Er þetta annars ekki allt í gríni?

Harmleikurinn með grínið í Keflavík heldur áfram og nú birtist enn ein frétt um málið. Sævar Sævarsson grínisti og einn höfunda grínsins sem særði Hannes Friðriksson svo alvarlega að hann telur sér ekki vært lengur í bæjarfélaginu, er afar miður sín yfir því að Hannesi hafi sárnað grínið sem ekki átti að særa neinn.

Allt þetta grín er sem sagt nú orðið svo háalvarlegt að fréttveitur landsins keppast við að flytja af því fréttir og dramatíkin í gríninu er mikil. Þetta er að auki besta auglýsing sem grín-annálinn annálaði gat fengið. Nú vita allir hvað Keflvíkingum finnst hlægilegt eftir að hafa séð annálinn sem aðeins var saminn fyrir nokkra innvígða í Keflvíkinga og er fullur af innhúsbröndurum sem engir skilja nema þeir. 

Sævar segir að það hafi reyndar verið svo djúpt á skopinu að það þurfti "aðeins að vinna með það"  til að fatta það. Það þýðir líklega að í gríninu hafi verið dulið skop sem ekki var á allra færi að meðtaka strax og og þess vegna hafi verið mögulegt að ger þau mistök að taka því í fullri alvöru. Þetta á sérstakalega við ef grínfattarinn er svo langur hjá fólki að hann nær alla leið til Sandgerðis. Þá er einnig mögulegt að í gríninu hafi verið dulin alvarleg skilaboð, sett fram í yfirskini gríns. - Þannig skildi Hannes allavega grínið og sárnaði mikið.


mbl.is Annáll átti að vera saklaust grín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sagt hefur það verið

um Suðurnesjamenn

Að fast þeir sóttu showin 

og sárnast víst enn

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2014 kl. 07:17

2 identicon

Þegar maður skoðar málið í heild sinni þá virðist þetta saklausa grín eins og kalla má þegar það eitt og sér er skoðað verið það sem fyllti mælirinn hjá Hannesi Friðriksyni.

Tilvitnun úr frétt hér fyrir neðan á visir.is 21. janúar 2014

 „Hvernig á að vera hægt að byggja upp samfélag ef allir eru teknir fyrir eins og gert hefur verið við mig?“ spyr Hannes Friðriksson, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. Hann hefur ákveðið að flytja úr bænum eftir að orðið fyrir pólitískum árásum; nú síðast í annáli á þorrablóti Íþróttabandalags Keflavíkur. Þar var Hannes málaður sem annar af neikvæðustu mönnum Reykjanesbæjar. Hannesi þótti grínið lélegt og skilur ekki tilganginn með því. Þetta sé kornið sem fylli mælinn.

Hannes var sjálfur ekki staddur á Þorrablótinu sem  fór fram á laugardagskvöld. „Ég var ekki búinn að horfa á þetta fyrr en fólkið í kringum fór að segja mér frá þessu í gær. Öllum sem við mig töluðu þótti þetta lágkúrulegt grín. Ég get alveg tekið þessum hlutum, en fjölskyldan mín verður eiginlega verst fyrir þessu,“ útskýrir Hannes.

Löng barátta
Hann segir söguna á bakvið þessa baráttu langa. „Þetta mál teygir anga sína langt aftur í tímann. Ég er úr Kópavogi og flutti í Reykjanesbæ fyrir sjö árum síðan, konan mín er héðan. Ég hef aldrei verið pólitískur en ákvað að reyna að hafa áhrif á nærsamfélagið og gekk í Sjálfstæðisflokkinn.  Þegar barist var um málefni Hitaveitunnar var ég ósammála ráðamönnum í flokknum. Ég safnaði undirskriftum gegn ákvörðunum meirihlutans og fékk hótanir frá samflokksmönnum. Að ef ég myndi stíga á móti þeim þá væri ég að stökkva yfir læk sem ég gæti dottið í og þá væri enginn til að hjálpa mér upp,“ rifjar hann upp.

Þegar þarna var komið ætlaði Hannes sér að hætta afskiptum af stjórnmálum. „Ég hrökklaðist úr Sjálfstæðisflokknum og ætlaði að hætta afskiptum af stjórnmálum. En svo komu ýmis mál sem ég reyndi að hafa áhrif á og lét í mér heyra. Þá fann ég fyrir mikilli andúð í minn garð. Það sem mér hefur þótt verst er þegar ég hef verið einhversstaðar í bænum ásamt konunni minni, þá hefur líka verið horft á hana eins og hún sé holdsveik, eins og gert hefur verið við mig. Mér þykir það sárt,“ segir hann.

Honum þykir tímasetningin á þessu gríni afar leiðinleg. „Ég var búinn að ákveða að hætta afskiptum af stjórnmálum að fullu eftir þetta kjörtímabil og var búinn að kynna þá ákvörðun fyrir mínum nánustu.  Ég átti von á því að þeir væru hættir að hakka á mér endalaust,“ segir Hannes.

Baldvin Nielsen

B.N. (IP-tala skráð) 22.1.2014 kl. 08:47

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

"Gagn og Gaman", siðaðra nútíma-hámenningar-siðaðra-RAMMA-ÁÆTLAÐRA, á framfærslu hins fátæka og raunverulega og samviskulega fjölfróða?

Há-menning er víst skilgreind á Wíkipedíu, og einhverskonar mannamáli siðmenningarinnar.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.1.2014 kl. 17:18

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

...á einhverskonar mannamáli siðmenningarinnar...

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.1.2014 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband