C-3PO ♫♫♪♫

C3POAugljóst er að stór hluti bloggara skilur ekki Jón Gnarr. Líka er augljóst að meirihluti þeirra sem ekki skilja Jón Gnarr eru í "gamla Sjálfstæðisflokknum" og halda að allt sé eins og áður var.

Þeir skilja ekki að þegar þeir kalla Jón Gnarr "trúð" er það mikið hól fyrir Jón Gnarr og allir fylgjendur Jóns klappa saman hreifunum fyrir því.

Þegar Jón hagar sér eins og hann viti ekki neitt um pólitík, finnst gamla flokks meðlimunum það vera hneisa. Jón telur sér það hins vegar til tekna og þeir sem kusu hann segja sjúkk, sem betur fer.

Með öðrum orðum, "gamli Sjálfstæðisflokkurinn" skilur ekki geimverumálið hans Jóns.

Ég ráðlegg þeim öllum að festa sem fyrst kaup á einum C-3PO vélmenni sem skilur öll mál alheimsins, stilla hann á "íslensk pólitík í dag", og láta hann þýða það sem haft er eftir Jóni Gnarr.

Megi mátturinn vera með yður.


mbl.is Geimvera í íslenskum stjórnmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Ég geri ráð fyrir að C-3PO mundi bræða úr sér á mettíma ef hann ætti að koma fyrirbærinu "íslensk pólitík" yfir á eitthvert vitrænt format. Meira að segja Babelfiskurinn mundi sennilega frekar velja djúpsteikingarpott en það verkefni.

Hins vegar þarf ekki nema meðal treggáfaðan undirritaðan úthverfabúa til að skilja hvað Gnarrinn er að tala um.

Það sem ég held að flestir flaski á þegar þeir hlust á hann, er að ósjálfrátt gera menn ráð fyrir, stöðu hans vegna, að hann tali "pólitíkísku" - og fatta ekki að þetta er bara einfalt mannamál...

Haraldur Rafn Ingvason, 8.11.2010 kl. 23:58

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Já,já svo verða menn leiðir á því.taka upp gamla lagið.

Helga Kristjánsdóttir, 9.11.2010 kl. 00:51

3 Smámynd: Jónas Magnússon

Þeir hafa ekki húmor fyrir Jóni Gnarr en hafa því meiri húmor fyrir pólitíkusum sem koma okkur sisona í,tja eigum við að segja um 250milljarða skuldir. Dýrt spaug það.

Jónas Magnússon, 9.11.2010 kl. 00:56

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það tekur Gnarrin áratug að hreinsa upp sorann sem fyrrernar hans í borgarstjórn bjuggu til!

Sigurður Haraldsson, 9.11.2010 kl. 01:08

5 identicon

Ég tók gleði mína á ný að sjá smá töggur í Jóni. Ég kaus ekki Davíð B. Ekkert!!! Ég kaus alvöru mann sem þorir að ganga í verkin og hrista ærlega upp í hlutunum! Jón virðist hafa endurheimt þennan neistann.

Gallinn við Jón er að hann fattar ekki alveg hvað hann er stór. Hann hefur charisma á við Adolf Hitler, en innræti eins og Olaf Palme. En það verður til einskis ef maður kastar slíkum gjöfum fyrir Samfylkingarhunda og lætur þá stela af sér dýrðinni.....Já, Jón tekur strætó eins og Palme og allt! Það eina sem getur orðið nógu mikið "turn off" til að hann missi þann sjarma sem hann hefur í augum fólksins er þetta daður hans við smáborgara eins og Dag Ekkert.

Og þó ég taki undir orð Jóns um Sjálfstæðisflokkinn, þá verð ég að vara hann við einu. Enginn er stærri en óvinur sinn. Jón er of stór og mikill til að berjast við drauga. Það mun smækka Jón og gera að engu að berjast við svona lítinn draug eins og Sjálfstæðisflokkinn.

 Veldu þér stærri óvini, Jón! Á alheimsmælikvarða! Verðuga óvini fyrir stóran mann. Ekki afturgöngur. Ekki láta gínurnar í Samsullinu draga þig niður á sitt level og eiga óvini af þeirra stærðargráðu.

Þú ert stór og mikill. Þú hefur tækifæri til að GERBREYTA landinu þínu. Fáðu ráð hjá ALVÖRU "sérfræðingum", "galdraköllunum" á bak við tjöldin. Hættu að hlusta strengjabrúður ;)

Það kaus enginn "sérfræðingana". Og það kaus enginn bara Jón Gnarr. Fólkið kaus byltinguna sem Jón getur komið til leiðar, ef hann sannfærist um eigið ágæti.

Karl (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 03:14

6 identicon

Allir elska alvöru Jón, en enginn þolir gerfi Jón, skuggan af sjálfum sér sem skuggaverurnar í Samfó eru að reyna að breyta honum í.

BB (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 04:49

7 identicon

Sá sem ætlar að vera samfó samfó kemst aldrei á leiðarenda...Dragbítarnir töpuðu kosningunum.

BB (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 04:51

8 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Jón Gnarr hefur sýnt og sannað að hver sem er getur tæknilega verið borgarstjóri. Til þess þarf enga sérstaka hæfileika. Það er sárt fyrir alvörugefna atvinnupólitíkusa að horfa upp á.  Nú er ég ekki að segja að Gnarr sé hæfileikalaus, síður en svo, honum er margt til lista lagt.

Meðal annars er hann frábær spéspegill fyrir samferðafólk sitt. Þeir sem líta í hann og búast við að sjá óbrenglaða mynd, verða stöðugt fyrir vonbrigðum.

Svanur Gísli Þorkelsson, 9.11.2010 kl. 10:12

9 identicon

Jón kom með nokkra ágætis punkta í kastljósi; Sem er meira en nokkur annar íslenskur stjórnmálamaður hefur gert.
Maður fór alveg skalann, alveg frá OMG upp í hlátursköst :)

doctore (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 11:07

10 identicon

Out with the old and in with the new! Lifi pönkið! Og Súrreal Anarkismi! Niður með ESB! Áfram Norður Atlandshafsbandalagið! Lifi Jón Gnarr!

Bestur (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 12:44

11 identicon

Það sem vitleysingar eins og "Svanur" skilja ekki er að "alvörugefnir atvinnupólítíkusar" komu landinu í skítinn!!! Það þarf menn hafna yfir skilgreiningar og merkimiða til að hífa okkur þaðan upp! Jón Gnarr er snillingur! Snillingar eru ekki framleiddir á færiböndum eins og "atvinnupólítíkusarnir!" Ef allir væru eins og Svanur hefði meðalmennskan alltaf vinninginn.

Ja (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 12:46

12 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Heyrðu mig Ja, þú kannt að skrifa en ertu læs?

Svanur Gísli Þorkelsson, 9.11.2010 kl. 12:51

13 identicon

Ég vil fá Dabba aftur í borgina!

Gamli Sjálfstæðisflokkurinn (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 18:34

14 identicon

Geimverur eru sexý!!!

Geimvera (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 16:06

15 Smámynd: Björn Birgisson

Svanur, ég þakka boðið, en bloggvini vil ég enga eiga. Kýsa að standa hér einn.

Björn Birgisson, 11.11.2010 kl. 00:13

16 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæll Björn. Ég sé það núna á síðunni þinni að þú ert ekkert fyrir vinskapinn. Ég var einmitt að gera gangskör að því að fá á listann hjá mér þá sem ég les reglulega og hef ekki haft í sjónmáli á stjórnunarsíðunni.

kv.

Svanur Gísli Þorkelsson, 11.11.2010 kl. 00:23

17 Smámynd: Björn Birgisson

Svanur Gísli, þakka þér samt innilega fyrir boðið. Ég met það mikils, sem og þau skrif þín sem ég hef séð. Svona er nú bara minn stíll og sérviska, minn kæri! Veit að ýmsum fellur það illa í geð. Þannig verður þetta nú samt.

Björn Birgisson, 11.11.2010 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband