ég að grípa inn í umræðuna. Ég afþakka hér með formlega stöðu Yfirhershöfðingja.

Loftur Altice Þorsteinsson, 3.10.2009 kl. 18:10

18 identicon

Held að Loftur Altice sé með hárnákvæma og rétta greiningu á málinu. Það sem meira er, við íslenska skítapakkið erum allavega með gjörtapaða stöðu í málinu. Ekki bara hvað varðar Icesave, fiskimiðin eru töpuð líka. Voru það reyndar kannski fyrir.

Admiral Brown (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband